Þjóðviljinn - 23.10.1987, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Unglingalandslið
Glæsilegur endasprettur
Tryggði unglingalandsliðinu sigur yfir Tékkum
Það var frábær endasprettur
sem tryggði íslensku unglinga-
landsliðinu sigur yfir því tékk-
neska í gær, 28-21. Þegar tíu mín-
útur voru til leiksloka var staðan
16-16, en þá tóku íslensku strák-
arnir við sér, settu á fulla ferð og
unnu öruggan sigur.
Það byrjaði reyndar ekki vel
því Tékkar höfðu yfirhöndina
framan af og náðu um tíma
þriggja marka forskoti, 2-5. ís-
lendingar náðu að jafna um miðj-
an fyrri hálfleik, komust svo yfir
og í hálfleik var staðan 13-11, ís-
lendingum í vil,
Tékkar náðu að jafna strax í
upphafi síðari hálfleiks og var
jafnt á flestum tölum þartil stað-
an var 16-16. Þá tóku íslensku
strákarnir við sér og skoruðu
fimm mörk í röð. Eftir það var
aldrei spurning um hvorum
megin sigurinn hafnaði.
„Við vissum það fyrir leikinn
að þeir myndu taka Héðin mjög
stíft og við lögðum því mikla
áherslu á að hornamennirnir
stæðu sig og það gerðu þeir,“
sagði Friðrik Guðmundsson liðs-
stjóri íslenska liðsins í samtali við
Þjóðviljann í gær. „Það eina sem
við áttum í vandræðum með voru
dómararnir. Leikurinn var harð-
ur og þeir dæmdu á ýmislegt sem
ekki er dæmt á hér heima. Þetta
fór svolítið í skapið á strákunum
og þeir voru 16-18 mínútur utan
vallar. Við vorum því oft fjórir
eða fimm inná í einu.“
Liðið lék vel í gær. Konráð Ol-
avsson og Sigurður Sveinsson
voru sterkir í hornunum og þrátt
fyrir að Héðinn Gilsson væri tek-
inn úr umferð skoraði hann sex
mörk. Bergsveinn Bergsveinsson
varði vel þrátt fyrir meiðsli.
„Við vorum mjög ánægðir með
þennan leik. Strákarnir voru
undir mikilli pressu, en stóðu sig
mjögvelþegar mestáreyndi. Við
mætum V-Þjóðverjum á morgun
og ætlum okkur sigur í þeim leik.
Þeir sigruðu Norðmenn með fjór-
um mörkum og leikurinn er því
hreinn úrslitaleikur og við ætlum
okkur að vinna þetta mót. Við
vitum að Þjóðverjarnir eru með
gífurlega sterkt lið, en ég held við
eigum ágæta möguleika.
Það er komin svolítil þreyta í
mannskapinn. Við höfum æft á
morgnana og leikið á kvöldin, en
þessi ferð hefur gefið strákunum
mikla reynslu og kemur til með
að verða þeim dýrmæt.“
Mörk Islands: Konráð Olavs-
son 9, Sigurður Sveinsson 6,
Héðinn Gilsson 6, Júlíus Gunn-
arsson 2, Ólafur Kristjánsson 2,
Halldór Ingólfsson 2 oe Árni
Friðleifsson 1. -Ibe
Konráð Olavsson lék mjög vel í gær. Hér á hann í baráttu við Þjóðverja en
Islendingar mæta þeim í úrslitaleik.
Gubjón Skúlason lék mjög vel í gær og var stigahæstur Keflvíkinga.
Körfubolti
Ömggt hjá ÍBK
Keflvíkingar byrja vel í úrvals-
deildinni. Þeir sátu hjá í 1. umferð
og í gær unnu þeir öruggan sigur
yfir Haukum, 77-65, í Keflavík.
Keflvíkingar byr j uðu mj ög vel og
komu Haukum í opna skjöldu með
mikilli baráttu. Þeir náðu snemma
forystunni og héldu henni til leiks-
loka.
Það voru þó fyrstu mínúturnar í
síðari hálfleik sem réðu úrslitum.
Keflvíkingar náðu þá 20 stiga for-
Keflavík 22. október
ÍBK-Haukar 77-65 (35-25)
14-5, 22-19, 32-24, 35-25, 48-28
50-37, 61-49, 73-58, 77-65.
Stig ÍBK: Guöjón Skúlason 19, Sig-
urður Ingimundarson 14, Hreinn Þor-
kelsson 10, Axel Nikulásson 9, Magn-
ús Guðfinnsson 8, Jón Kr. Gíslason 8,
Falur Harðarson 7 og Matti Stefáns-
son2. Stig Hauka: PálmarSigurðs-
son25, Hennina Henningsson 14, Ivar
Webster 10, Tvar Ásgrímsson 10,
Ólafur Rafnsson 3 og I ngimar Jónsson
3.
Dómarar: Sigurður Valur Halldórs-
son og Bergur Steingrímsson - góðir.
Maður leiksins: Guðjón Skúlason
IBK.
skoti og þrátt fýrir að Haukar næðu
að saxa á það áttu þeir aldrei mögu-
leika á að jafna.
Keflvíkingar léku vel og liðsheild
þeirra mjög sterk. Guðjón Skúla-
son átti góðan leik og hitti vel, Jón
Kr. Gíslason stjórnaði sóknarleik
ÍBK og lék vel og Hreinn Þorkels-
son var sterkur í vöminni. Axel
Nikulásson og Magnús Guðfinns-
son léku vel, en þeir komu báðir frá
Bandaríkjunum í vor. Axel varð þó
að yfirgefa völlinn í upphafi síðari
hálfleiks með fimm villur.
Haukar notuðu fáa leikmenn og
þeir léku vel, en höfðu ekki nægi-
legt úthald til að standa í
Keflvíkingum. Pálmar Sigurðsson
átti góðan leik og hitti mjög vel,
skoraði m.a. fjórar þriggja stiga
körfur. Henning Henningsson lék
vel, en var á köflum full æstur. Þá
var ívar Webster sterkur að venju.
Leikurinn var nokkuð harður, en
engu að síður skemmtilegur.
Stemmningin var þó í daufara lagi
þrátt fyrir að fullt væri í húsinu.
-SÓM/SufSurnesjum
A-landslið
Alfreð ekki með
Nœr ekki ífyrsta leikinn gegn A-Þjóðverjum
Alfreð Gíslason mun ekki teika
með íslenska landsliðinu i hand-
knattleik gegn A-Þjóðverjum í
fyrsta leik liðsins í kvöld á fjög-
urra liða móti í Sviss.
Alfreð kemur ekki til Sviss fyrr
en á morgun, en mun að öllum
líkindum leika með liðinu gegn
Sviss og Austurríki.
Bjarni Guðmundsson mun
leika með liðinu, þrátt fyrir þrig-
gja mánaða bann. Bannið kemur
ekki til með að hafa áhrif á lands-
leiki.
fsland mætir Austur-Þýska-
landi í fyrsta leiknum í dag. Á
morgun mæta fslendingar gest-
gjöfunum, Svisslendingum og
síðasti leikurinn er svo á sunnu-
dag, gegn Austurríki.
Leikurinn í kvöld verður án efa
mjög erfiður. Austur-Þjóðverjar
hafa ávallt verið með mjög sterkt
landslið og lið þeirra tryggði sér
sæti á Olympíuleikunum, en eru
ekki í riðli með íslendingum.
fslendingar hafa sigrað í flest-
um leikjum sínum gegn Sviss og
Austurríki, en Svisslendingar
hafa gert sér góðar vonir um sigur
yfir íslendingum. Þeir hafa raðað
leikjum upp þannig að þeir mæta
Austur-Þjóðverjum í síðasta leik
og vonast til að það verði úrslita-
leikur mótsins.
Leikur íslands og Austur-
Handbolti
Litlar breytingar
Búið að setja á leiki 6. umferðar. Einum
leikflýtt
Búið er að ákveða hvenær leika
skuli 6. umferðina í 1. deild ís-
landsmótsins í handknattleik.
Umferðinni var eins og kunnugt
cr frestað vegna keppnisferða
landsliðanna, en hefur nú verið
sett á nokkrum dögum síðar.
Stjarnan og ÍR leika 27. októ-
ber og hefur ekki orðið nein
breyting á því. Leik Breiðabliks
og Víkings hefur verið flýtt um
einn dag og verður þann 29. októ-
ber.
Fram og Þór leika 30. október í
stað 28. og Valur og KR laugar-
daginn 31. október. KA og FH
leika svo síðasta leik umferðar-
innar, sunnudaginn 1. nóvember.
Leikir UBK og Víkings og
Fram og Þórs hefjast kl. 20,
leikur Stjörnunnar og fR kl.
21.15 og leikir KA og FH og Vals
og KR kl. 14. -Ibe
Evrópukeppni
Stórsigur Marseille
Franska liðið Marseille vann í
gær yflrburðasigur yflr Hadjuk
Split frá Júgóslavíu í Evrópukeppni
bikarhafa. Leikmenn Marseille
fóru á kostum og sigruðu 4-0.
Það var þó jafnt fyrstu 30 mínút-
urnar, en þá skoraði Jean Pierre
Papin fyrsta markið og braut ísinn.
Abdoulaye Diallo bætti öðru marki
við í upphafi síðari hálfleiks og
Klaus Allofs og Alain Giresse
skoruðu svo tvö mörk í lokin.
Þá var einn leikur í UEFA-
bikarnum. Victoria Bukarest frá
Rúmeníu sigraði Dynamo Tiblisi
frá Sovétríkjunum, 2-1.
-Ibe/Reuter
Föstudagur 23. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Þýskalands er í Olten og hefst kl.
19.30 að íslenskum tíma.
-Ibe
Blak
Hefst um
helgina
íslandsmótið í blaki hefst um
helgina og verður leikið bæði í 1.
deild karla og kvenna.
Átta lið taka þátt í 1. deild
karla, en keppnin verður með
öðru sniði en í fyrra. Leikin verð-
ur tvöföld umferð og að henni
lokinni halda fjögur efstu liðin
áfram og leika tvöfalda umferð
sín á milli. Þau fjögur lið sem eftir
eru leika hugsanlega um sæti, en
það hefur ekki verið ákveðið
enn.
í 1. deild kvenna eru sjö lið, en
eitt lið hefur bæst í hópinn síðan í
fyrra. Það er Þróttur frá Nes-
kaupstað. Fyrirkomulag verður
eins hjá konunum.
Um miðjan mánuðinn hefst
svo bikarkeppnin. -Ibe
íþróttir
I kvöld
í kvöld eru tveir leikir í Úrvals-
deildinni í körfuknattleik.
Þór og Valur mætast á Akur-
eyri og Breiðablik tekur á móti
Grindavík í íþróttahúsinu á
Digranesi.
Þá er einn leikur í 1. deild
karla. Skallagrímur tekur á móti
Tindastóli. Allir leikirnir hefjast
kl. 20.
í 2. deild karla í handknattleik
eru fjórir leikir. Reynir og
Haukar leika í Sandgerði, Fylkir
og Njarðvík í Seljaskóla, Aftur-
elding og Grótta á Varmá og ÍBV
og Selfoss í Vestmannaeyjum.
Allir leikirnir hefjast kl. 20.
Þá er landsleikur í handknatt-
leik á erlendri grund. íslenska
landsliðið mætir Austur-
Þjóðverjum í Sviss.