Þjóðviljinn - 08.11.1987, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 08.11.1987, Qupperneq 7
Eftir Arna Bergmann Lenín leggur hornstein aö minnisvarða unm Karl Marx: til hans er vitnað um að það kunni að vera nauðsynlegt að gera nýja byltingu til að festa Októberbyltinguna í sessi. Byltingin og scumðin í afmælisræðu Míkhaíls Gorbatsjovs jafnt sem ótal greinum og ræðum sem um þessar mundir eru skrifaðar í Sovétríkjunum um sjötugsaf- mæli Októberbyltingarinnar er eitt alveg á hreinu. Októ- berbyltingin, segja allir, er vafalaust mesti atburður ald- arinnar. Satt að segja munu ótal sagn- fræðingar og áhugamenn um þjóðfélagsmál taka undir við þetta mat - líka þeir sem annars hafa fátt gott um það að segja að bolsévikaflokkur Leníns tók völd í Pétursborg þ.ann sjöunda nóv- ember 1917. En þar með er líka upp talið það sem menn eru sam- mála um. Vonir og vonbrigði Annað er víst: engin tíðindi hafa vakið upp jafn sterkar vonir og þessi bylting. Síðan þá á heimurinn sér von, sagði þýska skáldið og kommúnistinn Bertolt Brecht. Allt vinstrið, hvort sem það kenndi sig við jafnaðar- stefnu, kommúnisma, anark- isma, margir róttækir borgarar, allir vonuðu að með öreigabylt- ingu í Rússlandi væri stórt skref stigið til þess góða samfélags þar sem einskis manns velferð er vol- æði hins, eins og skáldið kvað. Síðan komu tímar mikilla von- brigða - með samyrkjubú- skapinn, með Stalin og hreinsanir hans, með einstefnu í menningar- lífi, með misskiptingu lífsgæða og margt fleira. Vonbrigði sem Hvaða augum líta Sovétmenn sjólfir bylt- inguna og sögu þess samfélags semaf henni spratt? menn brugðust við ýmist með því að hengja sig fasta aftan í eitthvað sem þeir fundu sér til réttlætingar því ástandi sem skapast hafði í Sovétríkjunum eða með því að sveia öllu saman ogsnúa sér annað. Það komu líka tímar þegar vonirnar risu á ný, eins og eftir stríð þegar vegur Sovétríkjanna var mikill í hugum fólks eftir frækilegt framlag þeirra til sigursins yfir Hitler, eða upp úr ræðu Khrúsjovs á tuttug- asta flokksþinginu 1956, þegar menn héldu að hefjast mundi um- bótaskeið í efnahagslífi og mál- frelsi breiddi úr sér. Valdatími Brézhnévs, sem tók við þegar Khrusjov var steypt 1964, var svo tími stöðnunar og leiðinda fannst mönnum. Það var eins og ekkert gerðist lengur í Sovétríkjunum, æ færri lögðu sig fram um að fylgj- ast með tíðindum þar, ef þeir voru á vinstribuxum hlupu þeir heldur annað - til Kína eða ann- arra þriðjaheimslanda kannski. Og svo lifum við núna merkilegt skeið, kennt við perestrojku og glasnost, tímabil sem Gorbatsjov flokksleiðtogi vill gjarna kenna við byltingu og tengja beint við þá arfleifð djarfrar endurskoðun- ar allra gilda sem hann kennir við Lenín. Sovéskt sjálfsmat Á byltingarafmælum eru menn einatt með hugann við það, hvernig saga Sovétríkjanna hefur farið í þá sjálfa, hvaða ályktanir þeir vilja af henni draga. En ein- mitt á breytingaskeiði eins og því, OKTÓBERBYLTINGIN 70 ÁRA Sunnudagur 8. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.