Þjóðviljinn - 15.11.1987, Side 9
Umsjón
Hrafn
Jökulsson
Á hljóðum
stundum
Hörpuútgáfan hefur gefið út
ljóðabókina „Á hljóðum stund-
um“ eftir Óskar Þórðarson frá
Haga í Skorradal. Höfundurinn
er f. 1920 og fyrsta kvæði hans
birtist á prenti 1936, þegar hann
var aðeins 16 ára gamall.
í bókinni er safn af kvæðum og
stökum sem ort eru á 50 ára tíma-
bili (1936-1986). í formála segir
höfundur: „Kvæði mín og stökur
hafa sprottið fram nokkurn veg-
inn ósjálfrátt... Erfiðismaðurinn
sest niður að loknu dagsverki og
párar á blað sínar hugdettur...
Von mín er sú að þegar þetta
tómstundagaman mitt er komið
til lesenda, þá hafi þeir haft af því
nokkra ánægju.“
Bókin er 108 bls. Ljósmynd á
forsíðu er eftir Friðþjóf Helga-
son.
Farseðlar til
Argentínu
Farseðlar til Argentínu er smá-
sagnasafn með raunsönnum sög-
um með rómantískum bakgrunni
og gamansömuívafi. Manngerðir
og málefni samtímans í hnot-
skurn. Úttekt á samskiptareglum
einstaklinga og stétta í þjóðfélagi
þar sem refjar og kænska duga
stundum betur en einlægni og
heiðarleiki. Áhrifamikil og lit-
ríkur skáldskapur sem höfðar
beint til lesenda á líðandi stund.
(F réttatilkynning)
Saga
vestrœnnar
tónlistar
ísafoldarprentsmiðja hf. hefur
gefið út bókina Saga vestrænnar
tónlistar eftir Christopher Hea-
dington í þýðingu Jóns Ásgeirs-
sonar tónskálds. í bókinni rekur
höfundurinn þróun vestrænnar
tónlistar frá upphafi hennar í
fornöld og fram á okkar daga.
Hann ræðir um framlag allra
helstu tónskálda, margvísleg
tónlistarform, félagslega og pólit-
íska þætti sem haft hafa áhrif á
starfandi tónlistarmenn gegnum
aldirnar og rekur þróun hljóð-
færa. Fjölmörg tóndæmi eru not-
uð til að skýra textann auk þess
sem margar myndir prýða bók-
ina.
BÓKASÐAN
Reykholt - nýtt bókaforlag
Indriði, Steinn
og Jón Póll
Bókaútgófan Reykholtsettó
laggirnar. Meðal útgófubóka er
Steinn Steinarr, maðurinn og skóldið -
skróð af Sigfúsi Daðasyni
Ekki fækkar forlögunum. Fyrir
skömmu var stofnaö í Reykja-
vík nýtt útgáfufyrirtæki,
Reykholt hf. Stofnendurþess
eru eigendur Prenthússins,
Árni M. Björnsson og Reynir
H. Jóhannsson. Prenthúsiðer
ekki hvað síst þekkt fyrir þóka-
flokka um fíra á borð við Morg-
an Kane og svo auðvitað ís-
fólkið. Samkvæmtfréttatil-
kynningu mun Reykholtgera
útáönnurmiðog „hefurá
stefnuskrá sinni að gefa út
vandaðar íslenskar bækur,
bæði að efni og frágangi".
Fjórar bækur eru væntanlegar
frá Reykholti á næstunni, þar af
tvær skáldsögur eftir Indriða G.
Þorsteinsson. Önnur er gamal-
kunn og kvikmynduð, Land og
synir, og kemur nú í skólaútgáfu
sem Gunnar Stefánsson annast.
Hin skáldsagan er aftur splúnk-
uný og heitir „Keimur af sumri“
og er „tímamótaverk eins og
Sigfús Daðason hefur tekið saman bókina Steinn Steinarr - maðurinn og
skáldið. (Málverk eftir Baltazar).
önnur verk hans“ eftir því sem
stendur í fréttatilkynningu.
Maðurinn og skáldið Steinn
Steinarr sem skráð er af Sigfúsi
Daðasyni mun án efa vekja mikla
eftirtekt. M.a. eru í bókinni ljóð
og greinar sem ekki hafa áður
komið fyrir sjónir manna.
Síðast en ekki síst sendir
Reykholt frá sér bókina Jón Páll
sterkasti maður heims sem skráð
er af Jóni Óskari Sólnes. Að sögn
útgáfunnar er fyllilega tímabært
að út komi bók um þennan
frækna og vinsæla kappa, „sem í
hugum barna stendur jafnfætis
Superman, He-Man og Tarsan“.
Og þar höfum við það.
Aldrei fleiri
skóldsögur
Hótt í tuttugu
skóldsögur
á boðstólum
Útlit er fyrir að alltað tuttugu
nýjarskáldsögurverði íboði
nú fyrir jólin og er það snöggt-
um meira en nokkru sinni
áður. A.m.k. sjö höfundar
gefa nú út skáldsögu í fyrsta
skiþti.
Nýliðarnir á skáldsagnamark-
aðinum eru þó flestir hverjir
löngu kunnir af öðrum verkum;
Gyrðir Elíasson og Sjón eru í far-
arbroddi ungu skáldakynslóðar-
innar; Vigdís Grímsdóttir hefur
getið sér gott orð fyrir smásögur
og þau Nína Björk Árnadóttir og
Matthías Johannessen hafa fyrir
margt löngu skipað sér meðal
okkar bestu skálda. Bjarni
Guðnason er kunnur prófessor
sem hefur gengið til liðs við
skáldaflokkinn og mun áreiðan-
lega láta að sér kveða á þeim vett-
vangi sem annarsstaðar. Sjöundi
maðurinn er svo Tómas Davíðs-
Þorsteinn fró Hamri gefur út sagna-
þætti í bókinni Ætternisstapi og 18
vermenn.
gerða, skammaði for.eldra sína
fyrir smáborgarahátt og létu hár
sitt vaxa. f bókinni er þessi
samtímasaga rakin í fyrsta sinn á
íslenzku og er byggt á viðtölum
við fjölda manns sem hrærðust í
kviku þessara atburða, s.s. Rún-
ar Júlíusson, Rósku, Davíð
Oddsson, Bjarka Elíasson o.fl.
Fjöldi mynda frá atburðum og
mannlífi þessara ára er í bókinni.
„/ítternisstapi
og átján vermenn"
eru sagnaþættir eftir Þorstein
frá Hamri. Þættirnireru 19 talsins
og eiga nokkrir þeirra rót sína til
þáttasamfellna sem höfundur
bræddi saman á kvöldvökum í
ríkisútvarpinu. Höfundurinn
segiríformálam.a.: „Vettvangur
efnisins er mestan part gamall og
grár, en þegar ég fór að virða
þessi brot fyrir mér að nýju þótti
mér ekki örvænt að með þeim
leyndist líf - að minnsta kosti líf
þeirrar ættar er vér nefnum sögu,
stundum þjóðsögu, og verður
aldrei skilið né meðhöndlað
öðruvísi en í nánum tengslum við
líf draumsins, sem víða fyllir upp í
skuggsæl skörð“. Bókin er 192
bls. að meðtalinni vandaðri
nafna- og heimildaskrá.
„Ég vil lifa“
inniheldur sjö samtalsþætti
Guðmundar Árna Stefánssonar
og Önundar Björnssonar við fólk
sem staðið hefur augliti til auglitis
við dauðann og háð æsispennandi
lífsbaráttu með sigri. Þetta er
þriðja útgáfa bókarinnar, en fyrri
tvær útgáfurnar seldust algjör-
lega upp á skömmum tíma. Sam-
talsþættirnir eru hispurslausir og
opinskáir, mannlegir en þó
grimmilegir - allt í senn. Bókin er
207 blaðsíður myndskreytt.
„Lán í óláni“
er sérstæð og óvenjulega
skemmtilega skrifuð og opinská
sjálfsævisaga hins kunna og dul-
arfulla brezka leikara Sir Alec
Guinness. Hann hefur lifað
stormasömu lífi og telur að ör-
laganornir hafi spunnið honum
þann vef, sem hann hefur verið
flæktur í, hvort sem honum líkaði
betur eða verr. Bókin kom út á
síðustu dögum fyrir síðustu jól og
vakti mikla eftirtekt og athygli,
en er nú markaðssett á ný því
margir vilja eignast þessa perlu
meðal sjálfsævisagna.
Takn:
Njósnir,
68-kynslóðin
og sagnaþœttir
Bókaútgáfan Tákn verður
með fimm bækur á jólabóka-
markaði ársins og koma þær
út á næstu dögum hver af
annarri. Bækurnareru:
„Gagnnjósnarinn" eftir Peter
Wright, sem áfrummálinu
heitir„Spycatcher“, „’68-
hugarflug úrviðjum vanans"
eftir Gest Guðmundsson og
Kristínu Ólafsdóttur, „Ættern-
isstapi og átján vermenn” eftir
ÞorsteinfráHamri, „Égvil
lifa“ í samantekt Guðmundar
Áma Stefánssonar og Ön-
undarBjörnssonarog „Lání
óláni“ sjálfsævisögu hins
heimsfræga leikara Sir Alec
Guinness.
„Gagnnjósnarinn"
Fáar bækur hafa á seinni árum
hlotið þvílíkar móttökur, sem
ævisaga breska leyniþjónustu-
mannsins Peters Wright, „Spy-
catcher“. Hún var bönnuð í Bret-
landi, heimalandi höfundar og
bresku samveldislöndunum, en
bandaríska útgáfan verið seld þar
með leynd í hundruð þúsundum
eintaka. í bókinni greinir Peter
Wright undanbragðalaust frá
starfsaðferðum bresku leyni-
þjónustunnar um tveggja áratuga
skeið frá 1956-76. Söguefnið er
að miklu leyti óþekkt, en fjallað
er um fjölda atburða, sem brydd-
að hefur verið á í heimsfréttun-
um. Höfundurinn rannsakaði
frægustu njósnamál síðari ára t.d.
þeirra Blunts, Philbys, Mcleans
og Burgess og í bókinni varpar
hann sögulegu ljósi á uppruna
„Cambridge“njósnaranna er áttu
stóran hlut í að gera Sovétríkin að
því veldi sem þau nú eru.
„’68 - hugarflug
úr viðjum vanans”
eftir Gest Guðmundsson og
Kristínu Ólafsdóttur er samtíðar-
saga þeirrar æskukynslóðar hér á
landi, sem braust til sjálfstæðis og
sleit af sér alla oka í kjölfar
þeirrar æskubyltingar sem varð í
Evrópu með bítlatónlist og Karn-
abæjartísku. Erlendis hneigðist
hluti æskufólks til mótmælaað-
Bókavertíðin:
Auður Haralds, Ntna Björk og Vlgdfs Grímsdóttlr eru í hópi þeirra sem gefa út skáldsögur fyrir jólin.
son - huldumaðurinn sem enginn
veit hver er. Ekki er ætlunin að
upp um hann komist, en hætt er
við að böndin berist fljótlega að
einhverjum fjölmiðlamönnum...
Gunnlaðarsaga Svövu Jakobs-
dóttur er ein af fáum skáldsögum
sem þegar eru komnar út, en
skáldkonur verða býsna áberandi
þetta árið. Auk þeirra sem þegar
hafa verið nefndar koma út
bækur eftir Auði Haralds og Álf-
rúnu Gunnlaugsdóttur. Eins og
kemur fram annarsstaðar á þess-
ari síðu er væntanleg ný skáld-
saga eftir Indriða G. Þorsteins-
son, svo og Stefán Júlíusson,
Ómar Þ. Halldórsson og Kristján
Jóhann Jónsson. Aldursforseti
skáldsagnahöfunda þessarar
vertíðar er enginn annar en Guð-
mundur Daníelsson sem líklega
hefur skrifað jafnmargar skáld-
sögur og allir hinir höfundarnir
samanlagt.
Sunnudagur 15. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9