Þjóðviljinn - 15.11.1987, Blaðsíða 18
BRIDGE
. KROSSGÁTA Nr. 593
T
T— 5— J— T~ 5 (s> ? 8— V 9 £ y V 11 \2
il /? !s> ? 3 )£ 6 )/ )(d (l IT 18 h
n 20 n Ift 18 V 2/ 1T )2 V 2? 23 0 10 W~ w
líT ii )# 1 )b V !!*> s? 17- H V II JT W~
S? 2/ $ k> y 23 11 (p 20 11 /? H, )b V u
23 )T (e 2S i? ’íl ? )H W 18 )£ 12 T 12 )í
(o Zé> 6 )8 3 ) )8 )£ 2/ T )t 2
V 2? £ 28 n 23 (o Qp b 2( /£' ))
10 23 )H /I 20 2Ý £ ig V )H b )9 ib
y /I )8 21 8 T 1£ b )£ 28 b S? 17-
23 6? )i 13 l£ y IT n 13' V IS & n
H /le> W s )é> T 23 3 s? ir /£ 13 '"V' V 30
' V' 'vl )<> )H (d T 3 £ (p 22 s 7- >1 H (s>
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Stafimir mynda islenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir I allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá íslenskt nafn á þekktri
skáldsögu. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðu-
múla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 593“. Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
28 13 yt 12 20 6 n
Axel Nikulásson, Ásabraut 14, Kefla-
vík fékk verðlaun fyrir krossgátu núm-
er 590. Lykilorðið var Bernharður.
Hann fær senda bókina Konur fyrir
rétti eftir Jón Óskar.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að
þessu sinni eru Úr sálarkirnunni eftir
Málfríði Einarsdóttur. Ljóðhús gaf út.
Brídge ◦
skjánum
Um næstu helgi mun Ríkissjón-
varpið, Stöð 1, taka upp þátt með
fjórum sveitum skipuðum bridgespil-
urum. Heyrst hefur að sveitirnar séu:
Sveit Flugleiða, Sveit Pólaris, Sveit
Verðbréfamarkaðar Iðnaðarbankans
og Sveit Guðmundar Sveinssonar all-
ar frá Bridgefélagi Reykjavíkur, enda
hefur það félag staðið að gerð þessa
þáttar í samvinnu við sjónvarpið. Út-
sendingartími þáttarins mun vera
hugsaður milli jóla og áramóta. Ekki
þarf að fara mörgum orðum um þetta
framtak Krummanna. Eitt prik fyrir
Stöð 1.
Guðmundur Pálsson og Pálmi
Kristmannsson á Egilsstöðum urðu
austurlandsmeistarar í tvímenning, í
keppni eystra um síðustu helgi. Alls
tóku 36 pör þátt í mótinu.
Suðurlandsmótið í sveitakeppni
hófst í gærkvöldi á Hótel Örk í Hver-
agerði. 12 sveitir taka þátt í mótinu og
spila allir v/alla. Spilamennsku lýkur í
kvöld.
Stofnanakeppni Bridgesambands
íslands, fyrirtæki/félög, verður háð
um næstu helgi. Skráning stendur yfir
hjá BSÍ í síma 68 93 60. Öllum er
heimil þátttaka.
Undanrásir Reykjavíkurmótsins í
tvímenning verða spilaðar síðustu
helgi í nóvember. Skráning stendur
yfir í félögunum og einnig á skrifstofu
BSÍ. Einnig hefur verið dregið í 2.
umferð Bikarkeppni Reykjavíkur.
Eftirtaldar sveitir mætast:
Sveit Atlantik gegn sveit Verðbréf-
amarkaðar Iðnaðarbankans.
Samvinnuferðir/Sveinn Eiríksson
gegn sveit Delta.
Sveit Pólaris gegn Jóni Þorvarðar-
syni
Bragi Hauksson gegn Esther Jak-
obsdóttur.
Opna Sandgerðismótið er spilað í
dag. Alls taka 32 pör þátt í mótinu,
sem er með barometer-sniði. Spila-
mennska hefst kl. 10. Spilað er í sam-
komuhúsinu.
Úrslit liggja fyrir í Landsbikar-
keppni Bridgesambands fslaqds. Sig-
urvegarar urðu þeir Óskar Karlsson
og Þorsteinn Þorsteinsson frá Bri-
dgefélagi Hafnarfjarðar, báðir vel
þekktir spilarar til fjölda ára. í 2. sæti
urðu svo Hilmar Rósmundsson og
Sigurgeir Kristjánsson frá Vest-
mannaeyjum, einnig vel þekktir spil-
arar til fjölda ára og í 3. sæti María
Ásmundsdóttir og Steindór Ingi-
mundarson, hjón úr Bridgefélagi
Breiðholts. Alls tóku 333 pör þátt í
keppninni, sem er umtalsverð
aukning frá síðasta ári.
Bridgesamband íslands hefur
dreift kynningarbæklingi varðandi
Bridgehátíð 1988. f honum kemur
fram, að verðlaunafé hefur verið
hækkað í 10.000 US-dali og sem fyrr
verði hátíðinni tvískipt, í tvímenning
48 para og Opna sveitakeppni (7
leikir).
Bridgehátíðin verður á Hótel Loft-
leiðum dagana 12.-15. febrúar. Ekki
hefur enn verið ákveðið hvernig stað-
ið verður að vali innlendra þátttak-
enda og eru uppi ýmsar hugmyndir.
Ein er sú að BSÍ velji t.d. 10 pör og
keppt yrði um þau sæti sem þá væru til
ráðstöfunar (talað um 21 íslenskt par
af 48, lágmark). Annars má búast við
að þessi mál skýrist fljótlega.
Næsta meistarastigaskrá kemur út í
janúar. Fyrir 1. desember verða
félögin/svæðasambönd, að hafa sent
inn stig til skráningar, eigi þau að ná í
skrána.
Bikarkeppni Norðurlands, bæði
svæðin, er hafin. 22 sveitir taka þátt í
keppninni. Dregið hefur verið í 1. og
2. umferð. (Sjá Dag á Akureyri.)
Uppi eru hugmyndir hjá stjórn
Bridgesambandsins að nýta föstu-
dagskvöldin í Sigtúni til upplýsinga-
starfa og kynningarstarfa innan
hreyfingarinnar. Ýmsir möguleikar
eru á nýtingunni. Keppnisstjóranám-
skeið, landsliðsmálefni, spilaæfingar
á töflu undir leiðsögn úrvalsspilara,
hópumræður um markmið keppnis-
spilarans og byrjendafræðslu o.fl.
SKÝRT OG SMOHtOBT
að gefnu tilefni
vil ég undirritaður, snati, taka fram að ég skrifa ekkert að þessu
sinni, ég hef komist að þeirri niðurstöðu að tíma mínum sé betur
varið í skóldsagnalestur.
p.s. ef einhver heldur að ég sé í fýlu, þó er
það misskilningur.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. nóvember 1987