Þjóðviljinn - 15.11.1987, Blaðsíða 19
Steinitz. Fyrsti opinberi heimsmeist-
arinn.
Max Euwe. Slys að hann varð heims-
meistari.
Tal. Töframaðurinn var aðeins
heimsmeistari í eitt ár.
Spassky. „Heimsmaðurinn" sem Karpov. Smjöri hélt titlinum lengur
tapaði titlinum í „einvígi aldarinnar". en flestir aðrir.
Annað ár, annað hár
Nokkrir punktar úr sögu heimsmeistaratitilsins í skák
Árið 1973 kom út hjá David
McKay forlaginu í New York
bók með hinum virðulega titli:
Bobby Fischer’s Conquest of
the World’s Chess Champi-
onship, undirtitill: The
Psychology and Tactics of the
Title Match. Höfundur er Reu-
ben Fine, Ph.D., alþjóðlegur
stórmeistari í skák.
Þetta er hin athyglisverðasta
bók sem hefst á hundrað síðna
inngangi að tvö hundruð bls.
skákskýringum á „einvígi aldar-
innar“ sem haldið var í Reykjavík
1972 sællar minningar. Reuben
Fine var náttúrlega á staðnum-
þegar það fór fram en hann er í
dag eitthvað kominn yfir sjötugt
og var á sínum tíma mjög nærri
æðstu metorðum skáklistarinnar
þegar hann hætti virkri tafl-
mennsku og sneri sér að sálfræði.
Svo nálægt heimsmeistaranum
komst Fine að í Hollandi 1938
þegar FIDE ákvað að velja á-
Guðmundur j
Þorsteinsson
skrifar
skoranda Aljekíns og mót var
haldið með átta sterkustu skák-
mönnum sem þá voru uppi: Alj-
ekín, Capablanca, Botvinnik,
Euwe, Fine, Flohr, Keres og
Reshevsky, þá urðu Fine og Ker-
es jafnir og efstir og hefðu því átt
að heyja einvígi um áskoranda-
réttinn en úr því varð aldrei.
Seinni heimsstyrjöldin batt enda
á alþjóðleg skákmót um sinn og
þegar þráðinn átti að taka upp á
ný eftir stríð féll Aljekín frá og í
fyrsta sinn í áttatíu ár var enginn
heimsmeistari í skák. Loksins
árið 1948 var haldið mót um
heimsmeistaratitilinn með fimm
þátttakendum, þar af þremur So-
vétmönnum. Leiddu þar saman
hesta sína Botvinnik, Keres,
Smyslov, Euwe og Reshevsky.
Botvinnik sigraði með yfirburð-
um.
Saga heimsmeistaratitilsins í
skák er óljós fyrir árið 1866 þegar
Steinitz varð fyrstur til að bera
nafnbótina opinberlega með
réttu. Sterkustu skákmenn þar
áður voru þó ótvírætt í þessari
röð, Howard Stanton, Adolf
Anderssen og Paul Morphy.
Englendingur, Þjóðverji og
Bandaríkjamaður. En ef 1866 er
talið upphafsár heimsmeistaratit-
ilsins, þegar Steinitz sigrar
Anderssen í einvígi, þá eru
heimsmeistarar eftirtaldir:
Fischer. Braut upp fmynd heimsmeistarans.
Steinitz 1866-1894, Lasker 1894-
1921, Capablanca 1921-1927,
Aljekín 1927-1935 og 1937-1946,
Euwe 1935-1937, heimsmeistara-
laust árin 1946-1948 en Fine og
Keres kandídatar, Botvinnik
1948-1957, 1958-1960 og 1961-
1963, Smyslov 1957-1958, Tal
1960-1961, Petrosjan 1963-1969,
Spassky 1969-1972, Fischer 1972-
1975, Karpov 1975-1985 og Kasp-
arov 1985-?
Þarna liggur mikil saga enda,
margar bækur um hana skrifaðar.
Allt eru þetta miklir skákmeistar-
ar og allur samanburður á styrk-
leika þeirra hinn hæpnasti, enda
reglum um þetta blessaða
heimsmeistaraeinvígi breytt hvað
eftir annað gegnum tíðina. Fine
vill þó endilega flokka þá niður í
framúrskarandi séní annars vegar
og minni spámenn hins vegar og
telur séníin vera Steinitz, Lasker,
Capablanka, Aljekín, Botvinnik
og Fischer. Aumingja Petrosjan
telur hann lakasta heimsmeistara
sem á stóli hafi setið. Núverandi
meistarar þeir Karpov og Kasp-
arov voru ekki farnir að láta ljós
sitt skína að ráði þegar bók þessi
var skrifuð 1973 (ef frá er talið
stórmót sem Karpov sigraði
1972), en eflaust fengju þeir að
fylla betri flokkinn í ljósi síðari
afreka sinna. En margt verður að
hafa í huga þegar rætt er um
sterkustu skákmenn síðustu 100
ára í sömu andrá. Þróunin þarna
er í átt til hinnar algjöru sérhæf-
ingar eins og í öðru og nokkru
fyrir daga Fischers voru flestir
sterkustu skákmeistararnir orðn-
ir fullkomnir atvinnumenn. Svo
var ekki í gamla daga. Anders-
sen, Lasker og Euwe voru stærð-
fræðingar, Botvinnik er raf-
magnsverkfræðingur, Ruy Lopez
er prestur (eins og séra Lombar-
dy hinn bandaríski), Capablanca
lagði stund á verkfræði þótt
seinna helgaði hann sig skáklist-
inni einvörðungu. Philidor var
tónlistarmaður, Zukertort og
Tarrascs voru læknar, Tartakow-
er ljóðskáld, Taimanov er kons-
ertpíanisti og einhvern tíma hefur
Portisch tekið lagið svo unun var
á að hlýða. Bókarhöfundur R.
Fine sneri sér að sálfræði eins og
áður er getið.
Bókin fjallar svo að sjálfsögðu
mest um þá Fischer og Spassky og
viðureign þeirra í Reykjavík. Um
þá atburði hefur svo oft og víða
verið fjallað að ekki ætla ég að
bera þarí bakkafullan lækinn. En
hiklaust má mæla með bókinni
fyrir skákáhugamenn því fyrir
utan það hversu höfundur er ó-
hlutlægur í dómum sínum, skrifar
hann skemmtilegan stíl svo að úr
verður dálítið óvenjuleg
skákbók. Fróðlegar eru lýsingar
á æsku og uppvexti Fischers og
ferli hans upp á hátindinn og ekki
er laust við að maður finni til með
þessum ógæfusama snillingi í ein-
semd sinni.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Kasparov og Smyslov. Æskan og ellin. Smyslov hefur aldrei verið talinn í hópi
merkari heimsmeistara, enda hélt hann titlinum ekki lengi.
Kápur
í stórum stærðum!
KAPGSALAN
BORGARTÖMl 22
SÍMl 23509
Mæg bílastæði
AKGREYRI
HAFMARSTRÆTI 88
SÍMl 96-25250___ s
Nr. 8751
Verð kr. 12.300,-
Nr. 8752
Verð kr. 11.200.-