Þjóðviljinn - 13.12.1987, Blaðsíða 3
Fráleilt að fara
effir gömlu
braularteinunum
Spjallað við Kristján Jóhann Jónsson um
nýútkomna skálósögu hans, Unáir hútu
tollarans
Fyrir skömmu kom út hjá
Iðunni önnur skáldsaga Krist-
jáns Jóhanns Jónssonar,
Undir húfu tollarans. Hann
kvaddi sérfyrst hljóðs með
skáldsögunni Haustið er rautt
árið 1981 og er óhætt að
segja að fá byrjendaverk hafi
vakiðjafn miklardeilur.
Nokkru eftir að sú bók kom út
fluttist Kristján til Noregs og
hefursíðustu þrjú árin helgað
sig að mestu nýju bókinni.
Kápan á Undir húfu tollarans
minnir einna helst á umbúðir utan
um elœpasögu. Er þetta reyfari?
„Eg hef verið spurður að
þessu, sérstaklega af fólki sem er
Hvalasagan
flýgur
Hvalveiðar á íslandi 1600-1939
heitir ein nýrra bóka á árinu, og
fjallar Trausti Einarsson þar um
hvalveiðar við íslandsstrendur í
fyrsta sagnfræðilegu yfirlitsriti
um þau efni hér og erlendis.
Trausti hefur rannsakað gögn um
þessar veiðar víða í Evrópu, enda
koma við sögu Baskar spænskir
og franskir, Norðmenn, Kanar,
Danir og fleiri, auk hvalanna.
Einsog íslendingar vita gerst hef-
ur áhugi vaxið mjög á hval-
veiðum og hvalvernd í um-
heiminum síðari árin - og hvala-
saga Trausta vakið það mikla at-
hygli að hann skrifaði um daginn
undir útgáfusamning við há-
skólaforlagið í öðrum virtasta
skólabæ Bretlands, Cambridge
University Press, sem hefur útibú
í flestum enskumælandi löndum.
Mikill heiður fyrir Trausta. í
ensku útgáfunni verður nýr kafli
um hvalveiðar íslendinga frá
1948 þar sem meðal annars verð-
ur rakin rysjótt hvalveiðisaga síð-
ustu missera...
búið að lesa bókina og finnst hún
satt að segja lítið skyld venju-
legum glæpasögum. En kápan er
ekkert svindl. Bókin er dálítið
sérstök að því leyti að þetta efni
er notað með allt öðrum hætti en
oftast tíðkast. í hefðbundnum
glæpasögum eru glæpirnir í for-
grunni og síðan snýst bókin um
þá eingöngu. Ég gerði það af
skömmum mínum að nota glæp-
inn til að setja af stað atburðarás í
allt aðra sögu.
Þegar ég skrifaði bókina lagði
ég mikið á mig svo ekki væri hægt
að troða henni í einhverja skúffu;
hvort heldur fyrir glæpi, ást,
spennu eða eitthvað annað.“
- Ertu þá kannski búinn að
smíða nýja skúffu?
„Það er nú eiginlega ekki í mín-
um verkahring að segja til um
það. En ef maður ætlar að gera
eitthvað nýtt, þá má hann vita-
skuld ekki fara eftir gömlu
brautarteinunum. Ég reyndi að
finna sögunni eðlilega framvindu
og komast út úr gömlu klisjun-
um. Nú orðið þurfa allar bækur
að vera um eitthvað sérstakt,
glæpi, dauða, ást o.s.frv. Og fyrir
vikið verður ástin t.d. eins og
hvert annað fyrirtæki úti í bæ en
ekki partur af mannlífinu.
Að sumu leyti finnst mér að
mér hafi tekist ætlunarverk mitt:
Ég sé að sumir gagnrýnendur eru
ergilegir af því að þeir finna mig
ekki í spjaldskránni! En ég held
að þeir sem hafa áhuga á ein-
hverju nýju kunni að meta þessa
sögu. Mér fannst alveg ástæðu-
laust að endurtaka það sem gert
hefur verið ótal sinnum áður.“
- Sumum gagnrýnendum finnst
líka að þú farir heldur hraklega
..sumir hafa talað um ómannúðlega meðferð á sögupersónum." (Ljósm.: Atli)
með sögupersónurnar þínar. Er
þér eitthvað illa við þcer?
„Já, það er rétt hjá þér, sumir
hafa talað um ómannúðlega með-
ferð á sögupersónunum. Eg á erf-
itt með að skilja þessa fullyrð-
ingu, því auðvitað þykir mér vænt
um persónurnar. En ég held að
þetta sé hluti af talsvert stærra
máli. Það er hvernig fóik okkur
þykir vænt um - og hvernig okkur
þykir vænt um það. Ef ég segi frá
mönnum með bresti, þá stökkva
gagnrýnendur upp til handa og
fóta og kvarta yfir vondri með-
ferð á sögupersónum! En málið
er ákaflega einfalt. Ég er að segja
frá fólki - og það er enginn
fullkominn."
- Svo ég haldi áfram að vitna í
gagnrýnendur, þá virðist sem
sumum þeirra hafi þótt torvelt að
glöggva sig á bókinni afþvípersón-
urnar eru svo margar og svo mikið
að gerst. Er hún ofhlaðin?
„Það er auðvitað alltaf mats-
atriði hvort ein bók er ofhlaðin
eða ekki. Fyrir suma er þessi bók
kannski um of margt. En í því
sambandi er vert að víkja aðeins
að mínum vinnubrögðum. Þegar
ég lauk við handritið samdi ég við
sex menn á öllum aldri, af báðum
kynjum og með mismunandi
menntun, um að lesa bókina og
vera heiðarleg við mig í hvívetna.
Þessi tilraun tókst mjög vel. Og
þetta var ekki vandamál sem kom
upp hjá þeim.
Metsölulisti Sunnudagsblaðsins
1. Ný hugsun, ný von.............Mikhail Gorbatsjov/lðunn
2. Helsprengjan....................Alistair MacLean/lðunn
3. Uppgjörkonu.........................HallaLinker/lðunn
4. Gunnlaðarsaga..............Svava Jakobsdóttir/Forlagið
5. Ásta grasalæknir.........Atli Magnússon/Örn og Örlygur
6. Á besta aldri Jóhanna Sveinsd. og Þuríður Pálsd./Forlagið
7. í aðalhlutverki....SiljaAðalsteinsdóttir/Málogmenning
8. Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur III....Örn og örlygur
9. Hús andanna..............Isabel Allende/Mál og menning
10. Móðir Kona Meyja..........Nína Björk Árnadóttir/Forlagið
Mér er persónulega frekar
hlýtt til gagnrýnenda og við verð-
um að hafa í huga hvernig þetta
fólk þarf að vinna. Það þarf að
lesa mikið og lesa hratt. Ég er
ekki frá því að sumum þeirra hafi
skrikað fótur þegar þeir komu að
bókinni minni, vegna þess hversu
erfitt er að setja hana í einhvern
sérstakan bás. En ef skáldsaga er
góð og vel unnin, - eins og mér
finnst að sjálfsögðu að mín bók sé
- þá stendur hún alveg fyrir sínu
upp á eigin spýtur. Og ég fyrir
mitt leyti verð að koma þeim
upplýsingum um hana á framfæri
sem ég tel réttastar.
Annars er ég orðinn býsna sjó-
aður í þessu þrátt fyrir að ég hafi
aðeins skrifað tvær bækur. Það
var ákaflega skrítin reynsla þegar
fyrsta bókin mín kom út, að
verða vitni að svo gífurlegu
fjaðrafoki. Ýmist voru menn fox-
illir eða hæstánægðir og stóðu í
ritdeilum lengi á eftir.“
- Nú er við hœfi að spyrja: Um
hvað er þessi bók, Undir húfu
tollarans?
„Þar kemurðu með eina af
þeim spurningum sem ég hef
samviskusamlega skotið mér
undan að svara! Mér finnst alveg
fráleitt þegar bókum er pakkað
saman í dálítinn böggul af lýsing-
arorðum, eins konar vasaútgáf-
ur ..."
- Viltu samt gjöra svo vel?
„Þetta eru í raun og veru tvær
sögur. Það er lítil saga um sögu-
manninn sjálfan og hann segir
síðan stóru söguna. Hann neyðist
til þess að horfast í augu við að
konan hans heldur að hún sé jafn-
merkileg og hann. Það finnst
honum að sjálfsögðu hið versta
mál! Þau búa austur á fjörðum og
okkar maður fer auðvitað þaðan
eftir þessa uppgötvun. Ætlar í
fermingarveislu systurdóttur
sinnar í Reykjavík - en þangað
fer hann að sjálfsögðu ekki. Hins
vegar gerir hann harðsækna til-
raun til að komast á kvennafar.
Og á einu kvöldi kynnist hann
bæði ástinni og dauðanum - og
þarna slær sögunum saman,
þeirri litlu og þeirri stóru. Tollar-
inn segir okkur sögu sem fjallar í
meginatriðum um fimm karl-
menn. En nú er ég eiginlega bú-
inn að segja þér allt of mikið - og
nú færðu ekki að vita meira um
söguna.“
-þj-
Sunnudagur 13. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Akureyri
Grafík í Glugganum
Samsýning tíu myndlistarmanna úr íslenskri grafík
Þann 12. desembervaropn-
uð í Glugganum, Glerárgötu
34, sýning 10 félaga úr Is-
lenskri grafík. Á sýningunni
eru á fjórða tug grafíkverka
sem gefa góða mynd af því
sem íslenskirgrafíklistamenn
eru að fást við um þessar
mundir.
Eftirtaldir listamenn eiga verk
á sýningunni: Aðalheiður Skarp-
héðinsdóttir, Björg Þor-
steinsdóttir, Daði Guðbjörns-
son, Guðmundur Ármann Sig-
urjónsonn, Jón Reykdal, Ragn-
heiður Jónsdóttir, Sigrún Eld-
járn, Valgerður Hauksdóttir,
Þórður Hall og Örn Þorsteins-
son.
Sýningin verður opin fram á
næsta sunnudag, 20. desember
frá klukkan 14 til 20, alla daga
nema á mánudaginn.