Þjóðviljinn - 13.12.1987, Síða 5
ákvörðunum sveitarstjórnar-
manna. Með allri virðingu fyrir
þeim; þetta er of mikil óvissa.
Ráðherrar og þingmenn þurfa að
gera það upp við sig hvort þeir
vilja mennta þjóðina í tónlist og
telja þar með að það tilheyri al-
mennri menntun. Ef ekki, þá
auðvitað burt með þetta. Annars
verður að standa að þessu með
ríkið að bakhjarli og það verður
að bera ábyrgð á þessum þaetti
menntamála, þótt sveitarstjómir
komi þar vitaskuld einnig við
sögu.
Blm: Málefni tónlistarskóla virð-
ast ekki hafa verið á borði ráð-
herra þegar þeir voru að endur-
skoða fjárlagafrumvarpið um síð-
ustu helgi. Sumir hafa látið sér
detta í hug að þetta yrði sam-
þykkt nú en kippt síðan aftur til
baka með vorinu. Að tíminn sé
nægur þar til næsta skólaár hefst
að hausti.
Örn: Það eru ekki eðlileg vinnu-
brögð að hætta fyrst fjárhags-
legum stuðningi og síðan að at-
huga hvort eigi að gera það eða
ekki. Menntamálaráðherra segist
að vísu ætla að leggja fram frum-
varp að lögum um tónlistarskóla
en væri ekki eðlilegra að setja
fyrst lög um skólana og athuga
síðan hvort sveitarstjórnir hafi
áhuga á að starfrækja þá sam-
kvæmt þeim?
Ásrún: Skólarnir þurfa að ráða
sér starfsfólk með nægum fyrir-
vara. Mér sýnist að til öryggis
þurfi skólarnir nú að segja upp
öllum kennurum sínum til að sitja
ekki uppi með þá verkefnalausa
næsta vetur.
Blm: Margir óttast að námsgjöld
hækki þegar fjárstuðningur ríkis-
ins hefur verið skorinn niður.
Hvað eru þau
Ásrén: Þao er mjög misfafnt en
námsgjöldin eiga ekki að hækka
ef sveitarfélögin taka á sig bæði
sinn hluta og hluta ríkisins. í
langflestum skólanna standa
námsgjöld nú undir rekstrar-
kostnaði öðrum en launum.
Soffía: Ég get ekki séð annað en
skólarnir dragi meira og minna
saman seglin.
Ásrún: Þegar Söngskólinn var
stofnaður 1973 voru í gildi lög frá
1963 um þriðjungaskipti, kostn-
aður átti að skiptast jafnt milli
nemenda, ríkis og sveitarfélaga.
Það var mikill barningur, menn
biðu vikum og mánuðum saman
eftir launum. Ástandið gjör-
breyttist 1975 þegar lögum var
breytt þannig að ríkið greiddi
50% launa, a.m.k. hefur verið til
fyrir launum, þótt vantað hafi
peninga í annað, eins og hljóð-
færakaup o.fl. '
Blm: Undirskriftasöfnun, þar
sem andmælt er áformum um að
fella niður ríkisstyrk til tónlistar-
skóla, á hverra vegum er hún?
Örn: Samtaka skólastjóra í tón-
listarskólum. Fyrirhugað er að
safna jafnmörgum undirskriftum
og nemendur eru í skólunum,
þ.e.a.s. á níunda þúsund en
binda það við þá aðstandendur
sem orðnir eru 18 ára.
Blm: Það er ekki farið út í að
safna undirskriftum t.d. í stór-
mörkuðum eða á öðrum fjöl-
mennum stöðum. Var kannski
ekki talið að almenningur vissi
nóg um hvað væri að gerast?
Soffía: Almenningur? Eg verð nú
að segja að ég er hissa á því hvað
þessi umræða kemur flatt upp á
marga kennara, þó er langt síðan
menn fóru fyrst að ýja að þessu
og auðséð hefur verið hvert átti
að stefna.
Viaítttegar'væri að hefja
almenna undirskrífUsöfnua því
að almenningur lætur sig tón-
listarskólana varða. Það er t.d.
ekki óalgengt að menn spyrjist
fyrir um tónlistarskóla áður en
þeir taka ákvörðun um að flytjast
búferlum. Fólk vill að börn þess
eigi kost á tónlistarnámi.
Örn: Auðvitað má hugsa sér að
sveitarfélög komi til með að sjá
mjög vel um tónlistarskólana en
það breytir því ekki að tónlistar-
skólar eiga að heyra undir al-
menna stjórn menntamála.
Ásrún: 1 því sambandi má minna
á þá miklu vinnu sem til skamms
tíma fór fram í gerð námsskrár
fyrir tónlistarnám.
Soffía: Já, en svo var hægt á þeirri
vinnu og hún stöðvuð í mennta-
málaráðuneytinu 1984. Síðan þá
hefur þessi. námsskrárvinna því
miður staðið föst.
Ásrún: í dag þurfa skólarnir að
senda skýrslur til mennta-
málaráðuneytis og það hefur
nokkurs konar eftirlit með starf-
inu og gætir samræmingar.
Soffía: Já, þess er gætt að skól-
arnir séu sem líkastir hvað náms-
efni og kröfur snertir. Með boð-
uðum breytingum og nýju fyrir-
komulagi er verið að kippa undir-
stöðunum undan tónmennt. Vítt
og breitt um landið kemst fólk nú
í viðurkennt tónlistarnám sem
það ætti engan kost á ef ekki væru
tónlistarskólarnir.
Örn: Svo er talað um að nú eigi
að setja lög um tónlistarháskóla.
Það er dálítið skrýtið að á sama
tíma er verið með áætlanir um að
eyða grasrótinni með því að setja
tilvist almennra tónlistarskóla í
stórhættu. Þetta er eins og að
byggja frystihús en hafa engan
fisk til að láta í það.
S«Wí«r Hvar á að fá fólk til aö
stMða nám á riðari stigum ef
undifstöðu varitar? ÓP
SÍÐA 5
Samkvœmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar er nú lagt til að ýmis
verkefni fœrist frá ríkinu yfir til sveitarfélaga. Á þetta m.a. við
um tónlistarfrœðslu. Framlag mlðast við að ríkið greiði laun
(50%) við kennslu út skólaárið 1987-1988 en síðan falli þátt-
taka þess niður.
Úr athugasemdum með frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1988.
|#l----------------------------------
SgS FÉLAGSMÁLASTOFNUN
Jjr REYKJAVÍKURBORGAR
Unglingaathvarfiö, Tryggvagötu 12, auglýsir eftir
starfsmanni í 46% kvöldstarf. Æskilegt aö um-
sækjendur hafi kennaramenntun eöa háskóla-
menntun í uppeldis-, félags-, og/eða sálarfræöi.
Umsóknareyöublöð fást hjá Starfsmannahaldi
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9. Umsóknar-
frestur er til 15.12.87. Nánari upplýsingar veitir
forstöðumaður í síma 20606 eftir hádegi virka
daga.
Hjúkrunarfræðingar
sjúkraliðar
Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða hjúkrun-
arfræðinga og sjúkraliða sem fyrst.
SJÚKRAÞJÁLFARAR
Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða sjúkra-
þjálfara frá næstu áramótum eða eftir samkomu-
lagi.
Nánari upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri og
framkvæmdastjóri í síma 94-1110.
Sjúkrahúsið Patreksfirði
Frá æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraháskóla íslands
Kennara vantar nú þegar að Æfingaskóla Kenn-
araháskólans. Um er að ræða kennslu í hand-
mennt sem nemur um það bil einni stöðu. Ráðið
verður í starfið út þetta skólaár. Nánari upplýsing-
ar veitir skólastjóri í símum 84565 og 84566.
Styrkir úr
vísindasjóði
Vísindaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki
Vísindasjóðs árið 1988.
Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðu-
neytinu og hjásendiráðum Islands erlendis. Um-
sækjendur geta leitað upplýsinga hjá Sveini Ing-
varssyni líffræðingi (í s. 99-6551 eða 91 -685140)
vegna umsókna til Náttúruvísindadeildar og Líf-
og læknisfræðideildar, og hjá Þorleifi Jónssyni
bókaverði (í s. 91-671938 (heima), 91-16864 og
91-694328) vegna umsókna til Hug- og félags-
vísindadeildar.
Formenn deildastjórna eru Þórir Kr. Þórðarson
prófessor (Hug- og félagsvísindadeild), Sigfús A.
Schopka fiskifræðingur (Náttúruvísindadeild) og
Gunnar Guðmundsson prófessor (Líf- og læknis-
fræðideild).
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar og skal skila
umsóknum merktum viðkomandi deild til Vís-
indasjóðs, Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
4-6, 101 Reykjavík, fyrir þann tíma.
Vísindaráð
Guðrún Guéwéóttir
frá Eyjum (Kjrís
andaðist á Landspítalanum aðtaranótt 4. desember. Útför
hennar ter fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 14. desemb-
er kl. 13.30.
Andrés ingibergsson
Sigurður Ingi Andrésson Soffía Sigurðardóttir
Gunnar Andrésson Guðbjörg Stefánsdóttir
Einar Andrésson Hólmfríður Gröndai
og barnabörn