Þjóðviljinn - 13.12.1987, Qupperneq 12
TÓNUST
Shipway og sinfónían
Það væri að bera í bakkafullan
lækinn að skrifa eitthvað um
Eroica-sinfóníu Beethovens. En
hún var leikin af sjaldgæfum
glæsileik á tónleikum þann 3.
desember. Það var sem maður
heyrði þetta margþvælda meist-
araverk í fyrsta sinn. Hljómsveitin
hefur aldrei leikið jafn vel. Þessi
Shipway er undramaður. Af-
hverju er hann ekki alltaf hér?
Aheyrendur þökkuðu líka fyrir
sig. Þeir hafa aldrei sýnt hljóm-
sveitarstjóra aðra eins virðingu
og í lok þessara stórkostlegu tón-
leika.
En þetta kvöld var einnig
frumflutt nýtt íslenskt verk. Það
var konsert fyrir tvö píanó og
hljómsveit eftir Jónas Tómasson.
Halldór Haraldsson og Gísli
Magnússon léku einleik. Það er
kannski eins gott að segja sem
fæst um ný tónverk. Ekki er það
svo gæfulegt bullið sem
gagnrýnendur gegnum tíðina
hafa látið út úr sér við slík tæki-
færi. En mér fannst þetta falleg
og góð músik og hún var ágætlega
spiluð.
Þeir tónleikar sem Shipway
hefur stjórnað í vetur voru á tals-
vert hærra plani en við erum vön
frá hljómsveitinni okkar... Guð verri en helst betri. Og almát- aðþaðverðiekkieinhverbölvað-
gefi að næsti stjóri verði ekki tugur guð í hæstum hæðum gefi ur meðalskussi.
Hljómplötuverslanir
Það er öllum fyrir bestu að
horfast í augu við staðreyndir.
Við skulum þess vegna viður-
kenna feimnis- og hræsnislaust að
jólin eru ekki trúarhátíð til að
fagna komu frelsarans. Þau eru
eins og hvert annað veraldlegt
karnival. Allir gera sér glaðan
dag og sleppa fram af sér beislinu
í sukki og svalli og hryllingssögu-
legu líkáti svo margir verða eins
og svín með þungt mannshöfuð
um áramót. Og þetta er svo sem
gott og blessað. Samfélagið
myndi ekki þrífast án svona alls-
herjar orgíu. Og það er bara
notalegt að hafa biblíusögur og
sálmasöng. Það eykur sjarma ser-
ímóníunnar enda fullkomlega
meiningarlaust. En fyrst og
fremst eru jólin hátíð kaupmanna
þrátt fyrir þann einkennilega
orðaleik að þau séu kölluð „hátíð
barnanna". Nema beri að skilja
það svo að kaupmenn standi á
svipuðu þroska- og vitsmunastigi
og ómálga börn. Þeir tala mikið
um frelsi verslana. Allir eigi að
geta keypt það sem þeir vilja. En
það er mjög áþreifanlegt nú í jól-
aösinni, að eitthvað virðist hafa
farið úrskeiðis með frelsið, hvað
snertir framboð á klassískri mús-
ik í hljómplötuverslunum. Það er
miklu minna en fyrir tíu til
fimmtán árum. í fyrsta lagi eru
þær verslanir færri er selja slíka
tónlist. Nú eru Fálkinn og Hljóð-
færahúsið alls ráðandi þó
eitthvað smávegis fáist í Skífunni
og Gramminu. En hér fyrir
nokkrum árum voru einnig
Hverfitónar, Hljóðfæraverslun
Sigríðar Helgadóttur, Heimilis-
tæki, hljómdeild Faco og jafnvel
fleiri. Þessar búðir voru hver með
sínum hætti. I öðru lagi er úrval-
ið, sem þær verslanir sem eftir
eru hafa að bjóða minna, sömu-
leiðis minna en áður. Og maður
hefur það mjög sterklega á til-
finningunni að ástandið fari enn
versnandi. Það má segja að all-
sæmilegt framboð sé á músik frá
tímabilinu 1700-1900. En tónlist
frá okkar öld er sjaldgæf og frá
síðustu áratugum eða árum næst-
um því engin, nema ef vera skyldi
íslensk verk. Þetta var stórum
skárra fyrir áratug þó ekki væri
það gott. Og gömul tónlist hefur
næstum þurrkast út í hljómplötu-
verslunum. Áður var fjölbreytni
hennar furðulega mikil miðað við
allt og allt. í þá gömlu góðu daga
keypti ég plötur hér í bænum með
verkum eftir des Préz, Ockeg-
ham, Palastrina, Lasso, Byrd,
Victoria, Carissimi, Monteverdi,
og Schútz. Og ýmsa fleiri. Það
var meira að segja ekki útilokað
að rekast á enn eldri tónlist. Eitt
FJÖLGUM® ENN
ÁSKRIFENDUM
Árið 1988 verðurað mörgu leyti merkilegt ísögu Þjóðviljans.
Flutt verður í nýtt húsnæði og margvíslegar breytingar eru
fyrirhugaðar á blaðinu.
Við vonumst eftir stuðningiþínum, áskrifandigóður, og
bjóðum þér að stuðla að stærri og betri Þjóðvilja.
Tökum öll höndum saman og stórfjölgum áskrifendum.
Áskrift að Þjóðviljanum
JANÚAR-FEBRÚAR-MARS 1988
Jólatilboð
Þjóðviljans
Jólatilboð Þjóðviljans er áskriftarkort sem gildir fyrstu 90 dagana 1988.
Er ekki upplagt að gefa vinum og vandamönnum eitt slíkt?
Fr.i
Tii
1» JÓDVILJINN - VOPN i SÓKN OG VÖRN
VERÐ AÐEINS KR. 995
Áskrifendur geta keypt áskriftarkortin í afgreiðslu Þjóðviljans alla daga kl. 9-5 að
Síðumúla 6, eða fengið þau send í póstkröfu hvert á land sem er.
Einstakt tilboð sem erfitt er að hafna.
Allar upplýsingar gefa G. Margrét, Hrefna eða Hörður í sima 681333.
sinn keypti ég la Messe de Nostre
Dame eftir höfuðsnillinginn
Machaut, sem uppi var á fjór-
tándu öld þegar verið var að
skrifa síðustu fslendingasögur.
Þetta er unaðsleg tónlist. Ég vildi
eyða ævi minni í að hlusta á hana
við kertaljós og reykelsisilm. Þá
þyrfti ég engin jól. En þetta er
liðin dýrð. Þessi hundgamla mús-
ik sést yfirleitt ekki í hljómplötu-
verslunum, þó ein og ein plata
kunni að skjóta upp kollinum.
Eftirspurnin er sennilega ekki
nógu mikil. Gróðavonin tak-
mörkuð. Og í stað þess að láta
þjónustu við neytendur sitja í
fyrirrúmi er hagnaðurinn látinn
ráða ferðinni. Eða hvað? Afleið-
ingarnar verða þær að ekki er til
sölu annað en það sem sæmilega
gengur út. Og það er Bach-
Brahms tímabilið. Ef fólk vill
kaupa aðra músik verður það að
leita til útlanda. Markaðshyggjan
Ieiðir til þess, á þessum sviðum
sem ýmsum öðrum, að fjöl-
breytnin minnkar þó magnið
aukist. Framboð á erlendum
bókum hefur einnig minnkað síð-
ustu árin í Reykjavík. Bókabúð-
um hefur mjög hrakað. Bóka-
verslun Snæbjarnar er t.d ekki
nema svipur hjá sjón síðan Mál
og menning tók við rekstrinum.
Er þetta ekki í dásamlegu sam-
ræmi við kenningu hins barnslega
bissnesshjarta er lýsti sér í þess-
um einföldu orðum: „Þegar
menning og listir hafa blómgast
hvað mest, hefur þá ekki verslun-
in líka staðið með mestum
blóma?“ Já.
Er þetta ekki klárt? En í tilefni
jólanna og Jesúbarnsins blíða,
sem fæddist í jötu en varð loks
kóngur á himnum, alveg eins og
Rockefeller var fyrst blaðsölu-
strákur en svo kóngur af því doll-
aratagi sem mannheimur tekur
miklu traustara mark á og flaðrar
meira fyrir en nokkrum himin-
völdum, þá langar mig til að
koma með eina kommúníska og
húmaníska tillögu í gamla stfln-
um. Og hún er á þessa leið: Fari
hljómplötuverslanir á hausinn
við það, að reyna að hafa á boð-
stólum víðsýnt úrval klassískrar
tónlistar frá öllum tfmum, þá er
eins gott að þær fari á hausinn og
því fyrr því betra. En til þess að
halda uppi almennilegri tón-
menningu í landinu, ætti ríkið að
reisa á rústum þeirra volduga
hljómplötuverslun, þar sem mús-
ikmaníakar gætu keypt allt sem
hugurinn girnist.
Sigurður Þór Guðjónsson
15 SUZUKI FOX-JEPPAR - með drifi á öllum, eins og landsliðið okkar
35 SUZUKI SWIFT - tískubíllinn í ár
.
; ’ ; £ -n i: v ;
f