Þjóðviljinn - 17.01.1988, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 17.01.1988, Blaðsíða 17
LOTUR lesa bollaleggingar um vandam- álið mikla: hvað tekur svo við af þessum geisladiskum, sem hægt er að taka á hvað ofan í annað? Giskað var á að það yrði alveg ný tegund af geisladiskatækjum og samsvarandi diskum, sem væru ætir. Þá þyrftu menn ekki einu sinni að hafa fyrir því að taka ofan í Dibbidibbidútt þegar það væri komið úr tísku, - menn gætu hreinlega étið það. Þannig gæti svo farið, að það yrði ekki ein- ungis dægurlagatískan sem væri breytingum háð, heldur og líka bragð diskanna. Vera má, að einhverjir efist um að áhugamenn um margvíslega tónlist frá ólíkum tímum og stöð- um láti svo auðveldlega teyma sig eftir þessari þróunarbraut, þó svo hún líti glæsilega út, - ekki síst ef geisladiskunum ætu er veifað framan í menn eins og gulrótinni í asnann. En reynslan í París - og ýmsum öðrum stórborgum líka er mér sagt, - bendir þó til þess að fyrsta stigið a.m.k. - útrýming hljómplatnanna - sé smám sam- an að komast í framkvæmd. Gagnvart þeim glæstu framtíðar- horfum sem þannig opnuðust átti sérfræðingur franska blaðsins erfitt með að leyna því að hann var hálfgerð fornaldarsál inni við beinið. Var hann að lauma inn þeim kenningum að harla óvíst væri að allt það efni sem til er á venjulegum hljómplötum yrði nokkurn tíma flutt yfir á geisla- diska, einkum og sér í lagi ef stefnt yrði að því að sú tækni úr- eltist líka á skömmum tíma. Það var jafnvel ekki laust við að hann færi að vefengja réttmæti þess að kasta fyrir róða ýmis konar tækni sem hefur gefið góða raun eða mun geta gert það (eins og geisla- diskatæknin) ef tími er fyrir hendi og gerir mönnum kleift að byggja upp söfn af plötum eða diskum óháð stundlegum tískusveiflum og hafa gagn af þeim. En hann hefði svo sem alveg eins getað fordæmt útrýmingu hljómplötutækninnar á þeim for- sendum afdankaðra bókmennta- manna, að þegar hún er úr sög- unni eigi menn erfiðara með að skilja samlíkingu þjóðskáldsins sem sagði við stöllu sína: „Nú mun ég plata þig því án minnar nálar mun tón þinn aldrei heyrast". í tækniþjóðfélagi fram- tíðarinnar er slíkur húmanismi til trafala: Hvað hafa menn með fornaldartækni og tónlist að gera, ef þeir geta tekið Dibbidibbidútt í beinni útsendingu og látið það hljóma sér í eyrum um leið og það er orðið heimsfrægt í Texas. í raun og veru vísa plötu- diska- og bandaframleiðendur veginn: væri ekki von á mikilli grósku í útgáfu ef menn hættu að nota bækur sem þarf að fletta eins og skinnhandritum og færu að setja alla texta á smáfilmur sem sér- stök tæki þyrfti til að lesa? í því væri vitanlega tímasparnaður, því stutt væri á takka í stað þess að fletta - og þá væri líka hægt að finna átyllur til að skipta um tækni á nokkurra ára fresti, þann- ig að menn þyrftu að endurnýja söfnin... e.m.j. Sunnudagur 17. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 Ari Gísli Bragason Vinir blómanna það er í raun einfalt að rækta fallegt blóm í brjósti sínu það er í raun einfalt að elska og hata en það er erfitt að missa blómið í brjósti sínu ástina og hatrið Komdu sagði sjórinn Morgunmyrkrið var á undanhaldi, stór en máttvana féllu fyrstu snjókornin. Parna var sjórinn sá gamli prakkari alltaf á ferðalagi. Mœtt í slaginn gömul, haltrandi með hvítan plastpoka ,$krýtin kerling“ sagði sá heimski og hló. • ■■■■ Hvítur fugl flaug inn hafnarmynnið stór, fagur, boðberi hamingju eða hvað var þetta snjókorn? Myndskreyting: Melkorka Thekla Ólafsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.