Þjóðviljinn - 31.01.1988, Síða 14

Þjóðviljinn - 31.01.1988, Síða 14
I skugga sólar... up^ hafi Hvað er að gerast í undir- heimum Lillehammer? Hver er það, sem sífellt veitir Andrew Price, aðalvaraforingja í varðliði breska hersins á Falklandseyjum, eftirför um nætur? Hvers vegna fór Jeannie d‘Artgnan til Món- akó þann tuttugasta? Hver stjórnar bjórsmyglinu frá Mec- helen í Belgíu til Svalbarða? Og af hverju er verið að smygla bjórnum þangað en ekki til Is- lands? Hefur Þrándur Þórodds- son, aðstoðarvarafulltrúi smygl- deildar lögreglunnar í Steingrímsfirði eitthvað að fela í þessu sambandi? Af hverju hefur ekkert heyrst um hvítkálsh- neykslið mikla í Argentínu í ís- lenskum fjölmiðlum? Hefur her- foringjastjórnin einhver ítök hér- lendis? Er fréttastjórinn kannski launsonur Pinochets og argentín- skrar dansmeyjar af fátækum for- eldrum? Af hvrju veiðast engir kolkrabbar við strendur Gíbralt- ar? Hvað olli matareitruninni sem lagði sjöþúsundeitthundrað- tuttuguogtvo Hollendinga í rúm- ið á Ibiza um daginn, þar sem þeir voru áferðalagi? Var það kannski það sama og sendi tvöhundr- uðníutíuogátta aðNýsjálendinga í gröfina árið 1978? Er Paul Wat- son óskilgetinn hálfbróðir eins hvalskurðarmannanna í Hval- firði? Eða er hann njósnari frá Simbabwe? Hvers vegna fara ís- lendingar aldrei á villisvínaveiðar á ferðalögum sínum um Suður-Ameríku? Voru íslenskir víkingar á undan Bretum til Ást- ralíu? Hver ber ábyrgð á stór- felldum innflutningi á illþefjandi svitalyktareyði til Kanada? Á það við einhver rök að styðjast að ítalska Mafían hafi staðið þar að baki? Eða eru það sömu aðilar og sendu Guðjóni Friðjónssyni tannlækni 3000 túbur af jarðar- berjatannkremi? Hver er raun- veruleg móðir Ronalds Reagan? Á Ronald Reagan raunverulega móður? Hefur Ronald Reagan nokkumtímann átt raunverulega móður? Hver skrifaði þetta ragl? Við þessu og mörgu öðru fást engin svör í næsta helgarblaði Þjóðviljans. Verðum allir Ijóshœrðir innan mánaðar! Spjall vlð sólardrengina í Síðan skeln sól Silfurgljáandi hurð í kjallaran- um reynir að halda aftur af há- vaðanum, en reynist ekki hlut- verkinu vaxin. Ég tek um hurðarhúninn, ýti honum nið- u r og toga - og sjá - my rkrið leysist upp í ótal geislafrá hvítbláu flúorscentljósi í loft- inu. Síðan skein sól. Þeir stóðu og sátu þarnafjórir, Helgi Björnsson andaði í hljóðnemann og bráðabirgð- asöngkerfi skilaði rödd hans hálfbjagaðri í hlustir mér. Eyj- ólfur Jónsson gældi við gítar- strengi, Jakob Magnússon plokkaði bassann og Ingólfur Sigurðsson hinn Ijóshærði barði bumbur. Það varfæðing í gangi þegar ég rauf birtu- múrinn, nýtt lag var að bætast í safnið. Halló hæ o.s.frv. þeg- ar þeir urðu mín varir og svo var haldið áfram að spila um stund. Og svo viðtal. Eða eitthvað í þá áttina allavega. Hvaö er Síðan skein sól fyrir nokkuð? Band. Hljómsveit. Við erum popparar...? En, ég meina, af hverju? Við ætlum ekki að breyta heiminum, ef það er það sem þú ert að fiska eftir. Við erum bara að spila tónlist og lang- ar að gera það vel. Alveg Obbos- lega vel. Við ætlum að verða betri en bæði Bubbi og Steinar Berg til samans! Það er svona megininn- takið í þessu... Góða tónist seg- iði, hvernig tónlist er það þá sem þið spilið? Eða má ekki spyrja svona? Þetta er bara rokk. Ein- falt og aðgengilegt. Flatarmáls- rokk! Ha? Flatarmálsrokk... er l það ekki gott - það er alltaf verið að finna upp nýjar og nýjar teg- undir af rokki - gúanó- og pön- krokk, jassrokk, popprokk og og - og núna er flatarmálsrokkið semsé komið. Og hver skyldi svo semja þetta flatarmálsrokk? All- ir. Helgi Jakob Ingólfur og Eyj- ólfur semja flatarmálsrokk í kjallara á Grettisgötunni. Það er frétt. En Helgi sér um textagerð- ina. Og fjallarekki um míkrófón- statíf. Ekki heldur um lím eða sniff. Hvað þá að hann minnist á stráka með engin tippi. En strák- ar með tippi fá að vera með. Og flest annað. Líklega fljótlegra að telja upp það sem ekki er fjallað um. Hugsa. Kannski við verðum að koma okkur upp einhverri stefnu, svona af því við erum komnir í blaðaviðtölin aftur. Eitthvað í sambandi við afstæð- iskenninguna kannski. Jörðin er flöt? vogar blaðamaður sér að skjóta inní. Já, til dæmis. Það er ekki verra baráttumál en hvað annað. Kannski við reynum þá að breyta heiminum eftir allt saman. En söngvarinn er alltaf að leika. Hvurnig má það vera? Tónleikar á íslandi byrja aldrei fyrir hálf- tólf. Leiksýningum lýkur yfirleitt ekki seinna en ellefu. Svo að á meðan þessi hefð helst í tónleika- haldi hérlendis eru við seif. Þið viljið ekkert breyta þeirri leiðind- ahefð? Ertu vitlaus - þá værum við ekki til lengur... Og þá eru væntanlega tón- leikar framundan...? Ævíst. Þeir einu sem eru dagsettir enn sem komið er verða í Lækjartungli þann 18. Febrúar það er að segja. Þá spilum við með Frökkunum, sem hafa verið vaktir til lífsins á ný. Annars ætlum við bara að spila sem víðast hér á höfuðborg- arsvæðinu næstu tvo eða þrjá mánuði eða svo. Fara í skólana o.s.frv. Maður er svosem ekki mjög lengi að dekka þetta svæði. En landsbyggðin verður að bíða eitthvað lengur eftir sólskininu. Viz erum komnir með rúmlega klukkutímaprógramm. Nóg efni á plötu. Og ætlum að gefa út plötu. Bara einhverntímann í ó- ljósri framtíð. Viljum svona frekar fá útgefanda, ef hann finnst, en við förum á plast hvað sem tautar. En ekki strax. Ekki nærri strax. Og þó við séum komnir með klukkutímapró- gramm og nóg af lögum á eina plötu, þá er ekki þar með sagt að við séum hættir að semja. Við erum alltaf að semja. Það má alltaf gera betri lög. Og svo aftur betri lög en þau. Það ætlum við að gera - betri lög, alltaf betri lög. Og markmiðið? Við ætlum að verða heimsfrægir! Hvað held- urðu - er það ekki það sem blífur..? Ha? Annars er mark- miðið með því að gera betri lög ekki annað en að gera betri lög - er það ekki markmið í sjálfu sér? Hmmm. Líklega. En það má kannski bæta inn öðru markmiði hér - við stefnum að því að verða ljóshærðir allir sem einn innan mánaðar. Tón- listin er komin, að verulegu leyti, og nú er að vinna í ímyndinni - við verðum að fá okkur eitthvert „look“ - verða ljóshærðir og sæt- ir, það er næsti áfangi sem við stefnum að... Ljósmyndarinn tekur myndir. Eyjólfur hleypur út bölvandi, ei að verða of seinn á ellefubíó. Hann er að fara að sjá Ottó. Það eru þó allténd meðmæli. Með hljómsveitinni á ég við. Og svo út í kvöldið og kuldann á móti ein- stefnu upp Grettisgötuna. Ann- arshugar. Síðan skein sól.... 14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. Janúar 1988

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.