Þjóðviljinn - 09.02.1988, Page 9

Þjóðviljinn - 09.02.1988, Page 9
Karfa Dómaraskandall Báðir íslensku alþjóðakörfuknattleiksdómararnirhœttir. Sigurður Valurskilaði inn dómaraskírteini sínu ígœr. Persónulegar árásir á Einar Bollasson „Ég skila inn dómaraskírtein- inu mínu á morgun,“ sagði Sig- urður Valur Halldórsson á leik IR og KR á sunnudagskvöldið en hann var þar meðal áhorfenda. Þjóðviljinn hafði samband við Sigurð í gær og innti hann eftir því hvort hann hygðist standa við orð sín. „Já, það stendur. Ég ætla að senda formlegt bréf í dag en ég vil ekki tjá mig um það efnislega. Þegar Kristinn Albertsson dæmdi tæknivíti á Einar Bollason fyllti það mælinn. Þetta eru ekkert annað en persónulegar árásir á hann og það verður ekki liðið,“ sagði Sigurður Valur og ef hann gerir það eru báðir íslensku al- þjóðadómararnir hættir en sem kunnugt er hætti Kristbjörn Al- bertsson í vetur. Þjóðviljinn hafði einnig samband við Krist- björn í gærkveldi. „Ætli þetta sé ekki helst þrjóska í mér. Það kom upp deilumál milli mín og dóm- aranefndarinnar í fyrra og ég taldi mér ekki fært að bakka í því máli. Síðan vildi svo til að ég fékk fáa leiki til að dæma þetta keppn- istímabil svo að ég hætti,“ sagði Kristbjörn. Það er óhætt að segja að eitthvað sé að hjá stjórn dómara- mála hér á landi þegar atvik sem þetta á sér stað og spurning hvað stjórnin gerir þegar hún fær bréfið. „Þetta var punkturinn yfir i- ið,“ sagði Einar Bollason þegar blaðið hafði samband við hann. „Við ÍR-ingar erum búnir að fá okkur fullsadda á þessum manni og við erum tilbúnir til harðra að- Deildakeppni Deildakeppni Badmintonsam- bands íslands fór fram um helg- ina. í 1. deild sigraði lið TBR-B sem var skipað bæði gamal- reyndum kempum og ungu og efnilegu fólki. í liði TBR-B voru Broddi Kristjánsson, Gunnar Björgvins- son, Snorri Ingvarsson, Óli Ziemsen, Katnn Magnúsdóttir og Lovísa Sigurðardóttir, hin gamalreynda kempa. í öðru sæti varð D-lið TBR sem átti 4 lið í 1. deild. A-lið KR féll niður í 2. deild og B-lið ÍA tekur sæti þeirra. TBR-G féll í 3. deild en HSK sigraði í 3. deild og tekur sæti í 2. deild. Einna mesta athygli vakti ár- angur Óla Ziemsen sem er að verða einn okkar besti badmin- tonspilari, þótt hann sé aðeins 15 ára gamall. Aðalfundur Leiknis Aðalfundur Leiknis verður haldinn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi þriðjudaginn 16. fe- brúar kl. 20.30. Á dagskrá eru venjuleg aðal- fundarstörf, lagabreytingar og önnur mál. . Stjórnin Kristinn Albertsson og Einar Bollason í leiknum á sunnudaginn. Verður þessi leikur vendipunktur í dómgæslu úrvalsdeildarinnar? (Mynd: E.ÓI.) gerða. Það er í hæsta máta óeðli- legt að maðurinn geti spilað f- gegn öðrum leikmönnum í úr- valsdeildinni eitt kvöldið og í badminton 22 lið tóku þátt í mótinu og voru keppendur um 180 talsins. -ih kannski lent í einhverjum hasar, og komið síðan kvöldið eftir og flautað á þessa sömu menn. Við getum ekki beðið eftir að hann hætti að dæma. Annars finnst mér hann svo efnilegur að hann ætti að snúa sér alfarið að því að spila og hætta að dæma,“ sagði Éinar ennfremur. Lesendum til nánari fróðleiks má benda á benda á að Kristinn Albertsson er leikmaður með UBK í úrvalsdeildinni, dómari fyrir UBK í sömu deild, ásamt því að vera í dómaranefnd KKÍ. Hann er einnig gjaldkeri Körfu- knattleikssambandsins og situi þar af leiðandi í stjórn KKÍ. Það er ljóst að Kristinn hefur einhver völd innan KKÍ þó að ekki sé ver- ið á neinn hátt að setja út á störf hans í þessum embættum. Ekki náðist í Kristin í gærkveldi. -E.Ól/ste Handbolti Fram að koma til Jens í marki Fram átti góðan leikþegar Fram vann Breiðablik á sunnudaginn Einar Bollason. Það var greinilegt að Fram væri betra liðið þegar þeir léku gegn UBK. Blikarnir gáfust þó ekki upp en voru yfírspilaðir í síðari hálfleik. Fram byrjaði á að komast yfir 3-0 strax í byrjun leiksins. Þeir voru sterkir í vörninni og komust meira í gegn. Blikunum tókst þó að halda eitthvað í við þá þó að Fram væri alltaf yfir 2 til 3 mörk. Á 11. mínútu var staðan 7-4 og gerðu reykvíkingarnir þá 3 mörk án þess að mótherjarnir gætu svarað 10-5. En þá juku Blikarnir hraðan gerðu 6 mörk en Fram tókst að koma inn einu marki á meðan og var staðan því í hálfleik 11-11 þó að Jóni Þóri mistækist að skora úr 2 vítum. í síðari hálfleik tóku Fram sig verulega á, gerðu hvert markið á fætur öðru og var alger einstefna á mark Breiðablik, sem reyndu þó klóra í bakkann. Frammarar juku muninn jafnt og þétt og komust í 16-12, 19-13 og síðan með góðri 5 marka syrpu í 20-15. Þá var Blikinn Magnús Magnús- son rekinn útaf með rauðu spaldi fyrir gróft og algerlega óþarft brot. Það virtist þó hleypa lífi í Blikana því þeir náðu að minnka muninn jafnt og þétt þó ekki gætu þeir jafnað en náðu að minnka muninn niður í 6 mörk. Frammarar virðast vera að koma til enda hafa þeir góðum mönnum á að skipa. Jens varði mj ög vel, Birgir var öruggur á lín- unni, Atli ógnaði mikið þó hann væri oftast tekinn úr umferð og Hannes og Egill gerðu góða hluti. Af Blikunum var bestur Jón Þórir þó að bræðumir Aðalsteinn og Björn stæðu sig vel. Einnig var Þórður góður í hominu. Það er vert að benda á að leikmenn UBK vom útaf 18 mínútur í leiknum. Dómaramir vom góðir, útskýra dóma sína vel svo að leik- mönnum reyndist erfitt að mót- mæla. Þó gerðu þeir, að því er- virðist, mistök við og við en fáir dómar þeirra vom vafasamir. Laugardalshöll 7. febrúar Fram-UBK 28-22 (11-11) Mörk Fram: Birgir Sigurösson 11, Egill Jóhannesson 6 (3v), Hannes Leifsson 4, Hermann Bjömsson 4, Atli Hilmarsson 2, Ragnar Hilmarsson 1. Varið: Jens G. Einarsson 13 (2v). Útaf: Jens G. Einarsson 2 mín, Birgir Sigurösson 2 mín, Hannes Leifsson 2 min, Júlíus Gunnarsson 2 mín. Spjöld: Atli Hilmarsson gult, Egill Jó- hannesson gult. Mörk UBK: Jón Þórir Jónsson 5 (4v), Aöalsteinn Jónsson 4, Þórður Ragnarsson 4, Bjöm Jónsson 3, Hans Guömundsson 3, Kristján Halldórsson 2, Svafar Magnús- son 1. Varið: Guðmundur Hrafnkelsson 4 og Þórir Siggeirsson 2. Útaf: Hans Guðmundsson 6 mín, Jón Þórír Jónssn 4 mín, Aðalsteinn Jónsson 2 mín, Kristján Halldórsson 2 mfn, Svafar Magnússon 2 mín, Magnús Magnússon 2 mín og rautt. Spjöld: Magnús Magnússon rautt, Að- alsteinn Jónsson gult, Bjöm Jónsson gult. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon Sigurjónsson daamdu vel. -ste Umsjón: Ingibjörg Hinriksdóttir/Stefán Stefánsson ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.