Þjóðviljinn - 28.02.1988, Page 15
Forsetaleitin
Fréttaskýring
„Þá vantar alltaf vana menn, í Bandaríkjunum." - Stuðmenn.
Forseti Bandaríkjanna. Þetta
erekki léttvægur titill. Valda-
mesti maöur heims erstund-
um sagt og sjálfsagt eitthvað
til í því. Frægasti maður heims
er alla vega ekki fjarri lagi.
Maður var ekki hár í íslensku
lofti þegar maður vissi vel
hver þá hélt í valdaspottana í
Hvíta húsinu og batt þar eða
leysti marga af helstu vand-
amálahnútum heimsins. John
Fitzgerald Kennedy, svaraði
maður af fjögurra ára gamalli
einbeitni í hverju barnaafmæ-
linu á fætur öðru og bætti svo
við af enn frekari sannfæringu
nafni varaforsetans Lyndons
B. Johnsons með áherslu á
B-ið. Þar með var sigur unn-
inn í spurningakeppninni og
maður fór heim með verð-
launin, Bandaríkin, sagastór-
þjóðar.
Og alla tíö síðan hefur það ver-
ið spennandi fréttahobbý manns
að fýlgjast með og spá í verðandi
og óverðuga forseta U.S.A.
Kosningabarátta þeirra, stíl og
framkomu svo og fráföll þeirra,
tilræði og kosningatöp. Hver
man ekki eftir Nixon - Humph-
rey, Nixon - McGovern, Ford -
Carter og Carter - Reagan eða
Reagan - Mondale. Allt hafa
þetta verið skemmtilegir baráttu-
leikir (þó vart sá síðasttaldi) með
óvæntum uppákomum og dram-
atískum endi, sem hafa algerlega
stolið athygli manns frá gjörðum
þessara manna þegar í embætti
var komið. Persónustríðin eru
alltaf skemmtilegri en málefna-
legir eftirmálar. Petta ættu ís-
lendingar vel að þekkja.
Og enn er nú komið að því að
velja nýjan forseta Bandaríkj-
anna. Staðan er laus frá og með
næstu áramótum og menn þegar
farnir að sækja um unnvörpum. í
hópum skeiða menn nú fram á
stjórnvöllinn og berja brjóst sín í
eigin auglýsingaskyni. Demó-
kratar og Repúblikanar, auk
allmargra utangarðsmanna. Það
er fróðlegt að fylgjast með því
hvernig forsetaleitin fer fram hér
í kanans landi og alltaf er eitthvað
frétthæft af henni í hverjum
fréttatíma hér, á hverri sjón-
varpsrás.
Alls eru Demókratarnir sjö
sem sækjast eftir útnefningu síns
flokks og eru í gárungatali einatt
nefndir dvergarnir sjö, vegna
þess hve illa þeim hefur gengið að
greina sig hvern frá öðrum og rísa
upp úr meðalmennskunni. f
fljótu bragði er varla á milli
þeirra greinandi og skarar enginn
fram úr, en eru aðeins þekkjan-
legir á hinum ýmsu líkams- og
karakter-einkennum.
Af jafningjum er um þessar
mundir þingmaðurinn frá Misso-
uri, Dick Gephardt með hvað
mesta fylgið í skoðanakönnunum
sem hann byggir aðallega á and-
japönskum áróðri og augnabrún-
um sínum sem hann lét dekkja í
fýlgisskyni, en þær höfðu áður
mjög háð honum í flennibirtu
sjónvarpssala, enda maðurinn
bjartur yfirlitum. Mike Dukakis,
gríski tæknikratinn frá Boston
hefur hinsvegar mestu og bestu
augnabrúnir í forsetaframbjóð-
endasögunni og flaggar þeim
mjög á fundum í takt við vissa
tegund handahreyfingar sem er á
leið með að fara í taugarnar á
manni nú þegar og hvað þá ef
hann yrði nú forseti. Honum háir
hinsvegar axlabreiddin sem er
afar lítil og nær honum vart út
fyrir eyru. Fyrir vikið er þetta
lítið annað en vel gerður haus á
magnlitlum búki sem einnig er
góð lýsing á stefnuskrá hans, en
hún er auk leiðinda mest tækni-
legs eðlis. Sá þriðji í röðinni er
svo Paul Simon sem oft hefur ver-
ið ruglað saman við Art Garfunk-
el, sem þó hefur ekki háð honum
hingað til. Það hafa heldur ekki
gert ytri einkenni hans sem í byrj-
un virtust ætla að koma í veg fyrir
pólitískan frama. Gleraugu á
stærð við fljúgandi diska og
eyrnasneplar sem mælst hafa 750
grömm á þyngd hvor, auk slauf-
unnar sem kemur honum í bindis-
stað. En slaufan hefur einmitt
reynst honum eitt helsta leyni-
vopnið og hamrar hann á henni í
sjónvarpsauglýsingum. Þrátt
fyrir að fjölmiðlaráðgjafi minn
hafi sagt mér að fleygja henni,
ákvað ég samt að halda henni,
svo þið sjáið, ég er öðruvísi, ég er
ég, ég þori að vera ég, og Amer-
íka þarf einmitt þannig mann,
sem þorir að vera eins og hann er.
Eins og Árni Böðvarsson með
rödd Guðmundar Jaka.
Fjórði í röð litlu negrastrák-
anna er svo sjálfur séra Jesse
Jackson, blökkumannaleiðtog-
inn frá Illinois. Pað er litur af
presti sem einn þeirra félaga
kann að stuðla sínar ræður og
ríma, þó svo að erfitt sé að skilja
þær vegna ákafans og blökku-
hreimsins. Jesse á samt varla
nokkurn séns þó enginn þori að
segja það, allir vilja bara leyfa
honum að vera með. Bruce Bab-
bit er líka vonlaus en þó kannski
ekki ógalinn. Honum háir höfuð-
ið mest sem tifar og blikkar í takt
við tal hans þar til maður missir
trúna. Þá er hann einnig of
Carter- legur til að verða kosinn.
Vonlausastur er þó Gary kallinn
Hart og honum einum og módeli
frá Miami það að kenna. Fyrir ári
síðan var hann svotil öruggur um
sigur í undanriðlum Demókrat-
anna en hold hans var full veikt
og nú eigrar hann um tóma súp-
ermarkaði í atkvæðaleit með
sjónvarpsher á eftir sér og er það
sorgleg sjón og saga. Og þá er
aðeins eftir suðurríkjadrengur-
inn A1 Gore sem konur telja þann
myndarlegasta af kandidötum og
margir halda með einmitt út á
það. Hann er heldur óvitlaus með
afvopnun að sérsviði auk þessar-
ar venjulegu umönnunarstefnu
Demókrata, sem er sameiginleg
þeim öllum og er í raun
sósíal-demókratísk með hinum
kapitalísku formerkjum sem eng-
inn Bandaríkjamaður bakkar frá
dauður né heldur lifandi.
Spá mín: Dukakis og Gore.
Snúum okkur þá að Repúblik-
önum. Þar er fremstur hinn sjálf-
menntaði varaforseti Rónalds
Reagans, enginn annar en Ge-
orge Bush. Tiltölulega hár og
grannur maður með glæsilegan
embættisferil að baki, auk fall-
hlífarflótta úr orustuvél sinni yfir
Kyrrahafi í seinni heimsstyrjöld,
hefur hann samt sem áður fengið
á sig uppnefnið „Wimp“ eða væl-
ukjói. Og þannig er hann einmitt,
alltaf kurteis og varfærinn svarar
hann og svarar ekki vælandi
röddu að hann sé nú ekki þannig
gerður. „Besti varaforsetinn,
ever“ segir Rónald um félaga
sínn sem frægur er fyrir vettling-
atök og það að gera beint ekkert,
en vera aðeins til taks ef eitthvað
kæmi fyrir. Mann grunar að Bush
sé fæddur „lúser“. Pá hefur hann
einnig verið sakaður um að vera
kvæntur ömmu sinni.
Aðalkeppinautur varaforset-
ans er forseti sameinaðs Alþingis
hérlendra, Bob Dole frá Kansas.
Dól er fól hið mesta og harður í
horn að taka ef svo ber við. Hann
er e.t.v. full-skapmikill og lang-
rækinn og má maður sjálfsagt
fara að vara sig ef hann á eftir að
gista Hvíta húsið. Þó er hann eins
og sagt er á Vegagerðinni „traust-
ur maður“. Dole er einnig vel
kvæntur. Á hæla þessara tví-
menninga kemur svo sjónvarps-
hempan Pat Robertson, predik-
arinn frá Virginíu. Hann gerir nú
mikinn usla í flokknum og er
einskonar Albert þeirra Repú-
blikana með sinn hulduher sem
samanstendur af sóknarbörnum
hans. En Pat er einmitt Born-
Again- Christian og gerir einkum
út á millistétarmið mórals og
móðursýki. „Public enemy
number one“ segir rokkskáldið
Frank Zappa um sérann og telur
að nóg sé að fæðast einu sinni. Og
satt er það hjá honum, ef Robert-
son, sem lítur út eins og guð raka-
ður, kemst í stólinn, má heimur-
inn fyrst fara að vara sig. Einkum
þó létt vinstrihneigðir blökku-
hommar fylgjandi fóstureyðing-
um og óritskoðuðum dægurlagat-
extum. Við treystum á að aftur-
haldsframsókn þessa síbrosandi
trúarbadúrs verði stöðvuð hér í
New York, eða þá Kaliforníu.
Eftir eru þá aðeins Jack Kemp,
kempa með stólpakjaft en tóman
haus, Pete DuPont, úr Delaveri,
sem ég veit ekkert um frekar en
nokkur annar, og Alexander
Haig, gamli hershöfðinginn úr
Nato, sem er hér meira með af
sporti en öðru og einna léttlynd-
astur allra frambjóðenda.
Spá mín varðandi Repúblik-
ana: Dole eða Bush og Kemp eða
Bush eða Dole og Kemp.
En ekki eru þó allir frambjóð-
endur upp taldir því alls munu
þeir vera 36. í restinni eru alls
konar menn sem alltaf lifa í von-
inni um frekari metorð, rafvirki
frá Cleveland, eftirlaunaþegi frá
Florida eða gamall fylkisstjóri frá
Alabama sem nú er í framboði í
áttunda sinn og mætir áttræður til
leiks, þrumar af kassa í miðbæn-
um, lofar öllum þeim nýjum
djobbum sem hafa vilja og krefst
endurreisnar Ameríku, tignar
hennar og leiðarljóss heimsins
alls. Hann hljómar ekki svo ýkja
langt frá hinum alvöru-frambjóð-
endunum. Fólk heimtar nýjan
leiðtoga, það vill nýjan forseta,
mann sem er þess megnugur að
verða lyftistöng nýrra tíma og
getur skynjað þær breytingar sem
í nánd eru og um ókomna fram-
tíð. Mann sem er tilbúinn að axla
þá ábyrgð sem honum er fengin í
hendur og er þess í stakk búinn að
skjóta stoðum undir eflingu at-
vinnulífsins og leita nýrra leiða
varðandi endurskoðun utanríkis-
stefnunnar í fullu samræmi við þá
atburði sem nú eiga sér stað í
löndunum í kringum okkur.
Mann sem þorir að standa upp
þegar mest á ríður og fylkja sér
undir fána frelsis, jafnréttis og
lýðræðis. Mann eins og mig.
Já og leitin að forsetanum
heldur áfram og fylgst verður
með framvindu þeirra mála um
heim allan. Mönnum stendur
ekki á sama þegar auglýst er að
nú vanti þá vana menn, í Banda-
ríkjunum.
U.S.A. 10. feb. '88
Hallgrímur
PS. Þór Eldon er beðinn að koma í
síma 34156.
Sunnudagur 28. febrúar 1988 þjóÐVILJINN - SÍÐA 15