Þjóðviljinn - 20.03.1988, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 20.03.1988, Qupperneq 8
vera - Hvernig mótast unglingatísk- an? - Hvaðafyrirmyndir eiga ung- lingarnir sér í dag í klœðaburði oghátterni? - Hvaða áhrifhafafjármálin á fatatísku unglinganna og hver eru áhrifforeldranna? - Hverjireru helstu tísku- straumarnir í dag á meðal ung- linganna - og hvað hefur tekið við afpönk-tískunni? Þetta eru nokkrar þeirra spurninga sem við veltum fyrir okkur í dag í samtali við kraicka úr Kópavogi. Þetta eru dæmi- gerðir unglingar sem teljast ekki fulltrúar neinna öfgahópa í tísku- heiminum. Frásögn þeirra af unglingatísk- unni ætti að varpa nokkru ljósi á hugsunarhátt unglinga á tíma- skeiði þegar uppreisnartískan eins og við þekkjum hana frá tímabili Bítlanna, hippanna og pönkaranna virðist í rénun. Hvað eru unglingarnir að hugsa í dag? Við höfðum mælt okkur mót í aðstöðu nemendafélags Þing- hóisskóla í Kópavogi á dæmi- gerðum vetrardegi. Sex krakkar úr fjórum grunnskólum, Nína Guðmundsdóttir úr Kópavogs- skóla, Friðrik Guðmundsson úr Hjallaskóla, Snorri Bergþórsson úr Digranesskóla og þau Bergdís Eysteinsdóttir, Hafsteinn Haf- steinsson og Sóley Þórarinsdóttir úr Þinghólsskóla. Eftir að þau höfðu náð úr sér mesta hrollinum settust þau niður og við hófum spjallið. Fyrst langar mig til að spyrja hvort unglingar klœði sig eftir sín- um eigin smekk, eða hvort áhrif foreldra, vina og félaga eigi ríkan þátt í klœðaburði ykkar. Friðrik: Maður klæðir sig bara eins og maður vill sjálfur. Auðvitað skiptir það máli hversu mikinn pening maður á fyrir fata- kaupum en í aðalatriðum tel ég að við veljum fyrir okkur sjálf. Foreldrar okkar reyna að leiðbeina okkur við val á fötum en oftast fer þeirra smekkur ekki saman við okkar þannig að mað- ur reynir bara á móti að hafa áhrif á þau. Nína: Ég held að áhrif frá vin- um og félögum séu ekki mjög mikil, sjáif reyni ég til dæmis að kaupa föt sem ég hef ekki séð neinn annan í. Mér finnst það ekki skipta máli hvort fötin eru dýr eða ódýr, bara að maður fíli það að vera í þeim. Hafsteinn: Auðvitað verður maður fyrir áhrifum frá vinum og félögum. Ég held að fæstir myndu vilja vera í fötum sem allir myndu taka eftir og segja að þau væru púkó. Mér finnst það ekki skipta máli hvar fötin eru keypt, ef maður sér eitthvað bitastætt á útsölu þá kaupir maður þau þar. Annars er það mjög misjafnt eftir hverju menn fara. Sumir reyna að líta út eins og einhverjar poppstjörnur eða kvikmynda- leikarar. Bergdís: Stelpur pæla miklu meira í útlitinu heldur en strákar. Þær reyna miklu meira að vera í stíl heldur en þeir, til dæmis að hafa sokka í stíl við peysu. Flestir krakkar reyna að forðast það að fara með foreldrum sínum í bæ- inn. Þegar maður hefur gengið iengi í sömu fötunum þá finnst manni eins og maður sé fatalaus. Gömlu fötin hverfa smátt og smátt dýpra inn í fataskápinn og ný föt verða ofaná. Sóley: Það er eins og að í gamla daga hafi verið gengið í öllu sem fékkst. Sumir reyna að pína uppá börnin sín fötum sem þau fíla alls ekki að vera í. Flestir unglingar reyna að fylgja tískunni. Auðvit- að er smekkur manna mismun- andi og sumir hafa engan smekk heldur fara bara eftir vörumerkj- um. Friðrik: Ég held að krakkar sem eru að fermast í dag fari sold- ið mikið eftir þessu. Þau vilja fá föt sem eru frá þekktum fram- leiðanda og þau geta verið í eftir ferminguna. Sumir strákar vilja þó fá smóking, en aðrir vilja sam- stæðar buxur og jakka sem hægt er að nota sér. Stelpurnar vilja helst stutt pils og jakka. Ég held að krakkar hér á Stór- Reykjavíkursvæðinu fari helst á Laugaveginn og í Kringluna til að velja sér fermingarföt. Hvaðan fáið þið peninga fyrir fötunum ykkar; vinna unglingar í dag mikið til þess að halda sér í tískunni? Nína: Á sumrin vinnum við eins og við getum. Sumir fá nátt- úrlega ekki nema lélega vinnu og lélegt kaup. Maður reynir að spara sumarkaupið og hjá mér fer það yfirleitt í eitthvað stórt, t.d. upp í utanlandsferð. í haust keypti ég mér græjur. Bergdís: Ég vinn um helgar til þess að reyna að eiga vasapening og fyrir fötum. Ef kaupið dugar ekki til þá reyni ég að plata pabba og mömmu. Það er bara þannig að ef maður er alltaf í sömu föt- unum þá taka allir eftir því og stara á mann. En sumir fíla það að vera alltaf eins. Hverjar eru fyrirmyndir ung- linga í dag, eru það tónlistarmenn, kvikmyndaleikarar eða einhverjir aðrir? Hafsteinn: Á meðan maður er í 7.-9. bekk þá breytist maður mjög mikið, bæði í útliti og hugs- un. Ég held að kvikmyndir spili soldið stórt hlutverk því að pers- ónubreytingar unglinga þar byggjast allar á breytingum í klæðavali. Sjáðut.d. breytinguna á Olaviu Newton John í Grease og á stráknum í Can‘t buy me love. Þarna breytast persónurnar í rauninni ekkert; þær fá bara ný föt. Auðvitað verður maður fyrir áhrifum af þessu og svo hafa auglýsingar talsverð áhrif. En hvað með hártísku, eftir hverju er farið þar? Snorri: Hártíska er meira ein- staklingsbundin heldur en fata- tíska. Þú getur ekki bara skipt um hárgreiðslu á hverjum degi eins og föt. Þegar þú hefur valið þér hárgreiðslu þá þarftu að hafa hana á hausnum í langan tíma á eftir. Það er hægt að lita hárið og aflita en ef of mikið er gert að því þá getur hárið eyðilagst. Sumir eru mjög kaldir að gera eins og þeir vilja og raka af sér hárið, aðrir safna hári langt niður á bak. Ég held að hjá strákum sé mest í tísku að hafa hár niður á háls og greiða það aftur. Hafsteinn: Ég fór alltaf eftir myndum í blöðum sem lágu frammi á hárgreiðslustofunni og það var alltaf sama myndin. En núna er ég hættur þessu og farinn að segja sjálfur til um klipping- una. Ljósalampar, heilsurœkt og næring eru mjög ofarlega á baugi, eru þetta tískufyribrigði eða er þetta komið til að vera? Sóley: Fólki finnst bara töff að vera brúnt. Maður verður frísk- legri og lítur betur út. Það er bara vandamál hvað þetta er dýrt. Þetta tal um húðkrabbamein virðist ekki draga neitt úr fólki. Og svo eru bekkirnir hreinsaðir með einhverju sótthreinsandi efni þannig að AIDS ætti ekki að geta smitast þannig, þó að ein- hverjir haldi því fram. Bergdís: Margir fullorðnir halda að ljósalamparnir séu bara fyrir unglinga en það er ekki rétt. Ég þekki þetta nokkuð vel því ég vinn á ljósastofu. Þangað kemur í miklum meirihluta fullorðið fólk. Það er til dæmis fólk sem er bak- veikt eða með vöðvabólgu. Ég tók samt eftir því að þegar fyrst var farið að tala um að fólk gæti fengið húðkrabbamein af ljósum þá minnkaði aðsóknin nokkuð hjá eldra fólkinu. Nína: Það er flott að vera brúnn. En það er eins og allt sem er í tísku þurfi að vera svo dýrt. Venjulegir unglingar hafa ekki efni á að vera í öllu. Eróbikk er til dæmis mjög vinsælt en rosalega dýrt. Sama má segja um ljósa- lampana, venjulegir krakkar hafa ekki efni á að Iiggja í ljósum alla daga. Friðrik: Það er líka þannig að sumt af því sem er í tísku, sérstak- lega föt, er mjög dýrt. Dúnúlp- urnar sem allir eru í núna eru mjög dýrar og svo rifna þær við minnsta hnjask. Sumum finnst það kannski flott að vera í úlpu sem er öll í plástrum en mér finnst það bara hallærislegt. Snorri: Föt eru mismunandi sterk og mismunandi dýr. Það er oft hægt að fá föt í verslunum sem ekki eru við Laugaveginn eða í Kringlunni miklu ódýrar heldur en þar. En þá vantar oft vöru- merkið þannig að fötin verða ekki eins spennandi. Hver eru áhrif hins kynsins á klœðaburð ykkar, hugsið þið ykk- ur tvisvar um áður en þið farið í bœinn með krökkum af hinu kyn- inu? Snorri: Það fer nú mikið eftir Hafsteinn: „Þarna breytast persónurnar í rauninni ekkert, þaer fá bara ný föt.“ Bergdis: „Eftir að Bubbi kom fram í rifnum gallabuxum þá fóru allir Sóley: „Flestir unglingar reyna að fylgja tískunni." að vera í þessu.“ 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. mars 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.