Þjóðviljinn - 20.03.1988, Síða 15

Þjóðviljinn - 20.03.1988, Síða 15
DAGVIST BARNA Guðlaugur Guðlaugsson á Chevrolet 1932, R-514 Jóhannes Hannesson á Chevrolet 1934. sögðu næsta slæmir. Eg varð t.d. að tjakka bílinn minn 12 sinnum upp í einni ferð austur í Holt. f einni ferð þangað brotnuðu all- flestar lækjarbrýr undan bílnum, en þá flutti ég sement að Berg- þórshvoli en komst ekki lengra en að Hlíðarenda. Bændur buð- ust til þess að gera samdægurs við brýrnar eða rennurnar, eins og þessj mannvirki voru þá oft nefnd, og það gerðu þeir. Þá var ekki heiglum hent að aka austur. Hvolsvöllur var eitt moldarhaf en í miklum rigningum stóð þar hálfs meters vatn. Ég var fyrstsur manna til að flytja kjöt frá Djúpadal við Eystri Rangá fyrir bændur þar eystra. Gisti þá oftast á Brekkum." Bitið stykki úr hakaskafti Bifreið Péturs Guðfinnssonar, Chevrolet 1935, í bændaför. „Boddý“ hefur verið sett á pallinn. ' mrn Guðlaugur Þorgeirsson á Volvo 1982 - Y-991. „Margt er mér minnisstætt frá þessum árum og þá ekki síst bens- ínverkfallið í desember 1935. Þá átti að hækka bensín um 4 aura lítrann án þess að verðhækkanir kæmu til utanlands frá. Stóðu bíl- stjórar einhuga að því að hrinda slíkri hækkun af höndum sér og gerðu allsherjar verkfall. Settu verði, 20-50 menn, við Elliðaár. Þar var verið dag og nótt í þrár vikur og engum bíl hleypt úr bæn- um með vörur eða farþega. Einn- ig voru verðir við Öskjuhlíð og síðan við Baldurshaga og víðar, t.d. við Skíðaskálann. Ólafur Ketisson fékk undanþágu fyrsta daginn með því skilyrði að vera kominn aftur kl. 4 en hann kom fyrst kl. 6. Var hann þá stöðvaður og kveikjan tekin úr bíl hans, svo fór unt fleiri í þeim átökum. Mynduðust um þessi átök sögur, sem margar hverjar voru all þjóðsögukenndar. Áttu þær þó yfirleitt einhvern sannleiks- neista. Vörur úr þesum bílum, sem kyrrsettir voru, voru fluttar aftur í bæinn með hestvögnum en bílarnir urðu að bíða betri tíma. Ekki stoðaði þó að yfirvöld segð- ust aka í laganna nafni, þeim var leyft að ganga til baka í nafni sinna laga. Menn stóðu saman á varðstöð- unni og fyrir kom að þeim hlypi kapp í kinn, svo að dæmi voru til að menn bitu stykki úr haka- skafti, en það var eitt aðal vopn- ið. Sá sem það gerði, var Sigvaldi stóri, fyrrverandi lögregluþjónn. Bílstjórar unnu sigur og bensín- verðið hélst óbreytt. Margt hefur breyst til hins betra á síðari árum og aðbúnaður nokkuð annað en þegar ég ók tvö ár á húslausum bíl Garðars Gísla- sonar, sumar og vetur. Hafði þá að vísu augnhlífar en oft var ærið kalt. Saðan tók við vinnan við flutninga fyrir Kveldúlf, Arastöð og Færeyinga. Kaupið komst nið- ur í kr. 3,50 á tímann, en þá var hart í böggum. Nú er ævin önnur, sem betur fer.“ - mhg Gæsluvellir Starfsfólk óskast til afleysinga á gæsluvelli borgarinnar. Upplýsingar gefa umsjónarfóstrur í síma 21496 fyrir hádegi. Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar Hjúkrunarfræöinga og sjúkraliða vantar til sumarafleysinga. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 97- 71403. Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað Bæjarritari Staöa bæjarritara í Neskaupstaö er laus til um- sóknar. Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk. Um- sóknir er tilgreini menntun og fyrri störf sendist undirrituöum sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar. Bæjarstjóri. íbúð óskast Barnlaus hjón, blaöamaöur viö tímaritið Nýtt líf og eðlisfræðingurhjá löntæknistofnun íslands, óska eftir aö taka íbúö á leigu fyrir 1. júní nk. Vinsam- legast hafiö samband í síma 77179 á kvöldin, eöa á daginn við Halldóru Sigurdórsdóttur í síma 685380 eöa Heiðar Jón Hannesson í síma 687000. Barn sem situr í barnabílstól getur sloppið við meiðsl í árekstri! UUMFERÐAR RÁÐ Verzlunarmannafélag Reykjavíkur AÐALFUNDUR Aöalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur veröur haldinn í samkomusal Holiday Inn hótels- ins mánudaginn 28. mars og hefst kl. 20.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Sunnudagur 20. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.