Þjóðviljinn - 26.03.1988, Síða 4
LEIÐARI
ÞINGLYNDI
Allt í stakasta lagi
Einsog kunnugt er lifum viö í hinum allra besta heimi hugsan-
legum og á íslandi er allt í stakasta lagi þótt hottintottar og
halanegrar hafi þaö skítt í útlöndum og eigi það skiliö.
Fólkiö vinnur, þrestirnir syngja, bílarnir bruna, bankarnir
blómstra, valdsmenn hafa völdin og hver unir glaður viö sitt.
Einstaka sinnum kunna úrtölumönnum að virðast blikur á
himni, en sem betur fer höfum viö hér slíka menn í stafni aö
enginn þarf aö óttast öldugang, og óánægjutuldriö veröur eins-
og hver annar hljómandi málmur og hvellandi bjalla þegar hinir
framsýnu og stórráðu hafa bent lýðnum fram á veg.
Gott dæmi um þetta eru viðbrögðin við nýlegum fréttum um
stööu Útvegsbankans gamla, þarsem í Ijós kom aö tap á
honum var örlítið meira en áöur hafði verið tilkynnt, og munaði
þó ekki nema 400 milljónum, þannig aö samfélagið þarf aö láta
af hendi rakna sosum fjórðungi meira en okkur haföi verið sagt,
- 1700 miljónir í stað 1300 miljóna.
Pótt þetta séu ekki nema skitnar 6.800 krónur á hvert
mannsbarn í landinu, varla nema 20 til 25 þúsund kall á fjöl-
skyldu, þá kom strax upp einhver sífrandi hjá hinum nöldur-
sama minnihluta þjóðarinnar, sennilega sama liðinu og hefur
undanfarið verið að trufla heilbrigða og skynsamlega samn-
ingagerð í landinu.
En fríður foringi stýrir fræknu liði. Jón Sigurðsson, alnafni
forsetans gamla, greip strax í taumana og benti réttilega á að
auðvitað hefði almenningur hagnast á öllu saman. í réttu hlut-
falli við aukið tap ríkisins vegna gjaldþrots Útvegsbankans
gamla hækka hlutabréf ríkisins í Útvegsbankanum nýja. Til að
skilja þetta þarf enga æðri dulspeki, heldur nægir að treysta
yfirhagfræðingi þjóðarinnar og virða fyrir sér hið djarflega fas
fyrsta manns á lista Alþýðuflokksins í höfuðborg lýðveldisins.
Við græðum á því að tapa og þeim mun meira sem við
borgum því betri verður fjárhagurinn.
Þegar úrtölumönnum var með þessu hagfræðilega lögmáli
bent á villu síns vegar, - tjah, þá gerðist það sama og Jónas
lýsti forðum:
Þögn varö á ráöstefnu
þótti ríkur mæla.
Fagureygur konungur
við fóikstjórum horfði.
Stóð hann fyrir stóli
studdist við gullsprota.
Hvergi getur tignarmann
tígulegra.
Og þegar síðast fréttist var ennþá allt í stakasta lagi í hinum
besta heimi allra hugsanlegra heima.
Mannlíf á vori
Hér í Reykjavík hefur í vikunni ríkt góðviðri og borgarbúar
þykjast sjá þess ýmis dæmi að vorið sé á næsta leyti eða
jafnvel gengið í bæinn.
Kallarnir eru farnir að selja rauðmaga við Ægisíðuna, frést
hefur af lóunni í Hornafirði og laukar skjóta grænum teinum
uppúr vetrargrámanum í húsagörðum.
I hinni samlyndu ríkisstjórn okkar eru samskiptin einnig farin
að bera keim af því að vorið sé í nánd. Þar hafa menn hrist af
sér drungann og glensa nú hver við annan. Einn þingmanna
Framsóknarflokksins segir stjórnarslit framundan ef ekki verði
létt á raforkuokri á landsbyggðinni, og félagsmálaráðherrann
segist ekki nenna þessu lengur ef ekki verði samþykkt frum-
varp frá honum um húsnæðismál. Forsætisráðherrann og
utanríkisráðherrann tala saman hátt í útvarpi og dagblöðum
um stríðið í Austurlöndum nær, en fjármálaráðherrann lætur
sér í hófsemi nægja að gantast við sjálfan sig útaf gamalli
þingræðu um hvað sé rétt að borga kennurum í laun.
Svona er lífið, einsog formaður Skíðasambands íslands
sagði þegar hann kom heim eftir frægðarför íslensku íþrótta-
kappanna á ólympíuleikana í Calgary.
-m
þJÓÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, MörðurÁmason, Óttar Proppé.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Ingibjörg Hinriksdóttir
(fþr.), Hjörieifur Sveinbjörnsson, KristóferSvavarsson, Magnfríður
Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, LiljaGunnarsdóttir, ÓlafurGíslason,
Ragnar Karlsson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Stefánsson (íþr.),
SævarGuðbjörnsson, TómasTómasson.
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Utlltsteiknarar: GarðarSigvaldason, MargrétMagnúsdóttir.
Framkvæmdaatjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglý8ingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Olga Clausen, UnnurÁ-
gústsdóttir.
Sfmavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgrelðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð f lausasölu: 60 kr.
Helgarblöð: 70 kr.
Askriftarverð á mánuði: 700 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. mars 1988