Þjóðviljinn - 26.03.1988, Síða 6
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði ABH verður haldinn laugardaginn 26. mars kl.
10.00 í Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá: Staðan í bæjarmálunum. Útgáfumál og önnur mál. - Formaður
ABR
Konur á norrænt kvennaþing
Konur sem hafa áhuga á norræna kvennaþinginu í Osló í sumar, mætið í
morgunkaffi laugardaginn 26. mars nk. kl. 11.00, á Hallveigastöðum við
Túngötu.
Konur í Alþýðubandaiaginu.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, mánudaginn 28. mars kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Dagskrá bæjarstjórnarfundar 29. mars. 2) Umhverfismál og
heilbrigðismál. Fulltrúar Alþýðubandalagsins í viðkomandi nefndum leiða
umræður um þessa málaflokka. 3) Önnur mál. Allir velkomnir.
- Stjórn bæjarmálaráðs.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Morgunkaffi ABK
Heiðrún Sverrisdóttir bæjarfulltrúi og Sigurður Grétar Guðmundsson full-
trúi í stjórn Félagsheimilisins verða með heitt kaffi á könnunni i Þinghóli,
Hamraborg 11, laugardaginn 26. mars frá kl. 10-12. Allir velkomnir.
Stjórnin.
ABR
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Reykjavík heldur félagsfund þriðjudaginn 29. mars kl.
10.30. Rætt verður um málefni Palestínumanna og kjörin kjörnefnd fyrir
aðafund félagsins.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
ABR
Á döfinni
Morgunverðarfundur
laugardaginn 26. mars kl. 10.30
að Hverfisgötu 105. Bríet
Héðinsdóttir og Svavar
Gestsson reifa málefni
Ríkisútvarasins.
Stjórn ABR
Bríet
Svavar
Alþýðubandalagið á Akureyri
Félagsfundur
ABA þoðar til félagsfundar í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, laugardaginn
26. mars kl. 14.00
Dagskrá: 1) Lárusarhús, umræður um nýtingu. 2) Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórn ABA
Alþýðubandalagið Kóþavogi
Spilakvöld ABK
Haldið verður áfram með hin vinsælu spilakvöld 3 kvöld í viðbót. Spilað
verður mánudagana 11. og 25. apríl í Þi ighóli, Hamraborg 11
og hefst spilamennskan kl. 20.30.
Veitt verða kvöldverðlaun og heildarverðlaun sem eru helgarferð til Akur-
eyrar. Gisting í 2 nætur og morgunverður á Hótel KEA.
Allir velkomnir.
Stjórn ABK
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Skrifstofan opin á miðvikudögum
Skrifstofa ÆFAB er opin á miðvikudagskvöldum á milli kl. 20-22. Allar
upplýsingar um starfsemina og stefnumál.
Hringdu, eða það sem betra er, kiktu inn. Kaffi á könnunni.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins, Hverfisgötu 105, sími 17500.
Æskulýðsfylking Hafnarfjarðar
Félagsfundur
Æskulýðsfylking Hafnarfjarðar boðar til almenns félagsfundar þriðjudaginn
29. mars kl. 20 í Skálanum, Strandgötu 41
Dagskrá:
1. Almenn fundarsköp
2. Starfið.
3. Fjármál
4. Húsnæði.
5. Sósíalismi hvað er nú það?
Allir velkomnir, takið með ykkur gesti.
Stjórnin
Auglýsið í Þjéðviljanum
/ MENNING
Umsjón: Lilja Gunnarsdóttir
Háskólakórinn
Disneyrímur
í Tjamarbíói
Árni Harðarson: Þetta erfyrst ogfremst hugsað sem
skemmtiverk
ígærkvöldifrumflutti
Háskólakórinn nýtt verk og
gamalt, Disneyrímur Þórarins
Eldjárn viö tónlist Árna Harð-
arsonar. Sýningin ernýstár-
leg blanda af kórsöng og
leikhúsi, einhvers konar mús-
íkleikhús, kannski, ef reyna á
að setja nafn á fyrirbærið.
Kórinn og Halldór Björnsson
leikari flytja rímurnar undir
stjórn Árna, og Kára Halldórs,
sem annast leikstjórn. Ljósa-
maðurerÓlafurOrn Thor-
oddsen.
Árni Harðarson útskrifaðist
sem píanóleikari frá Tónlistar-
skóla Kópavogs 1976, og fór þá til
London í framhaldsnám í píanó-
leik og tónsmíðum við Royal Col-
lege of Music. Að námi loknu
1983 kom hann aftur til fslands og
tók við stjórn Háskólakórsins um
haustið. Auk þess að vera kór-
stjóri er hann kennari við Tón-
listarskóla Kópavogs, og semur
tónlist, meðal annars fyrir Há-
skólakórinn og fyrir leikhús.
Árni, hvernigfékkstu hugmynd-
ina að því að fara að semja tónlist
við Disneyrímur?
- Ég datt niður á rímurnar í
fyrravor, þegar ég var að leita að
efni fyrir sýningu í þessum stíl
fyrir Háskólakórinn. Við erum
alltaf með eitthvert nýtt íslenskt
verk á hverju ári, þó að þetta sé
með nokkuð öðru sniði en venju-
lega. Þessi 40 manna hópur gefur
ýmsa möguleika, til dæmis á að
flytja kórverk sem er leikið að
einhverju leyti. Við höfum
reyndar gert eitthvað svipað
áður, þegar við fluttum Sóleyjar-
kvæði 1984. í>á fengum við Guð-
mund Ólafsson leikara í lið með
okkur, en við settum ekki Sól-
eyjarkvæði á svið eins og Disn-
eyrímur núna, heldur var Guð-
mundur meira lesari með kórn-
um. En það var fyrsta tilraunin til
að nota kórinn á þennan hátt,
hafa hann á hreyfingu í kringum
áheyrendur, sem sagt nota mögu-
leika hans til annars en til hefð-
bundins kórsöngs.
- Við það að semja tónlistina
sjálfur en ekki einungis útsetja
hana eins og ég gerði með Sól-
eyjarkvæði, hef ég auðvitað
frjálsari hendur. Þannig hef ég
meiri möguleika á að ná fram
þeim áhrifum sem ég hef í huga
og henta sýningunni.
H L 1 ^ 1-1 1
n 7 7 J J
77 —
[i 7 V * \ * 1 V * 7 7*
n S. Svíf-um beint til Chieagó, síst er vit að slór- a þar ekt-a par-ið
\y 7 -r
t 1 J f r
11 7 * í tri f ~7 \ ' f p 7 L
\ 7 ‘*
eðl-a bjó þau El-í-as og Plár-a ----
Glugginn
Kristján Steingrímur sýnir olíumálverk
í gærkvöldi opnaði Kristján verkasýningu í Glugganum,
Steingrímur Jónsson mál- Glerárgötu 34, Akureyri.
Kristján Steingrímur er fæddur
1957. Hann útskrifaðist úr Nýlist-
adeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1981 og stundaði
síðan framhaldsnám við Ríkislist-
aháskólann í Hamborg frá 1983
til 1987. Hann hefur haldið
einkasýningar á Akureyri, í
Reykjavík og Þýskalandi, og
tekið þátt í samsýningum hér á
landi og erlendis.
Á sýningunni í Glugganum eru
jaðallega oh'umálverk, öll ný af
jnálinni. Glugginn er opinn alla
daga nema mánudaga kl. 14:00-
18:00, nema síðasta sýningardag-
inn 4. apríl, annan dag páska. Þá
er opið eins og aðra daga.
LG
Kristján Steingrímur
6 SÍÐA - ÞJÓÐViLJINN Laugardagur 26. mars 1988