Þjóðviljinn - 26.03.1988, Side 11
Námsmenn í kjarabaráttu fyrir framan alþingishúsið.
Námsmenn
Stuðningur við kröfu launafólks
Samstarfsnefnd námsmannahreyfinganna lýsirfullum stuðningi við
kröfur launafólks um 42 þús. kr. lágmarkslaun
Samstarfsnefnd namsmanna-
hreyfinganna, sem samanstendur
af Bandalagi íslenskra sérskóla-
nema, Iðnnemasambandi ís-
lands, Stúdentaráði Háskóla ís-
lands og Sambandi íslenskra
námsmanna erlendis, lýsir yfir
fullum stuðningi við þá kröfu
launafólks, sem nú stendur í
samningum, að lágmarkslaun
verði hækkuð upp að skattleysis-
mörkum.
Samstarfsnefnd námsmanna-
hreyfinganna lýsir þeirri skoðun
sinni að mjög óeðlilegt sé að
greidd skuli laun sem eru undir
skattleysismörkum, sem hefur
opinberlega verið viðurkennd
sem lágmarksframfærsla. Það er
ekki verjandi með nokkrum rök-
um að greiða fólki um 32.000 kr.
laun á mánuði fyrir fulla vinnu.
Námsmenn sem og aðrir þjóðfé-
lagshópar hljóta að styðja þá
mannréttindakröfu að launafólki
sé gert kleift að lifa af launum
fullrar dagvinnu.
Varðandi hagsmuni náms-
manna þá er þeirra barátta fyrir
bættum kjörum samtvinnuð
kjarabaráttu iáglaunafólks. Sú
framfærsla sem námsmenn eiga
möguleika á frá Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna getur aldrei
verið slitin úr samhengi við
lægstu laun í landinu hverju sinni.
Kröfum námsmanna um hærri
framfærslugrunn Lánasjóðs ísl.
námsmanna verður aldrei mætt á
meðan láglaunafólk sem vinnur
við undirstöðuatvinnuvegina
verður að sætta sig við laun langt
undir eðlilegri framfærslu. Af
þessum sökum fara hagsmunir
námsmanna og láglaunafólks
saman.
Af öllu þessu má vera ljóst að
námsmenn styðja kjarabaráttu
láglaunafólks.
ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI
Fjölbreytt og
lifandi starf
Skiptinemasamtökin AUS, alþjóðleg ungmenna-
skipti, auglýsa eftir starfsmanni á skrifstofu sína.
Um er að ræða hálfsdags starf fyrst um sinn, sem
síðar verður að heilsdagsstarfi frá og með 1. júlí.
Góð enskukunnátta nauðsynleg.
ítarleg starfslýsing og fleiri upplýsingar fást á
skrifstofu AUS, Mjölnisholti 14, milli kl. 13. og 16.
Alþjóðleg ungmennaskipti
SVÆÐISSTJÓRN
MÁLEFNA
FATLAÐRA
AUSTURLANDI
Þroskaþjálfi
óskast til starfa á sambýlið Stekkjartröð 1, Egils-
stöðum frá 1. maí n.k. eða eftir samkomulagi. Um
er að ræða kvöld- og helgarvinnu. Nánari upplýs-
ingar hjá forstöðumanni í síma 97-11877 milli kl.
9 og 12 eða á skrifstofu svæðisstjórnar í síma
97-11833 milli kl. 15 og 17.
Hver er munurinn á þessum páskaeggjum?
Verðmunurinn
í verðkönnun á páskaeggjum, sem VERÐLAGS-
STOFNUN birti 24. mars kemur fram umtalsverður
munur á smásöluverði páskaeggja.
Til dæmis er mestur verðmunur á 370 gr.
páskaeggjum frá Nóa-Síríus. Eggið til vinstri kostar
699 kr., sem er lægsta verð. Hins vegar kostar eggið til
hægri 1098 kr. og er það hæsta verð á þessari sömu
vöru. Verðmunurinn er því 399 kr. eða 57%.
- Það munar um minna.
Verðsamkeppni í sölu páskaeggja er mjög mikil. Nær
allar matvöruverslanir selja páskaegg á lægra verði en
framleiðandinn mælir með.
Fimm verslanir selja meira að segja páskaeggin á
lægra verði en heildsöluverð með söluskatti.
Könnun Verðlagsstofnunar náði til um 50 verslana og
sjoppa á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er merkjanlegur
munur á verði hverfaverslana og stórmarkaða, en
sjoppur reyndust almennt með hærra verð en
matvöruverslanir.
Það gefur augaleið, að það getur skipt neytendur
verulegu máli að kynna sér niðurstöður verðkönnunar
Verðlagsstofnunar og gera verðsamanburð.
VERUM Á VERÐI
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ