Þjóðviljinn - 23.04.1988, Page 18
RARIK
Ólafsvík
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsókn-
ar staf skrifstofumanns á skrifstofu Rafmagns-
veitnanna í Ólafsvík. Um er að ræða 1/2 starf.
Umsókn er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf
sendist á skrifstofu Rafmagnsveitnanna Sand-
holti 34 Ólafsvík sem jafnframt veitir allar upplýs-
ingar um starfið. Einnig liggja upplýsingar fyrir á
svæðisskrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins í
Stykkishólmi.
Umsóknum skal skilað fyrir 3. maí næstkomandi.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
HAMRAENDUM2
STYKKISHÓLMI
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Starfsmaður
Laus er staða starfsmanns við Fjölskylduheimili
fyrir unglinga. Um er að ræða vaktavinnu á sam-
býli fyrir 5-6 unglinga.
Menntun og/eða reynsla á sviði uppeldismála
æskileg.
Umsóknum sé skilað til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, á umsókn-
areyðublöðum sem þar fást.
Nánari upplýsingar í síma 681836 eftir kl. 16.00
Umsóknarfrestur er til 9. maí n.k.
—ÖRFRÉTTIR —
Eldey hf.
Byrjunin
lofar góðu
Framkvœmdastjórinn:
Útgerðin hefur gengið
vel. Fiskiríið mœttiþó
vera meira. Kaup á
þriðja skipinu í athugun
„Útgerð bæði Eldeyjar-Hjalta
og Eldeyjar-Boða hefur gengið
vel það sem af er, þó svo að fl-
skiríið mætti vera mun vera.
Bæði skipin selja allan sinn fisk á
Fiskmarkaði Suðurnesja og hafa
fengið gott verð fyrir hann,“
sagði Bragi Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Eldeyjar hf., við
Þjóðviljann.
Eldeyjar-Boði hefur verið á
dragnót og aflað vel en áður var
báturinn á línu og beitti ma.
vestfirskum kúfiski sem reyndist
vel á grunnslóð. Sömu sögu er að
segja af Eldeyjar-Hjalta; afli
hans hefur verið þokkalegur, en
hann hefur verið á útilegu. Bragi
sagði að góður afli hefði fengist í
kringum páskana en síðan dottið
niður og væru menn syðra að
vonast eftir almennilegri fisk-
göngu hvað úr hverju. Sameigin-
legur afli bátanna tveggja er orð-
inn ríflega 500 tonn frá febrúar-
byrjun til marsloka.
Suðurnesjamenn hafa tekið
fyrirtækinu vel og hafa þegar
safnast vel yfir 100 miljónir króna
í hlutafé og nú um þessar mundir
er verið að skrifa út bréf til 7 þús-
und einstaklinga í öllum sjö
sveitarfélögunum á Suðurnesj-
um, og stefnt að því að auka hlut-
afé fyrirtækisins upp í 150 miljón-
ir króna.
-grh
Vinna I verkföllum
Hverjum er heimilt aö vinna í verkfalli
og þá hvaða störf?
Eina lagaheimildin sem f jallar um hverjum er heimilt að vinna í verkfalli og hverjum
ekki er 18.gr. laga, nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilurog hljóðarþannig:
"Þegar vinnustöbvun hefur veriö löglega hafin, er þeim, sem hún aö
einhverju leytibeinistgegn, óheimilt aö stuöla aöþvlaöafstýra henni
meö aöstoö einstakra meölima þeirra félaga eöa sambanda sem aö
vinnustöövuninni standa."
Vinnustöðvun nær eingöngu til félagsmanna þess félags sem stendur að
verkfallsboðuninni og starfa á vinnustöðum og við störf sem verkfallsboðunin nær
til.
Þeimstarfsmönnumsem ekkieru íverkfalli, erheimiltað vinnasínvenjulegustörf,
enstarfsskyldurþeirrahvorkiaukast nóminnkavegnaverkfallsaðgerðanna. Sem
dæmi má taka bifvélavirkja eða kjötiðnaðarmenn, sem starfa við afgreiðslu í krafti
sérþekkingar sinnar. Verkfall raskar ekki stöðu slíkra manna á neinn hátt.
Eigendum fyrirtækja er heimilt að vinna við fyrirtæki sín, hvort sem þeir hafa unnið
þar að staðaldri eða ekki. Á það einnig við um maka, börn og nánustu ættingja.
Hluthöfum er óheimilt að vinna í verkfalli nema að hlutafjáreignin sé grundvöllur
lífsafkomu þeirra og starfið jafnframt grundvallaö á hlutafjáreigninni.
Verkfall nær ekki til stjórnenda fyrirtækja, svo sem framkvæmdastjóra,
fjármálastjóra, starfsmannastjóra, skrifstofustjóra, verslunarstjóra og annarra
sambærilegrayfirmannameðstjórnunarábyrgð. Slíkumyfirmönnum beraðsinna
stjórnunarstörufm sínum og er tvímælalaust heimilt að ganga inn í störf
aðstoðarmanna sinna, svo sem fulltrúa, ritara, símavarða og umsjónarmanna
húsakynna.
©Tnj Vinnuveitendasamband íslands
Félag
járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl 1988 kl.
20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Kjaramál
3. Tillaga um takmörkun yfirvinnu
4. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
»i| REYKJNJÍKURBORG IFWI
T Aaum.’i Stödcvi 't'
Árbæjarsafn -
sumarstörf
Árbæjarsafn óskar eftir leiðsögumönnum og
starfsfólki í miðasölu.
Málakunnátta nauðsynleg. Einnig vantar fólk til
starfa við veitingasölu. Um er að ræða fullt starf
og/eða afleysingar um helgar.
Laur. samkv. kjarasamningi Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Árbæjarsafns í síma 84412.
Umsóknir óskast sendar til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar eða á skrifstofu Árbæjarsafns
á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 1988.
LANDSVIRKJUN
Vinnubúðir til sölu
Landsvirkjun áformar að selja ef viðunandi tilboð
fást, vinnubúðir við Búrfellsstöð.
Um er að ræða tvö hús af Moelven gerð. Stærð
annars hússins er 82,5 m2 og hins 63,0 m2.
Dagana25. og 26. apríl munú starfsmenn Lands-
virkjunar sýna væntanlegum bjóðendum húsin
frá kl. 10.00-18.00.
Nánari upplýsingar veitir innkaupastjóri Lands-
virkjunar.
Tilboð þurfa að berast Landsvirkjun, innkaupa-
deild, Háaleitisbraut 68,103 Reykjavík, eigi síðar
en föstudaginn 29. apríl nk.
Þjóðarbókhlaðan
Tilboðs óskast í frágang forhýsis, glugga og glerj-
un aðalhúss, múrverk og frágang í stigahúsum
ofl. í húsi Þjóðarbókhlöðunnar við Birkimel.
Verkinu skal lokið fyrir 30. apríl 1989 en þó skal
hluta þess lokið á árinu 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Borgartúni 7, Reykjavík, til og með 6. maí 1988
gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð á sama stað mánudaginn 16. maí 1988 kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844