Þjóðviljinn - 15.05.1988, Page 2
Dándimaður vikunnan
I rósa-
garðinum
HIN TORVELDA
LEIT AÐ
VANDAMÁLUM
En hvað er það þá sem Jóhann
hefur svona á móti skákinni? Jú,
hann segir að hún ýti undir stétta-
skiptingu og kynþáttahatur. Kæri
Jóhann minn. Það er bara tilviljun
að litirnir skuli vera hvítt og svart,
því það má alveg eins leika skák
með litunum gult og rautt og blátt
eða bleikt. Og þar að auki vil ég
benda þér á að hinir svörtu hafa
sömu réttindi og hinir hvítu, þeas
þeir mega dvelja jafnt á svörtum
sem hvítum reitum.
Morgunblaðið.
HIÐ SANNA
MÆÐRAVELDI
Að lokum vil ég benda þér á eitt
sem þú hefur ekki tekið eftir og
það er það hve mikið skákin
styrkir kvenímyndina, því að öfl-
ugasti maður borðsins er engin
önnur en drottningin.
Morgunblaðið.
JAFNRÉTTIS-
KRÖFUR
MARKAÐS-
LÖGMÁLANNA
Persónan sem hann leikur er
hið fullkomna afsprengi bland-
aðs hagkerfis glæpa og græðgi:
samviskulaus morðingi í þjón-
ustu stórfyrirtækis. Hann er
hreykinn af atvinnumennsku
sinni og sér enga ástæðu fyrir því
af hverju hann ætti ekki að fá
sömu meðferð hjá fyrirtækinu og
yfirmennirnir í söludeildunum:
hátt kaup, ýmis forréttindi, stöðu-
hækkanir.
Morgunblaðið.
FUNDIN
SKÝRING
Mér finnst það lýsa miklum
skorti á skilningi hjá íbúum
Reykjavíkur að þeir skuli vera að
þrasa út af því þótt hann Davíð
vilji byggja ráðhús í eina tjarnar-
pollinum sem til er í borginni.
Ég skil Davíð vel því strákar
hafa alltaf haft gaman af að leika
sér í pollum.
Morgunblaðið
BARA AÐ VIÐ
VISSUM ÞAÐ NÚ
Ég gleymdi einni spurningu:
hvort er meiri óstjórn - á alþjóð-
legan mælikvarða - á fram-
kvæmdastjórn sjávarútvegsmála
miðað við ríkjandi aðstæður -
eða á framkvæmdastjórn pen-
ingamála í Seðlabankanum?
Morgunblaðið
MARGT AÐ
VARAST
Ég leyfi mér að fullyrða að um-
fjöllun um íþróttir í fjölmiðlum
miðar að því að sannfæra fólk um
að sá sé með annan fótinn í grö-
finni sem verður þrítugur...
Lesbók Morgunblaðsins
SKAÐI SKRIFAR
Ósæmilegt írafár út af bifreið
Það er svolítið sem er að veltast og byltast og hrærast um í
mínum gamla en þó skarpa kolli. Og það er þetta: hve margt
leiðinlegt mundi aldrei gerast ef eitthvað annað gerðist í stað-
inn, eða gerðist alls ekki
Þeta er líka tengt spurningunni um frelsi viljans og annað
þessháttar sem við (slendingar höfum alltaf átt erfitt með allt frá
því að Skarphéðinn Njálsson (eða var það ekki hann?) sagði:
Eigi má sköpum renna.
Tilefnið er þetta smámál sem öfundarblöð hafa verið að
blása út með sinni venjulegu frekju og yfirgangi. Ég á náttúr-
lega við Grandabílsmálið hans Ragnars Júlíussonar, flokksb-
róður míns. Mér hefur alltaf þótt vænt um Rangnar fyrir það
hvað hann er einarður í slagnum við þessa komma sem allt
þykjast vita og geta og jarma eitthvað í sinni náttúrulausu öfund
um réttlæti og jöfnuð. Ragnar hefur alltaf látið þetta eins og
tíkargjólu um eyru þjóta enda var það hann sem orti eftir frægan
fund í Fræðsluráði Reykjavíkur:
Ef kommar þér senda klögunarbréf
á kili réttum þú siglir
Nú, þetta fjölmiðlapakk fór eitthvað að ergjast út í Ragnar rétt
eins og aldrei hefði verið keyptur bíll hér á landi. Og eins og
kannski kom fram áðan þá finnst mér þetta langt fyrir neðan
allar hellur. Er ekki keyptur bíll undir stelpuna á Bessastöðum
og Steingrím framsóknarmann og náttúrlega vin minn Davíð
Oddsson og marga aðra, verðuga og óverðuga? Af hverju má
ekki kaupa bíl undir Ragnar Júlíusson? Á enginn jöfnuður að
vera í þessu þjóðfélagi eða hvað? Þarf Ragnar ekki að keyra
eins og aðrir, þessi starfsami maður með kolvitlausa krakka í
sínum skóla á herðum sér, upp æsta af laumubyltingu rauðliða í
menntakerfinu, og svo þarf hann að þjóta niður í Granda á
stjórnarfund og tala þar við kerlingar sem eru úttútnaðar allar af
jafnréttiskjaftæði. Á maðurinn kannski að hjóla eins og sumir
og ýmsir uppgerðarflibbaöreigar?
Eg segi nú bara svona.
Og Ragnar átti sitt þjóðlega og hnyttna svar við þessum
ofsóknum í svofelldri vísu:
Nú moka þeir upp moldviðri
menn lítilla sanda
en ég er bæði hreinn og beinn
og ég brýst út úr vanda
ég niður lít á nöldurpakk
úr nýjum bíl frá Granda.
En þegar fjölmiðlapakkið var semsagt að þessum sínum
fjarstýrðu fólskulátum, þá benti Ragnar minn á merkilegan hlut
sem ég hafði satt best að segja ekki hugleitt áður sem skyldi.
Það skal á það minnt að fyrst lenti Ragnar í bílslysi (það var
svosem ekki verið að kaupa Grandabíl fyrst, nei fyrst skemmdi
Ragnar sinn eigin bíl og sjálfan sig líka þar sem hann ók um og
var að hugleiða veg og virðingu síns fyrirtækis. En þetta hugsa
fjölmiðlafantar aldrei um. Það er engin mannúðarstefna til hjá
því pakki). Já, hann semsagt lenti í bílslysi, ég held það hafi
verið í fyrra. Og ég minni líka á það að Helgarpósturinn var
fyrstur með fréttina, það sóðablað. En Ragnar, hann lagði
semsagt út af þessu á sinn heimspekilega hátt má ég segja.
Hann sagði í viðtal; v^ þennan misskilning sem er kallaður
Alþýðublaðið:
„Ef ég hefði drepist í þessu bílslysi, þá hefði glæpnum verið
stolið frá Helgarpóstinum".
Þetta er náttúrlega lærð ívitnun í Laxness, þetta að stela
glæpnum en Ragnar meinar auðvitað jjetta hér: Ef ég hefði
drepist í bílslysi, þá hefði enginn bíll verið keyptur og Helgar-
pósturinn hefði enga frétt fengið.
Eða eins og ég sagði áðan: ef eitthvað gerist ekki þá gerist
annað ekki heldur.
Til dæmis hefði Helgarpósturinn ekki haft neitt að skrifa um
ef Davíð hefði ekki skipað Ragnar til þungra skyldustarfa hjá
Granda, þar sem þarf að segja fólki upp og gera ýmislegt sem
tekur á hjörtu og lifur og magasár. Ekki hefði Helgarpósturinn
heldur haft neitt að skrifa um ef Davíð væri ekki borgarstjóri.
Hann væri alveg fréttalaus ef við sjálfstæðismenn hefðum ekki
fylgi og atorku il að reka fyrirtæki með reisn. Og þá er ekki nærri
allt upp talið. Ef stjórn Granda hefði ekki þröngvað bílnum upp á
Ragnar sárnauðugan (hann vildi náttúrlega kaupa sinn bíl sjálf-
ur eins og síðar kom á daginn), þá stæðu þessir svokallaðir
fjölmiðlar auðir og gapandi og lesendur þeirra og notendur
væru komnir á fyllirí út úr leiðindum eða þaðan af ver;ra.
Laun heimsins eru vanþakklæti. Meira að segja mjög mikið
vanþakklæti.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
/
I