Þjóðviljinn - 25.05.1988, Síða 6
Ölduselsskóli
Foreldrar styðja Daníel
92,3% foreldra styðja Daníel Gunnarsson ístarf skólastjóra.
Stjórnfélags skólastjóra ogyfirkennara mótmœlir harðlega
afgreiðslu málsins ífrœðsluráði Reykjavíkur
Fiskverð
Vísað til
yfimefndar
Árangurslaus fundur var í
Verðlagsráði sjávarútvegsins í
gær um nýtt fiskverð og var verð-
ákvörðuninni vísað til yflrnefnd-
ar verðlagsráðs.
Að sögn Óskars Vigfússonar
formanns Sjómannasambandsins
virðist allt stefna í það að hið op-
inbera tilkynni útgerðarmönnum
og sjómönnum í gegnum odda-
mann yfirnefndar hversu há fisk-
verðshækkunin verði. Sam-
kvæmt nýsettum bráðabirgða-
lögum er ekki heimilt að hækka
laun þeirra hópa sem ósamið er
við meira en 10% og sagði Óskar
að úr því sem komið væri gerðu
sjómenn tilkall til þeirrar hækk-
unar en ekki feti neðar.
Óskar sagði ennfremur að ef
stjórnvöld ætluðust til þess að
sjómenn einir sér tækju á sig
versnandi afkomu þjóðarbúsins
væri eins gott að hætta sjósókn.
-grh
Um 92,3% foreldra sem eiga
börn í Ölduselsskóla styðja
Daníel Gunnarsson yfirkennara
skólans í starf skólastjóra.
Af 822 nemendum tókst að ná
til foreldra 801 nemanda og af
þeim skrifuðu 94,8% undir
stuðningsyfirlýsinguna við Daní-
el Gunnarsson.
Pessar upplýsingar koma fram
í fréttatilkynniungu frá foreldras-
amtökunum frá Ölduselsskóla,
en í gær þ. 24. maí var Birgi ísleifi
Gunnarsyni
menntamálaráðherra afhentar
undirskriftir foreidra 759 barna,
þar sem lýst er yfir stuðningi við
Daníel Gunnarsson í embætti
skólastjóra við skólann
Á fundi í fræðsluráði Reykja-
víkur í sl. viku hlaut Daníel að-
eins eitt atkvæði fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins en Sjöfn Sigur-
björnsdóttir fyrrum borgarfull-
trúi hlaut fjögur atkvæði Sjálf-
stæðismanna og fulltrúa Alþýðu-
flokks.
Að sögn Ingibjargar Sigurvins-
dóttur, en hún er formaður áð-
urnefndra foreldrasamtaka, er
tilgangurinn með undirskrifta-
söfnuninni til stuðnings Daníel,
fyrst og fremst að tryggja farsæld
skólastarfsins, en að mati foreldr-
asamt'akanna er staða skólans
afar góð, mikil festa í öllu skóla-
starfi og Daníel Gunnarsson vin-
sæll sem yfirkennari bæði meðal
nemenda og fore|dra þeirra.
Ingibjörg kvaðst vona að ráða-
menn muni taka tilit til óska for-
eldrana i þessu máli. Öll rök
mæltu með ráðningu Daníels í
stöðuna bæði menntun, starfs-
reynsla við skólann og svo ekki
síst eindreginn og óskoraður
stuðningur foreldra við ráðningu
hans.
Þá hefur stjórn skólastjóra og
yfirkennara sennt frá sér harð-
orða fréttatilkynningu, þar sem
afgreiðslu fræðsluráðs Reykja-
víkur á þessu máli er harðlega
mótmælt. í fréttatilkynningu
stjórnar félags skólastjóra og
yfirkennara er það talið óviðun-
andi að fólk með fullgilda
menntun og mikla starfsreynslu
sé sett hjá. Stjórnin telur aðeins
Daníel uppfylla nauðsynlegar
kröfur sem staða skólastjóra
krefst. Að lokum er sú almenna
stefna ítrekuð um nauðsyn góðr-
ar fagmenntunar til handa kenn-
urum og stjórnenda skóla um leið
og því er treyst að menntamála-
ráðherra virði þetta sjónarmið og
forði starfsfólki, nemendum
Ölduselsskóla og íbúum hverfis-
ins frá óþarfa átökum.
Miðasala hafin. í gær hófst sala miða á Listahátíð 1988 sem hefst 4. júní nk. og myndaðist strax biðröð. Til
að létta fólki biðina söng kór Kársnesskóla nokkur lög í blíðviðrinu undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Mynd:
E.ÓI.
Efnahagsaðgerðirnar
Herstöðvaandstœðingar
Mótmæla víg-
búnaði í höfunum
Útifundur á Lœkjartorgi á morgun
Amorgun verður útifundur á
Lækjartorgi þar sem vígbún-
aði í höfunum verður mótmælt og
scndiráðum Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna verður afhent
áskorun um afvopnun í höfunum
og brottfluttning herja stórveld-
anna frá Evrópu.
Krafan um afvopnun í höfun-
um er sérstaklega mikilvæg fyrir
íslendinga. Slys um borð í kjarn-
orkukafbáti á íslandsmiðum
myndi hafa óbætanleg áhrif á
fiskimiðin umhverfis landið og
myndi ógna öllu lífríki í hafinu
um ókomna framtíð. Sovétríkin
og Bandaríkin hafa mest allan
sinn kjarnorkukafbátaflota stað-
settan norður af landinu. Þeir
bera stýriflaugar og eru uppi
áætlanir um að fjölga þeim enn
frekar.
Þær hernaðarframkvæmdir
sem hafa átt sér stað á íslandi á
undanförnum misserum, olíu-
höfnin í Helguvík og síðan hug-
myndir um herflugvöll á norður-
landi, eru hluti af vígbúnaðar-
kapphlaupinu í norðurhöfum.
Á útifundinum á laugardag
sem hefst kl 17:30, munu Ingi
Hans Jónsson verkamaður frá
Grundarfirði og Hjörleifur Gutt-
ormsson alþingismaður, flytja
ávörp. Fundurinn er í tengslum
við aðgerðir Friðarsambands
Norðurhafa.
___________________-hmp
Vatnsrennibraut
r
Munu leiða til vaxtahækkunar
Pétur Blöndal: Bindiskylda verðbréfasjóðanna minnkar
framboð á peningum
Eitt af markmiðum efnahags-
aðgerða ríkisstjórnarinnar
sem gripið var til fyrir síðustu
helgi er að vextir lækki. Hinsveg-
ar fela aðgerðirnar í sér að vextir
muni hækka og er það einkum
tvennt sem þar kemur til. Ann-
Hvernig er hægt að draga úr
hættu á stórslysum vegna
efnanotkunar og efnafram-
leiðslu? Hvernig er hægt að
hamla á móti skaðlegum áhrifum
sem fylgja streitu og andlegu álagi
við vinnu? Þetta er meðal við-
fangsefna á norrænni ráðstefnu
um vinnuvernd, sem haldin verð-
ur á Hótel Sögu dagana 25.-28.
þ.m.
Þessar ráðstefnur eru haldnar
arsvegar bindiskylda verðbréfa-
sjóðanna, sem nú verða skyldugir
til að fjárfesta í ríkisskulda-
bréfum fyrir 20% af aukningu
ráðstöfunarfjár síns og hinsvegar
afnám lánskjaravísitölunnar.
Pétur Blöndal forstjóri
annað hvert ár og er þessi sú sex-
tánda í röðinni. Viðfangsefnin að
þessu sinni verða m.m: Nýjar að-
ferðir við vinnustaðaeftirlit,
þekking og færni eftirlitsmanna,
forvarnir gegn álagssjúkdómum,
sálrænir áhættuþættir, fyrirtækja
heilsuvernd o.fl.
Umfjöllun efnisins mun fara
fram með inngangserindum og
vinnu í starfshópum
Forstjóri Vinnueftirlits ríkis-
ins, Eyjólfur Sæmundsson mun
Kaupþings segir að bindiskylda
verðbréfasjóðanna leiði til þess
að framboð á peningum minnkar
og þar með hækka vextir. Hvað
afnám lánskjaravísitölunnar á
skammtímalán varðar segist Pét-
ur ekki skilja þá ákvörðun því
reyfa efnið: „Að koma í veg fyrir
stórslys", og byggir þar á athug-
unum sem gerðar hafa verið á
hættu frá ammoníaksgeymi
Áburðarverksmiðjunnar í Guf-
unesi.
Þarna verður og greint frá nið-
urstöðum umfangsmikillar rann-
sóknar á einkennum frá stoð- og
hreyfikerfi hjá íslendingum al-
mennt og starfsfólki í frystihúsum
sérstaklega.
-GJH.
lánskjaravísitala hefur þau áhrif
að lækka vexti.
„Dæmið er þannig að ef láns-
kjaravísitalan er ekki til staðar
sem trygging verða menn að gefa
sér verðbólguforsendur við
ákvörðun vaxta og ljóst er að þar
taka menn yfirleitt mið af hæstu
verðbólguspáum til að tryggja sig
gegn áföllum,“ segir Pétur, en
bætir því við að áhrifin af afnámi
lánskjaravísitölunnar séu ekki
eins mikil hvað vaxtahækkunina
varðar og framangreind bindi-
skylda,
„Hvað bindiskylduna varðar er
Ijóst að með henni er ríkið komið
inn fyrir dyr hjá verðbréfasjóð-
unum og það er hættulegt," segir
Pétur. „Slíkt getur leitt til þess að
brátt verði þeir skyldaðir til að
kaupa sérstök bréf á lægri vöxt-
um en almennt gerist og það get-
ur rutt brautina fyrir aukna skatt-
lagningu á sparifjáreigendur. Ég
get út af fyrir sig samþykkt þessa
bindiskyldu ef hún væri raun-
veruleg bindiskylda en ekki
þensluskylda, því ljóst er að þetta
fé fer beint í hallarekstur ríkis-
sjóðs og þaðan út í atvinnulífið
með tilheyrandi þensluáhrifum."
-FRI
Okeypis
aðgangur
Afundi borgarstjórnar í fyrra-
kvöld mótmæltu borgarfull-
trúar Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks að
sérstakur aðgangseyrir verði
greiddur fyrir aðgang í vatns-
rennibrautinni sem verið er að
koma upp við Laugardalssund-
laugina. Sigurjón Pétursson,
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins kunngerði á fundinum að
hann mundi leggja fram tillögu á
næsta borgarráðsfundi um að að-
gangur verði ókeypis í vatnsrenn-
ibrautina.
Það var Guðrún Ágústdóttir
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins sem vakti athygli borgar-
stjórnar á þeirri ósvinnu varðandi
aðgangseyrir í vatnsrenni-
brautina, sem hún sagði vera
dapurlega staðreynd um að ein-
ungis þeir ríku ættu að hafa for-
gang að þessu vinsæla leiktæki og
mótmælti hún því harðlega ef svo
yrði. í sama streng tóku borgar-
fulltrúar Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks.
Við lok umræðunnar sagði Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks að
ástæða væri til að endurskoða á-
kvörðunina um greiðslufyrir-
komulag í vatnsrennibrautina og
lagði til að málinu yrði vísað til
borgarráðs til frekari umfiöllun-
ar. -grh
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 25. maí 1988
Vinnuvernd
Þingað um eiturefni
Norrœntþing um eiturefni á vinnustöðum. Hvernig drögum við úr
stórslysum?