Þjóðviljinn - 07.06.1988, Side 10
I DAG
Samsæri
hins
illa
Ekki væri meö sanni hægt aö
segja, að veðurguðirnir hafi verið sjó-
mönnum neitt sérlega hliðhollir, þeg-
ar þeir síðarnefndu héldu upp á hál-
frar aldar afmæli dags síns, sjómann-
adagsins nú á sunnudaginn var í suð-
austan rigningu og roki.Slíkt beit
auðvitað ekki neitt á hetjur hafsins,
enda hertir í áratugabaráttu við ægi
konung og örugglega velkunnugir
fangbrögðum hans.
Við kulvísir blaðasnáparnir, sem
hímdum í nepjunni þennan vota og
stormsama sjómannadag vorum ekki
jafn borubrattir og hetjur hafsins,
enda hugsuðum við veðurguðunum,
sem þessari óáran ollu, þegjandi
þörfina.
Slíkt veðurfar hefði út af fyrir sig
ekki þótt ástæða til umfjöllunar í
málgagni sósíalismans, ef sú stað-
reynd hefði ekki blasað við, að veður-
far dagana á undan hafði verið með
allt öðrum hætti. Alla vikuna á undan
hafði verið blíðskaparveður, þannig
að blaðamann fór að gruna margt.
Gat veriö, að um skipulagt sam-
særi væri að ræða? Samsæri gegn
sjómönnum og öðru vinnandi fólki,
sem átti frí þennan umrædda dag?
Gat verið að þetta samsæri væri
sameiginlegt kappsmál almættisins,
veðurstofunnar og hugsanlega lög-
regluyfirvalda í ofaná lag? Ég geri
mér Ijóst, að slíkar hugsanir bera ekki
góðu hugarfari fagurt vitni. Hinsvegar
hljóta allir að sjá að málið er meira en
lítiðgrunsamlegt.
Trú mín á almættinu hefur aldrei
rist mjög djúpt, þótt vægt sé að orði
komist. Frekar hef ég reiknað með
einhverjum óþokkabrögðum, heldur
en „prógressívu" hlutverki. Hvað
veðurstofuna snertir, þá hef ég yfir-
leitt tekið hana sem einhverskonar
„andmeldingar" stöð, að ef hún spái
rigningu þá verði bjart o.s.f. í þessu
lágu líklega stærstu mistök min á
sunnudaginn var, en það staðfestir
en sem fyrr, að engu er treystandi.
Ekki einu sinni að veðurstofan sþái
vitlaust.
Hvað lögregluna varðar, má benda
á að hún er oftast nærstödd þegar
einhvervandræðieruáferðinni. Það
má benda á gagnbyltingarsinnað eðli
hennar skv. viðurkenndum formúlum
sósíalismans. Og við hverju er svo
sem að búast þegar þetta þríeyki,
almættið, veðurstofan og lögreglan
nærsaman?
Grói
í dag er
7. júní, þriðjudagur í sjöundu viku
sumars, átjándi dagur skerplu,
159. dagur ársins. Sól kemur upp
í Reykjavík kl. 3.08 en sest kl.
23.47.
Viðburðir
FæddurTómas Sæmundsson
1807. íslandsbanki stofnaður
1904.
Þjóðviljinn
fyrir50árum
(5.6.)
Frá Akureyri til Reykjavíkur á 1
klst. 55 mín. Agnar Kofoed-
Hansen, flugmaöur, flaug fyrri-
partinn ígærfráAkureyri til
Reykjavíkurá 1 klst. 55mínútum,
og mun það vera skemmsti tími,
sem flogið hefir verið á milli þess-
ara staða. - Hátíðahöld sjó-
mannadagsins hefjast kl. 8 í
fyrramálið. Hópganga um bæinn,
samkoma við Leifsstyttuna,
íþróttakeppni, fagnaður á Borg.
Rásirnar
með
UM UTVARP & SJONVARP
sumar-
svip
Eins og landsmenn hafa tekið
eftir hafa orðið nokkrar breyting-
ar á dagskrá rásar eitt og tvö sam-
fara sumarkominni. Nokkrir nýir
þættir hefja göngu sína, aðrir
hætta eða fara í sumarfrí.
Ástæður þessara breytingar
eru tvíþættar, að sögn Elvu
Bjarkar Gunnarsdóttur fram-
kvæmdastjóra hljóðvarpsins.
Fjárhagsrammi Útvarpsins er
þröngur og nauðsynlegt að spara
í dagskrágerð og hins vegar verða
töluverðar breytingar á þjóðfé-
lagstaktinum yfir sumartímann,
og nauðsynlegt fyrir útvarp að
mæta því með breyttri dagskrá.
Helstu breytingar verða að
samtenging rásanna verður nú
klukkutíma fyrr fimm daga vik-
unnar eða strax á miðnætti. Þó-
verða engar breytingar á föstu-
dögum og laugardögum frá því
sem var í vetrardagskránni. Hlut-
fall endurtekins efnis eykst með
sumardagskránni. Það er ekki
bara gert í sparnaðarskyni heldur
einnig til að stuðla að því, góðir
þættir nái eyrum sem flestra, að
sögn Elvu Bjarkar. Við hér á
blaðinu höfum þegar kynnt
nokkrar þeirra breytinga sem nú
eiga sér stað hjá Útvarpinu. Þess
vegna verður hér aðeins gerð
I sumar ætlar rás eitt að bjóða upp á óperukynningar hálfsmánaðarlega.
grein fyrir þeim breytingum sem
ekki hefur verið minnst á áður.
Barnatíminn sem er á dagskrá
rásar eitt rúmlega níu á mor-
gnana verður endurtekinn klukk-
an átta um kvöldið. Landpóstur-
inn verður á dagskrá eftir morg-
unleikfimi sem lýkur klukkan
hálftíu, á þriðjudögum, miðviku-
dögum og fimmtudögum, og
verður endurtekinn um kvöldið
kl. 21.
Þó nokkrar breytingar verða á
kvölddagskrá. Þar koma á dag-
skrá nýir þættir um náttúru-
skoðun sem verða á föstudögum,
þáttur um ferðamál á miðviku-
dögum og í stað þriggja lestra á
útvarpssögunni verða þeir tveir í
sumar, á sunnudögum og mánu-
dögum, í stað lestrarins á þriðju-
dögum verður nú leikin íslensk
tónlist.
Aðal breytingarnar á dagsk-
ránni verður um helgar. Hér
verða þó aðeins minnst á þá nýju
þætti sem verður boðið uppá um
helgar og ekki hefur verið minnst
á hér á þessum stað áður. Fyrst er
þar að nefna á laugar-
dagsmorgnum verður þáttur frá
Akureyri sem heitir „Ég fer í
fríið“ en sá þáttur er ætlaður allri
fjölskyldunni, á laugardagsk-
völdum verða mannlífsþættir til
skiptis frá Austfjörðum og Vest-
fjörðum. Einnig verða þá lesnar
smásögur eftir þekkta höfunda. í
stað gamalla útvarpsleikrita sem
hafa verið á dagskrá á laugar-
dögum hálfsmánaðarlega verður
nú boðið uppá óperukynningar í
sumar.
Á sunnudögum verður nýr
þáttur sem fengið hefur heitið „Á
slóðum Laxdælu." Þá má einnig
nefna að í stað Pallborðsins sem
verið hefur á dagskrá síðdegis á
sunnudögum kemur þáttur fyrir
börn og unglinga.
Uppbygging rásar 2 verður
með svipuðu sniði og verið hefur,
en við hér á Þjóðviljanum höfum
þegar gert grein fyrir þeim
breytingum sem þar eiga sér stað
samfara sumarkominni.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
FOLDA
Nú? Þá er ég sennilega að
rugla þér saman við einhvern
kollega minn. Við erum jú allir
eins á skýlunni! Hahaha...
JL
10 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 7. júní 1988