Þjóðviljinn - 11.06.1988, Page 1
Fiskmarkaðir
Á fyrsta starfsári fiskmarkaða
hérlendis seldu þeir 52 þúsund
tonn af fiski fyrir 1,6 miljarð
króna sem er mun meira en
bjartsýnustu menn þorðu að
vona í upphafi. Meðalverðið hef-
ur verið í kringum 31 krónu fyrir
kílóið sem er tæplega helmingi
minna í samanburði við það verð
sem fékkst fyrir ferskfiskútflutn-
ing landsmanna til Bretlands sem
var álíka í tonnum talið.
Sé litið á þróun fiskmarkaðana
frá áramótum og til maíloka í ár
kemur í ljós að Fiskmarkaður
Suðurnesja hefur skotið Fisk-
markaði Hafnarfjarðar ref fyrir
rass og er með mestu söluna en
markaðurinn í Hafnarfirði er í
öðru sæti.
Sjá síðu 3
Hindurvitni
Uppbyggilegar
draugasögur
fráKína
Hjátrú og hindurvitni hafa
ekki átt upp á pallborðið hjá kín-
verskum valdhöfum síðustu ára-
tugi, en fyrir nokkru kom út í
Peking lítið kver með úrvali af
draugasögum þjóðarinnar gegn-
um aldirnar. Markmiðið með út-
gáfunni er að sýna fram á að
draugar séu ekki til, og eru sög-
urnar til marks um þetta, hver
með sínum hætti.
Sjá Sunnudagsblað
52 þúsund txmn fyrir 1,6 miljarð
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar með mestu heildarsöluna. Frá
áramótum hefur Fiskmarkaður Suðurnesja vinninginn
Listahátíð
Bmðumaður og bmðukona
Brúðuleikgerð Jóns E. Guðmundssonar á
Manni og konu. VerðlaunakvikmyndirLista-
hátíðar, málmblástur og ótal margt fleira
Maður og kona Jóns Thorodd-
esens er sýnt í dag á Listahátíð í
nýjum búningi. Jón E. Guð-
mundsson, guðfaðir íslensks
brúðuleikhúss, hefur klætt verkið
í nýjan búning og verður sýning á
verkinu í Lindarbæ í dag.
Meðal annarra atriða á Lista-
hátíð sem fjallað er um í blaðinu í
dag eru kvikmyndir sem gerðar
voru eftir verðlaunahandritum á
Listahátíð í fyrra, málmblásturs-
flokkinn Empire Brass Quintett
og sýningu Leikbrúðulands og
Peters Matásek á Mjallhvíti.
Sjá síðu 6-9
Nelson Mandela hefur eytt 25 árum á bak við lás og slá vegna baráttu
sinnar fyrir mannréttindum í Suður-Afríku. í dag verða haldir baráttu-
tónleikar honum til heiðurs.
Tónleikar
Til heiðurs Mandela
í dag verður á Wembleyleik-
vanginum í Lundúnum stærsta
popphátíð ársins. Hátíð þessi er
haldin til heiðurs blökkumannal-
eiðtogannum Nelson Mandela
sem er sjötugur.
Allar skærustu stjörnur popp-
heimsins í dag taka þátt í þessari
afmælis- og baráttuhátíð, sem
verður sjónvarpað og útvarpað
víða um heim.
Útsendingin byrjar í sjónvarp-
inu kl. 11.30 og verður haldið
áfram fram á nótt með nokkrum
hléum.
Sjá baksíðu
Laugardagur 11. júní 131. tölublað 53. árgangur
Mannréttindi
Þorgeir kærir
til Strassborg
Islenskt réttarkerfi brýtur grundvallaratriði
Mannréttindasáttmála Evrópu.
Þorgeir Þorgeirsson: Ekki mikið gefandi fyrir
slíkt réttarkerfi
Þorgeir Þorgeirsson hefur kært
dóm Hæstaréttar í máli ákæru-
valdsins gegn honum til
mannréttindanefndar Evrópur-
áðsins. en eins og kunnugt er féll
dómur Þorgeiri í óhag vegna
skrifa hans um harðræði og störf
lögreglunnar.
Þorgeir sagði í samtali við
Þjóðviljann að Hæstiréttur hefði
brotið á honum grundvallar
mannréttindi, er honum var skip-
aður verjandi, sem hann kærði
sig ekki um.
Samkvæmt klásúlum
Mannréttindasáttmála Evrópu
hefur sérhver sakamaður ský-
lausan rétt til að haga málsvörn
sinni á þann veg sem hann sjálfur
kýs. - Þetta var ekki virt og þrátt
fyrir eindregin mótmæli, var
daufheyrst við öllum þeim mót-
bárum sem ég hafði fram að færa,
sagði Þorgeir.
- Það er ekki mikið gefandi
fyrir réttarfar sem sér sér ekki
sóma í að virða mannréttindi,
sagði Þorgeir.
Sjá síðu 3
Snoðdýr
Kannanir hafa farið fram á af-
brigðilegum refum sem nefnast
snoðdýr. Dýrin finnast eingöngu
á íslandi en eru náskyld svoköll-
uðum samsonrefum sem út-
breiddir eru í Finnlandi og víðar.
Hingað til hafa menn haldið að
orsaka snoðdýrseinkenna væri að
leita í erfðasjúkdómi en ýmislegt
bendir nú til þess að um smitsjúk-
dóm sé að ræða. Talið er að
snoðdýr hafi verið til hér á landi á
. síðustu öld og ekki er ólíklegt að
tilvist þeirra hafi átt þátt í þjóð-
sögum um skoffín og skuggabald-
ur, sem þekktar eru frá því á fyrri
hluta 19. aldar.
Sjá síðu 2