Þjóðviljinn - 19.06.1988, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 19.06.1988, Blaðsíða 9
„Kysstu blind augu mín“ Sýning ó verkum Lenu Cronqvisthefstnú um helgina. Framlag Norrœna hússinstil Listahátíðar FERSTIKLA, FERSTIKLA Ég stiklaði að Ferstiklu og naut þar góðra veitinga í veitinga- og sýningarsal, innan um dásamleg málverk eftirsóma- og listamanninn Magnús Guðnason frá Kirkju- lækjarkoti, Fljótshlíð. Magnús er nú hættur búskap og fluttur á Akranes, þar sem hann helgar sig eingöngu list sinni, og er í stöðugri framför. Á Ferstiklu sýnir hann fjölda mál- verka, bæði fantasíur og lands- lagsmyndir, og blöndu úr hvoru- tveggja. Eg ráðlegg öllum að feta í fót- spor mín og stikla að Ferstiklu og njóta þess er ég hef lýst. Sýningin stendur til júníloka. Ellert Guðmundsson, Hveragcrði Sunnudagur 19. júni 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Móðirin hefur hjá Lenu Cronqvist haldið miklu af þeirri reisn og dularfullu eðlis- eigindum sem við öll eignum móðurinni íbernsku. Hún ræður hinum skapandi og líf- magnandi öflum tilverunnar rétt eins og hinum eyðandi öflum. Þaðerþvíeðlilegtað listamaðurinn beini til hennar bænum sínum um sættir og sjón. En listamaðurinn beinir þeim jafnframt til skapandi afla í sjálfum sér. Þetta segir Maj-Britt Wadellí ritgerð sinni um sænska málarann Lenu Cronqvist, en sýning á verkum hennar hefst nú um helg- ina í Norræna húsinu og er fram- lag þess til Listahátíðar í Reykja- vík. Málverk Lenu, ísinn, sem fylg- ir þessu greinarkorni, er eitt þriggja stórra verka sem hún mál- aði til að lýsa afstöðu sinni til for- eldranna við þrjú atvik í uppvext- inum, en hin tvö nefnast Vegur- innog Limgerðid. Myndirnar eru séðar að utan frá sjónarmiði barnsins óg samkvæmt hugsun og skilningi þess. ísinn er hin síðasta í röðinni og sýnir Lenu um átta ára aldur. Fjölskyldusvipurinn hefur skýrst frá fyrri myndum; nú ríkir algjör einangrun milli einstaklinganna, nema milli móðurinnar og litla barnsins. Faðirinn er orðinn tóm- ur skuggi og Lena virðist hafa horfið vonsvikin inn í sjálfa sig. En þrátt fyrir þessa einangrun fylgja allir móðurinni sem stjórn- ar og ræður fjölskyldunni án þess að líta við. Athugið hvernig þetta er sýnt með því að allir fætur stefna í sömu átt og fætur móður- innar. En Lena snýr jafnframt efri hluta líkamans móti áhorf- anda. Með þessu tjáir listamað- urinn tvískinnunginn hjá stúlk- unni: hún fylgir móðurinni en snýr sér jafnframt frá henni. Hugmyndir um tengsl móður- innar við náttúruna er að finna í ljóði sem Lena Cronqvist orti upp úr 1970. Þar er henni líkt við landslag, og stundum slær henni algjörlega saman við náttúruna: „Mamma mamma/mamma haf/ mamma gras/mamma úr steini/ mamma græn svo græn/mamma blástu svo hlýtt/...“ Og á vef sem hún gerði þegar komið var fram undir 1980 má lesa bæn sem er ofin inn í myndina eins og áletr- unarband frá miðöldum: „Móðir mín/sem einnig ert/Dóttir mín/ Kysstu blind augu mín.“ Sýningin á verkum Lenu Cronqvist stendur fram til 10. júlí, og skyldi enginn láta þennan myndlistarviðburð fram hjá sér fara. Þá er áhugafólki hér með bent á að sænski listfræðingurinn ísinn, eitt verka Lenu Cronqvist. Sýning á verkum hennar stendur til 10. júlí í Norræna húsinu. Nina Weibull heldur fyrirlestur um list Lenu í fundarsal Norræna hússins laugardaginn 18. júní, og hefst hann klukkan hálffimm. HS —^ v • ••“i K' K •; ":Í K 1 1 í' *•? I ':4 ■j ' *:7 I 1 . i 1 1 í - ‘i "< 1 'ví , ;$ 1 mátá 17. júní Heillaóskir til íslensku þjóðarinnar á þjóðhátíðardegi ^ SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFELAGA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.