Þjóðviljinn - 25.08.1988, Blaðsíða 14
*<*,**«««*«#. ********
______í dagJL.
Fulltrúi
verkafólks
Ég segi það satt að ég átti ekki
auðvelt með að sofna í fyrra-
kvöld, eftir að hafa horft á alveg
„ótrúlegan" þátt um efna-
hagsmál og kjaraskerðingu í
Ríkissjónvarpinu.
Þarna voru mættir tveir for-
stjóranna úrforstjóranefnd ríkis-
stjórnarinnar, Víglundurog Einar
Oddur, verðbréfaspekúlantinn
Sigurður B. Stefánsson og fulltrúi
verkalýðsins, Guðmundur Jaki.
Þetta voru ótrúlegar umræður.
Maður fékk helst á tilfinninguna
að réttast væri að senda
stjórnvöldum í landinu eða for-
manni félags forstjóra á íslandi
bréf, þar sem beðist væri afsök-
unar á því hve hátt kaupið er og
ávísun uppá endurgreiðslu á illa
fengnu óþarfa umframgreiddu
kaupi síðustu árog áratugi. Or-
sök efnahagsvandans var
heiðskýr, kaupið varof hátt, alltof
hátt.
Það var lítið um andsvör við
þessum forstjórakór f rá „fulltrúa"
verkalýðsins. Guðmundi fannst
að vísu út í hött að ætla að lækka
kaupið hjá fólkinu á strípuðu töxt-
unum, verkafólkinu með stóru
vaffi. - Hvernig ætlið þið að
lækka kaupið hjá öllum hinum,
tæknifræðingum, tannlæknum
og þeim stéttum sem sitja að yf ir-
borgunum? spurði Jakinn.
Hvert var verið að fara? Jú,
kauprán á verkafólki einu sér var
óviðunandi. Annað hvort verður
kaupið lækkaö hjá öllum eða
engum, eða hvað? Hvernig átti
maður að skilja ummæli leiðtog-
ansöðruvísi?
Þegar steypustöðvarforstjór-
inn fékk síðar í þættinum án
nokkurra athugasemda frá for-
manni Dagsbrúnarað halda
langa ræðu um það aö tillögur
forseta Alþýðusambandsins um
aðgerðir í efnahagsmálum
gengju út á það að setja nær öll
fyrirtæki í landinu á hausinn og
koma ástórfelldu atvinnuleysi,
var mér nóg boðið sem sjálfsagt
fleirum.
Er ekki hægt að gera kröfu til
þess að þegar Ríkissjónvarpið er
með umræðuþátt í þessum dúr,
þá sé tryggt a.m.k. einn fulltrúi
verkafólks fái að koma sjónar-
miðum verkalýðshreyfingarinnar
áframfæri?
-ig-
ídag
er 25. ágúst, fimmtudagur í nítj-
ándu viku sumars, þriðji dagur
tvímánaðar, 238. dagur ársins.
Sól kemur upp í Reykjavík kl.
5.49 en sest kl. 21.08. Tungl vax-
andi á öðru kvartili.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Uruguay.
Prentmyndasmiðafélag íslands
stofnað 1947. Sinovjev og Kam-
enjev líflátnir í Moskvu eftir sýnd-
arréttarhöld 1936.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Dagsbrún semur við Meistara-
sambandið um kjörog kaup-
greiðslurverkamanna. Vinnu-
laun verða greidd á skrifstofu
Dagsbrúnar. Samningurvið
sveina og meistara um verka-
skiptingu íbyggingaiðnaðinum.
Slakar Daladier á kröfum sín-
um um 48 stunda vinnuviku?
Franski verkalýðurinn er ákveð-
inn í að vernda fengin réttindi sín.
Er nýtt kuldatímabil í vændum?
Vatnajökull hefir fært út ríki sitt í
sumar eftir að hafa minkað í 50
ár. Viðtal við Sigurð Þórarinsson
jarðfræðing.
UM UTVARP & SJONVARP
7
Tónleikar Söru Walker mezzosópran, frá Listahátíð 1988 eru í Sjón-
varpinu kl. 21.
Söngur Söru Walker
Breska söngkonan Sarah
Walker sótti okkur heim á Lista-
hátíð í júní og eru tónleikar henn-
ar í íslensku Óperunni á dagskrá
Sjónvarpsins klukkan 21 í kvöld.
Á tónleikunum söng hún lög eftir
Schubert, Mendelssohn, Schön-
berg, Britten og Gershwin.
Með Söru er píanóleikarinn
Roger Vignoles, en saman hafa
þau heimsótt allar helstu borgir
og listahátíðir í Evrópu, Banda-
ríkjunum, Ástralíu og Nýja Sjá-
landi.
. Sarah Walker hóf tónlistarferil
sinn sem fiðluleikari í The Royal
College of Music, en fór síðan í
söngnám hjá þekktum ungversk-
um kennara, Veru Rozsa. Með
henni byggði hún upp umfangs-
mikla söngdagskrá, sem nær allt
frá kórverkum Bachs til nútíma-
tónlistar.
Úrgangur frá neyslusamfélagi nútímans hrúgast stöðugt upp. í þætt-
inum „Við og umhverfið" á Rótinni í kvöld er fjallað um endurvinnslu-
átak Landverndar.
Við og umhverfið
Undanfarin fimmtudagskvöld
klukkan 22:30, hefur hópur
áhugafólks um umhverfismál
verið með vandaða þætti um
þann málaflokk á Útvarpi Rót.
Meðal athyglisverðra mála sem
tekin hafa verið fyrir í þættinum
„Við og umhverfið" má nefna:
beitarþol og gróðureyðingu, um-
hverfisvandamál stórborga, nátt-
úruskoðun og gönguferðir og
einnig hefur verið farið í saumana
á hugmyndafræði neysluhyggju
nútímans.
í þættinum í kvöld verður hald-
ið áfram að fjalla um endur-
vinnsluátak Landverndar og
verður sá þáttur endurtekinn
næsta þriðjudag klukkan 13:30.
Spár Nostradamusar
Svo spáði Nostradamus heitir
mynd, sem Stöð 2 sýnir síðdegis í
dag. Segir hún af franska lista-
manninum, lækninum og spá-
manninum Nostradamus og spá-
dómsgáfu hans.
Nostradamus var uppi á 15.
öld og spáði hann um gang mála í
heiminum allt fram á 21. öldina.
Samkvæmt spánum eru ekki
glæsilegir tímar framundan. Um
næstu aldamót verða þrenging-
artímar og ófriður í heiminum, en
eftir þær hörmunar taka við
bjartari tímar hjá mannkyninu.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 25. ágúst 1988