Þjóðviljinn - 25.08.1988, Blaðsíða 16
■SPURNINGIW—
Á borgin aö selja sinn
hlut í Granda?
Hermann Kristinsson,
járnsmiður:
Hið opinbera á að losa sig við
sem flest fyrirtæki, það gengur
yfirleitt betur með fyrirtæki í
einkaeign.
Svandís Skúladóttir, vinnur í
menntamálaráðuneytinu:
Ég held að borgin eigi ekki að
selja sinn hlut. Annars gengur nú
fólki erfiðlega að mynda sér
skoðun í þessu máli enda sjálfir
borgarfulltrúarnir tvístígandi.
þlÓÐVIUINN
Flmmtudaour 25. ógúst 1988 189. tölublað 53. öroangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Helgi Ólafsson frá Hólmavík leikur hér sinn fyrsta leik í skák þeirra nafna á Alþjóðaskákmótinu á ísafirði. Sá yngri vann að endingu eftir
jafna og spennandi skák. Mynd: SJS.
Telft við Djúp
Helgi Ól gegn Helga Ól
Arthúr Sveinsson
skrifstofumaður:
Reykjavíkurborg á að halda sín-
um hlut. Það tryggir nauðsynlegt
aðhald.
Þorsteinn Mattiasson
sjómaður:
Nei, borgin á að halda sínum hlut,
öðruvísi getur fyrirtækið ekki
gengið.
Margrét Guðmundsdóttir
húsmóðir:
Já, mér líst mjög vel á þá hug-
mynd. Borgin hefur næg verkefni
önnur en að reka þetta fyrirtæki.
Helgi Ólafsson og Helgi Ólafsson eiga sameiginlegt nafnið,
skákáhugann, meistaratitil- og Þjóðviljann!
Skákþing íslands
Margeir heitur
EnJón Loftur fylgir honum einsogskugginn
að var dálítið erfitt að tefla
hálfpartinn við sjálfan sig,
sagði Helgi Ólafsson stórmeistari
um sína fyrstu viðureign við
Helga Ólafsson, Skákmeistara ís-
lands árið 1964. Þeir taka nú báð-
ir þátt í Alþjóðaskákmótinu við
Djúp og í fréttum af mótinu eru
alnafnarnir yfirleitt aðgreindir
sem Helgi yngri og Helgi eldri en á
þeim er 13 ára aldursmunur.
- Þetta var hörkuskák. Hann
hefur mikinn skilning á skák og
góða þekkingu á ýmsum þáttum
hennar, þótt það segi kannski til
sín að hann hefur ekki stundað
þetta í aldarfjórðung. Það er bara
synd að hann skuli hafa hætt að
tefla, sagði Helgi Ólafsson yngri
um nafna sinn.
Helgi Ólafsson eldri sagðist
hafa haft gaman af því að tefla við
Helga, á mánudaginn var.
- Skákin var skemmtileg og
eiginlega sú besta sem ég hef teflt
á mótinu. Hún var nokkuð jöfn,
þótt ég tapaði nú reyndar fyrir
rest. Yngri Helginn lýsti gangi
skákarinnar mjög svipað: - Hann
var alveg kominn með jafntefli,
þegar mér tókst að snúa á hann í
lokin.
Helga eldri, sem býr á Hólma-
vík, fannst sér hafa gengið svipað
og búast mátti við. - Þetta er farið
að vera of erfitt þegar á líður. Hér
er teflt í 6 klukkutíma og maður
er orðinn lokaður á 5. og 6. tím-
anum. Það þarf meiri þjálfun í
svona mót en ég hef.
Helgarnir hafa báðir komið við
sögu Þjóðviljans. Helgi yngri sem
skákskýrandi og blaðamaður, en
Helgi eldri lærði prentverk á
blaðinu á þeim tíma er mest bar á
honum í skákinni, árin 1963-65.
Með hann í fararbroddi sigruðu
starfsmenn Þjóðviljans meðal
annars Stofnanaskákmót Skáks-
ambands íslands árið 1965, og
hangir skrautritað skjal um þann
sigur enn á kaffistofu blaðsins.
Hólmavíkur-Helgi sagðist ekki
sjá eftir að hafa hætt í skákinni.
- Ég hef eignast önnur áhug-
amál núna, þótt ég hafi látið plata
mig á þetta mót.
mj
Igærkveldi var tefld njunda um-
terðin á Skákþingi Islands en
þeir sem þar heyja keppni sækjast
allir eftir heiðurstitlinum Skák-
meistari íslands.
Helstu úrslit urðu þau að
Margeir Pétursson vann Róbert
Harðarson, Jón L. Árnason lagði
Ágúst Karlsson og Karl Þorsteins
kom Hannesi Hlífari Stefánssyni
á kné, en einsog margoft hefur
komið fram í fjölmiðlum er sá
síðastnefndi bæði ungur og
bráðefnilegur.
Því má vera ljóst að Margeir
stendur næsta nærri ofannefndri
tign, heldur forystu sinni þegar
tveim umferðum er ólokið. Á
hæla hans kemur annar valink-
unnur stórmeistari, Jón Loftur,
en Hannes Hlífar virðist hafa
helst úr lestinni eftir tvær byltur í
röð. Eftir innbyrðis viðureign
hafa þeir Karl Þorsteins haft
sætaskipti. '
Annars er staða efstu manna
nú þessi:
1. Margeir Pétursson: 8v.
2. Jón L. Árnason: 7,5v.
3. Karl Þorsteins: 6,5v.
4. Hannes Hlífar: 6v.
-ks.