Þjóðviljinn - 14.12.1988, Síða 1

Þjóðviljinn - 14.12.1988, Síða 1
Miðvikudagur 14. desember 1988 268. tölublað 53. órgangur Forsœtisráðherra Samningsbannio burt Ríkisstjórninfellir úrgildibann viðsamningsréttiog kjaraaðgerðum. Frysting launa áfram ígildi til 15.febrúar. Forystumenn samtaka launafólksfagna ákvörðuninni. Svavar Gestsson: Mjög skynsamleg ákvörðun Rétt fyrir kvöldmat í gær í um- ræðum í efri deild skýrði Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra mjög óvænt frá þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fella úr gildi ákvæði bráðabirgða- laganna er banna verkföll og verkbönn. Ákvæði sem banna hækkun launa fram til 15. febrú- ar á næsta ári eru óbreytt. Samn- ingsrétturinn er því viðurkennd- ur á ný strax og alþingi staðfestir bráðabrigðalögin, en forsætis- ráðherra bjóst við að það gerðist nú á næstu dögum. Forystumenn helstu samtaka launafólks fögnuðu þessari ákvörðun í gærkvöld og töldu hana sigur fyrir launafólk og samtök þeirra. Viðbrögð Sjálf- stæðismanna á þingi einkenndust hins vegar af ráðleysi, enda virtist sem tíðindin kæmu þeim algjör- lega í opna skjöldu. BSRB Sigur sam- takanna Ogmundur J ónasson: Fagna því að stjórnin skuli sjá að sér Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði við Þjóðviljann í gær að hann fagnaði ákvörðun ríkis- stjórnarinnar og þakkaði hana öflugum þrýstingi og baráttu samtaka launafólks undanfarið. Kröfur um að samningsrétturinn yrði virtur hefðu hljómað mjög sterkt á þingi BSRB fyrir skömmu og aftur á ASI-þinginu, og á baráttufundi allra launa- mannasamtakanna um síðustu helgi hefði samningsrétturinn verið hafður á oddinum. - Þetta hreinsar óneitanlega andrúmsloftið, sagði Ögmundur. Við erum ánægð með að ríkis- stjórnin skuli hafa séð að sér og vonum að þetta jafngildi viljayf- irlýsingu um bætt samskipti við samtök launafólks. Stjórnvöld þurfa líka að viðurkenna rétt allra til mannsæmandi lífs. Það er næsti áfangi. _m Það er síðari hluti hinnar illræmdu fjórðu greinar bráða- birgðalaganna frá í maí og sept- ember sem felldur verður úr gildi, en þar segir: „Verkbönn, verkföll, þar með taldarsamúðar- vinnustöðvanir, eða aðrar að- gerðir sem œtlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi mœlafyrir um eru óheimil. “ ASÍ kærði bráðabirgðalögin sem kunnugt er fyrir alþjóða Vinnu- málastofnuninni í Genf, og þetta ákvæði var á sínum tíma helsti þröskuldur í vegi fyrir stjórnar- þátttöku Alþýðubandalagsins. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði á Stöð 2 í gær- kvöldi að hann vonaðist tii að þessi ákvörðun auðveldaði samn- inga við samtök launafólks, og sagði að 'allir stjórnarliðar stæðu bakvið ákvörðunina. Skúli Alexandersson, sem eins- og kunnugt er hefur iýst því yfir að hann ntuni sjálfur ekki verja stjórnina vantrausti. tók til máls í efri deild eftir ræðu Steingríms og sagðist fagna þessu frumkvæði forsætisráðherra. Það styrkti ríkisstjórnina. Svavar Gestsson menntamála- ráðherra sagði við Þjóðviljann í gær að hann teldi þetta mjög skynsantlega ákvörðun sem for- sætisráðherrann hefði tekið með stuðningi stjórnarflokkanna. Þetta yrði vonandi til þess að auðvelda lausn þeirra verkefna sem óhjákvæmileg væru á næsta ári í efnahags- og atvinnumálum. Bæði Borgarar og Kvennalista- þingmenn hafa flutt breytingart- illögur þarsem gert er ráð fyrir að verkfalls- og samningabannið falli burt og er talið að þessi ákvörðun geti haft áhrif á stöðu þessara þingflokka til stjórnar- innar. Þeir þingmenn þessara flokka sem Þjóðviljinn ræddi við í gær fögnuðu því að stjórnarliðar styddu þessar tillögur sínar en vildu ekki tjá sig frekar um málið að sinni. í þingskapaumræðum eftir til- kynningu forsætisráðherra í efri deild voru Sjálfstæðismenn mjög ókyrrir, og í svari Steingríms Hermannssonar gagnrýndi hann stjórnarandstöðuna alla fyrir vanstillt viðbrögð við þessari ákvörðun. Borgaraflokksmaður- inn Júlíus Sólncs kvaðst ósáttur við að vera spyrtur við Sjálfstæð- ismenn, og steig forsætisráðherra þá aftur í pontu og bað Kvennalista- og Borgaraflokks- þingmenn afsökunar á að hafa í ógáti bendlað þá við Sjálfstæðis- menn. Jókst þá ókyrrð í herbúð- unt hinna síðastnefndu. Undirbúningur yfirlýsingar forsætisráðherra hefur staðið nokkra hríð en farið mjög leynt. Augljóst var að yfirlýsing Stein- gríms kom flestum þingmönnum og ýmsurn verkalýðsleiðtogum á óvart, og það var haft til marks um hve hljótt hafði farið að lang- flestir fréttamenn höfðu yfirgefið þingsali þegar Steingrímur tók til máls. Annarri umræðu um staðfest- ingarfrumvarpið var frestað í efri deild að beiðni Sjálfstæðis- manna. -m/phh/hmp Jól í skógræktinni. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur að undanfömu boðið börnum af dagheimilum á höfuðborgarsvæðinu í skoðunarferð og gefið þeim barrgreinar í leiðinni. Hornafjarðarleið hefur hönd í bagga með að flytja börnin á áfangastað en þangað koma tveir hópar á dag, allt frá 7. desember til jóla og fá börnin einnig endurskinsmerki frá Umferðarráði. Þau þakka fyrir sig með jólasálmi að heimsókn lokinni. (Mynd: ÞÓM). Engin efnisbreyting Ásmundur Stefánsson: Breytingin hefuríraun ekkert að segja. Verkföll enn óheimil til 15. febrúar £ ger saUaðjægjanokkuð rugl- ingsbanninu strax, þannigað allir aður yfir þcssum breytingar- hugmyndum og sýnist þær ekki fela í sér neina efnisbreytingu á innihaldi laganna, sagði Ásmund- ur Stefánsson forseti ASI við Þjóðviljann í gær. „Mér skilst að ætlun ríkis- stjórnarinnar sé að aflétta samn- Háskólahappdrœttið Dagmamma vann 25 miljónir Hcesti vinningurhérlendis tilsjötugrar ekkju ÍVesturbœnum. Karítas Magnúsdóttir: Hét áfatlaða Eg sagði honum Jóhannesi hjá happdrættinu að hann mætti ekki láta blaðamenn hringja fyrr en ég væri búin að ná valdi á mál- rómnum aftur, sagði Karítas Magnúsdóttir, sem í gær varð 25 miljónum ríkari þegar fyrsti vinningur Happdrættis Há- skólans, fimm miljónir, kom á trompmiða hennar. - Þetta er áheit, ég hafði heitið á Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra að það fengi sitt ef ég ynni í Háskólahappdrættinu, en það verður að bíða rólegri tíma að ég ákveði hve mikið það verður, sagði Karítas sem er sjötug ekkja. Hún er átta barna móðir, vinnur nú sem dagmamma og gætir sjö barna. - Nei, það er engin hætta á að ég leggist í ferðalög, ég hef alltaf átt í vandræðum með flug. Ég er ákveðin í að sóa ekki þessum peningum og ætla að fara vel með þá. Húsið þarf líka sitt, þannig að þetta kemur sér vel, sagði hún. - Ég ætla að halda áfram að gæta barnanna því ekki svíkur maður vini sína þótt maður verði ríkur, sagði Karítas miljónamær- ingur í gær. -sg fái samningsrétt með fullum verkfallsrétti þegar umsaminn samningstími rennur út. Það þýð- ir að sjómenn og aðrir sem voru með lausa samninga þegar lögin voru sett á gætu gengið strax til samninga og þess vegna til verk- falla, opinberir starfsmenn og Sókn um áramót, verslunar- menn, VMSÍ og iðnverkafólk þann 10. apríl og flestir iðnaðar- menn næsta haust. Það er að segja að allir gætu sest að samn- ingsborði en verkfallsrétturinn fengist þá fyrst er samningstím- inn er úti. Þannig skýrði forsætis- ráðherra breytinguna fyrir mér í fréttatíma Stöðvar 2 í ícvöld. Ég fæ ekki séð að þetta sé rétt. Ef áfram stendur að samningar séu framlengdir til 15. febrúar, er augljóslega óheimilt að ganga til verkfallsaðgerða fyrr en þá. Breytingin breytir því engu um innihald laganna. Þarna hlýt ég því að leita lögfræðilegrar ráð- gjafar, því mér sýnist skýring for- sætisráðherra og texti laganna stangast á,“ sagði Ásmundur. -phh 10 dagar til jóla Stúfur hét sá þriðji,/ stubburinn sá. Svo segir í Jólasveinavísu dagsins og þessa ágætu mynd af Stúfi teiknaði hún Eva Signý Berger 7 ára, en hún á heima í Helgamagrastræti 13 á Akureyri. Við þökkum henni sendinguna og minnum á að Stúfur kemur í heimsókn á Þjóðminjasafnið í Reykjavík kl. 11 í dag. Þar verður einnig hópur 6 ára barna úr Grandaskóla og syngur jólalög.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.