Þjóðviljinn - 14.12.1988, Blaðsíða 4
Happdrætti Þjóðviljans 1988
VINNINGSNÚMERIN
Vinningar í happdrætti Þjóðviljans komu á þessi númer:
I. Nissan Micra, frá ingvari Helgasyni hf., aö verðmæti kr. 475.000
kom á miða nr. 18135.
2.-4. Island PC tölvurfrá Aco hf., að verðmæti kr. 70.000 hver, komu á
miða nr. 2280, nr. 9662 og nr. 28577.
5.-7. Ferðavinningar frá Samvinnuferðum-Landsýn, að verðmæti
55.000 hver, komu á miða nr. 11332, nr. 22808 og nr. 27199.
8.-9. Húsbúnaður frá Borgarhúsgógnum hf., að verðmæti 40.000
hvor, kom á miða nr. 9519 og nr. 13307.
10. Sjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf., að verðmæti kr. 32.000
kom á miða nr. 1472.
II. Videó frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf., að verðmæti kr. 30.000 kom á
miða nr. 17515.
12. Uppþvottavél frá E. Farestveit & Co hf., að verðmæti kr. 27.000
kom á miða nr. 6913.
13. Örbylgjuofn frá E. Farestveit & Co hf., að verðmæti kr. 26.000 kom
á miða nr. 22044.
14.-15. Ritvélar frá Borgarfelli hf., að verðmæti kr. 25.000 hvor, kom á
miða nr. 8674 og nr. 20897.
16.-25. Bókaúttekt frá bókaforlagi Máls og menningar, að verðmæti
kr. 7.000 hver, kom á miða nr. 1589, nr. 2092, nr. 3694, nr. 4027, nr.
18492, nr. 18639, nr. 19348, nr. 20506, nr. 27534, og nr. 29622.
26.-30. Bókaúttekt frá Svörtu og hvítu að verðmæti kr. 6.000 hver, kom
á miða nr. 7953, nr. 17644, nr. 23714, nr. 24718 og nr. 29650.
31 .-33. Vöruúttekt frá Hagkaupum að verðmæti kr. 10.000 hver, kom
á miða nr. 16117, nr. 22726 og nr. 26983.
34.-39. Vöruúttekt frá Hagkaupum að verðmæti kr. 5.000 hver, kom á
miða nr. 127, nr. 3995, nr. 8834, nr. 10296 og 22056.
Vinningshafar geta snúiö sér til skrifstofu Þjóöviljans,
Síðumúla 6, til að vitja vinninga sinna.
Þjóðviljinn þakkar stuðningsmönnum sín-
um fyrir góð viðbrögð við sölu happdrættis-
miðanna og umboðsmönnum happdrættis-
ins um land allt fyrir þeirra framlag.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Keflavík og Njarðvík
Bókmenntakynning
Bókmenntakynning verður í Iðnsveinafélagshúsinu,
Tjarnargötu 7, sunnudaginn 18. desember kl. 16.00.
Athugið breyttan tíma. Svavar Gestsson
menntamálaráðherra flytur ávarp og rithöfundar
lesa úr verkum sínum. Léttar veitingar. Allir velkomn-
ir. - Stjómin.
Svavar
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin
Kópavogi
Félagsf Undur Ragnar Stefánsson Birna Þórðardóttir
Æskulýðsfylkingin Kópavogi heldur fund sunnudaginn 18. desember kl.
20.00 í Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi.
Gestir fundarins eru þau Ragnar Stefánsson og Birna Þórðardóttir.
Allir velkomnir. - Stjórnin.
Tilkynning
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi söluskatts fyrir nóvembermánuð er 15.
desember. Ber þá að skila skattinum til inn-
heimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu
í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
jVBarn sem situr í barnabílstól
U getur sloppið við meiðsl
í arekstri!
||UN
'ráð
FRETTIR
Hjalti Hugason, Jón Hnefill Aðalsteinsson, Frosti F. Jóhannsson og Hafsteinn Guðmundsson leiða
fréttamenn í allan sannleika um fimmta bindi Islenskrar þjóðmenningar, Trúarhætti, en það kom út (síðustu
viku. Mynd: Jim Smart.
Pjóðtrú
Landvættimar
baraplat
Norrœn trú, kristni ogþjóðtrú til umfjöllunar ínýju bindi íslenskrar
þjóðmenningar. Verurnar ískjaldarmerkinu hafa aldrei talist til land-
vœttal
Trúarhættir, fímmta bindi ís-
lenskrar þjóðmenningar, er
komið út. í bókinni eru þrjár rit-
gerðir sem Ijalla um norræna trú,
kristna trúarhætti og þjóðtrú og
eru höfundarnir tveir, Hjalti
Hugason, kirkjusagnfræðingur,
og Jón Hneflll Aðalsteinsson,
þjóðfræðingur.
Þetta er í fyrsta sinn sem dregið
er saman á einn stað yfirlit um
þetta efni hér á landi, og er drjúg-
ur hluti af efni bókarinnar byggð-
ur á frumrannsóknum.
Dr. Hjalti Hugason ritar kafl-
ann um kristna trúarhætti. Fjall-
að er um guðshúsin, hið opinbera
trúarlíf sem kirkjuhúsinu teng-
dist, trúarlegt uppeldi íslendinga
og heimilisguðrækni svo stiklað
sé á því stærsta. .
Hina kaflana tvo skrifar dr.
Jón Hnefill Aðalsteinsson. f hin-
um fyrri er leitast við að draga
upp heillega mynd af norrænum
trúarbrögðum en fjallað um ís-
lenska þjóðtrú í hinum seinni.
Þar koma við sögu ýmiss konar
yfirnáttúrlegar verur, draugar,
útilegumenn, galdra- og töfra-
brögð og náttúru- og forlagatrú.
Hér vekur athygli sú niðurstaða
að verurnar í skjaldarmerki ís-
lands hafa aldrei talist til land-
vætta, og hefur þessi vitneskja að
vísu verið á vitorði innvígðra í
fræðunum um nokkurt skeið.
Bókaútgáfan Þjóðsaga á veg
og vanda af bókaflokknum um
íslenska þjóðmenningu. Bindin
verða alls níu, og eru tvö nú kom-
in út, hið fyrsta og fimmta. Rit-
stjóri bókaflokksins er Frosti F.
Johannsson, Hafsteinn Guð-
mundsson hannar útlit en Oddi
hf. sér um prentverkið.
HS
Norðurlandamenning
Svavar skipar nýja fulitrúa
Afundi ráðherranefndar Norð-
urlanda í Kaupmannahöfn
um síðustu mánaðamót var
gengið frá skipan fuiltrúa í nýjar
nefndir á sviði lista, en fyrr á ár-
inu staðfesti ráðherranefndin
framkvæmdaáætlun um norrænt
menningarsamstarf næstu árin og
samkvæmt henni verða nokkrar
breytingar á téðu samstarfí. Það
voru menntamálaráðherrar
Norðurlandanna sem hér um
véltu, og sat Svavar Gestsson
fundinn af Islands hálfu.
Nýskipanin hefur í för með sér
stofnsetningu fimm nýrra nefnda
sem ætlað er að bera meginá-
byrgð á framkvæmd samstarfs-
ins, hverri í sinni listgrein, og þar
með detta upp fyrir nefndir sem •
fyrir voru, en með takmarkaðra
verksviði.
Bœjarstarfsmenn
Fjórar nefndanna taka til
starfa nú um áramótin, og eru ís-
lensku fulltrúarnir þessir: Silja
Aðalsteinsdóttir og Þórdís Þor-
valdsdóttir í bókmennta- og
bókasafnanefnd; Jón Nordal og
Þorkell Sigurbjörnsson í tón-
listarnefnd; Stefán Baldursson og
Ingibjörg Björnsdóttir í leik- og
danslistarnefnd og Knútur Halls-
son og Þráinn Bertelsson í kvik-
myndanefnd.
HS
Launalækkunartal ekki
samboðið ráðherrum
Það er ekki samboðið ráðherr-
um í ríkisstjórn, sem kennir
sig við jafnrétti og félagshyggju
að boða launalækkun, þegar stór
hluti launafólks býr við þröngan
kost, segir í harðorðri ályktun
bæjarstarfsmannaráðstefnu
BSRB sem haldin var fyrir síð-
ustu helgi.
I ályktun ráðstefnunnar er þess
krafist að ríkisstjórn og Alþingi
endurskoði hug sinn til launa-
fólks, því samstarf og samráð við
það undir þrælalögum sé útilok-
að. Þá er launafólk hvatt til að
standa saman og verja heimilin
fyrir gjaldþroti, vegna rangrar
efnahagsstefnu ríkstjórna liðinna
ára.
Haraldur Hannesson 1. vara-
forseti BSRB er sjálfskipaður
formaður Bæjarstarfsmannaráðs'
BSRB, en aðrir í ráðið voru
kjörnir: Elín Sveinsdóttir, Suður-
landi. Gísli Valdimarsson, Garð-
abæ. Guðbjörn Arngrímsson, Ól-
afsfirði. Hreinn Pálsson, Vest-
fjörðum. Hulda Harðardóttir,
Akureyri og Sigþrúður Ingim-
undardóttir, Reykjavík.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINNI Miövikudagur 14. desember 1988
Bœkur
Hrafninn
flaugút
Vegna smáfréttar í Nýju helg-
arblaði Þjóðviljans á föstudaginn
um ferð Ingva Hrafns Jónssonar
til Húsavíkur skal þetta fram
tekið: Ingvi Hrafn var þar á
laugardaginn, áritaði bók sína í
helstu bókaverslun bæjarins og
seldust upp birgðir verslunarinn-
ar á meðan. Með tilvísun til fræg-
ra fprmálsorða Ara fróða biður
blaðið Ingva Hrafn forláts á
óvönduðu slúðri um annað en
það sem hér greinir að framan.
Ritstj.