Þjóðviljinn - 14.12.1988, Blaðsíða 13
ERLENDAR FRETTIR
Angóla-Namibía
Undirritaó í Brazzaville
Samkomulag Angólu, Kúbu og
Suður-Afríku um að binda
enda á ófriðarástandið í Afríku
suðvestanverðri var undirritað
Namibía verður sjálfstœð - Kúbanirfarafrá Angólu
við hátíðlega athöfn 1 gær i
Brazzaville, höfuðborg Kongó.
Aðalatriði samkomulagsins eru
að Namibía verður sjálfstætt ríki
Pólland
Slagsmál á afmælisdegi
Iodda skarst með lögreglu ogfólki sem minntist
þess í Varsjá að sjö ár erufrá því að herlög voru
sett og Samstaða bönnuð
Aldrei þessu vant voru það
mótmælendur sem áttu frum-
kvæði að átökunum og köstuðu
grjóti, púðurkerlingum og tára-
gassprengjum að sveitum örygg-
islögreglu í gær. Þá voru rétt 7 ár
liðin frá því Wojciech Jarúzelskí
forsætisráðherra og hæstráðandi
i hernum setti herlög og síðan hef-
ur Samstaða verið bönnuð.
Sjónarvottar herma að andófs-
fólkið, flest fremur ungt að árum,
hafi bókstaflega gengið berserks-
gang, rokið á velbúna lögreglu-
þjónana, barið þá, sparkað í þá.
Þeir hafi aldrei séð annað eins,
fram að þessu hafi hið opinbera
séð um barsmíðarnar.
Mótmælendur kváðu hafa
varpað þrem táragassprengjum
og fimm púðurkerlingum að lög-
reglunni og auk þess grýtt hana
óvægilega. Hefði Krakowskie
Przedmiescie stræti verið alþakið
grjóthnullungum um það er lauk í
gær.
Lögreglumenn tóku vissulega
hraustlega á móti. Að minnsta
kosti einn mótmælandi var bor-
inn blóðugur af vettvangi og
fimm teknir höndum. Þeirra á
meðal var Andrzej Slowik, ungur
og herskár Samstöðuforingi,
þekktur fyrir gagnrýni sína á
Lech Walesa sem hann sakar um
undanlátssemi gagnvart forystu
kommúnistaflokksins.
Átökin í gær staðfesta varnað-
arorð ýmissa kirkjunnar manna
og forystumanna úr Samstöðu
þess efnis að þolinmæði alþýðu
manna, og þó einkum yngra
fólks, sé á þrotum. Hún sé búin
að fá sig fullsadda af efnahags-
kreppunni sem ekkert lát virðist
ætla að verða á og pólitískri ein-
okun kommúnistaflokksins sem
engin úrræði kunni. „Sumir bisk-
upanna hafa orðið þess áskynja
að komið er að suðumörkum í
þjóðfélaginu," hefur Reuters-
maður eftir preláta sem ekki vill
láta nafns síns getið.
Reuter/-ks.
og að Kúbanir kveðja heim herlið
sitt í Angólu.
Samkomulagið náðist að und-
angengnum átta mánaða við-
ræðum á ýmsum stöðum, síðast í
Genf, og var síðan ákveðið að
það skyldi undirritað í Brazza-
ville. En þegar fulltrúar ríkjanna
komu þangað til undirritunar,
kom babb í bátinn út af ákvæðum
um eftirlit með heimflutningi kú-
bönsku hersveitanna. Neituðu
Suður-Afríkumenn um hríð að
undirrita af þessari ástæðu, en nú
hefur tekist að jafna þann
ágreining. Verulegan þátt í að
samkomulagið náðist mun hafa
átt Chester Crocker, aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkj anna,
en hann tók þátt í samningaviðr-
æðunum sem málamiðlari. So-
vétmenn munu hér einnig hafa
lagt hönd á plóginn, og fór
Crocker af því tilefni við undirrit-
un samkomulagsins lofsyrðum
um Anatólíj Adamíshín, aðstoð-
arutanríkisráðherra Sovétríkj-
anna. Má sem sé ætla að batnandi
samskipti risaveldanna hafi vald-
ið nokkru um að saman gekk í
deilu þessari.
Suður-Afríkumenn, sem hafa
ráðið yfir Namibíu (öðru nafni
Suðvestur-Afríku) frá því að þeir
tóku hana af Þjóðverjum í
heimsstyrjöldinni fyrri, þar af
fjóra áratugi í fullri óþökk Sam-
einuðu þjóðanna, munu sam-
kvæmt samkomulaginu hrinda í
framkvæmd áætlun, sem gerð
hefur verið að tilhlutan S.þ., um
sjálfstæðisveitingu til handa
Namibíu. Er gert ráð fyrir því að
landið verði sjálfstætt í fyrsta lagi
eftir sjö mánuði, en í síðasta lagi
eftir tólf, frá því að byrjað verður
að vinna samkvæmt áætluninni 1.
apríl n.k. 1. nóv. n.k. á að kjósa á
namibískt stjórnlagaþing, er á að
setja hinu nýja ríki stjórnarskrá.
Talið er að SWAPO, namibísk
hreyfing sem að minnsta kosti
öðru hvoru s.l. 22 ár hefur háð
skæruhernað gegn Suður-
Afríkustjórn, verði öflugasti aðili
stjórnlagaþingsins, en Suður-
Afríkumenn eru líklegir til að
styðja gegn henni önnur samtök.
Samkvæmt öðru aðalatriði
samkomulagsins munu Kúbanir
flytja heim allt herlið sitt í Ang-
ólu, um 50.000 manns, í áföngum
á tímabilinu til 30. júní 1991.
Gert er ráð fyrir að samkomu-
lagið verði endanlega staðfest
með undirritun formlegs sátt-
mála þar að lútandi í New York í
næstu viku.
Reuter/-dþ.
Víetnam
I fótspor
Gorbatsjovs
Víetnamskir ráðamenn hyggjastfœkka
hermönnum sínum um 300.000
Það er kunnara en frá þurfi að
segja hve vel fer á með ráða-
mönnum í Hanoi og Moskvu og er
haft á orði að hinir fyrrnefndu
reyni í hvívetna að feta í fótspor
hinna síðarnefndu. Síðast í gær
barst enn ein staðfesting þessa,
einsog Sovétmenn hyggjast Víet-
namar fækka í herliði sínu.
„Ykkur er óhætt að skýra frá
Arafat í Genf
Hvetur til friðarviðræðna
Undirtektir ísraela neikvœðar - Bandaríkjastjórnar tómlegar
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO),
flutti í gær ræðu á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í Genf og
hvatti leiðtoga ísraels til að koma
þangað til friðarviðræðna á veg-
um alþjóðasamtakanna. í Reut-
erfrétt segir, að í ræðunni hafi
Arafat virst stíga enn eitt skref í
áttina til móts við þau skilyrði,
sem Bandaríkjastjórn hefur sett
Atvinnuleysi
kvenna í
Evrópubandalagi
Samkvæmt skýrslu, sem gerð
var á vegum Evrópubandalags-
ins, er misbrestur á því að að-
ildarríki bandalagsins geri nóg til
að bæta úr atvinnuleysi kvenna,
sem eykst hraðar í löndum þess-
um en atvinnuleysi karla. Eru
Bretland, Spánn, írland og Belg-
ía sérstaklega gagnrýnd í skýrsl-
unni fyrir vanrækslu í þessum
efnum. Reuter/-dþ.
Sænskur árangur
gegn eyðni
Sænskir vísindamenn hafa til-
kynnt að þeim hafi tekist að finna
upp lyf, sem þeir telja að bera
muni góðan árangur í baráttunni
gegn eyðni. Að sögn Bo Öberg,
veirufræðings við Karolinska in-
stitutet í Stokkhólmi, hefur sýnt
sig við tilraunar á öpum og frum-
um úr mönnum að lyfið veikir
eyðniveiruna að miklum mun.
Lyfið heitir flúoródeoxýthými-
dín, ogkalla menn þaðFLT sér til
hægri verka. Reuter/-dþ.
PLO fyrir því að taka upp við-
ræður við samtökin.
Arafat kvað PLO sækjast eftir
samkomulagi allra aðila í deilum
fsraels og araba, „þar á meðal
ríkisins Palestínu, Israels og ann-
arra ríkja á þeim slóðum." Hann
nefndi ísrael hvað eftir annað
með nafni, gagnstætt því sem
hann gerði í ræðu sinni á allsherj-
arþingi S.þ. 1974, en þá kallaði
hann það aldrei annað en „síon-
istaeiningu,“ „ríki kynþátta-
hyggju" eða „óvininn."
Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra ísraels, vísaði ræðu Arafats
tafarlaust á bug og kvað hana
innihalda blekkingar einar. Tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins kvað ræðuna áhuga-
verða um sumt, en sagði Banda-
ríkjastjórn telja að Arafat hefði
ekki með henni viðurkennt ísrael
og fordæmt hryðjuverk nógu af-
dráttarlaust. Hinsvegar telja
sumir róttækari aðila innan PLO
að Arafat hafi þegar gengið of
langt til samkomulags.
Sökum þess að Bandaríkja-
stjórn neitaði Arafat um vega-
bréfsáritun til Bandaríkjanna var
allsherjarþing S.þ. flutt til
Genfar svo að Arafat fengi
ávarpað það. Þetta viðvik kostar
S.þ. um 650.000 dollara.
Reuter/-dþ.
Arafat - róttækir PLÖ-liðar telja hann
hafa gengið of langt til samkomulags.
Jarðskjálftinn í Armeníu
því að 300 þúsund hermenn verði
leystir frá þjónustu,“ sagði Nguy-
en Van Thaí, stórfylkishöfðingi,
á fundi með fréttamönnum í gær.
Thaí er æðstur stjórnmálafulltrúa
ívíetnamska hernum. Hann kvað
ákvörðun þessa um fækkun her-
manna lið í víðtækri áætlun um
endurskipulagningu hers síns
sem er einn hinn stærsti í heimi,
skipaður 1,3 miljónum manna.
Thaí lét þess ennfremur getið
að hluti víetnamska herliðsins í
Kampútseu, 18 þúsund manns,
myndi halda heim á leið á morg-
un og aka innfyrir landamærin
þann 21. þessa mánaðar.
Að sögn stjórnvalda í Hanoi
eru þetta leifar 50 þúsund manna
liðsins sem þau höfðu heitið að
kveðja heim frá Kampútseu.
Eftir sem áður verði hálf miljón
víetnaskra hermanna í
grannríkinu en þeir verði skipað-
ir í smærri fylki og smám saman
fluttir heim. í mars árið 1990
verði þeir allir á braut.
Eitthvað virðist það leika á
tveim tungum hvort Víetnamar
hafi staðið við gefin heit um
heimkvaðningu hermanna.
Sendimenn að vestan segja full-
yrðingar Hanoistjórnarinnar
orka tvímælis og að sér sé stór-
lega til efs að 50 þúsund hermenn
hennar verði úr Kampútseu fyrir
árslok.
Kampútískir uppreisnarmenn
staðhæfa að Víetnamar ljúgi því
að hermennirnir séu á heimleið.
Þeir séu einfaldlega látnir skipta
um klæði og störf og dulbúnir
sem heimamenn.
Reuter/-ks.
Að minnsta kosti 55.000 látnir
5.400 hefur verið bjargað úr rústum
Að sögn talsmanna sovéskra
stjórnvalda munu um 55.000
manns hafa farist í jarðskjálftan-
um mikla í Armeníu norðvestan-
verðri, en tekið er fram að þar sé
enn um bráðabirgðatölu að
ræða. Að sögn Gennadíjs Gera-
símov, talsmanns sovéska utan-
ríkisráðuneytisins, er tala slas-
aðra eftir jarðskjálftann um
13.000.
Gerasímov sagði einnig, að um
5.400 manns hefði verið bjargað
úr rústunum og auk þess hefðu í
þeim fundist yfir 13.000 lík. Um
hálf miljón manna á jarðskjálfta-
svæðinu er heimilislaus og um
24.000 manns hafa verið fluttir á
brott þaðan. Sovéskir embættis-
menn telja, að 70 af hundraði
íbúa smáborgarinnar Spitak hafi
farist af völdum jarðskjálftans,
en þar bjuggu um 20.000 manns.
Míkhaíl Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, hvatti í gær björg-
unarliðið á svæðinu til að draga
hvergi af sér í leitinni að fólki,
sem enn kynni að vera lifandi
undir rústum og benti á dæmi
þess frá jarðskjálftanum í
Mexíkóborg, að fólk hefði bjarg-
ast eftir að hafa legið undir ruðn-
ingi í 13 daga. Gorbatsjov hvatti
einnig konur, börn og gamalt fólk
til að yfirgefa jarðsjálftasvæðið
en lagði til að karlmenn yrðu eftir
til að hjálpa til við björgunar-
starfið og að endurbyggja íbúðar-
hús.
Moskvublaðið Pravda hefur
skýrt svo frá, að í vissum skeyt-
um, sem fólki í Armeníu hefðu
borist í tilefni hörmunganna,
hefði því verið óskað til hamingju
með þær. Yrðu þeir, sem sent
hefðu skeytin, sóttir til saka. Að
sögn manna í Lenínakan, sem
varð mjög hart úti í jarðskjálftan-
um, bárust skeyti þessi frá Sovét-
Aserbædsjan.
Reuter/-dþ.
Allsherjarverkfall
á Spáni
Tvö helstu verkalýðssambönd
Spánar hafa hvatt til 24 stunda
allsherjarverkfalls, sem á að hefj-
ast á morgun. Er gert ráð fyrir að
um fimm miljónir manna leggi þá
niður vinnu. Þetta er fyrsta alls-
herjarverkfallið þarlendis frá því
að Sósíalistaflokkurinn undir for-
ustu Felipe Gonzalez kom til
valda fyrir sex árum. Verkamenn
krefjast hærri lágmarkslauna,
ekki síst vegna stórhækkandi
húsaleigu undanfarið, og hækk-
aðra atvinnuleysisbóta. Atvinnu-
leysi á Spáni er nú 18.9%, eða
meira en í nokkru öðru aðildar-
ríki Evrópubandalagsins.
Reuter/-dþ.
Miðvikudagur 14. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13