Þjóðviljinn - 14.12.1988, Side 2

Þjóðviljinn - 14.12.1988, Side 2
FRETTIR Aíviniuurvzí’inxasióðui Þríðjungi umsókna vísað frá Gunnar Hilmarsson: Hátt í30 umsóknir afgreiddar ígœr ogþá hefur sjóðurinn gengiðfrá um 70 umsóknumfrá byrjun. Valdið erfiðleikum að ríkissjóður vill ekki veita ríkisábyrgð á skuldbreytingum. Viðrœður um sameiningufyrirtœkja hafnar á nokkrum stöðum Stjórn Atvinnutryggingasjóðs afgreiddi á fundi sínum í gær hátt í 30 umsóknir frá illa stseðum útflutningsfyrirtækjum og hefur sjóðurinn þá tekið til afgreiðslu um 70 umsóknir frá því hann tók til starfa. Um þriðjungi umsókna hefur verið vísað frá. Aö sögn Gunnars Hilmars- sonar hefur ríkissjóður ekki enn viljað gefa ríkisábyrgð á skuldb- reytingum þrátt fyrir að ríkið eigi sjóðinn og sé þegar búið að ráð- stafa til hans einum miljarði og ríkisábyrgð sé fyrir öðrum til við- bótar. Þessi afstaða ríkissjóðs hefur valdið vissum erfiðleikum fyrir sjóðinn við að skuldbreyta lánum sem viðkomandi fyrirtæki skulda lífeyrissjóðunum. Þar á bæ velta menn því fyrir sér hvort skuldbreyting án ríkisábyrgðar samrýmist lögum sjóðanna og ennfremur er mönnum umhugað um öryggi slíkra viðskipta með tilliti til hagsmuna lífeyrissjóð- anna. „Engu að síður hefur fjöld- inn allur af kúnnum fengið vilyrði hjá viðskiptaaðilum sínum um að losna við skuldarbreytingarb- réfin þó svo að alltaf verði ein- hver afföll af þeim,“ sagði Gunn- ar Hilmarsson. Aðspurður hvert yrði fram- haldið hjá þeim fyrirtækjum sem stjórn Atvinnutryggingasjóðs synjaði frá um aðstoð sagði Gunnar að ýmislegt kæmi þar til álita ss. sameining fyrirtækja eða aðrar umfangsmiklar uppstokk- anir á núverandi rekstri sem gerðu hann gæfulegri í framtíð- inni heldur en nú væri. Hafnar eru viðræður á milli forráðamanna fiskvinnslufyrir- tækjanna á Stöðvarfirði og Breið- dalsvík með sameiningu fyrir- tækjanna í huga. Hið sama er að gerast í Þorlákshöfn á milli Meitilsins og Glettings hf. og hef- ur ma. verið ráðinn sérstakur starfsmaður til þess. Ennfremur eru uppi þreifingar á milli eigenda tveggja frystihúsa á Ól- afsfirði um sameiningu þeirra. „Frumkvæðið verður að koma frá heimamönnum sjálfum. Engu að síður hvetjum við menn til þess en skipum þeim ekki af fyrra bragði," sagði Gunnar. A fundi Sambands sveitarfé- laga fyrir skömmu sagði Gunnar Hilmarsson að hrepparígurinn sá forni fjandi stæði oft á tíðum fyrir skynsamlegri samvinnu á milli út- flutningsfyrirtækja í sömu sveit og jafnvel sömu byggð vegna væringa frá gamlli tíð. Gunnar sagði að sem betur fer væri þetta þó að breytast og að sér sýndist sem losnaði um þennan ríg þegar yngri stjórnendur tækju við stjórnartaumunum í viðkomandi fyrirtækjum. „Það þarf kynslóð og stundum tvær til að koma þessum samskiptum á milli aðila á eðlilegt stig á nýjan leik,“ sagði Gunnar Hilmarsson. _grh Arnarflug Einkasamning- amir hæpnir Tíu prósent launalœkkun í athugun hjá Arnarflugi. Magnús L. Sveinsson, VR: Lœkkun áyfirborgun. Dœmi um hverfulleik einkasamninganna. Ottast launalœkkunaráróðurinn H Viðræður eða kynning? Heitar umræður urðu um það í önnunum á alþingi í gær hvort samræður ríkisstjórnarinnar við stjórnarandstöðuflokka væru „viðræður" eða „kynning". Sumir þingmenn létu sér þó fátt um finnast, og ekki ber á öðru en vel fari á með stjórn og stjórnarandstöðu á þessari mynd. En er Hjörleifur í viðræðum við Kvennalistann? Eða stendur yfir kynning? Kannski á Kjartani Jóhannessyni? (Mynd: ÞÓM). ér er verið að ræða um lækk- un á yfirborgun og ekki á taxta, sagði Magnús L. Sveinsson formaður VR um íhuganir starfs- manna Arnarflugs um tíu prósent launalækkun sem leið til að leysa vanda flugfélagsins. Magnús sagði þetta vera ágætt dæmi um íbúamir felmtri slegnir Gjaldþrot sveitarfélagsins kom íbúum Hofsóss á óvart. Skuldirnarþykja óeðlilegaháar. Oddvitinn: Verðum ekki gerðir upp persónulega. Dýr fjármagnskostnaður gerði útslagið Þetta leggst almennt afar illa í þorspsbúa og satt best að segja áttum við ekki von á að staðan væri jafn slæm og raun ber vitni. Þá finnst okkur mörgum sem skuldirnar séu óeðiilega háar í ekki stærra sveitarfélagi sem tel- ur um 270 manns, sagði ónefndur íbúi á Hofsósi. íbúar Hofsóss eru felmtri slegnir yfir gjaldþroti sveitarfé- lagsins sem skuldar um 55 miljón- ir. Það er þrefalt meira en sem nemur tekjum þess á þessu ári. Félagsmálaráðherra hefur svipt sveitarstjórnina fjárforræði og mun á næstunni skipa þriggja manna fjárhagsstjórn sem á að taka yfir fjármálastjórn Hofsóss- hrepps og jafnframt hefur ráðu- neytið óskað eftir greiðslustöðv- un. Af þessum 55 miljóna króna skuldum eru um 20 miljónir í per- sónulegri ábyrgð sveitarstjórnar- manna. Einn af þeim er Gísli Kristjánsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hofsóss, sem jafnframt er oddviti hrepps- nefndar. Gísli sagðist ekki vera hræddur um að hann yrði gerður upp þrátt fyrir að hann hefði gengist í persónulega ábyrgð fyrir hreppinn. Hann sagði það auðvitað ekki eðlilegt að einstak- lingar þyrftu að skrifa uppá fyrir sveitarfélagið en ekki hefði ann- að verið fært þegar lánastofnanir hefðu krafist þess. „Það eru margir samverkandi þættir sem liggja að baki því hvernig komið er. En það sem gerir útslagið er fyrst og fremst hinn mikli fjármagnskostnaður sem hefur verið að sliga útflutn- ingsfyrirtækin í landinu sem og sveitarfélögin. Hann gátum við einfaldlega ekki ráðið við og því Fjármálaráðherra Nefnd í fjámtagnsgróðann Fjármálaráðherra, Rag Ólafur agnar Grímsson, tilkynnti í gær að sérstök nefnd hefði verið mynduð til að móta tillögur um það hvernig skattleggja megi raunvaxtatekjur. Nefndinni er ætlað á næstu dögum og vikum að móta drög að frumvarpi í þessum efnum. Ólafur Ragnar sagði í gær að lög raunvaxtatekjur gætu tekið um gildi á næsta ári. Hann sagði að meðal annars hefði verið horft til reglna sem giltu í Bretlandi í þess- um málum. En um hinn vestræna heim hafa víða verið settar reglur um skattlagningu raunvaxta- tekna. Nefnd sú sem á að leggja drög að nýju frumvarpi er skipuð full- trúum forsætisráðuheytis, fjár- málaráðuneytis, viðskiptaráðu- neytis og Seðlabanka. -hmp fór sem fór. En við ætlum okkur ekki að leggja árar í bát, heldur þvert á móti. í dag siglum við í stórsjó í von um góða lendingu eftir að hafa farið í gegnum öskr- andi brimgarðinn sem ber við ströndina," sagði Gísli Kristjáns- son. íbúar Hofsóss búast við í fram- haldi af gjaldþroti sveitarfélags- ins að meiri áhersla en áður verði lögð á sameiningu sveitarfélags- ins við nágrannabyggðarlögin. Þegar hefur tekist góð samvinna við þau og reka td. Sauðárkróks- bær og Hofsósshreppur sam- eiginlega skóla auk samvinnu í atvinnumálum. f dag er ekkert unnið í Hrað- frystihúsi staðarins sem er stærsti atvinnurekandi þorpsins en fast- ráðningarsamningum starfsfólks hefur þó ekki verið sagt upp. Miklar vonir eru bundnar við komu togara Hraðfrystihúss Keflavíkur til Sauðárkróks sem mun leiða til aukins hráefnis til vinnslunnar frá því sem nú er. Enda ekki vanþörf á eins og í pottinn er búið í fjármálum sveitarfélagsins. -grh hverfulleika þeirra samninga sem starfsfólkið gerir sjálft án þátt- töku síns stéttarfélags. „Á ári mundi þessi launalækk- un þýða að launakostnaður lækk- aði um 20 miljónir hjá félaginu. Einsog er hefur ekkert verið ákveðið í þessum efnum," sagði Halldór Sigurðsson hjá Arnar- flugi. A hundrað manna fundi starfs- manna Arnarflugs með fram- kvæmdastjóranum í síðustu viku þar sem rætt var um fjárhags- stöðu fyrirtækisins kom fram til- laga um að starfsmenn lækkuðu sín laun um 10%. Tillagan hlaut jákvæðar undirtektir fundar- manna en síðan hefur hún verið í gerjun meðal starfsmanna félags- ins. Að sögn Halldórs Sigurðs- sonar verður að skilja þessa til- lögu og jákvæðu undirtektir starfsmanna við hana í því ljósi að margir starfsmenn félagsins hafa að engri annarri atvinnu að hverfa ef Arnarflug gefst upp. -grh Kópavogur Frjálst framtak í gatnagerðina Undirritaður hefur verið samningur milli Kópavogsbæjar og Frjáls framtaks hf. þess efnis að fyrirtækið tekur að sér gatna- gerð í hinu svonefnda Smára- hvammslandi. Smárahvammslandið er um 30 hektarar og var gengið frá sölu meginhluta þess 11. febrúar sl. Þá keypti Frjálst framtak hf. rúman helming landsins en aðrir aðilar sem keyptu landið voru bygging- avöruverslunin BYKO og Hag- kaup. Kópavogsbær hélt nokkru landi eftir og hefur nú selt það tilx Toyota-umboðsins. , 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. desember 1988

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.