Þjóðviljinn - 16.12.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.12.1988, Blaðsíða 2
Mér finnst það ekki ná nokkurri átt að allir sótraftar eru á sjó dregnir í þessu jólabókaflóði. Ég segi nú eins og postulinn: Þetta gátu Pétur og Páll og því ekki ég? Ég ætla að vera með og setja saman stutta og gagnorða jólabók. Hún á að vera um mig og heitir „Skæður er Skaði. Og hún er eitthvað á þessa leið: Fyrsti kapítuli Ég var eftirlætisafastrákur afa míns. Ég var efitrlætisafastrákur ömmu minnar. Faðir minn bar virðingu fyrir mér og móðir mín sá ekki sólina fyrir mér. En það var hrekkjusvín í götunni sem skar sundur dekkin á reiðhjólinu línu. Þetta var blátt reiðhjól, þýskt eins og svo margt sem vandað er. Annar kapítuli Ég sótti sunnudagaskóla af kappi og söng fyrir séra Friðrik svo þakið flaug af KFUM-húsinu. En stundum fannst mér mikið til um ranglætið í heiminum og ég spuröi guð oft á kvöldin: guð, hvað ert þú eiginlega að hugsa? Ég skal segja þér það seinna, svaraði hann og við það situr. Þriðji kapítuli Við bjuggum í-iitlu húsi vestur í bæ með grænmáluðu þaki og lágum kjallara og hænsnakofa úti á lóð og brotnum hjólbörum úti undir vegg. Við bjuggum sex saman á fjörtíu og átta fermetrum og þótti gott. Ég er stundum að hugsa um það að Reykjavík gæti verið sex sinnum minni en hún nú er miðaö við meðalfermetrafjölda á hvert nef. Þá þyrftum við ekki svona marga bíla og svona mikið bensín til að komast á milli staða og ættum gullfjall í Seðlabankanum í staðinn fyrir að eiga kjötfjall hér heima og skuldafjall í útlöndum. Hvernig stendur eiginlega á því að þjóðin er gengin af göflunum? ég neita að bera ábyrgð á því Fjórði kapítuli Ég kynntist mörgum frægum mönnum þegar í æsku en ég vissi alltaf hvaö ég vildi í pólitíkinni. Þegar ég sá eitt sinn Halldór Laxness missa blýant úti á götu lét ég hann ekkert vita af því og blýantinn lét ég alveg eiga sig. Einu sinni fór ég með pabba til Ólafs Thors til að redda einhverju fyrir trilluna og Ólafur klappaði á kollinn á mér og gaf mér kóngabrjóstsykur. Hann hefði vel getað sparkað í rassinn á mér eða eitthvað því ég leit út fyrir að vera ódæll, en svona var hann mikill öðlingur og höfðingi í lund. Ég á kóngabrjóstsykurinn enn og geymi hann í kassa upp á vegg við hliðina á grjóthnullungi sem var hérumbil lentur í hausnum á mér þegar við Heimdellingar börðum niður uppsteyt kommúnista við Al- þingishúsið 30. mars 1949. Fimmti kapítuli Þótt mikið sé reynt getur enginn lifað í ástlausum heimi. Sjálfur missti ég sveindóminn af hálfgerði tilviljun á spásseringartúr í Öskju- hlíðinni vorið sem ég var sautján ára. Við sögðum ekki neitt, enda óþarft. Á eftir hélt ég að kannski væri ég á leið í hjónabandið og tók á rás heim. Ég hefi aldrei gift mig vegna þess að hjónabandið er vond fjárfest- ing. Auk þess er svo mikið vesen af kvenfólki yfirleitt og taugaslit um allan kroppinn. Sjötti kapítuli Það er rétt sem segir í helgri bók, að maður á að elska náungann eins og sjálfan sig. Og þá er fyrst að læra að elska sjálfan sig alminni- lega því annars er allt ónýtt. Allavega ekki vísindalegt eins og þeir segja í Amríku þar sem hagfræðin býr. Svo er að velja sér náunga og það getur tekið óratíma ef menn ætla sér ekki að verða fyrir herfilegum vonbrigðum. Líður svo fram lífstíminn. Sjöundi kapituli Ég hefi lagt gjörfa hönd á allt. Hrært steypu og deigan hug, hamflett lunda og komma, barið lóminn og harðfisk, lagt vegi og kollhúfur, neglt þök og skvísur, stigið í stól og vitnað, slegið tún og nískupúka, brýnt Ijái og sjálfan mig til stórræða. Enginn segir mér neitt um það frekar en annað. Úr mér mætti gera hundrað menn ef ég mætti vera að vera þeir allir. Ég er sjálfstæður íslenskur maður. Ef ég hefi ekki rétt fyrir mér skal veruleikinn hafa verra af. Mér þykir saltkjöt gott en síld skal ég aldrei éta. Ég gruna sjálfan mig um mildi og gæsku innst inni. I ROSA- GARÐINUM SJÁ GUÐS LAMBIÐ ER BER SYND HEIMSINS Það er eftirtektarvert að Þor- steinn Pálsson er orðinn sam- nefnari fyrir allt sem síðasta ríkis- stjórn gerði eða gerði ekki. Það skiptir ekki máli hver sat í viðkom- andi ráðuneyti, það finnst ekkert nógu breitt bak nema á Þorsteini Pálssyni. Morgunbla&ið FRJÁLSIR MENN í FRJÁLSU LANDI Maður hefur það á tilfinning- unni að annar hver maður sé að flytja inn einhverja vöru. Heildsalí í Morgunblaðinu BOTNIHEITIR BURÐ- UGUR SVEINN Um daginn var kölluð hingað fjölskylda alla leið frá London til að taka þátt í skírnarathöfn á brennivínstegund. Morgunblaðið NIÐUR MEÐ KYNVILLUNA! Ég tel það móðgandi þegar þingmenn ávarpa Guðrúnu Helgadóttur, forseta Alþingis, herraforseti. Morgunblaðið MAN NÚ ENGINN EGIL SKALLAGRÍMSSON? Þetta er alger viðbjóður og ætti að banna þetta helvíti, sagði leigubílstjóri um glöggið sem þessa dagana tíðkast að inn- byrða í stórum stíl en að minnsta kosti fimm leigubílar á höfuð- borgarsvæðinu voru ældir út um helgina. Tíminn HIN ÍSLENSKA SAMSTAÐA Eru heilu sveitarfélögin nú far- in að segja sig til sveitar og þykir þá sumum að skörin sé farin að færast upp í bekkinn. En því skyldi þeim vera betur stjórnað en öðrum fyrirtækjum eöa stofn- unum? 2 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. desember 1988 Tíminn MJÓR ER MIKILS VÍSIR Síðar sagði gömul kona síra Gunnari (Björnssyni fríkirkju- presti) að kirkjugestir væru svo- lítið að kvarta yfir því að hárið á honum hefði tilhneigingu til að fallaframáennið. Það mætti hinsvegar laga með briljantíni hefði fólk sagt. Tíminn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.