Þjóðviljinn - 16.12.1988, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 16.12.1988, Blaðsíða 8
AÐ UTAN Teg. Asolo Bæsuð eik Verð kr. 71.200, stgr. Opið sunnudag kl. 14-16. Reykjavíkurvegi 66 - sími 54100. Morðingi Olofs Palme fundinn? Ríkissaksóknari sannfœrður um að rúmlega fertugur síbrotamaður sé hinn seki Þegar þetta er ritað, eru líkur taldar á því að haft hafi verið upp á morðingja Olofs Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtoga flokks jafnaðarmanna þarlendis. Hann var sem kunnugt er skotinn til bana á Sveavágen, einni af fjölförnustu götum Stokkhólmsborgar, síðla kvölds 28. febr. 1986. Forsætisráðherr- ann hafði ásamt konu sinni Lis- beth, fæddri Beck-Friis, verið í kvikmyndahúsi við Sveavágen og ætluðu þau að ganga heim til sín á Vesterlnggatan í Gamla Stan, elsta hluta borgarinnar, enda var veður gott. En á götuhorni einu beið morðinginn þeirra. Svo átti aö heita að Palme væri stöðugt undir vernd lífvarða, en sjálfum mun honum hafa þótt slíkt eftirlit frekar þreytandi, að minnsta kosti kom ósjaldan fyrir að hann brá sér á milli húsa án þess að láta lífverðina vita eða sendi þá frá sér. Það hafði hann einmitt gert þetta kvöld. Raunar er tiltölulega skammt síðan, að farið var að telja óhjákvæmilegt að leggja æðstu mönnum Sví- þjóðar til lífverði. Þeir voru sem sé vanir að fara ferða sinna ak- andi eða gangandi um götur og torg eins og hverjir aðrir borgar- ar. En það er þeim ekki óhætt lengur, eins og svo eftirminnilega sýndi sig umrætt vetrarkvöld. í því felst ískyggilegur vitnisburður um þróun mála í skandinavískum löndum, sem til skamms tíma voru talin friðsamlegustu og ör- uggustu samfélög í heimi. Margar tilgátur Morðingi Palme slapp sem kunnugt er, og svo að segja sam- stundis komust á kreik firn af kviksögum um það, hver illvirkinn væri og á hverra vegum. Til þess voru nefnd kúrdnesk og arabísk skæru- og hryðjuverka- samtök, íranskir valdhafar, róm- anskamerískar herforingjaklíkur og leyniþjónustur, leyniþjónust- ur risaveldanna beggja, nokkuð sérvitringslegur pólitískur öfga- hópur sem nefnist Evrópski verkamannaflokkurinn og virðist hatast sérstaklega við jafnaðar- menn og svona mætti lengi telja. Ekki var heldur talið útilokað að morðinginn hefði á engra vegum verið nema sjálfs sín. Raunar var ekki við öðru að búast en að óteljandi kenningar kæmust á kreik viðvíkjandi máli þessu. Af öllum forustumönnum í stjórnmálum á Norðurlöndum um sína daga lét Palme mest að sér kveða á alþjóðavettvangi. Framkoma hans og frammistaða á þeim vettvangi vöktu aðdáun margra, en andúð annarra. Þegar Bandaríkjamenn á stjórnarárum Nixons bombuðu Hanoi sem harðast, líkti Palme því athæfi við verslu glæpi nasista. Stjórnendur Spánar á Francotímanum kallaði hann eitt sinn „andskotans morð- ingja“ og Husak og félaga hans, sem Sovétmenn settu til valda í Tékkóslóvakíu eftir að hafa bælt Pragvorið niður, nefndi hann skriðdýr einræðisins eða eitthvað í þá veru. Kúrdakenning Holmérs Menn eru viðkvæmir fyrir heiðri sínum, kannski sérstaklega þeir sem ekki hafa hann nema af skornum skammti. Hver berst fyrir því sem hann ekki hefur, eins og Napóleon sagði. Það voru sem sagt ýmsir, sem ætla mátti að hefðu þungan hug á sænska for- sætisráðherranum vegna hvass- yrða hans og mikilla afskipta af alþjóðamálum. Til greina komu í þessu sambandi einnig ýmsir aðil- ar, sem líklegt var að hötuðust við sænsk stjórnvöld af öðrum ástæðum. Hans Holmér, yfirlög- reglustjóri Stokkhólms, sem fyrst í stað stjórnaði rannsóknum í morðmálinu, virðist hafa verið því sem næst sannfærður um að morðinginn hefði verið á vegum Kúrdneska verkamannaflokks- ins, róttækra samtaka Tyrk- lands-Kúrda, sem þekktust eru undir skammstöfuninni PPK. Menn úr þeim samtökum höfðu komist í kast við sænsk yfirvöld NÝJAR SENDINGAR Teg. Scala Litir: svart og hvítt Verð aðeins kr. 66.150, stgr. Palme - maður sem hreif marga en vakti furðumikið hatur hjá öðrum. vegna morða á Kúrdum búsett- um þarlendis, sem þau voru grun- uð um, og af því tilefni haft í hót- unum. En ekkert tókst að sanna á samtök þessi. Rannsókn málsins hefur í heild orðið allsöguleg, og út frá henni hafa Holmér, Anna- Greta Leijon dómsmálaráðherra og tveir saksóknarar orðið að segja af sér. Úpp á síðkastið hafa þeir, er hafa rannsókn málsins með höndum, hallast að þeirri kenn- ingu að morðið hafi verið fram- tak eins manns, sem ekki hafi verið á vegum neinna uppreisnar- samtaka, ríkja eða leyniþjón- ustustofnana. Maður sá, sem nú er grunaður um morðið, var handtekinn á miðvikudag í einni af útborgunum á norðurhluta Stokkhólmssvæðisins, þar sem hann er búsettur. Um hann er vit- að að hann er 41 árs gamall sí- brotamaður, sem mikinn hluta fullorðinsára sinna hefur setið í fangelsum. Árið 1970 drap hann mann með byssusting á götu í miðborg Stokkhólms, og hafði sá drepni það til saka unnið að reka sig á morðíngjann í þrengslunum á gangstéttinni. En í Svíþjóð eru refsingar fyrir glæpi með ein- dæmum vægar, jafnvel á vestur- lenskan mælikvarða, og innan þriggja ára frá byssustingsmorð- inu var morðinginn frjáls ferða sinna á ný. Síðan hefur hann að sögn haldið ótrauður áfram á af- brotabrautinni og setið inni tíma og tíma milli glæpa. Fjarvistarsönnun að engu orðin Þessi ferill vekur óhjákvæmi- lega athygli á þeirri spurningu, sem sífellt oftar heyrist borin fram síðustu ár, hvort linkind mannúðlegustu vesturlandaríkja gagnvart afbrota- og glæpa- mönnum sé ekki komin út í óverj- andi öfgar. Komist hefur verið svo að orði í því sambandi að samfélögin hafi í raun tekið af- stöðu með afbrotamönnunum gegn hinum almenna borgara. Haft er eftir Axel Morath, að- stoðaryfirríkissaksóknara Sví- þjóðar, að hann sé sannfærður um sekt hins handtekna. Vitað er að hann var staddur nálægt morðstaðnum skömmu áður en morðið var framið, og fjarvistar- sönnun sem hann hafði áður var- ið sig með reyndist við nánari at- hugun haldlaus. Hástéttarmaður — sósíalisti En þótt satt kunni að reynast að ólukkufugl þessi sé sekur um morðið, þá er ekki þar með sagt að sænska samfélagið sem slíkt sé alveg án ábyrgðar í því tilfelli. Eitt af því sem heyrst hefur af þeim handtekna er að hann hafi hatað Palme. Hann var ekki einn Svía um það. Palme var á ýmsan hátt sérstæður af sænskum stjórnmálamanni af vera. Faðir hans var af ætt, sem lengi hafði verið áhrifamikil í viðskipta- heiminum, og móðirin var af þýsk-baltneska aðlinum, ein- liverri stéttvísustu yfirstétt sem sagan kann frá að greina. Fjöl- skyldan var hægrisinnuð, en sjálf- ur gerðist hann vinstrisinnaður og var jafnvel af sumum „grásoss- um“ (eins og tiltölulega hægri- sinnaðir jafnaðarmenn eru gjarnan nefndir í Svíþjóð) talinn setja fullmikinn róttæknissvip á Jafnaðarmannaflokkinn. Jafn- framt var hann alla tíð dæmigerð- ur aristókrat í framkomu og stíl, - og það var annað en menn höfðu átt að venjast af fyrri leiðtogum flokksins, Tage Erlander og Per Albin Hansson. Sem slíkur talaði Palme yfirleitt eins og sá sem valdið hafði og ekki var laust við að stundum þætti kenna nokkurs hástéttarhroka af orðum hans í kappræðum við pólitíska and- stæðinga, t.d. Thorbjörn Fálldin, bónda norðan úr Ingermanlandi. Palme var dáður af mörgum, en þessar mótsagnir viðvíkjandi honum áttu ef til vill nokkurn þátt í því að hann var furðumikið hataður af skandinavískum stjórnmálamanni að vera. Það hatur, sem var mest meðal hægri- manna en var einnig merkjanlegt í röðum kjósenda flokks hans, var einskonar blanda af hatri yfir- stéttarfólks á liðhlaupa og lág- stéttarfólks á hástéttarmanni. Þegar slíkt hatur beinist að ein- hverjum háttsettum manni í þjóðfélaginu, er varla óhugsandi að einhver ruglaður glæpamaður fái það á heilann að ráða þann hinn sama af dögum og ímyndi sér að hann sé með því að þjóna almennum vilja, gott ef ekki ein- hverjum æðri tilgangi. Dagur Þorleifsson 8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. desember 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.