Þjóðviljinn - 16.12.1988, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 16.12.1988, Blaðsíða 22
Bruckner í Langholtskirkju Eru ekki neinir nævistar í mús- ík eins og myndlistinni t.d. Ro- usseau hinn franski og ísleifur Konráðsson hjá okkur? Þannig spurði kunningi minn sem er listmálari. Þessu gat ég nú ekki svarað. Hvað með Bruc- kner? spurði maðurinn. Bruc- kner var reyndar sagður mjög næv og hallærislegur. En hann varekki nævisti í list sinni. Þvert á móti. Fáir meistarar hafa búið yfir öðrum eins lærdómi og kunn- áttu. Bruckner var akademiker fram í fimgurgóma þó hann væri einnig frumlegur snillingur. En hann var skrýtinn kall. Sagan segir, og mun vera sönn, að eitt sinn er hann heyrði frægan hljómsveitarstjóra stjórna einu verka sinna með óvanalegum glæsibrag, tók hann krónu upp úr buddunni og gaf honum með kæru þakklæti fyrir frammistöð- un. Brucknervareinnighálfgerð- ur nebrófíll og setti sig aldrei úr færi að glápa á lík. Hann var við- staddur er Beethoven og Schu- bert voru grafnir upp og fluttir í heiðursgrafreitinn í Vínarborg. Þá var þessi mikli tónsmejstari allur í smástelpum. Og það var hið mesta þjóðráð til að aldrei yrði neitt úr neinu í alvöru. Þegar Bruckner í allri sinni heilögu og grandvöru alvöru bar upp bónorð sín: En góði Bruckner. Þú ert bara alltof gamall. Þá fór gamli maðurinn í ástarsorg og lofaði sinn guð í kompósisjón. Margir litu á Bruckner sem hreinan kjána meðan hann lifði. Það er auðvitað fjarstæða. Allir eru álitnir kjánar sem hugsa ekki og finna til eins og leiðinlegustu smáborgarar. Bruckner var vissulega ekki eins og fólk er flest og er það hrós en ekki last. Ekk- ert er eins ómögulegt og fólk flest. Því geggjaðari sem menn eru því meira vit er í þeim. Kór Langholtskirkju hélt Brucknertónleika á laugardag og sunnudag. Þar var flutt e-moll messan og nokkrar mótettur. Ég þekkti aðeins eina þeirra: Locus iste. Annars vissi ég lítið hvað var sungið því ég hafði enga efnis- skrá. Ég var rukkaður um hana með harðri hendi. Þá spurði ég auðmjúklega hvort ég ætti að borga þar eð ég væri krítiker frá Þjóðviljanum. Ég veit það ekki, svaraði miðasölufrúin sem bar tíu þúsund króna hatt á sínu vitlausa höfði. Þá lét ég þetta eiga sig. Það var ekki af nísku eða peningaleysi heldur göfugum prínsípástæðum. Mér finnst það ekki ná nokkurri átt að gagnrýnendur borgi með sér. Engir vinnandi menn borga með sér nú á dögum. Og eru ekki prógrömmin mikilvægustu vinn- uplögg gagnrýnenda? En þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég lendi í vandræðum út af efnisskrám á konsertum. En vonandi síðasta. Jón Stefánsson stjórnaði tón- leikunum með sprota sem var í eigu gamla Bruckners. Það var sniðugt. Og hver veit nema það hafi átt sinn þátt í því hve þetta voru góðir tónleikar. Það er fleira milli himins og jarðar en heimspekina dreymir um. Og því SiGURÐUR ÞÓR GUÐJÓNSSON geta ekki myndast einhverjir straumar milli anda Bruckners og Jóns vegna þessa tónsprota? Það er erfitt að syngja Bruc- kner, ekki aðeins tæknilega held- ur miklu fremur „innihaldslega". Tæknilega söng kórinn með mikl- um ágætum. Hann hefur það þrek og þol sem til þarf. Líka hreinan og öruggan tón. En mér fannst hann skorta herslumuninn að ná þessum sérkennilega „kar- akter“ sem er í músíkinni hans Bruckners, ná „innihaldi" þess- arar tónlistar hundraðprósent. Og hvert er þá „innihaldið"? Það er fyrst og fremst persónuleiki meistarans: endurspeglun mátt- ugrar trúar í hæsta máta óvenju- legri sál, sem er bæði dýpri og víðfeðmari en flestra annarra en einnig á ýmsa lund takmarkaðri. Á tónleikunum sá ég Sigurð Hauk Guðjónsson sóknarprest Langholtssafnaðar. Ég hef verið að glugga í ævisögu hans. Hún virðist skemmtileg og áhugaverð. Frásegjarinn er líka merkur mað- ur og með betri prestum á landinu. En auðvitað er hann ekki hafinn yfir gagnrýni. Hann segir margt af þessum Einari á Einarsstöðum. Éins og fyrri dag- inn útmálar Sigurður Haukur „hugiækninn" sem eins konar of- urmenni og dýrling, sem fór létt- ara með að fremja kraftaverk en undirritaður að skrifa krítikk. Það er mikill ábyrgðarhlut'i að gera sig út fyrir að vera verkfæri andlegra afla og geta læknað og huggað fólk. Oft leituðu menn til Einars þegar allt annað hafði brugðist. Og menn fóru til hans að sjálfsögðu fyrst og fremst vegna þess að hann sjálfur og um- boðsmenn hans höfðu látið þær sögur út ganga að þar færi mikið kraftaverkséní. En ég veit um fólk sem varð engu bættara með Einar. Það gerðist ekkert. Alls ekkert. Fólkið hefði alveg eins getað talað við næsta ljósastaur. Og út af þessum svikum og lodd- araskap missti það endanlega vonina og jafnvel trú á líflð. En þeir segja ekki frá svona í lof- gerðabókunum. Þar lýsa aðeins „kraftaverkin" ljósum logum á blaðsíðunum. í mínum augum er það glæpur að spila á þjáningu og örvæntingu fólks með dulfræði- gaspri og kraftaverkaþvælu. Það mætti segja mér að slíkir herrar fari ekki á góða staði þegar yfir lýkur. Það er ekkert guði ands- Hugmyndabarátta í brennidepli Ólafur Ásgeirsson: Iðnbylting hugarfarsins Atök um atvinnuþróun á íslandi 1900- 1940 Sagnfræðirannsóknir-Studia Hist- orica Bókaútgáfa Menningarsjóðs, 1988 168 bls. Þessi nýútkomna bók finnst mér áhugaverð af mörgum ástæð- um. í henni er rakin hugmynda- saga sem ekki hefur verið skoðuð sérstaklega í fræðiriti fyrr. Þau átök, sem þar eru rakin, tengjast með ýmsum hætti hugmyndabar- áttu sem stendur enn. Margt, sem þarna er greint frá, skýrir viðhorf sem ríkja í íslenskri þjóðmála- umræðu enn í dag. Og minnir að sínu leyti á hve langan tíma tekur að breyta rótgrónum viðhorfum. Bókin geymir í raun nokkra greiningu á rótum hinna sigur- sælu framfarahugmynda, sem tengjast iðnvæðingu, tæknilegum lausnum og því sem nú á dögum kallast markaðssókn. En höfund- ur er þó einkum að athuga hvern- ig stjórnmalaleiðtogar og ýmsir álitsgjafar umrædds tímabils skiptust í fylkingar eftir afstöðu sinni til atvinnuþróunar og hvernig ríkisvaldinu skyldi beitt til að hafa áhrif á hana. Það sem hann festir á blað afmarkast ekki síst við að sýna hvernig hugmynd- ir manna og afstaða til rísandi iðnaðar og sjávarútvegs, fram- leiðsluhátta í landbúnaði og vaxt- ar Reykjavíkur voru ekki endi- lega bundnar við afstöðu sem kennd er við vinstri-hægri. í lok inngangs víkur höfundur að spurningum sem átökin snúast um: „Hvernig átti að varðveita ríkjandi byggðamynstur í landinu gegn segulmagni Reykjavíkur? Átti að ráðast í stórvirkjanir og stóriðju? Var ástæða til að styrkja einstakar atvinnugreinar, svo sem landbúnað, eða áttu hag- kvæmnissjónarmið að ráða þró- un atvinnulífsins?" Þetta sýnir glöggt skyldleikann við þjóðmál- aumræðu vorra daga. HÖRÐUR BERGMANN Lífsseigla hugmynda, sem móta stefnu stjórnmálaflokka og löggjöf í landinu, löngu eftir að forsendur þeirra eru brostnar birtast okkur nú á dögum m.a. í tilraunum sem enn standa til að selja íslenskar landbúnaðaraf- urðir á erlendum mörkuðum. Og láta ríkið styrkja útflutninginn. I hugmyndasögu Ólafs Ásgeirs- sonar fáum við fleiri en eina skýr- ingu á því hve hægt hefur gengið að endurmeta stöðuna. Þar er greint frá því hve sterk og út- breidd trú ríkti á bæði efnahags- legt og menningarlegt gildi land- búnaðarins og sveitanna. En efa- semdir um efnahags- og menningaráhrif togaraútgerðar, iðnaðar, stóriðju, þéttbýlis og stórbúskapar mótuðu ekki ein- ungis viðhorf dreifbýlisfulltrúa á Alþingi, heldur einnig verkalýðs- fulltrúa eins og Jóns Baldvins- sonar og fleiri Alþýðuflokks- manna. Tekin eru mörg dæmi af því hvernig vald þessar hugmynd- ir höfðu - og af því hvernig áhrif þær höfðu á stefnu þeirra sem ætla mætti að hugsuðu öðruvísi. Allt frá kommúnistum til stórút- gerðarmanna. Greint er frá því að Brynjólfur Bjarnason skrifaði greinaflokk í „Rétt“ um kom- múnismann og bændur og sér fyrir sér framtíðarsýn sem minnir á það sem Thor Jensen fram- kvæmdi á Korpúlfsstöðum á þriðja áratugnum sé horft fram- hjá eignarforminu. 1927 lýsir Brynjólfur markmiði kommún- ista þannig að uppræta þurfi smá- býlin og koma á „...öflugum at- vinnusamtökum meðal bænda, rækta landið, beisla fossana og breyta kotungsbúskapnum í stór- framleiðslu, sem stendur stóriðn- aði nútímans á sporði.“ Draumar manna um framtíð landbúnaðarins hafa flogið hærra en nútímafólk rennir grun í. í greinargerð Búnaðarfélags ís- lands með jarðræktarlögum, sem samþykkt voru á Alþingi 1923, var gert ráð fyrir að íslensk bændabýli gætu orðið 50.000 tals- ins í framtíðinni og meðalj örð um 40 hektarar og að meðaltali 6 manns á hverjum bæ. Á Alþingi ríkti það viðhorf að fjárfesting í landbúnaði væri trygg og ætti að njóta betri lánskjara en áhættu- rekstur eins og togaraútgerð og síldarútvegur. Islenskur jarðveg- ur var af ýmsum talinn alveg sér- stakur og því tilvalið að sjá heimsmarkaðnum fyrir landbún- aðarvörum með ræktun hans. Sá sem skyggnist með Ólafi Ás- geirssyni inn í þann undarlega hugmyndaheim, sem þarna er lýst, verður sem fyrr segir margs vísari um hvar við erum stödd nú á dögum. Verður ekki hissa á því að menn skyldu fram til þessa telja að ekki væri búið að ná eðli- legum markmiðum í landbúnaði á íslandi og nýta almennilega möguleika hans. Hér er ekki rúm til að fjalla frekar um efni bókarinnar eða skírskotanir sem þar er að finna til nútímans. Síðustu hlutarnir fjalla um hvörfin sem urðu á fjórða áratugnum, m.a. vegna áhrifa kreppunnar. „Varð land- búnaðurinn einna harðast úti og iðjusinnar til hægri og vinstri hófu gagnsókn á efnahagslega og pólitíska sviðinu..." Undir sjónhorni höfundar kemur margt áhugavert í ljós. En stundum veldur það heldur þröngri túlkun. Þannig er t.d. vikið að klofningi Alþýðuflokks við lok tímabilsins: „Vaxandi óþreyju gætti meðal iðjusinna í Alþýðuflokki vegna tregðu Framsóknar og að lokum gerðu hinir fyrrnefndujcröfu um þjóðn- ýtingu stærsta togarafélags lands- ins og um stóraukið rikisframlag til útgerðarmála. Þegar í ljós kom að Framsóknarmenn héldu fast við andstöðu sína vildu róttækir jafnaðarmenn hætta samstarfi við þá en varðveislumennirnir halda því áfram. Niðurstaðan varð klofningur Alþýðuflok- ksins.“ Þessi saga er lipurlega skrifuð og ég býst við að mörgum sem hafa áhuga á sögu og þjóðmálum þyki fróðlegt og skemmtilegt að skoða fyrstu fjóra áratugi aldar- innar frá því sjónhorni sem þar er notað. Ritið er fallega gefið út og í því eru ítarlegar heimilda-, nafna- og atriðaorðaskrár. Hins vegar er engin myndaskrá og vek- ur það bæði spurningar um hvernig á því standi - og hvaðan hinar ýmsu myndir eru komnar. Beðið eftir kaffinu Loksins teiknimyndasögur fyrir Fulloröna Fyndin jólagjöf handa þér og mér. Hörður Bergmann 22 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. desember 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.