Þjóðviljinn - 16.12.1988, Blaðsíða 30
Hvað á að gera um helgina
Ingólfur Hannesson
íþróttafréttamaður
Það er nú svo með mig eins og fleira ungt fólk að ég stend á kafi í
lagfæringum á íbúð minni. Þannig að mínir aðal félagar um helgina
vera spaslspaðinn og málningarpensillinn. Nú, svo er það vinnan, ég
kem til með að líta hingað upp í Sjónvarp á laugardaginn og fylgjast
með því, að allt gangi eins og það á að gera.
Alþýðubankinn, Akureyri, Ijós-
myndir Harðar Geirssonar til 6.
jan.
Bókasafn Kópavogs, verk
Svavars Ólafssonar lýkur í dag.
Biblíusýning til áramóta, virka
daga 9-21, laugard. 11-14.
FÍM-salurinn, Garðastræti 6,
sýn. á verkum félagsmanna, 12-
18 virka daga, 14-18 helgar.
Galleri Borg, jólaupphengi; verk
gömlu meistaranna. Grafíkgall.
Austurstr. myndir, gler- og leir-
munir, Kringlan, 3. hæð, myndir
og leirmunir. Opnunartími versl.
Gallerí Gangskör,
Amtmannsstíg 1, árleg jólasýn-
ing gangskörunga opnuð kl. 14
laugard.
Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4
A, jólasýning þeirra sem að gall-
eríinu standa, 12-18 virkadaga,
10-22 laugard.
Gallerí List, nýjar myndir og ker-
amik, 10-18virkadaga, 10:30-14
laugard.
Gal er í Sál, T ryggvagötu 18,
sýning T ryggva Gunnars Hans-
en, 17-21 daglega.
íslenska óperan, málverk Tolla
til 18. des. 15-19daglega.
Kjarvalsstaðir, ný verk I Listas.
Rvíkurtil 18. des. Fjórarárstíðir
II, málverkasýning Harðar Karls-
sonar til 24. des. Opið 14-22
daglega.
Listasafn ASÍ, verk Jóns Engil-
berts til 18. des. virka daga 16-
20,14-20um helgar.
Listasafn Einars Jónssonar,
lokað desember og janúar.
Höggmyndagarðurinn opinn
daglega11-17.
FJOLMIÐLAR
ÞROSTUR
HARALDSSON
arsöng undir stjórn Harðar
Áskelssonar, Bernard Wilkinson
leikur áflautu, prestursr. Ragnar
FjalarLárusson. Þátttakendum
boðið að þiggja léttar veitingar á
heimili breskasendiherrans
Marks Chapmans að lokinni
messu.
Ferðafélag íslands, Esja-Ker-
hólakambur, dagsferð á sunnud.
kl. 10:30. Verð 500 kr.
Hana nú, lagt upp í laugardags-
gönguna í fyrramálið kl. 10 frá
Digranesvegi 12. Nýlagaðmol-
akaffi, allirvelkomnir.
Útivist, dagsferð á sunnud.
Hressingarganga um gömlu
þjóðleiðina til Rvíkur, brottför
með rútu frá Grófartorgi (milli
Vesturgötu 2 og 4) kl. 13, frá BSÍ,
bensínsölu kl. 13:10. Gangan
verðurviðBústaðikí. 14:30, við
Öskjuhlíð 15:30, í Arnhólströðum
16:30. Kakó, piparkökurogjólaöl
að göngunni lokinni.
____________________________________I
Bing Crosby og
Megas settir í bann
Það varð á dögunum nokkur
umræða um tónlistarflutning í út-
varpi. Nánar tiltekið hófst þessi
umræða á því að Helgi Hálfdan-
arson beindi þeim tilmælum til
Ríkisútvarpsins að það hlífði
hlustendum við jólasálmum fyrir
jól. Helgi mælti hins vegar með
flutningi þartilgerðra jólalaga,
utan hvað hann vildi færa lagið
Hvít jól í bann, einkum ef það
væri sungið af Bing Crosby.
Þetta var í sjálfu sér afar
skiljanleg beiðni hjá Helga enda
varð stjórn útvarpsins við þessu
svo til samdægurs. Héðan í frá er
bannað að leika jólasálma í
Ríkisútvarpið nema yfir blájólin,
þe. eftir kl. 18 á aðfangadag. í
reglunum sem Ævar Kjartansson
las upp var þó hvergi minnst á
Hvít jól eða Crosby kallinn svo
væntanlega er útvarpsmönnum
heimilt að spila hann, þótt „væm-
inn“ sé að mati Helga.
Síðustu víkurnar fyrir jól kem-
ur út obbinn af ársútgáfu ís-
lenskra hljómlistarmanna.
Hljómplötur, diskar og spólur
hrúgast upp í verslunum og útgef-
endur eyða miklum fjármunum í
að fá okkur til að kaupa varning-
inn.
Einn liður í auglýsingastarf-
semi útgefenda og ekki sá veiga-
minnsti er að senda útvarpsstöðv-
unum eintök af útgáfuefninu og
tryggja að það sé leikið á ljósvak-
anum. Tónlistarmennirnir eru
svo sendir á eftir í viðtöl og allra
handa „spjöll“ þar sem rætt er um
nýju plöturnar og ekki gleymt að
geta þess hvar og hvenær útgáfu-
tónleikarnir verða haldnir. Oft er
greinilega herjað á marga út-
varpsmenn í senn því ég hef heyrt
viðtöl við sama tónlistarmanninn
í allt að fjórum þáttum á Rás 2 í
sömu vikunni.
Allt er þetta samt í stakasta lagi
og að flestu leyti sambærilegt við
blöðin og bókmenntirnar. Þar er
algengt að blað birti fréttatil-
kynningu frá forlaginu, síðan
kemur viðtal við höfundinn, þá
kafli úr bókinni (að vísu hafa dag-
blöðin hætt að keppast um að fá
að birta slíka kafla að undan-
förnu) og loks er birt gagnrýni um
verkið. I þessu litla þjóðfélagi er
leikurinn yfirleitt auðveldur fyrir
rithöfunda og útgefendur sem
eiga góðkunningja á hverri rit-
stjórn.
En stundum fer þetta að lykta
af hagsmunaárekstrum hjá út-
Varpsstöðvunum. Þar háttar
sums staðar svo til að hljómlistar-
mennirnir vinna sjálfir við þátta-
gerð, ýmist sem íhlaupantenn eða
fastráðnir dagskrárgerðarmenn.
Og þá getur jafnvægiskúnstin
orðið erfið. Því oft er það í sjálfu
sér eðlilegt að leika tiltekið lag
sem mikilla vinsælda nýtur í ein-
hverjum tónlistarþætti. En hvað
ef stjórnandi þáttarins leikur á
bassann? Þá finnst mér einsýnt að
hann verði að sleppa því að spila
lagið. Þessi staða er vissulega erf-
Stórsöngvararnir Megas og Bing Crosby munu vera í banni hjá einka-
stöðvunum.
ið tónlistarroanninum/þáttagerð-
armanninunt og þess eru nokkur
dæmi um að þeir hafi ekki allir
staðist prófið.
Svo er það hin hliðin á stöðvun-
um, þe. að gefnar séu út tilskip-
anir um að lög með vissum flytj-
endum séu bönnuð. Þetta var
nokkuð algengt hér áður fyrr hjá
Ríkisútvarpinu og þess jafnvel
dæmi að yfirmenn tónlistar-
deildar færu eigin hendi með
skærum ofan í óæskileg lög á
plötum eða jafnvel heilar plötu-
hliðar og helltu svo signetlakki í
sárið.
Þetta er liðin tíð hjá hinu opin-
bera útvarpi. En þá taka frjálsu
stöðvarnar upp þráðinn. Mér er
sagt að plötur nteð Megasi seu
bannaðar bæði á Bylgjunni og
Stjörnunni og á síðarnefndu stöð-
inni hafi Bubbi einnig verið settur
út af sakramentinu eftir að hann
söng neikvæðan texta um stöðina
inn á plötu í sumar.
Að vísu er bannið að þessu
sinni ekki réttlætt með því að ver-
ið sé að vernda viðkvæmar sálir.
Nú eru það hrein og klár bísnis-
sjónarmið sem ráða: til þess að
tryggja sem mesta hlustun má
ekki leika neina tónlist sem hugs-
anlega gæti stuðað einhvern.
Einhver sagði ntér að svo hart
væri gengið eftir þessu á annarri
stöðinni að útvarpsstjórinn hafi
horft yfir öxlina á þáttagerðar-
manni og vinsað úr þær plötur
sem viku frá kúlutyggjópopplínu
stöðvarinnar. Þegar úrvalið var
kontið niður í 20 plötur sem þóttu
gjaldgengar gafst maöurinn upp
og leitaði sér að annarri vinnu.
Kór Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar flytur helgileikinn Hljóðu
kirkjuklukkurnar í Fríkirkjunni í
Hafnarf. sunnud. í tilefni af 75 ára
afmæli hennar.
Úr námum íslensku hljóm-
sveitarinnar, Námur III, að
Gerðubergi sunnud. kl. 16.15.
öldin: JóhannaV. Þórhallsdóttir,
Viðar Gunnarsson og íslenska
hljómsveitin frumflytja Klukku-
kvæði eftir John Speight við sam-
nefnt og frumort kvæði Hannesar
Péturssonar. Stjórnandi Guð-
mundur Emilsson. Á undan tón-
listarflutningi verður málverkið
Við klukkukvæði eftir Einar Há-
konarson afhjúpað.
HITT OG ÞETTA
Árleg jólasaia Myndlista- og
handíðaskóla íslands er í turnin-
um, Lækjartorgi mánu- til
fimmtud. 16-18,föstud. 16-19,
laugard. 10-18.
Kringlukast, hlutavelta í Kringl-
unni til styrktar byggingu tónlist-
arhúss, í dag og á morgun á með-
an húsiðeropið. Kórsöngurog
hljóðfærasláttur, miðinn 50 kr.
Hlaðvarpinn, Vesturgötu 3,
kvennabókakaffi á morgun 13-
17. Lesið úr nýútkomnum
bókum.
Kvennalistinn, kaffi að Lauga-
vegi 17 á morgun, Dagskrá um
þingstörfin frá kl. 14.
Félag eldri borgara, opið hús í
Goðheimum, Sigtúni 3 kl. 14
sunnud. Frjálst spil og tafl.mynd-
asýning úr Færeyjaferð fyrri
áfangikl. 15:30. Lokaðvegna
jólaleyfis í Sigtúni 19/12-8/1, í
tónabæ 17/12-7/1.
Kór Átthagafélags Stranda-
manna heldur aðventukvöld í
Sóknarsalnum, Skipholti 50 a kl.
20:30íkvöld.
Ensk jólamessa í Hallgríms-
kirkjusunnud. kl. 16, messafyrir
enskumælandi fólk og fjölskyldur
þeirra, jólasagan rakin, Mótettu-
kór Hallgrímskirkju leiðir safnað-
MYNDLIST
Listasaf n íslands, lokað til 15.
jan. Skrifstofa og kortasala opnar
8-16 virkadaga.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar á Laugarnesi, 50 verk Sig-
urjóns, 14-18umhelgar. Tekiðá
móti hópum e/ samkomul.
Mokka v/Skólavörðustíg, Ríkey
Ingimundardóttir sýnir um óákv.
tíma.
Norræna húsið, kjallari, Spor-
rækt, Örn Þorsteinsson og Thor
Vilhjálmsson opna sýningu
mynda/ljóðaámorgunkl. 14.14-
19daglegatil31.des.
Nýhöfn, Kátterumjólin, koma
þau senn! Jólasýning á verkum
ísl. listamanna, 10-18 virka daga,
opnunartími versl. laugard. 14-
18sunnud.til24. des.
Safn Ásgríms Jónssonar,
Bergstaðastræti 74, þjóðsagna-
og ævintýramyndir Ásgríms til fe-
brúarloka, sunnu-, þriðju-,
fimmtu- og laugard. 13:10-16.
SparisjóðurReykjavikurog
nágrennis, Álfabakka 14,
Breiðholti, damaskmyndvefnað-
ur Sigríðar Jóhannsdóttur og
Leifs Breiðfjörð til 27. jan. mánu-
tilfimmtud. 9:15-16, föstud. 9:15-
Tunglið, Sissú (Sigþrúður Páls-
dóttir) sýnir myndlist frá þessu ári
fram yfir hátíðar.
TONLIST
Heiti potturinn Duus-húsi,
sunnud. 21:30, Ellen Kristjáns og
MM kvartettinn.
Kammersveit Reykjavíkur,
barokktónleikar í Áskirkju á sunn-
ud. kl. 17. Verk eftir Lully, Rame-
au, Marais, Campraog Leclair,
einsöngvari Sigrún
Hjálmtýsdóttir, leiðari Ann Wall-
ström.
Kór Langholtskirkju og barna-
•kórÁrbæjarskólaflytjajólasöng-
va í Langholtskirkju kl. 231 kvöld.
Stjórnandi Jón Stefánsson, mið-
ar við innganginn, ókeypis fyrir
börn.
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. desember 1988