Þjóðviljinn - 16.12.1988, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 16.12.1988, Qupperneq 9
FOSTUDAGSFRETTIR Alþingi Fyrstu sigrar stjómarinnar Fyrstufjáröflunarfrumvörpin samþykkt í neðri deild. Verðstöðvun úti ef breytingartillögur stjórnarandstöðuflokkanna verða samþykktar. Fulltrúar verkalýðshreyfingar á fundforsœtisráðherra í dag j^j eðri deild Alþingis samþykkti fyrstu fjáröflunarfrumvörp ríkisstjórnarinnar í gær. Frum- varp um tvöföldun skatts á verslunar- og skrifstofuhúsnæði var samþykkt með 21 atkvæði gegn 11 og frumvarp um inn- heimtugjald á erlend lán var sam- þykkt með 20 atkvæðum gegn 11. Bráðabirgðalögin voru afgreidd frá efri deild á miðvikudag með hjásetu Sjálfstæðis- og Borgara- flokks og koma þau fyrir neðri deild á laugardag. Þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn ákveðið að styðja breytingartillögur Kvennalista og Borgaraflokks á bráðabirgðalögunum, en ef þær yrðu allar samþykktar yrði verðstöðvun úti, þar sem búvöru- verð myndi hækka, sömuleiðis þjónusta sérfræðinga, og samn- ingar um fiskverð yrðu lausir. Ríkisstjórnin virðist ætla að halda þeirri stefnu að láta reyna á styrk sinn í neðri deild, og stilla málum þannig upp að annað- hvort hleypi stjórnarandstaðan fjáröflunarfrumvörpunum í gegn, eða boðað verði til kosn- inga. Breytingartillögur stjórnar- andstöðuflokkanna við bráða- birgðalögin verða sennilega allar felldar á jöfnum atkvæðum í neðri deild og þá verða greidd atkvæði um frumvörpin tvö í heild, sem bráðabirgðalögin byggja á. Kvennalistinn mun þá að öllum líkindum greiða atkvæði gegn frumvarpinu, aðallega vegna andstöðu hans við að fjár- magn skuli tekið frá Atvinnu- leysistryggingasjóði yfir til At- vinnutryggingasjóðs. En ef ríkis- stjórnin ákveður að þetta fé verði tekið að láni, í stað þess að fram- lag til Atvinnuleysistrygginga- sjóðs verði skert, gæti afstaða Kvennalistans mildast. Við endanlega afgreiðslu bráðabirgðalaganna er þó lík- legast að einhverjir þingmenn stjórnarandstöðunnar sitji hjá eða „skreppi til Stykkishólms," eins og það er kallað í þinginu þegar þingmenn „eru fyrir tilvilj- un“ fjarstaddir atkvæðagreiðslu. Stjórnarandstöðuflokkarnir eru varla spenntir fyrir kosningum nú, vegna þess að það yrði ekki líklegt til vinsælda ef þeir felldu stjórnina. Borgaraflokkurinn myndi að öllum líkindum hverfa í kosningum og segja má að Sjálf- stæðisflokkurinn sé eitt logandi sár eftir síðustu ríkisstjórn. Kvennalistinn treystir sér varla til að fella félagshyggjustjórn, til þess er hún ekki nógu óvinsæl. Ögmundur Jónasson formaður BSRB átti fund með Steingrími Hermannssyni í gær. Hann var já- kvæður að fundi loknum og sagði ákvörðun stjórnarinnar um að fella út úr bráðabirgðalögunum ákvæði um bann við verkföllum og verkbönnum sýna að stjórnin gerði sér grein fyrir að ekki gengi að hafa verkalýðshreyfinguna í böndum. Forystumenn verka- lýðshreyfingarinnar munu eiga fund með forsætisráðherra fyrir hádegi í dag, þar sem samskipti ríkisstjórnar og verkalýðshreyf- ingar verða rædd. Allt útlit er fyrir að það takist að afgreiða öll fjáröflunarfrum- vörp og fjárlagafrumvarp stjórn- arinnar fyrir áramót. En þing- menn munu að öllum líkindum þurfa að funda á milli jóla og ný- árs. Fjárlagafrumvarpið kemur til annarrar umræðu í sameinuðu þingi í dag, en útgjaldahlið þess hefur hækkað mjög lítið í með- förum fjárveitinganefndar, eða um 550 miljónir, sem er um 0,5% hækkun. Ekki er óalgengt að út- gjaldahliðin hækki um 3% í með- förum þingsins. Frestun gildistöku virðisauka- skatts hefur þegar verið afgreidd sem lög frá Alþingi. Frumvörpin um skatt á verslunar- og skrif- stofuhúsnæði og lántökugjald á erlend lán eru komin til efri deildar. Fyrstu umræðu um vöru- gjald er lokið í neðri deild, sömu- leiðis fyrstu umræðu um tekju- og eignaskattsfrumvarpið og frum- varp um skattskyldu innláns- stofnana. Fátt virðist því geta komið í veg fyrir afgreiðslu þess- ara mála fyrir áramót annað en málþóf einstakra flokka stjórnar- andstöðunnar. -hmp Kvennalistinn studdi fyrstu tvö tekjuöflunarfrumvörp ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær en Sjálfstæðisflokkur- inn greiddi atkvæði gegn þeim. Mynd Jim Smart. Húsnœðismál Husbréfaviöskipti lögð til Nefnd semfélagsmálaráðherra skipaði um húsnæðismál klofnaði. Lagt til að hætt verið að niðurgreiða vexti. Fulltrúi Framsóknarflokksins ogASI á móti. Ráðherranefnd skipuð ímálið er ráð fyrir að þegar seljandi hef- ur fengið skuldabréf hjá kaupanda geti seljandi skipt á því skuldabréfi og húsbréfi sem byggingarsjóður ríkisins og Húsbréf sem Byggingarsjóður ríkisins ábyrgist eru veiga- mesta breytingin sem nefnd er unnið hcfur að endurskoðun húsnæðislánakerfisins leggur til að gerð verði á húsnæðiskerfinu. Einnig leggur nefndin til að nið- urgreiðslu vaxta verði hætt. Hugmyndin með svokölluðum húsbréfum er að seljendur fast- eigna láni kaupendum meira og til lengri tíma en nú tíðkast. Gert Vörugjald Atvinnu iðn- verkafólks ógnað Fjölmennur baráttufundur iðnverkafólks skorar á alþingismenn aðfellafrumvarp fjármálaráðherra um hœkkun vörugjalds á sælgæti, kex og gosdrykki Seðlabankinn ábyrgjast. Meirihluti nefndarinnar leggur einnig til að niðurgreiðslu á vöxt- um húsnæðislána verði hætt en þess í stað verði teknar upp vax- tabætur sem eiga að koma þeim fyrst og fremst til góða sem minnstar hafa tekjurnar. Minnihluti nefndarinnar, full- trúar Framsóknarflokksins og Alþýðusambandsins, skilaði séráliti. Þeir leggja til að áfcam verði notast við núverandi kerfi en það endurbætt að hluta, einnig krefjast þeir þess að ríkissjóður auki framlag sitt til kerfisins. Að sögn Jóhönnu Sigurðar- dóttur félagsmálaráðherra kynnti hún álit nefndarinnar á ríkis- stjórnarfundi í gær, en þar var ákveðið að skipa nefnd þriggja ráðherra til að ná samstöðu um þær breytingar sem gera þarf á kerfinu. Hún vonaðist til að hægt yrði að leggja fram fruntvarp um nýtt húsnæðislánakerfi þegar þing kemur saman eftir jólaleyfi þingmanna. -sg Afjölmennum fundi iðnrek- enda í sælgætisiðnaði og iðn- verkafólks í Bíóborginni í gær var samþykkt einróma áskorun til al- þingismanna um að fella frum- varp fjármálaráðherra um hækk- un vörugjalds á sælgætis-, kex- og gosdrykkjaframleiðslu úr 14% í 25%. Að öðrum kosti sé atvinnu- öryggi 700-800 manns í hættu. A skömmum tíma hefur mjög skipt til hins verra í atvinnumál- um iðnverkafólks frá því sem áðurvar. Aðsögn GuðmundarÞ. Jónssonar, formanns Iðju félags verksmiðjufólks og Landssamb- ands iðnverkamanna, var atvinnuleysi meðal iðnverkafólks fátítt fyrir fáum misserum. í dag hallar undan fæti og nú eru tugir manna á atvinnuleysisskrá og út- litið dökkt. Þá er svipaður fjöldi á uppsagnarfresti. I áskorun fundarins er frum- varpi fjármálaráðherra um 11% hækkun vörugjalds harðlega mótmælt og því haldið fram að það sé sett fram án nokkurs rök- stuðnings nema ef vera skyldi vegna hollustu- og manneldis- sjónarmiða. Fundurinn vísar þeim sjónarmiðum á bug og lýsir furðu sinni á slíkri skinhelgi. Of- angreindar iðngreinar noti að- eins um 25 - 30% af innfluttum sykri. Kristinn Björnsson, fram- kvæmdastjóri Nóa-Siríus hf., sagði á fundinum að ef vöru- gjaldshækkunin næði fram að ganga þýddi það 11 -12% hækk- un á framleiðsluvörum fyrirtækj- anna á sama tíma og innflutt sælg- æti væri mun ódýrara en hið inn- lenda vegna rangrar gengisskrán- ingar. Kristinn sagði að vöru- gjaldshækkunin mundi leiða til samdráttar og verri markaðs- stöðu fyrirtækjanna en áður, sem kæmi niður á starfsemi þeirra og þá um leið á atvinnuöryggi starfs- fólksins. „Það er skrítin hagfræði að hækka skatta á sama tíma og j afn- illa árar fyrir innlendum iðnaði sem nú þegar efnahagsástandið er ekki upp á marga fiska,“ sagði Kristinn Björnsson. -grh Föstudagur 16. desember 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 9 Lóðaúthlutun Til úthlutunar eru 34 lóöir fyrir einbýlishús viö Austurfold og Vesturfold og 14 lóðir fyrir raöhús við Fannafold á svæöi, sem nefnt er Fagra- brekka, noröan Foldahverfis í Grafarvogi. Gert er ráö fyrir aö lóðirnar veröi byggingarhæfar sumar- iö 1989. Nánari upplýsingar verða ýéittar á skrifstofu borgarverkfræöings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 18000. Þar fást einnig afhent umsóknareyöublöö og skipulagsskilmálar. Tekiö verður viö lóöarumsóknum frá og meö 19. desember 1988 á skrifstofu borgarverkfræöings. Athygli er vakin á því, að endurnýja þarf eldri lóöarumsóknar. Borgarstjórinn í Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.