Þjóðviljinn - 16.12.1988, Síða 27
t*
I
KYNLIF
M.
Í jJé
\
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓHIR
Kynreynsla karla
og goðsagnimar tíu
Ég hef áður minnst á bók Bern-
ie Zilbergeld um kynreynslu
karla; „Male Sexuality" og m.a.
fengið að láni þar hugmyndina
um fantasíumódel karla til kyn-
lífs. Margt fleira áhugavert er í
þessari bók og reyndar finnst mér
að íslenskir karlmenn ættu að
gera kröfu um að fá þýddar
bækur eins og þessa sem fjalla um
kynreynslu karlkynsins. Þekk-
ingargrunnur íslenskra karl-
manna á sér sem kynverum er
frekar bágborinn og endurspeg-
last í trúnni á vissar bábiljur sem
enn grassera meðal þeirra. Zil-
bergeld gerir í bók sinni grein
fyrir nokkrum þessara goðsagna
og langar mig að kynna þær fyrir
lesendum Nýja helgarblaðsins.
Goðsögn er einfaldlega eitthvað
sem á sér ekki stoð í raunveru-
leikanum.
Að standa sig...
Fyrsta goðsögn: „Karlmenn
ættu ekki að hafa eða að minnsta
kosti ekki að tjá vissar tilfinning-
ar.“ Sumar tilfinningar eins og
reiði og gleði eru viðurkenndar
en viðkvæmni og blíða eða sorg
eru á einskonar bannlista. Þes-
svegna læra ungir menn að sitja
frekar á þeim tilfinningum sem
eru „óæskilegar"' vegna hræðslu
við að vera álitnir minni karl-
menn. Þessi félagsmótun styrkir
ekki þessa tilfinningaþætti sem
eru afar mikilvægir í þróun ná-
inna sambanda. Kærustur og
kærastar slíkra karla kvarta
undan „frosnum tilfinningum" og
halda oft ranglega að þeir séu
bara svona þrjóskir. Einnig er
viss hætta á því ef karlmenn trúa
mikið á þessa goðsögn, að þeir
læri að túlka margar jákvæðar til-
finningar sem kynferðislegar þótt
þær séu það ekki. Ástúðleg snert-
ing, hlýja og faðmlag þarf ekki
alltaf að vera merki um að mak-
inn vilji stökkva uppí rúm.
Önnur goðsögn: „í kyn-
mökum, líkt og á öðrum sviðum,
er það frammistaða mín sem
skiptir mestu máli.“ Lífið snýst
um vinnu og aftur vinnu og lík'a í
samlífinu. Þetta gerir það að
verkum að margir karlmenn eiga
afar erfitt með að slappa af og
bara láta hlutina gerast af sjálfu
sér, samlífið verður fljótt rútíner-
að og eitthvað sem á bara að
„hespa af.“
Berrassaður
maki
Þriðja goðsögn: „Karlmaður-
inn verður að taka fruntkvæðið
og stýra kynmökunum. “ Að sam-
lífið heppnist vel er á ábyrgð karl-
mannsins og ef makinn tekur
frumkvæðið er hætta á að það
særi hans karlmannlega stolt. Af-
leiðing þessarar goðsagnar er
einnig sú að karlmaðurinn er oft
svo upptekinn við að örva maka
sinn að hann fær ekki nægilega
örvun sjálfur. Því að sjálfsögðu
þarf karlinn ekkert sérstakt til að
örvast; berrassaður makinn á að
nægja. Margir karlmenn halda
líka að þeir viti (eða eigi að vita)
allt sem hægt er að vita um samlíf,
og þá sérstaklega hvernig eigi að
fullnægj a konu. Þeir ráðast á mis-
munandi góðar bækur, spyrja
vini og kunningja á fylliríum en
forðast eins og heitan eldinn að
spyrja konuna sjálfa - hvernig
færðu fullnægingu?
Fjórða goðsögn: „Karlmann á
alltaf að langa í kynmök og vera
til í tuskið.“ Það er ótrúlega erfitt
fyrir suma karla að segja þetta
einfalda orð „Nei“ ef þá langar
ekki í kynmök, því líkt og vél þar
sem ýtt er á takka eru þeir alltaf
reiðu búnir. í fantasíumódelinu
er hann nefnilega alltaf í stuði til
að gera það hvenær sem er, hvar
sem er og með hverjum sem er.
Spurningin er ekki hvort hann
langi heldur hvort hann sé sannur
karlmaður. Ef hugtakið „sjálfs-
nauðgun“ er til á það hvergi betur
við en hér.
Plássins vegna læt ég nægja að
kynna núna fyrstu fjórar goð-
sagnirnar og lýk umfjöllun þeirra
í næstu viku. Um algerlega óp-
lægðan akur er að ræða þegar
kynreynsla karla er annars vegar
og væri fróðlegt að sjá viðbrögð
lesenda við þessum goðsögnum.
Hafa íslenskir karlmenn alist upp
við þessar kynferðislegu upps-
kriftir eða er til einhver séríslensk
kynreynsla karla?
Óheppni Margeirs í Belgrad
Það munaði ótrúlega litlu að
Margeiri Péturssyni tækist að
komast áfram á úrtökumót fyrir
næsta hring heimsbikarmótanna í
skák. Hannvarð aðlátasérnægja
níunda sætið en átta efstu menn
komust áfram. Það sem gerir
dæmið enn sorglegra er að tveir
þessara manna hlutu jafnmarga
vinninga og Margeir eða 6V2 og
hlaut Helgi Ólafsson reyndar
sömu vinningstölu en lenti í 15.
sæti. Jón L. Árnason var einnig
meðal keppenda en náði sér ekki
á strik og fékk AV2 vinning eða
50%.
Efstu átta urðu þessir: Gúre-
vitsj, Psahkis, Pigusov, Poluga-
jevskij, Naumkin og Hulak 7
vinninga hver, Timosjenko og
Barejev 6V2 vinning hvor. At-
hygli vekur að í hópi þessara
manna er aðeins einn sem ekki er
Sovétmaður þ.e. Hulak sem er
Júgóslavi.
Eins og áður sagði var móti lið-
ur í heimsbikarkeppni stór-
meistarasambandsins og reyndist
vera sterkasta opna mót sögunn-
ar. AIls voru þátttakendur 258
þar af 100 stórmeistarar, 72 al-
þjóðlegir meistarar og 33 Fide
meistarar en þátttökurétt höfðu
skákmenn með 2.350 elo stig eða
meira. Verðlaun á mótinu voru
heldur ekki skorin við nögl,
heildarverðlaun 100 þúsund
bandaríkjadalir og fékk sigurveg-
arinn 20 þúsund dali í sínar hend-
ur.
Til þess að skýra betur hvernig
val í næsta hring stórmeistara-
sambandsins fer fram þá var
þetta mót það fyrsta af þremur
opnum mótum. Hin tvö síðari
fara fram í mars á næsta ári, það
fyrra í Lúgano og það síðara í
New York. Úr hvoru þessara
móta koma átta menn eins og í
Belgrad, síðan bætast við þeir 19
sem ekki komust beint áfram úr
hringnum 88/89. Loks eru 10
skákmenn fundnir til viðbótar og
fer val þeirra eftir stigafjölda.
Allur þessi hópur teflir síðan í
svokölluðu „World Cuþ Open“
um þau sæti sem laus verða í
næsta hring heimsbikarkeppni
stórmeistarasambandsins.
Við skulum skoða lauslega
skák með einum af sigurvegurum
mótsins, Psahkis, en hann hefur
verið einn af fremstu skák-
mönnum Sovétríkjanna um ára-
bil.
Hvítt: Psahkis
Svart: Skembris
Frönsk vörn.
1. e4-e6
2. d4-d5 3. Rd2
Psahkis er mikill fræðimaður,
eins og margir landar hans, og
leikur þessurn leik til jafns við 3.
Rc3 en eins og skákin þróast
skiptir það engu máli. Næsti
leikur svarts hefur það sér nefni-
lega til ágætis að honum má beita
gegn hvorum riddaraleiknum
sem er.
3. -dxe4 6. Bd3-Rd7
4. Rxe4-Bd7 7. c4-Bxe4
5. Rf3-Bc6 8. Bxe4-c6
Afbrigðið sem Grikkinn
Skembris valdi í þriðja leik er
nefnt í höfuðið á Rubinstein en
fáir meistarar hafa viljað leggja
því lið hin síðari ár. Þó eru þekkt-
ar nokkrar skákir með Botvinnik
og Petrosjan en það er í sjálfu sér
enginn mælikvarði á gæði þessa
afbrigðis. Varðandi biskupstil-
færsluna er það að segja að allir
þekkja ævintýrið um vonda bi-
skupinn í franskri vörn og oft er
það svo að stýrendur svarta liðs-
ins vilja ólmir losa sig við hann.
En vandinn er ekki búinn í stöðu-
nni því eins og sjá má hefur hvítur
fengið góðan tíma til að skipa
sínu liði.
9. 0-0-Rf6 10. Bc2!-Bd6
Ein skrýtin hugmynd er að
leika 10. -g6 og Bg7.
11. Hel-0-0 12. Dd3-Dc7
Staðan minnir óneitalega á
Caro-Kann. í næsta leik kom til
LÁRUS
ÓHANNESSON
greina að leika 13.b3 og Bb2 þó
leikur Psahkis sé eðlilegri og lúti
hinu sígilda lögmáli.
13. Bg5-Bf4?!
Það kemur í ljós á eftir að þessi
leikur er nokkuð vanhugsaður og
svarti biskupinn á eftir að lenda í
þrengingum.
14. Bh4-Hfe8
15. Hadl-Hac8 16. Dc3!-a6?!
Hægfara leikur sem gerir ekk-
ert við stöðulegu hótun hvíts.
Skárra var 16. -b5 og t.d. 17. b3-
bxc4 18. bxc4-c5 19. d5-exd5 20.
Hxe8-Hxe8 21. cxd5-Re4 og
svartur er á lífi.
17. Re5!-Rxe5
17. -Bxe5 tapar strax.
18. dxe5-Rd7 19. Dd4!-g5
Þvingaður leikur.
Biskupinn er ekki laus við
vandræði, næstu leikir eru þving-
aðir.
21. -Bg5 24. exf6-Dxf4
22. Dg4-h6 25. Dxf4-Bxf4
23. f4-f5 26. Hd7!
Hvíta staðan er nú léttunnin.
26. -Hf8
27. Hg7+-Kh8
28. Hxe6-Hc7
29. Hge7-Kg8
30. c5-Hfc8
31. Bh7+-Kh8
32. Bg6-Hf8
33. He8-Hcc8
34. Hxc8
Síðari skákin sem ég sýni í dag
er tefld í Ungverjalandi árið 1987
milli Perenyi og Portisch. Ástæð-
an er sú að Perenyi þessi hlaut nú
fyrir nokkru sviplegan dauðdaga
á leið sinni til Saloniki þar sem
hann ætlaði að tefla í opna mót-
inu sem fram fór samfara ólympí-
umótinu. Bela, eins og hann hét
að fornafni, kom hingað til lands
einu sinni og tók þátt í opna
Austfjarðamótinu þar sem leiðir
okkar mættust fyrst. Það var ein-
mitt þar sem íiann sýndi mér
þessa skák sem hann hafði nýver-
ið teflt í ungversku deildarkeppn-
inni.
Þó að Bela hafi ekki talist í hópi
allra fremstu skákmanna heims
var hann þó alþjóðlegur meistari
og hafði 2.455 stig. Hann var
kannski fyrst og fremst þekktur
fyrir mikla kunnáttu í byrjunum
og margar af hugmyndúm hans
þykja góðar t.d. í Najdorf og
drekaafbrigðum Sikileyjarvarn-
ar. Margir íslenskir skákmenn
þekktu til Bela og hvað sem sagt
verður er eitt víst að skákin var
hans líf og yndi.
Stuðst verður við skýringar
hans.
Hvítt:Perenyi
Svart: Portisch
Frönsk vörn.
1. e4-e6 4. e5-b6
2. d4-d5 5. Dg4-Bf8
3. Rc3-Bb4 6. Rh3
Afbrigði það sem Portisch hef-
ir valið kann að koma sumum
einkennilega fyrir sjónir en þá get
ég fullvissað um að það er byggt á
góðurn stöðulegum grunni.
Síðari leikur hvíts er orðinn
„standard“ í frönsku vörninni og
er riddarinn á leið til f4 og h5 eftir
atvikum. Engu að síður koma
aðrir leikir til greina og er 6. Bg5
algengastur af þeim.
6. -Re7 11. Be2-Dc8
7. Bg5-Rbc6 12. Rf4-Db7
8. Bb5-Bd7 13. DO-O-O-O
9. 0-0-0 14. Rh5-Be8
9- -h6 15. g4-Kb8
10. Be3-a6 16. Dg2-Hc8
Báðir hafa skipað liði sínu á
þann veg sem ætlað var og ljóst er
að hvítur mun reyna fyrir sér með
framrás f-peðsins en svartur með
því að brjóta upp miðborðið með
c5.
17. Dfl
Athyglisvert var að leika 17. f4
strax, t.d. 17. -Ra5 18. Hhfl og
hvítur hefur þægilegri stöðu.
17. -Ka7 19. Hgl-Ra5
18. f4-Bd7 20. Hg3
Á þriðju línunni er hrókurinn
mjög virkur og getur hæglega
sveiflað sér í allar áttir. Karpov á
slíkar uppfærslur til auk þess sem
hugmyndin á fylgi að fagna í ýms-
um afbrigðum Sikileyjarvarnar.
20. -c5!
21. dxc5-bxc5 22. Bgl-Rg6
1 afbrigðinu 22. -Rec623. Ra4-
d4 24. Ha3! sést hvað átt var við
með síðustu athugasemd.
23. Re4!-Hb8!
En ekki 23. -dxe4 24. Ha3-Dc7
25. Hxd7!-Dxd7 26. Hxa5 og
hvítur næði mikilli sókn.
24. Rxc5!-Dxb2 25. Kd2-d4!
± 1
é’ ± kk
k A
% ^ A ^
k AA
2
A
26. Ilbl!
26. Rxd7-Bd4+ 27. Kd3-Bc3!!
28. Hbl!-Dxa2! 29. Bxd4-Bxd4
30. Hxb8-Hxb8 31. Rxb8-Dc4+
32. Kd2-Db4+ 33. c3-Db2+ 34.
Kd3-Bxc3 35. Df2-Kxb8 dugar
aðeins til jafnteflis!
26. -Bxc5?!
Hér var nauðsynlegt að leika
26. -Dxbl 27. Dxbl-Hxbl 28.
Rxd7-Bd4+ 29. Kd3-Hxgl! 30.
Hxgl-Hd8 31. f5!-Rh4 32. fxe6-
fxe6 33. Rb6!!-Kxb6 34. Hbl-
Rc6 35. a3-a5 36. Rxg7!-Hd5 37.
axb4 og hvítur stendur aðeins
betur.
27. Hxb2-Hxb2 29. Kcl-H2b4
28. Dal!-Hhb8 30. Hc3!-Bb6
Ef 30. -Hbl+ 31. Dxbl-
Hxbl+ 32. Kxb2-dxc3 33.
Bxc5+-Kb7 34. Be3! óg hótar
Rxg7
31. Hb3!-Rxb3+
32. axb3-a5 34. Bxd4-Rc6
33. Bc4-Re7 35. Bxb6+-H8xb6?
Nauðsynlegt var að taka með
hinum hróknum.
36. c3-Hxb3 38. Kc2
37. Bxb3-Hxb3
og Portisch gafst upp.
Föstudagur 16. desember 1988 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27