Þjóðviljinn - 21.12.1988, Síða 5
Minnismerki um
Jón Arason
Næsti áfangi tengdur kirkjunni
var svo sá, að árið 1938 fól hér-
aðsfundur Skagafjarðarprófasts-
dæmis sérstakri nefnd að gangast
fyrir því að Jóni biskupi Arasyni
yrði reistur sérstakur minnisvarði
á Hólum. Reistur var 27 m hár
turn undan norðausturhorni
kirkjunnar og var hann afhjúpað-
ur við fjölmenna athöfn og hátíð-
lega sumarið 1950. Áhyggjur
sóttu á ýmsa dagana áður en af-
hjúpunin skyldi fara fram. Lát-
lausar rigningar og kalsaveður
höfðu gengið dögum saman og
þótti ekki gott í efni fyrir fólk að
dvelja lengi hreyfingarlaust utan
dyra. Vígsludagurinn rann upp,
þungbúinn að vísu og nokkur
norðankaldi. Smámsaman létti
þó til og um hádegið var komið
stillilogn og glampandi sólskin.
Hélst svo daginn allan. Trúðu
margir því, að þarna hefði Jón
biskup Arason sjálfur skorist í
leikinn með þeim skörungsskap,
sem honum var eiginlegur.
Endurgerð
Árið 1953 kaus héraðsfundur
Skagafjarðarprófastsdæmis nýja
Hólanefnd. Skyldi hún vinna að
endurbótum á kirkjunni og um-
hverfi hennar. Pað dróst hinsveg-
ar til ársins 1983 að nefndinni var
markaður tekjustofn á fjárlögum
og komst þá fyrst verulegur
skriður á verkið. í samráði við
þjóðminjavörð fékk nefndin sér-
fræðinga, arkitekt og verkf-
ræðing, til þess að gera athugun á
kirkjunni, en fram að því hafði
það verið lagfært, sem augljós-
lega var að fara úr lagi. Athugun-
in leiddi í ljós, að gagngerra
endurbóta var þörf, því kirkjan
sjálf og munir hennar lágu undir
allverulegum skemmdum. Leitað
var liðsinnis stjórnvalda, ríkis-
stjórnar og þingflokka. Þáver-
andi kirkjumálaráðherra fól
prófasti, sem jafnframt er for-
maður Hólanefndar, að gera til-
lögur um tilhögun endurbóta.
Jafnframt sótti nefndin um fjár-
magn til byrjunarframkvæmda.
Þann 24. mars 1987 skipaði svo
þáverandi kirkjumálaráðherra,
Jón Helgason, Hólanefnd, sam-
kvæmt tillögu prófasts. Nefndina
skipa: sr. Sigurður Guðmunds-
son vígslubiskup, formaður,
Hjálmar Jónsson, prófastur á
Sauðárkróki, Jón Bjarnason,
skólastjóri á Hólum og Jón Frið-
björnsson, formaður sóknar-
nefndar Hólasóknar. Trausti
Pálsson, Hólum, tók sæti í nefn-
dinni í ársbyrjun 1988 í stað Jóns
Friðbjörnssonar. Skyldi nefndin
vinna í umboði kirkjumálaráð-
herra og í samráði við biskup og
þjóðminjavörð að „endurbótum
og fegrun dómkirkjunnar og nán-
asta umhverfis hennar." Hóla-
nefnd réði hönnuði, þá sem unn-
ið höfðu frumdrög að endurbót-
unum, þá Þorstein Gunnarsson
arkitekt og Ríkharð Kristjánsson
verkfræðing.
Ákveðið var að um yrði að
ræða endurgerð en ekki viðgerð á
kirkjunni. Framkvæmdastjóri
verksins var ráðinn Guðmundur
Guðmundsson, Sauðárkróki.
Áformað var að endurgerð kirkj-
unnar yrði lokið á yfirstandandi
ári, en hún hófst 4. jan. sl. Ytri
endurgerð og fegrun umhverfis
skyldi hinsvegar lokið á næsta ári.
Kostnaður við framkvæmdirnar í
ár er um 38 milj. kr. En áætlaður
kostnaður á næsta ári er 21 milj.
kr. og er þar innifalið kaup á nýju
orgeli og fullnaðarviðgerð Hóla-
bríkurinnar.
Hvað var gert?
En hvað hefur svo verið gert?
Ekki verður það tíundað hér í
smáatriðum. En í stuttu máli má
segja að ekki hafi aðeins það ver-
ið lagfært sem úr sér hafði gengið,
heldur allt fært til fyrri gerðar,
svo sem gólf og gluggar. Leitað
var eftir föngum allra heimilda
Meðal kirkjugesta má m.a. greina
hér Gísla Pálsson, bónda á Hofi í
Vatnsdal, Sigurjón Jónasson,
bónda á Syðraskörðugili, Sigríði
Ámadóttur og Jón Jóhannsson,
Sauðárkróki og alþingismennina
Pál Pétursson og Jón Sæmund
Sigurjónsson.
Herra Pétur Sigurgeirsson flytur
pródikun.
Norðlendinga fyrr og síðar og ís-
lenska kristni og kirkju. Kir-
kjunni ættum við það m.a. að
þakka að við værum nú sjálfstæð
þjóð. Bar biskup fram þá ósk, að
kirkjan yrði hér eftir sem hingað
til það ljós sem lýsti mönnum til æ
meiri þroska og fullkomnunar.
Fyrir altari þjónuðu sr. Sigurð-
ur Guðmundsson, vígslubiskup,
á Hólurn, sr. Hjálmar Jónsson,
prófastur, sr. Sigurpáll Óskars-
son og sr. Dalla Þórðardóttir.
Kirkjukór Hóla- og Viðvíkur-
sókna annaðist söng undir stjórn
Hauks Guðlaugssonar söngmála-
stjóra en organisti var
Rögnvaldur Valbergsson. Brynj-
ar Skúlason lék á trompet en
meðhjálpari var Valgeir Bjarna-
son.
Við messuna skírði sr. Sigurð-
ur vígslubiskup þrjú börn. Von-
andi eiga þau oft eftir að sækja
Hóla heim.
Að messu lokinni hófst sam-
koma í kirkjunni, þar sem eftir-
taldir menn fluttu ávörp: sr. Sig-
urður Guðmundsson vígslubisk-
up, sem greindi frá byggingar-
sögu kirkjunnar og þeim
breytingum sem á henni hefðu
verið gerðar. Halldór Ásgríms-
son kirkjumálaráðherra greindi
frá aðild ríkisins að verkinu og
sagði að séð yrði til þess að því
yrði að fullu lokið á næsta ári. Þór
Magnússon þjóðminjavörður
lýsti ánægju sinni með hvernig að
verki hefði verið staðið. Ætti það
að vera okkur öllum til sálubóta,
enda hefði kirkjan frá fyrstu tíð
varðveitt helgi og minningu
Hóla. Síðan flutti Þorsteinn
Gunnarsson arkitekt erindi.
Kirkjan er sjálfstætt listaverk,
einstætt í sinni röð, sagði hann.
Hún er næst elsta steinhús á ís-
um frumgerð kirkjunnar. Til
dæmis var rauði sandsteinninn úr
Hólabyrðu notaður til viðgerðar
á veggjum og gólfi, og múrverk
með sama hætti og í upphafi.
Bitar, burðarvirki og tréverk hef-
ur verið lagfært og endurnýjað,
komið upp nýju loftræstikerfi,
grunnur þurrkaður.
Flestir hinna ómetanlegu dýr-
gripa kirkjunnar eru nú komnir á
sinn stað: Kristslíkneskið sem tal-
ið er vera frá 16. öld. Minningar-
krossinn um Einar Þorsteinsson
biskup (1692-1696) og Ingibjörgu
Gísladóttur, konu hans. Skírn-
arfonturinn sem höggvinn var í
stein af Guðmundi Guðmunds-
syni frá Bjarnastaðarhlíð árið
1674. Hald manna er að steinninn
hafi borist hingað frá Grænlandi
með hafís. í kórnum er frum-
myndin af Guðbrandi biskupi
Þorlákssyni. Legsteinar í kórgólfi
hafa verið hreinsaðir. Alabastur-
bríkin, sem Jón biskup Arason
færði kirkjunni og flutt var á
Þjóðminjasafnið 1886, er nú aft-
ur komin „heim að Hólum“, og
er nú unnið að viðgerð á henni.
Margir að verki
hafa og biskup íslands og Kirkju-
ráð, þjóðminjavörður, Búnaðar-
bankinn á Sauðárkróki, Fram-
kvæmdasjóður íslands, Bænda-
skólinn á Hólum og starfsfólk
hans veitt þessum framkvæmdum
ómetanlegan stuðning.
Hátíðarmessa
Oft hefur mikið fjölmenni sótt
Hóla heim á liðnum öldum. Og
ekki vantaði að svo væri þann 4.
des. sl. þegar hátíðarmessa fór
fram í Hóladómkirkju í tilefni af
því að kirkjan var nú á ný tekin í
notkun eftir endurgerðina. Hátt
á fimmta hundrað manns var á
staðnum þennan skammdegis-
dag. En það ríkti svo sannarlega
ekkert skammdegi í hugum há-
tíðargesta.
Biskup íslands, hr. Pétur Sig-
urgeirsson, flutti prédikun og
lýsti blessun í messulok. Ræddi
hann m.a. um gildi Hóla fyrir
landi og elsta steinkirkjan. Við
endurbæturnar hefði verið reynt
að halda hinni upprunalegu gerð í
öllum meginatriðum. Lokaorð
flutti svo sr. Hjálmar Jónsson
prófastur. Að athöfn lokinni var
öllum viðstöddum boðið til kaffi-
drykkju.
Hóladómkirkja hefur nú, góðu
heilli, gengið íendurnýjun lífdag-
anna. Hún mun enn um aldir
kalla marga „heim að Hólum“.
Magnús H. Gíslason
Blóðbankinn
sendir öllum blóðgjöfum
og velunnurum sínum
bestu jóla- og nýjársóskir
með þakklæti fyrir hjálpina
á undanförnum árum. BLÓÐBANKI
Hér hafa margir lagt hönd að
verki, bæði með beinum hætti og
óbeinum. Má þar nefna kirkju-
málaráðherrana Jón Helgason,
Jón Sigurðsson og Halldór Ás^-
grímsson. Hönnuðina Þorstein
Gunnarsson arkitekt, Ríkharð
Pálsson verkfræðing, Egil Skúla
Ingibergsson, Eyjólf Jóhannsson
rafhönnun og Kristján Flygenr-
ing, hita- og loftræstikerfi. Yfirs-
miður var Björn Björnsson,
Sauðárkróki, um tréverk sá
Trésmiðjan Borg, Sauðárkróki,
múrverk Hans Danry, Dan-
mörku, múrverk og steinlögn
Baldur Haraldsson, Sauðár-
króki, málningu Sigurður
Snorrason, Stóru-Gröf, Kristján
Hansen og Jón Svavarsson
Sauðárkróki, raflögn Rafsjá hf.,
Sauðárkróki, hita- og loftræsti-
lagnir Blikksmiðjan Höfði
Reykjavík, pípulagnir Hörður
Ólafsson, Sauðárkróki, aðstoð
við grjótnám úr Hólabyrðu
Landhelgisgæslan og Björgunar-
sveit Skagafjarðar, lagfæring
muna Morkinskinna, fornleifa-
gröftur, lagfæring legsteina o.fl.
starfsfólk Þjóðminjasafnsins. Þá
Félag
járniðnaðarmannd^
sendir félögum sínum
og öðrum velunnurum féhgsins
bestu óskir um
gleðilegjól
og farsælt komandi ár.
Stjórn Féhgs jkniðmðarmmm
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5