Þjóðviljinn - 10.03.1989, Side 4

Þjóðviljinn - 10.03.1989, Side 4
Atlantshaf sbandalagið hef ur enn ekki samþykkt að greiða kostnað vegna vara- flugvallarins úr sameiginlegum Mannvirkjasjóði NATO. Hernaðarleg rétt- læting Bandaríkjamanna á varaflugvelli gagnvart Mannvirkjasjóði N ATÓ er að Kef lavíkurf lugvöllur fullnægi ekki lengur kröfum um hernaðarlegt öryggi, „aðallega hvað varðar rekstur orrustuf lugsveitarinn- ar.“ Jóni Baldvini er f ullkunnugt um það mál. 11 miljarða kostnaðartalan er hrein ágiskunartala sem hvergi hefur fengist staðfest. Verktakasamningar milli Banda- ríkjanna og íslands látnir gilda þótt það brjóti í bága við reglur Mannvirkjasjóðsins. Þorsteinn Ingólfsson Á BEININU Bandaríkjaher þarf varaflugvöll vegna þess að...“ Mikil umræða hefur spunnist að undanförnu um varaflugvöll sem reistur yrði fyrir fjárframlög úr Mannvirkjasjóði Nató og hvort slíkur völlur yrði skil- greindur sem hernaðarmannvirki og jafnframt hvort slíkar fram- kvæmdir brjóti ekki í bága við stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar. Varnarmálaskrifstofa ut- anríkisráðuneytisins er í raun sjálfstætt ráðuneyti þar sem yfir- maðurhennar, Þorsteinn Ingólfs- son skrifstofustjóri, heyrir beint undir utanríkisráðherra sjálfan. Varnarmálaskrifstofan fer með samninga og almenn samskipti við bandarísk hernaðaryfirvöld. Þorsteinn er á beininu. Á upplýsingablaði sem utan- ríkisráðuneytið gaf út vegna blaðamannafundar Jóns Bald- vins Hannibalssonar utanríkis- ráðherra fyrir nokkru, er tekið fram að Mannvirkjasjóður Atl- antshafsbandalagsins muni kosta margumrædda forkönnun? „Já, ef af framkvæmd könnun- arinnar verður ...“ Hefur Norður-Atlantshafsráð- ið eða varnaráætlunarnefnd Nató þá formlega samþykkt þessa framkvæmd? Er hún komin inn á Qárhagsáætlun Mannvirkja- sjóðsins? „Nei, hún hefur formlega að- eins útvegað fé til forkönnunar." Og þýðir það að hún hafi mælt með þessari framkvæmd? „Já, það liggur ljóst fyrir. Ég verð að segja alveg eins og er að ég er ekki svo inni í starfsháttum sjóðsins að ég geti fullyrt ná- kvæmlega á hvaða stigi þetta er í afgreiðslu, en það liggur fyrir að fé hefur verið eyrnamerkt og út- hlutað til framkvæmdar á for- könnun. Formlega hefur annað ekki verið ákveðið. Forkönnun er reyndar forsenda ákvörðun- ar.“ Liggur fyrir hvað þessi for- könnun felur nákvæmiega í sér? Þið hafið nefnt að kanna þurfi staðsetningu en nú er svo komið að menn tala fyrst og fremst um Aðaldal hér á landi og svo Meistaravík á Grænlandi. Eru einhverjir fleiri þættir í þessari könnun en staðsetning? „Ég held nú kannski að það sé of langt gengið að líta einungis á Aðaldal. Þetta eru kannski frek- ar niðurstöður þeirra manna sem eru að fjalla um þessi mál hér heima og það eru vissulega menn sem vit hafa á mörgum hlutum. Sjálfsagt er þar byggt á þessari innlendu könnun sem fór fram á vegum Flugmálastjórnar þar sem minnst er á Aðaldal sem æski- legan stað ef þessi brautarlengd á að vera á nýjum flugvelli. En mér vitanlega er ekki um að ræða neinar óskir um ákveðinn stað heldur, ef af þessari könnun yrði, þá yrðu þær uplýsingar sem fyrir liggja dregnar fram. En staðarval hér á landi hefur ekki farið fram svo mér sé kunnugt um.“ Sem sagt, sú nefnd sem starfaði á vegum samgönguráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins og skipuð var fjórum mönnum, hún var ekki í samstarfi við Nató eða bandarísk hernaðaryfirvöld eða hvað? „Hún var það á ákveðnu tíma- bili. Það fóru fram viðræður í árs- lok 1986 og ársbyrjun 1987. í framhaldi af því var ákveðið að þessi innlenda könnun - sem frumkönnun - færi fram og Flugmálastjórn var falið að standa fyrir henni. Síðan, eins og ég sé það, breyttist kannski svo- lítið hlutverk þessarar nefndar í meðförum Flugráðs, þannig að sú skýrsla var unnin og afhent samgönguráðuneytinu, eða drög að skýrslu eins og ég held að hún hafi heitið þegar hún kom fram.“ Nú hafa heyrst tölur frá Dan- mörku um kostnað við þessa forkönnun. Hafið þið tölur um það hvað áætlað er að hún muni kosta? „Nei, ég hef það ekki og ég held ég geti fullyrt að umfang slíkrar könnunar er auðvitað samningamál milli íslenskra stjórnvalda og Mannvirkjasjóðs- ins og hvernig slíkri könnun yrði hagað í smáatriðum.“ ,J£n er það ekki gróf bráða- birgðaáætlun þegar talað er um 11 miljarða íslenskra króna kostnað við byggingu varaflug- vallar? „Ég myndi frekar segja að það væri hæsta tala sem nefnd hefur verið, kannski þak á það sem ein- hverjir menn hafa ímyndað sér að þetta gæti kostað ef það yrði byggt einhvers staðar á Græn- landi eða á íslandi. Þetta er alger ágiskun." En nú eru ákveðnar reglur sem gilda um þessi mál. Er þetta sú upphæð sem talað er um að Mannvirkjasjóðurinn greiddi eða er þetta heildartalan yfir kostnað við þessa framkvæmd? „Þetta er óskilgreind tala og hún hefur ekki verið krufin niður og hvergi komið formlega fram, né hef ég fengið hana staðfesta nokkurs staðar." Engin sundurliðun hvað kæmi í hlut Bandaríkjanna annars veg- ar sem viðtökuríkis og hins vegar sem notkunarríkis, er ekki vitað um þá kostnaðarliði? „Nei, um þá gilda væntanlega almennar reglur sjóðsins." í mikilli skýrslu sem breska varnarmálaráðuneytið hefur gef- ið út og heitir Infrastructure Gui- de for Defence Equipment Cont- ractors segir að eingöngu við- tökuríki eða aðildarríki Mann- virkjasjóðsins megi taka þátt í samkeppni um tilboð. Nú er fs- land ekki aðili að Mannvirkja- sjóðnum og Bandaríkin fara formlega með umboð viðtökurík- is í þessu máli. Hvaða samningar gera það að verkum að íslensk fyrirtæki koma þarna til greina; við skulum segja Aðalverktakar, sem samkvæmt ströngustu skil- greiningu ættu ekki að hafa þenn- an rétt? „Þetta eru almennar reglur sem þú ert að vitna í og gilda í reynd um allar framkvæmdir alls staðar í Natóríkjum. Hins vegar hefur verið sett frá upphafi það skilyrði af hálfu íslenskra stjórnvalda varðandi mann- virkjagerð hér á landi að hún skuli framkvæmast af innlendum aðilum að því marki sem unnt er.“ Kemur það þá inn í samninga íslands og Bandaríkjanna um verktakastarfsemi? „Nákvæmlega, já.“ En á þeim tíma var fyrst og fremst um að ræða kostnað Bandaríkjanna sjálfra af mann- virkjagerð? „Jú, en það gilda sömu al- mennu reglurnar í samskiptum okkar við Mannvirkjasjóðinn og við Bandaríkin að því er varðar byggingaframkvæmdir hér á landi, þannig að ég þekki ekki dæmi þess að erlendir aðilar hafi fengið að bjóða í byggingafram- kvæmdir á Islandi. Það hefur alltaf verið skilyrði af okkar hálfu.“ Þannig að þú gerir ráð fyrir því að sama gildi um þessa fram- kvæmd, þ.e. að aðrir viður- kenndir hernaðarverktakar frá öðrum Nató-ríkjum fái ekki að bjóða í þetta verkefni hér á landi? „Ég get ekki séð fyrir neina breytingu á þessum málum en þetta er auðvitað alls ekki komið á dagskrá í þeim mæli.“ Hafið þið fengið skýringu Bandaríkjahers á þörflnni fyrir þetta mannvirki? „Þetta hefur verið skýrt mjög ýtarlega fyrir okkur og fyrir okk- ar ráðherra." Er það trúnaðarmál eða get- urðu í örfáum orðum sagt frá henni? „í örfáum orðum eru þetta fyrst og fremst öryggishagsmun- ir, þ.e.a.s. að sérstaklega rekstur þessarar orrustuflugsveitar, sem staðsett er á Keflavíkurflugvelli, uppfyllir ekki þá staðla sem al- mennt eru settir um öryggis- mál ...“ vg/phh 4 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. mars 1989

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.