Þjóðviljinn - 10.03.1989, Qupperneq 8
ERLENDAR FRÉTTIR
Pálland
Líkur á þjóðarsátt
Lögleidd Samstaða, sterktforsetavald ogfrjálsar kosningar
til öldungadeildar
Pólskir stúdentar á kröfugöngu í Varsjá í fyrradag, þeirri fyrstu er
stjórnvöld leyfðu síðan 1981 - nú kvað víðtækt samkomulag stjórnar
og stjórnarandstöðu hafa náðst.
Kosovo
Verkföll hafináný
Haft er eftir heimildum innan
pólsku stjórnarandstöð-
unnar, að samkomulag hafi nú
næstum því náðst í viðræðum
þeim, sem staðið hafa yfir í Var-
sjá síðan 6. febr. um framtíð Pól-
lands. í viðræðunum taka þátt
Háttsettur lögmaður sovéskur,
Aleksandr Súkharev, fullyrti í
gær á alþjóðlegri ráðstefnu lög-
fræðinga í París að engir pólitísk-
ir fangar væru nú í sovéskum
fangelsum. Hann staðfesti einnig,
að Sovétríkin hefðu viðurkennt
rétt Alþjóðadómstólsins í Haag til
að dæma í vissum mannréttinda-
málum.
Það hafði þegar verið tilkynnt
af hálfu sovéskra stjórnvalda í
fyrradag. Súkharev sagði enn-
fulltrúar stjórnvalda og stjórnar-
andstöðu, þar á meðal verkalýðs-
sambandsins Samstöðu.
Viðræðurnar gengu lengi treg-
lega, en á þriðjudaginn kváðu
þeir Lech Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu, og Czeslaw Kiszczak,
fremur á ráðstefnunni, að lagt
hefði verið fram uppkast að nýj-
um sovéskum refsilögum, og væri
gert ráð fyrir því í uppkastinu að
um 4000 lagagreinum og yfir
12.000 ráðherratilskipunum yrði
breytt. Væri meðal annars fyrir-
hugað að dómar upp á fangelsi-
svist yrðu að jafnaði helmingi væ-
gari en nú tíðkaðist og að dauðar-
efsing yrði afnumin hvað viðvéki
konum og öldruðum karl-
mönnum. Reuter/-dþ.
innanríkisráðherra, hafa hist og
náð samkomulagi um viss megin-
atriði, sem heimildarmenn innan
stjórnarandstöðunnar gera ráð
fyrir að allsherjarsamkomulag
náist um. Meðal þeirra atriða er
að stjórnvöld veiti Samstöðu,
hliðstæðum samtökum í sveitum
og óháðum stúdentasamtökum
fulla viðurkenningu.
Þá hefur að sögn samist um að
Póllandsforseti skuli vera
allvaldamikill, hliðstætt Frakk-
landsforseta, og að við þingið
verði bætt efri deild eða öldunga-
deild, er að vísu fái ekki mikil
völd, en hafi þó visst neitunar-
vald gagnvart neðri deildinni,
sejm. Ennþá er þó eftir að á-
kveða nánar um það, hvernig því
neitunarvaldi verður háttað.
Öldungadeildarþingmenn verða
kosnir í fullkomlega frjálsum
kosningum. Hinsvegar verður
svo um hnútana búið áfram að
kommúnistaflokkur landsins og
flokkar og samtök honum tengd
hafa tögl og hagldir í neðri deild,
en að vísu á stjórnarandstaðan að
fá þar ítök nokkur, eða 35 af
hundraði þingsæta.
Forsetinn verður kosinn af
báðum þingdeildum, en þær
kosningar verða ekki beinar og er
ýmislegt á huldu um þær enn.
Stjórnarandstæðingar þeir, sem
fréttamaður Reuters ræddi við,
sögðust vera sæmilega ánægðir
með útkomuna, sem þeir kölluðu
„65% sigur“ fyrir sig. Það fylgir
sögunni að þjóðarsátt þessi verði
opinberlega birt í heild sinni 3.
apr. n.k., eftir að lokafundur við-
ræðnanna hefur verið haldinn, ef
ekkert nýtt babb kemur í bátinn
þangað til. Reuter/-dþ.
Um 600 námumenn, sem vinna í
magnesítnámu að Goles á júg-
óslavneska sjálfstjórnarsvæðinu
Kosovo, sem að mestu er byggt
fólki af albönsku þjóðerni, hófu
verkfall I gær, þrátt fyrir hálfgild-
ings herlög á svæðinu í tæpar
tvær vikur og návist júgóslavn-
eska hersins. Segjast námumenn
ekki vera til viðtals fyrr en Azem
Vlasi, fyrrum leiðtogi kommún-
istaflokksins í Kosovo, hafi verið
látinn laus.
Azem Vlasi er einn þeirra
framámanna Kosovo-Albana,
sem handteknir hafa verið síð-
astu tvær vikurnar, sakaðir um að
standa á bak við verkföll og ó-
spektir. Námumennirnir í Goles
krefjast þess einnig, að þrír hátt-
settir menn í Kosovo, sem þeir
telja að séu leppar Serba, segi af
sér. Þeirra á meðal er Rahman
Morina, núverandi leiðtogi
kommúnistaflokksins á svæðinu.
Þessir þrír sögðu af sér fyrir tíu
dögum vegna yfirstandandi mót-
mæla þá, en forusta serbneska
kommúnistaflokksins neitaði að
taka afsagnirnar til greina.
Reuter/-dþ.
Tékkóslóvakía
Andófsmenn dæmdir
Tveir pólitískir andófsmenn, tékkóslóvakískir, voru í gær dæmdir til
fangelsisvistar fyrir að skipuleggja undirskriftasöfnun í þeim tilgangi
að fá pólitíska fanga látna lausa og að rannsókn yrði látin fara fram á
dauða eins slíks fanga, sem lést s.l. ár. Annar mannanna var dæmdur
til 16 mánaða fangelsisvistar og hinn fékk sex mánaða fangelsisdóm.
Reuter/-dþ.
EFTA-EB
Tollabandalag á döfinni?
Sovétríkin
Engir pólrtískir
fangar lengur
Brundtland í viðtali: kemur tilgreina, sem og sameiginlegur dómstóll.
Svíar meðmœltir tollabandalagi en Finnar og Svisslendingar á móti.
EFTA-aðild Ungverjalands hugsanleg
Brundtland - samstaða EFTA-ríkja gagnvart Evrópubandalagi gæti
orðið til þess að Norðmenn gerðust alfarið fráhveriir aðild að því.
Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, sagði á
þriðjudag í viðtali við breska
blaðið Financial Times að hún
teldi að til greina kæmi að Frí-
verslunarbandalag Evrópu
(EFTA) og Evrópubandalagið
gerðu með sér tollabandalag.
Leiðtogar EFTA-ríkja koma
saman á ráðstefnu í Osló í næstu
viku og verður meginverkefni
ráðstefnunnar væntanlega að
samræma afstöðu þeirra
gagnvart Evrópubandaiaginu.
Undan þvf verður varla vikist,
ef marka má orð Jacques Delors,
forseta stjórnarnefndar Evrópu-
bandalagsins, á þá leið að ætli
EFTA-ríkin sér aukna hlutdeild á
innri markaði Evrópubandalags-
ins, sé þeim eins gott að tala ein-
um munni, en ekki sex. Brundt-
land sagði í viðtalinu að ef slík
samstaða tækist, væri hugsanlegt
að Norðmenn gerðust því með
öllu fráhverfir að sækja um aðild
að Evrópubandalaginu. Þeir hafa
þegar hafnað aðild að því einu
sinni, með þjóðaratkvæða-
greiðslu 1972. Norski forsætis-
ráðherrann virðist vera þeirrar
skoðunar, að með því að standa
saman í samskiptum við Evrópu-
bandalagið geti EFTA-ríkin náð
svo góðum kjörum í viðskiptum
Kosið verður til þings í Noregi í
haust, en ekki telur Brundtland
að hugsanleg EB-aðild verði þá
mikið kosningamál. Reyndin
gæti hinsvegar orðið önnur eftir
við það að bein aðild að því verði
ekki lengur freistandi.
hálfan áratug eða rúmlega það.
Ljóst virðist að hugsanlegt tolla-
bandalag við EB sé nokkuð við-
kvæmt mál innan EFTA. Svíar
vilja að slíkt tollabandalag sé
gert, en Finnar og Svisslendingar
eru því mótfallnir og Norðmenn
nokkuð beggja blands. Brundt-
land segir það persónulegt álit sitt
að tollabandalag gæti verið góð
lausn, þó yrði ýmislegt að vera
þar fyrir utan, svo sem landbún-
aðarafurðir. Hún segist einnig
telja, að bandalögin tvö ættu að
geta komið sér upp sameigin-
legum dómstól til að skera úr í
deilum milli þeirra.
Nú er við því búist að eitt
EFTA-ríkjanna sex, Austurríki,
muni innan skamms sækja um að-
ild að Evrópubandalaginu. Við-
víkjandi því sagði Brundtland í
viðtalinu að áhrif þessa á önnur
EFTA-ríki færu eftir því, hvenær
Austurríki legði inn umsókn sína
og hvenær það fengi inngöngu;
það gæti dregist í eitt eða tvö ár.
Norski forsætisráðherrann sagði
og, að hraðbatnandi samskipti
austur- og vesturblakkar gerðu
að verkum, að hugsanlegt væri að
Austur-Evrópuríki, einkum
Ungverjaland, gengju í EFTA á
komandi áratug. Júgóslavía væri
þegar tekin að þreifa fyrir sér
með „einhver tengsl“ við EFTA
fyrir augum, sagði Brundtland,
og hún telur að þessa muni verða
getið í yfirlýsingu EFTA-
leiðtoganna eftir í hönd farandi
ráðstefnu.
dþ.
Nöfn eyðni-
sjúklinga
gefin upp
írska heilbrigðisráðið, samtök
lækna þarlendis, kvað upp þann
úrskurð í gær að læknum væri
skylt að gefa starfsmönnum
heilsugæslukerfisins upp nöfn
eyðnisjúklinga, ef hætta væri tal-
in á að þeir smituðu aðra, jafnvel
þótt sjúklingarnir sjálfir væru því
mótfallnir. Einnig bæri læknum
að aðvara það fólk, sem líklegt
væri að eyðnisjúklingar hefðu
kynmök við. 85 manns hafa
veikst af eyðni í írlandi og eru 36
þeirra látnir. Reuter/-dþ.
Herútgjöld
standi í stað
Danska stjórnin ákvað í gær að
útgjöld til hersins skyldu standa í
stað frá því sem nú er til 1991, að
því ári meðtöldu, með þeirri
undantekningu að herinn fái við-
bót til að mæta verðbólgu.
Ákvörðun þessi vekur að líkind-
um gremju af hálfu Atlantshafs-
bandalagsins, sem lítur svo á að
Danir séu of sparir á fjárframlög
til hersins og hefur oft ámælt
þeim af því tilefni.
Reuter/-dþ.
8 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. mars 1989