Þjóðviljinn - 10.03.1989, Page 11
Bjór aðeinsfyrir
trúaða
Lilian heitir kona í Trenton á
Englandi sem fyrir skömmu gifti
sig Michael Walter. Michael er
annar maður hennar. Petta væri
ekki í frásögur færandi ef að Li-
lian væri ekki 84 ára en Michael
34ára að aldri.
„Viö höfum verið trúlofuð í
fimm ár, sagði gamla konan í við-
tali við Trenton Times, og okkur
fannst tími til þess kominn að láta
verða afþessu.
Ég spurði dætur mínar, Evelyn
sem er sextug og Jean (58 ára)
hvort þær vildu vera brúðarmeyj-
ar. En Evelyn sagði að henni litist
ekki á Michael og Jean var í sinni
síðustu brúðkaupsferð.
Hún er búin að vera gift sex
sinnum og hún sendi mér í brúð-
akaupsgjöf eintak af bókinni
„Dáleiðsla í heimahúsum. “
Eigandi krárinnarThe Old
Globe, hr. Tully, hefurgreintfrá
því í skiptarétti að hann hafi selt
krána vegna þess að kona hans,
Betty, hafi verið gripin trúardellu
eftir að hún heyrði höfuðklerk
kalvínista á Norður-írlandi, Ian
Paisley, prédika ísjónvarpi.
„Betty tók upp á því að stöðva
fólk á leiðinni inn á krána og
spyrja það að því hvort það tryði
á guð. Ef menn neituðu var þeim
vísað frá. Viðskiptin drógust
saman og eftir að hún tók að
krefjast þess að fastagestir krypu
á kné og bæðu faðirvor við lokun
hættu svotil allir að koma.
Svo seldi ég krána fyrir
greiðslu út í hönd eiganda íþrótt-
abúðar sem kom að fá sér í glas
meðan Betty var að heimsækja
móðursína.“
(Scottish Sunday Mail)
Ekkert má maður
fyrir börnunum
Páll Óskar Hjálmtýsson og Rúnar Páll Gestsson í Nashyrningum. Mynd: Jim
Ragnheiður Guðmundsdóttir er
nunna í Nashyrningum lonescos.
Mynd: Jim
Leikur hins frjálsa sannleika
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð ræðst í það spennandi
verk að setja á svið Nashyrninga
eftir Eugene Ioncsco og er frum-
sýning á laugardagskvöld. Leik-
stjóri er hinn hugumstóri Andrés
Sigurvinsson sem setti upp
Hcimkomu Pinters í íslensku
óperunni í fyrra.
Ionesco er einn frægasti fulltrúi
absúrdleikhússins ásamt Samuel
Beckett. Fyrsta leikritið sem var
sett á svið eftir hann var Sköllótta
söngkonan sem Nemendaleik-
húsið endurvakti í haust. Leikrit-
in hans hæfa reyndar merkilega
vel ungum áhugahópum og at-
vinnuhópum því þau eru óvænt
og fyndin og bjóða upp á ærsl og
gleði þó að þau „segi“ einkum frá
firringu, angist og takmarkalítilli
heimsku og talhlýðni mannanna.
Leikarar í sýningunni eru á
þriðja tug menntaskólanema sem
hafa lagt nótt við dag undir harð-
stjórn Andrésar undanfarnar vik-
ur. Aðalhlutverkið, Bérenger
skrifstofublók, leikur Sigurður
H. Pálsson.
„Ég veit ekki hvort þið hafið
kynnst því,“ er haft eftir Ionesco í
leikskrá, „en þegar fólk er ekki
lengur sammála og þú getur ekki
lengur gert þig skiljanlegan þá
færðu það á tilfinninguna að í
kringum þig séu tóm skrímsli, til
dæmis nashyrningar...“
SA
FLÖSKUSKEYTI
Föstudagur 10. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11