Þjóðviljinn - 10.03.1989, Side 16

Þjóðviljinn - 10.03.1989, Side 16
Aldarafmæli Þórbergs Þórðarsonar - Aldarafmæli Þórbergs Þórðarsonar-Aldarafr Sagt Hann var sérfræðíngur allrar þeirrar speki sem liggur til grund- vallar formálanum um verkið verksins vegna, verkið án tillits til launa, starfið sem takmark fullkomnunar án tillits til þess hvort það er kallað hátt eða lágt: ef þú ert slátrari áttu að vera fullkominn slátrari, ef þú ert rit- höfundur átt þú að vera fullkom- inn rithöfundur, þú vinnur verk þitt eins vel og rétt og þú hefur skyn og getu til, lof eða last ann- arra kemur ekki því máli við... Það er leitun á höfundi sem gengur betur frá verki sínu en Þórbergur, fáir jafn reiðubúnir og hann að takast á hendur ótak- markað erfiði til að leysa jafnvel smátt viðfángsefni. Halldór Laxness (1949) Ég er svo hrifinn af Þórbergi Þórðarsyni að því fá engin orð lýst, og ég verð æ óánægðari með allt hans framferði eftir því sem árunum fjölgar. Ég sé eftir tíma og kröftum þessa ómetanlega og óviðjafnanlega snillings í safnanir andlausra og hversdagslegra hindurvitnasagna sem aldrei geta haft annað andlegt gildi en að og skrifað um Þórberc tjóðra anda mannanna við mörg þúsund ára gamla tjóðurhæla kukls og bábilja. Gunnar Benediktsson (1949) Enn í dag neitar þú því að til nokkurs sé að vera að skrifa og setja fólki fyrir sjónir hvað sé skynsamlegt og rétt, en heldur þó áfram baráttu þinni fyrir sann- leika, réttlæti, fjötralausum stíl, skynsamlegri alþjóðatungu og - eilífðarmálum, alveg eins og þeg- ar þú fyrst tvíhentir penna þinn og ritaðir Láru bréfið góða. Halldór Stefánsson (1954) Heimska samtíðar þinnar hef- ur mætt þungt á þér, en ein- hverntíma rennur sú stund upp að friðelskandi, sannleiksleitandi fegurðardýrkendur geta litið hér kringum sig með velþóknun. Þá verður það normalt að vera eins og þú og lifa fyrir þá hugsjón eina að verða vitrari og betri maður. Björn Þorsteinsson (1954) En í allri okkar smæð erum við hluti af mikilli heild, sjálfri eilífð- inni. Þessvegna verður hið smáa stórt og líf okkar hvers og eins mikið alvörumál, sem leggur okkur miklar skyldur á herðar. Lffsspeki Þórbergs felst í því að hann hefur skilið þetta. Þess vegna eru bókmenntir út af fyrir sig eitur í hans beinum. „Ekkert leiðist mér eins mikið og þetta bókmenntasnakk" hefi ég oft heyrt hann segja. Þórbergur skrifar aldrei til þess að skapa bókmenntir og þessi mikli stílsnillingur fyrirlítur í rauninni þann munað að hugsa um form og stfl. Honum er miklu meiri al- vara í hug þegar hann skrifar. í hvert skipti sem hann tekur sér penna í hönd þá er það í þjónustu lífsins og sannleikans. Og einmitt þess vegna verða verk hans lista- verk. Brynjólfur Bjarnason (1959) Það er einmitt hin síferska barnslega skynjun sem gerir meistara Þórberg svo látlausan í háttum, svo háan í mennt, að honum verður eiginlegt að líta á sjálfan sig sem tákn mannleg- leikans: dýrmætt og vandmeðfar- ið ker á róstusömu sölutorgi. Það er líka hún sem slær hinu óræða, síhverfa gliti á hugsun hans og stfl. Það er hún sem leggur hinn mikla ábyrgðarþunga í boðskap hans til þjóðar og mannkyns um nýja siðmenningu, nýja öld. Það er hún sem hefur gert hann að óþreytandi málsvara sósíalism- ans sem aldrei hefur látið bilbug á sér finna, hvað sem öllum asnast- rikum og fólskuverkum hvort heldur andstæðinga eða sam- herja hefur liðið. Honum er kunn tragedía ófullkomleikans jafnvel á vegum hins göfugasta málstað- ar. Jóhannes úr Kötlum Þórbergur Þórðarson kom eins og engill af himni sendur einmitt þegar mest reið á og ekki sást annað en bókmenntimar væru að verða til í grátljóðum og vellu- legu orðfæri, þá kom hann að austan, fátækur en skýr í hugan- um, sjálft látleysið íklætt holdi, óumbreytanlega eðlilegur og samkvæmur sjálfum sér, styrkur í rómi, skrifaði sama sem ekki neitt, en við fundum að hann var rithöfundur samt, og uppgötvuð- um hann því nær áður en við sáum hann og heyrðum. Málfríöur Einarsdóttir (1959) Þórbergur Þórðarson skrifar að jafnaði engan stfl, en getur hinsvegar brugðið fyrir sig hvaða stíltegund sem er.. .„Det som er meget moderne bliver snart meget gammeldags" segir dansk- urinn og mér þykir sennilegt að þegar ýmsar stfltiktúrur nútím- ahöfunda liggja grafnar í gleymdum bókum þá lifi hið afl- mikla tungutak Þórbergs Þórðar- sonar enn góðu lífi, ásamt trausti hans á mætti orðsins, fremur en sefjun stflsins. Bjarni Benediktsson frá Hofteigif1959) Verðum við að játa fyrir Þór- bergi sjötugum að hann sé yngs- tur Islendinga, eigi víðastar hug- sýnir, sé heitastur fyrir hugsjón- um vorrar aldar? Eitt sinn skír- skotaði Einar Benediktsson til Egils Skallagrímssonar með þess- um orðum: Ó, gæti hann kveðið upp, blað fyrir blað, vora bragð- Þórbergur Þórðarson á aldarafmæli þann tólfta mars: í því tilefni er hér birtur kafli úr óprentuðu handriti eftir Þór- berg, sem varðveitt er á Landsbókasafninu. Handrit þetta segir frá ýmsum þeim persónum sem einnig koma við sögu í íslenskum aðli, frá Unuhúsi og Þórbergi sjálfum á árunum 1912-1915. Kaflinn er birtur með góðfúslegu leyfi Máls og menningar. Eitt kvöld seint í októbermán- uði haustið 1912 (?), kom ung stúlka, ljóshærð með söðulbakað nef, upp í Unuhús til þess að biðja Svein Jónsson að yrkja fyrir sig eftirmæli eftir vinkonu sína, sem þá var nýdáin. Þá hafði um skeið allt gengið vel um ástir Sveins, svo að stúlkunni var ráðið frá því að biðja hann um þetta. Hún skyldi heldur snúa sér til Tryggva því að hann væri miklu meira ljóðskáld en Sveinn. Stúlk- an gerði þetta. Og Tryggvi orti fyrir hana ljómandi hjartnæm eft- irmæli um hina köldu hönd dauðans sem slítur vorrós lífsins upp úr víngarði heimsins. Upp úr því fór stúlkan að fjölga komum sínum upp í Unuhús. Hún kom stundum í eldhúsið og hvískraði í lágahljóðum við hús- freyjuna, en oftast lágu þó leiðir hennar upp í suðausturherbergið á loftinu. Um vorið var það al- mannarómur í Unuhúsi að Tryggvi væri trúlofaður stúlk- unni. Og ástir Sveins höfðu þenn- an vetur gengið svo hrukkulaust að hann var talinn heitbundinn ástmey sinni. Og seint í júní um vorið sigldu tveir ungir herrar í sfld norður til Akureyrar úr Unu- húsi. Haustið eftir var farið að setja mjólkurglas upp til Tryggva á Úr óbirtu handriti Þórbergs Þórðarsonar 7tj?Aeu&- kcuMca, hn&') ý UaaaaCuáo CvC, J c*aT if-rUfu Ývé '4C<Ma-\ éhMsx* t'Oksuv, \&é íAaa^ 'pé 'hUAU CUAJ~ ^a fúC wé. 'VUaa, CViMé Sx/Uuaa, Suv frC Xé CuýfL auw . 9Ua-/-/\' ýLuJV-C éhtéctr úéc- jtAsisu, UévioC cCcuJÍotJ, SCiXtJ Wf'ii'0 éféuu MfyfO CA-r (UUAfraXJ ^Upy» Uvr fhA SVoMJUx JíaaOVU, jVfyy \ HJaAAa IáAAA , éCvuuí é<SAn— gtwn Jw, / suXaaulX Cfr y -tJMpeqVMua j-vl* cyfoAr ÍCL'frA C>v^r~ 1' S CXACtsuhÁ-S'— JJrÖAjqSJ é . 'Vvuui ci/innLÍÍ r[fv-r /ftoJ oUaaA Zaaa-cO. 'YlTVUt 'iAT 1 'ÍAAAAA 0COCÆA eJ) , \Á l/Se-Tn ~CYujFof-JlA-j XaJMwaaaa. C&f ''mJaJ SlSCaaaa éc/fJút \Qcaaa-i c-a-, 1/vCiA-r- 'fCAA yScí' ivo (ÍA'xaAoua, 2.ía-c-c-iJ'/ Jé 'l/hr CuoL/t’ C/wa Luai-i CVyCúvt nSooAA-,, Jvi-ui-t' / ^Taaaa. 'Íaaaa 'IZisyÍaJ LS rp/t S-óyt-flA ÍVAA-r <AAA'yó-r f SJmL 'lA-rrJZr (ft TttocA, CA-frT-r lÁ/ ÍAaaaa. CtaaaZ , c/CcaaaaVaJ (/f/Ur ýf-f-r—MrffqfVr rjr asZv PcAa) cJ) stéýl 'iuJhJu/fCfA) jUffO ú olaaM '\/<aa;}aa£ífr=í -IaaJlCaJi. ■ -fu-fxj- EcaaH t&UAA ct ■XhotiA-MA-c^A flrv -BrotAAA., J ■fr,1 £Aa\a I&Maaaa uFjt-y AAj-Er'Toé' /. CAAAc£-€£-VtAÍ, ^VcAaaa-. £j.AAFaJ\' 4-P-r £&(Maa C-0 . PwU-v, (aCÚa-a p-ÍCM- J-iKrtM- StxApK'pf fnMS Xaa(<J\' 'IAaaAoLUa 4a\sía\a\ FhZiAA -OAAa-, (Ícxaaa-, cÍAZt' -V Za/2. U CK-uU-txjfúS' Æý/CL Sct-U Jyc^AyU a-Oka' cÚWi Wúa' CuÁaaa<T 1 * ÍAaAAA ÚCAA'iA. <Aa ruú-é £\A/X'fi Cy-YÍAXAA-t rx-f u OlA-t cLUÁJ'H-XAÍ , C^ézc-f\ (LuXa VcJ-ZOaÁia 'iqi'-l \hr-r JfJxZotO-OíijMaf- Handritið er bersýnilega hvergi nærri með þeim frágangi sem Þórbergur tamdi sér. Það geymir efni til þeirrar Unuhússögu, sem aldrei var við lokið, en oftar en ekki er á minnst hjá Þórbergi. hverju kvöldi, auk venjulegra máltíða. Þegar leið fram á vetur- inn fór hann að fá einkennileg útbrot í andlitið. Hann leitaði sér læknis. Læknirinn sagði, að þetta stafaði af of mikilli áreynslu á taugakerfið og fékk honum hvítt duft, sem hann átti að bera á and- litið. Eftir það sást Tryggvi aldrei öðruvísi heima í Unuhúsi en með hvíta grímu af dufti í andlitinu. Síðari hluti vetrarins 1914 var hretviðrasamur, loftið sígrátt af rengskýjum og tíðar austanþjótt- ur. Þá gekk lungnabólgufaraldur í bænum og margir dóu. Einn leigjandinn í Unuhúsi hafði feng- ið lungnabólgu og var fluttur á Landakotsspítala og var nýdáinn. Þetta veðurfar hafði óheppileg áhrif á ástalífið. Fólk var orðið vítamínlaust eftir hinn langa vet- ur, lífsfjörið þvarr og mörgum var farið að leiðast lífið. Ástir Sveins höfðu nú aftur gengið með lakara móti. Hann var stundum ölvaður, orti þunglyndisljóð um tilgangsleysi lffdaganna. Og ástmey hans sást stundum á kvöldin á sveimi í sundinu milli húsanna í leit eftir elskhuga sín- um. Einn dag í aprílmánuði kemur Sveinn inn til Kjartans Ólafs- sonar, nú augnlæknis, sem þá bjó í norðurherberginu uppi, og kunngerir honum með mjög há- tíðlegum orðum, að hann geti með engu móti lifað lengur og ætli því að fyrirfara sér í dag. Hann sagðist ætla að drekkja sér út af bryggju Björns Kristjáns- sonar. Kjartan svaraði að það væri ekkert við því að gera. Þetta yrði að hafa sinn gang, þó að það væri leiðinlegt, - „en má ég horfa á þig deyja“. Jú, það hafði einmitt verið meining Sveins með því að segja honum þetta, að hann vildi verða (svo í handriti) vitni að burtför hans úr heiminum. Svo gengu þeir báðir niður stig- ann og út úr húsinu, niður Fisc- 16 SáDA - NÝTT HCLOARSLAÐ 10. II

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.