Þjóðviljinn - 10.03.1989, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 10.03.1989, Qupperneq 17
næli Þórbergs Þórðarsonar I Þórðarson lausu, máttvana söngva. Og hversu meiri væri ástæða til þessa hróps í dag. Það hlaðast ísalög nú með hverjum degi yfir íslenska hugdirfð og íslenskar bók- menntir. Ég kem með þetta sem áminningu á sjötugsafmæli Þór- bergs því að fordæmi hans er ströng krafa. Hver tekur upp merki Þórbergs? Hver slítur af oss hlekki sjálfbyrgingsskapar og lágkúru og opnar að nýju hliðin út í þá heiðu veröld þeirrar draumsýnar sem framtíðin gerir að veruleik? Megum við biðja um nýja rómantík, nýja eldvígslu hugans. Þórbergur hefur endur- fæðst sjö sinnum eða oftar. Megum við í afmælisgjöf til hans biðja um endurfæðingu þjóðar- innar. Krístinn E. Andrésson (1959) við baráttuglaðan fjöldann að við munum hafa gengið undir fánum allra félaga (þar á meðal hár- greiðslukvenna vona ég) í þeirri streymandi fylkingu og ranglað undir alla vígorðaborða og kröfu- spjöld einsog við bærum sérper- sónulega ábyrgð á þeim öllum, sem við kannski gerðum einsog allir hinir á þessu rölti. Thor Vilhjálmsson (1969) Fegin vildi þig finna firði í Hrúta hönd mína geyma í hendi þinni. Reikar þá rökkrið regn sefur. Víst er og víst er vakir þú Þórbergur. Nína Björk Árnadóttir (1969) Svo ætla ég að mælast til þess að fá að ganga aftur með þér fyrsta maí einsog um árið þegar þú sagðir mér sögur og söngst fyrir mig og fórst með kvæði alla leiðina, og við vorum svo utan við" okkur og innblásnir og ósamstíga (Allar ívitnanir eru úr Þjóðvilj- anum nema ein, í ræðu Kristins E. Andréssonar til heiðurs Þór- bergi sjötugum - hún birtist fyrst í Tímariti Máls og menningar. ÁB tók saman.) hersund og norður með Liverpo- ol. Úti var austanþrassi og regn- hraglandi og kalt í veðri. Þeir fé- lagar gengu norður yfir Vestur- götu. Þar nam Kjartan staðar á malarkambinum austan við bryg- gjuna, en Sveinn þrammaði fram bryggjuna, mjög þungbúinn og alvarlegur yfirlitum eins og títt er um menn sem ætla að fara að deyja. Framan til á bryggjunni nam hann snöggvast staðar, sviptir sér úr jakkanum og leggur hann á bryggjuna sem lítilfjör- lega minningu um tilveru sína í þessum heimi. Að því búnu skálmar hannn út og fram á vest- urbrún bryggjunnar og dembir sér á bólakaf í sjóinn. En Sveinn var syndur og gekk því ekki rétt vel að halda sér við botninn, gerir sér því lítið fyrir og buslar upp í fjöruna vestan undir bryggjunni. Stekkur upp á malarkambinn og fram bryggjuna og tekur þar jakkann og gengur hröðum skref- um aftur upp bryggjuna. Þar kemur hann auga á Kjartan standa grínandi á malarkambin- um með hendur í vösum. Sveini fannst hann hafa sýnt sér heldur litla hluttekningu í þessum mannraunum og segir: Hvað var þetta, manndjöfull? Ætlaðirðu að sjá mig drepast þarna í sjónum? Síðan hljóp Sveinn heim í Unu- hús. Una kom fram í eldhúsdyrn- ar þegar hann skreppur inn úr dyrunum og segir undrandi: Hvað er þetta, blessaður auminginn? Því ertu svona hold- votur? Sveinn fór ekki mörgum orð- um um ástæðuna til þessa ásig- komulags síns, heldur sveiflar sér þegjandi upp stigann og háttar niður í rúm. Una fór upp á eftir honum. Hvað er að þér maður? En Sveinn skalf eins og hrísla í rúminu. Una varð dauðhrædd um að hann fengi lungnabólgu og flýtir sér niður í eldhús og hitar vatn í potti. Síðan hellti hún vatn- inu í flöskur, sem hún raðaði kringum Svein í rúminu. Hann hrestist fljótt og náði heilsu sinni aftur. Svo kom vorið með rauðar sól- eyjar út um allt Geirstún og þýð- an lóusöng um vellina kringum Landakot. Þá var það einn dag að þeir Sveinn og Tryggvi komu neðan sundið f smóking með ingjusemi í húsinu í þrettán mán- uði. Sveinn var farinn að stunda málfræði og bókmenntir við há- skólann í Kaupmannahöfn og Tryggvi var byrjaður á fagur- fræðinámi. Svo ætluðu þeir að koma heim og giftast ástmeyjum sínum. Þeir höfðu heitið þeim ævarandi tryggðum og það var fremur sjaldgæfur drengskapur í Grjótaþorpinu á þessum árum. En í ágúst sumarið eftir sátu tvær aldraðar konur einn sólskins- bjartan dag á ráðstefnu í eldhús- inu í Unuhúsi. Þær töluðu hljótt og oft í hálfkveðnum orðum, eins og þær þyrðu ekki að segja skýrt hvor við aðra það sem þeim bjó í brjósti. Þær voru daprar ásýnd- um. Það var auðsætt að það hafði eitthvað ógurlegt komið fyrir, kannski eitthvað sem var miklu ógurlegra en dauðinn. Þessar konur voru Una og tilvonandi tengdamóðir Sveins. Hann Sveinn var þó góður pilt- ur, segir Una. Ég er viss um að það var ekkert illt til í þeim ung- lingi. Já, ég þekkti hann aldrei að neinu misjöfnu. Og svo er það munur að eiga menntaðan mann. Ég skil ekkert í veslings stúlk- unni að fara að taka upp á þessu. Það er eins og þessum aumingj- um sé ekki sjálfrátt. Og nokkrum mánuðum síðar var hún gift manni í bænum, sem ekki hét Sveinn og var ekki Jóns- son. Enn liðu fjórir mánuðir. Það var komið fram í desember. Yfir herbergi Tryggva lék sami ljóm- inn. Svalir austanþræsingar með rigningum öðru hvoru. Þá var það eitt vætufullt kvöld að í eld- húsinu hjá Unu stóð ung stúlka ljóshærð með mikil brjóst og augu sem voru einhvernveginn hinsegin. Um eldhúsið sló daufum bjarma af gömlum olíu- lampa, sem hékk á eldhúsveggn- um úti við gluggann. Úti var niða- myrkur með skúraveðri. Gamla konan sat á stóli úti við þilið gegnt eldavélinni, en stúlkan þus- aðist til og frá um gólfið eins og hún ætti bágt með að standa í sömu sporum. Og hún segir við gömlu konuna: Svona eru þessir helvítis djöfl- ar, ekkert annað en svik og lygi. Hann má reyndar fara til fjand- ans fyrir mér. Ég sé ekki eftir honum, helvítis asnanum þeim arna. Við skulum ekki tala illa um piltinn. Hann getur ekki að þessu gert. Þetta eru aumingjar. Þetta eru blessaðir fáráðlingar. Þetta stafar af vöntun á hugsun. Getur ekki að þessu gert, hel- vítis asninn sá arna. Þeir eru svona þessir andskotans djöfuls karlmenn. Ekkert annað en svik og lygi. Nokkru síðar var það öllum kunnugt í Unuhúsi, að Tryggvi hafði farið á söngskemmtun í stórum sal í Kaupmannahöfn með gylltum turni. Á senunni í salnum söng hávaxin ljóshærð stúlka. En hve rödd hennar var yndisleg, augu hennar töfrandi, mjaðmir hennar fagurlega form- aðar, kálfar hennar ávalir. Og skáldið þaut upp úr sæti sínu og henti upp á senuna til hennar stórum blómvendi. Nokkrum dögum síðar voru þau trúlofuð. blóm í hnappagatinu. Þeir voru orðnir stúdentar. Svo var slegið upp veislu inni í herbergi Tryggva. Úti á miðju gólfi gerðu þeir altari, sem þeir breiddu yfir rautt klæði og á klæðinu stóðu tvær fullar brennivínsflöskur sín hvoru megin á altarinu. Svo krupu þeir fyrir framan altarið og við hlið Sveins kraup hávaxin dökkhærð kona með augu, sem glönsuðu eins og spegill móti tæk- ifærum veraldarinnar. En við síðu Tryggva féll fram fremur lág- vaxin ljóshærð stúlka með mikil brjóst, augu sem voru ein- hvernvegin hinsegin. Að bæninni lokinni voru flöskurnar tæmdar. Svo gekk Sveinn út úr herberginu með ástmey sína. Eftir þetta ríkti almenn ham- Sveinn Jónsson sá sem stakk sér í sjóinn og annar þeirra sem kraup við altarið með ástmey sinni. Það var hann sem orti: Hryggur ég alltaf hugsa um það kvöid er hittumst og skildum við tvö og ógæfan lagði okkar á milli ókleifu fjöllin sjö... RMwtagnr 10. man 1MS NÝTT HELQATOLAO - SfOA 17

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.