Þjóðviljinn - 10.03.1989, Side 21
H ELGARMENNINGIN
„Ég get ekki verið fjarri
heitmannimínum.ég
myndi ekki geta lifað
fyrirþrá."
Ástríðufullur
þrákálfur
Haustbrúður frumsýnd í kvöld. María Sigurðardóttir:
Appolonía tefldi ekki skynsamlega í lífinu þótt hún
væri góður skákmaður, en svona er að hugsa með
tilfinningunum...
Þjóðleikhúsið frumsýnir
nýtt leikrit eftir Þórunni Sig-
urðardóttur í kvöld. Það heitir
Haustbrúður og fjallar um ör-
lagaríka atburði sem gerðust
á Islandi fyrir um það bil 250
árum þegar ung útlend kona
lést á tortryggilegan hátt á
Bessastöðum.
Þórunn stýrir verki sínu sjálf,
en aðstoðarleikstjóri er Viðar
Eggertsson. Þórunn hefur áður
skrifað tvö leikrit, Guðrúnu (LR
1983) og í smásjá (Litla svið
Þjóðl. 1986). Það má minna á að
Árni Bergmann hafði ítarlegt
viðtal við Þórunni um heimildar-
vinnuna fyrir þetta leikrit í Þjóð-
viljanum 28. febrúar í fyrra.
Um tuttugu leikarar taka þátt í
sýningunni, en aðalhlutverkin
eru í höndum Jóhanns Sigurðar-
sonar sem leikur Níels Fuhrmann
amtmann yfir fslandi, Maríu Sig-
urðardóttur sem leikur heitkon-
una Appoloníu Schwartzkopf og
Bríetar Héðinsdóttur sem leikur
Katharinu Holm ráðskonu hans.
Appolonía
Efni leikritsins er af því tagi
sem æsir upp áhuga hjá íslend-
ingum: átjánda öldin, ástríður,
harmar og dauði. Mesta forvitni
vekur Appolonía, konan unga
sem enginn vissi úr hverju dó og
enn kvað eigra um Bessastaði.
María Sigurðardóttir gefur henni
mikla persónu á sviði - úr hverju
er hún unnin?
„Appolonía var norsk þrátt
fyrir þýska nafnið,“ svarar Mar-
ía, „en faðir hennar kann að hafa
verið silfursmiður af þýskum ætt-
um í Björgvin. Það er ekkert vit-
að um ættir hennar og engin út-
litslýsing er til á henni. Hins veg-
ar eru til orðmargar lýsingar á
heitmanni hennar, Níels Fuhr-
mann, hann á að hafa verið glæsi-
menni, hár og fyrirmannlegur,
komið vel fyrir og verið vinsæll
bæði í Danmörku og hér heima.
Við gefum okkur að hún sé um
það bil 25 ára þegar þau koma frá
Björgvin til Kaupmannahafnar
1716, þá hafa þau verið saman í
sjö ár. Hann var líka norskur og
þau voru bæði af svipuðum milli-
stéttaruppruna eftir því sem næst
verður komist. Fjölskylda hans
er ekki aðalborin og þess vegna
er það stórt skref fyrir hann að fá
amtmannsembættið á íslandi. En
hann er gáfaður, metnaðargjarn
og trúr yfir litlu framan af, fyrir
það er honum launað."
Sér hana frá
nútímanum
„Þegar ég vissi að ég fengi hlut-
verkið las ég skáldsöguna Hrafn-
hettu eftir Guðmund Daníelsson,
en þó að hún sé ágæt er Appolon-
ía allt öðruvísi þar en í leikritinu,
eiginlega hálfgerð norn. Sú App-
olonía sem Þórunn skapar í
leikritinu finnst mér aftur á móti
alveg heillandi. Ég sé hana dálítið
fyrir mér út frá nútímanum þó að
aðstæður hennar séu auðvitað
aðrar. Það er ekki eins mikið mál
núna að verða ólétt utan hjóna-
bands. Það er ekki lengur hægt að
láta dæma mann til að giftast sér.
En hvernig málin æxlast að öðru
leyti er afskaplega kunnuglegt.
Hann svíkur hana aldrei gagn-
gert, en þau tímasetja svo margt
illa sem þau gera og segja hvort
við annað, kannski vegna þess að
þau tala aldrei almennilega sam-
an. Hún er fljótfær og afdráttar-
laus, svo mikil tilfinningavera,
hugsar með hjartanu. Þó að það
komi fram í heimildum að hún sé
góður skákmaður þá teflir hún
ekki skynsamlega í einkalífinu.
En henni er sama um allt annað
en hann, embætti, frama, hvar
þau eru á hnettinum - allt nema
það að þennan mann vill hún
eiga.
Hann hugsar hins vegar um
I frama sinn og auðvitað skilur
maður hann vel. Það er verið að
gera hann nokkurs konar konung
yfir íslandi, og þá er framtíðin allt
í einu í stórhættu. Hvað á hann að
gera?
Jafningjar
Þau tala sífellt framhjá hvort
María Sigurðardóttir
öðru, hún ætlar sér eitt og hann
annað, en það sem gerir tog-
streitu þeirra spennandi í verkinu
er að þau eru jafningjar. Hún er
ekki veikari en hann eða undir
hann gefin. Þau standa líka
jafnfætis andlega. Hún er víðsýn
og greind, lítur á alla með sömu
virðingu. En hún er líka haldin
þráhyggju. Hún lætur sér ekki
segjast þegar hann er svona treg-
ur í taumi heldur siglir yfir úthaf-
ið, mætir bara á staðinn og segir
hér er ég! Enda veit hún áreiðan-
lega hvert vald hún hefur yfir
honum.
Eins og ég sé þetta fyrir mér er
hann ekki búinn að glata tilfinn-
ingunum til hennar, hún vekur
honum enn ástríðu, en nú gengur
hún á stolt hans. Aldrei skal dóm-
stóll neyða hann til að kvænast
nokkurri konu þó að hann þurfi
að greiða henni tvo þriðju af
launum sínum þangað til þau gift-
ast.“
En af hverju voru þau ekki
löngu gift?
„Fyrst er hann í námi, svo er
hann í illa launuðu embætti.
Hann ætlar sjálfsagt að koma
undir sig fótunum áður en hann
gengur í hjónaband. Hann er
maður sem ýtir hlutunum dálítið
frá sér í einkalífinu, en í embætti
vann hann mjög gott verk og
þótti afburða yfirvald.
Appolonía vill afgerandi svör,
en þau hliðrar hann sér hjá að
gefa. Er þetta ekki kunnuglegt í
sambúð kynjanna á okkar tím-
um? Karlmenn eru svo oft snjallir
í stöðum sínum á daginn en allt
aðrir heima á kvöldin. Níels veit
aldrei hver næsti leikur verður í
taflinu við Appoloníu og það er
spennandi - en erfitt! Karlmenn
eru skíthræddir við svona konur
enn í dag.
Það er makalaust að fá að leika
í svona magnaðri sögu og skapa
svona stórfenglega persónu á
sviði. Ég hef fundið hana búa um
sig í mér og ég veit að hún vill láta
segja þessa sögu. Appolonía var
hrifin af íslandi og þótti vænt um
þessa þjóð. Hún var líka vel látin
hér þótt ýmislegt hafi verið sagt
um hana fyrr og síðar.“
Silfurmen
um háls
Segja má að leikritið byrji þar
sem heimildirnar hætta, inni í
stofum og svefnherbergjum.
Leikritið er fyrst og fremst túlkun
höfundar á atburðum og persón-
um þó að Þórunn hafi víða aflað
fanga og unnið mikla heimilda-
vinnu. Unnu leikararnir líka ein-
hverja forvinnu?
„ Við gerðum vettvangskönnun
á Bessastöðum, skoðuðum kirkj-
una þar sem þau liggja undir gólf-
inu Níels Fuhrmann, Appolonía
Schwartzkopf og Karen Holm,
og gengum fjöruna. Svo er til á
Þjóðminjasafninu stórt silfur-
hálsmen sem alltaf hefur verið
talið að Appolonía hafi átt, en
það virðist ekki hafa verið notað.
Kannski hefur hún ætlað að bera
það við brúðkaupið sem aldrei
var haldið.
Ég hef oft leikið konur sem
hafa gripið mig, en aldrei jafn
sterkt og nú. Og samvinna allra,
leikara, leikstjóra og allra ann-
arra starfsmanna við sýninguna
hefur verið yndisleg. Sérstaklega
hefur samvinna okkar Þórunnar
verið gefandi, og það er auðvitað
hennar sýn á persónuna sem ég
túlka. Ég veit ekki hvar hennar
endar og mín byrjar. Þetta hefur
verið ótrúlega skemmtileg
vinna.“
Leikhóparnir
gefa tækifæri
María Sigurðardóttir útskrif-
aðist úr Leiklistarskólanum vorið
1983 og hafði fengið mjög góða
dóma fyrir frammistöðu sína í
Nemendaleikhúsinu. Hvað hefur
gerst síðan?
„Ég hef leikið að meðaltali eitt
hlutverk á ári síðan ég lauk skól-
anum. Þar er maður í fjögur ár og
temur sér ákveðinn hugsana-
gang. Við vitum ekkert hvað
tekur við að loknu námi og mað-
ur reynir að verja sig með því að
eiginlega hafi maður áhuga á
ýmsu öðru en að leika. Ég ákvað
að mig langaði að leikstýra og hef
reynt það svolítið. Það er líka
mjög gefandi.
Frá stóru leikhúsunum bárust
fá boð fyrr en í vetur, en Alþýðu-
leikhúsið hélt mér við. Með
seiglu hefur það komið sér upp
stórum áhorfendahópi þótt það
eigi í engin örugg hús að venda og
þar lék ég fín hlutverk, meðal
annars Petru í Beiskum tárum
Fassbinders, Louise í Tom og Viv
og Deborah í Eins konar Alaska
eftir Pinter.
Alþýðuleikhúsið og nýju
leikhóparnir hafa sprottið upp
þegar stóru húsin hafa lítið að
bjóða ungum leikurum. Það er
svo lítil hreyfing á starfsliði þeirra
og svo margir leikarar sem út-
skrifast. Þeir verða að búa sér til
verkefni vegna þess að sköpunar-
þráin deyr ekki þegar maður út-
skrifast þó að atvinnuleysið í
greininni sé mikið.
Það er ekkert markmið að
vinna í ákveðnu húsi. Mitt mark-
mið er að fá að leika góð hlutverk
með góðu fólki, sama hvar það er
sett upp.“
Hvað er brýnast f íslensku
leikhúsi núna?
„Það þarf að veita meira fé til
þess. Fjárskortur ræður alltof oft
ferðinni. Alþýðuleikhúsið og
leikhóparnir þyrftu að fá betri að-
stöðu fyrir sýningar sínar. Svo
finnst mér stundum að það vanti
meiri eldmóð í leikhúslffíð. En ég
er svo full af Appoloníu að ég er
ekki (skapi til að ræða um annað
þessa dagana!" SA
Níels Fuhrman veit aldrei hver næsti leikur Apolloníu er í lífsskák
þeirra.
10.
19M NÝTT HELQARBLA0-SáBA 21