Þjóðviljinn - 10.03.1989, Qupperneq 23

Þjóðviljinn - 10.03.1989, Qupperneq 23
Meðan skynsemin blundar. Óreiðan í veröldinni Sigurður Örlygsson: málverkasýning í FIM-salnum, opið til 13. mars Sigurður Örlygsson fjallar um óreiðuna í veröldinni í verkum sínum. Maðurinn með tól sín og tæki er hjálparvana andspænis yfirþyrmandi óreiðu náttúrunn- ar, og vélarnar og tækin, sem eru eins og tákn skynseminnar, verða fáránleg andspænis þeirri óreiðu sem þeim er ætlað að beisla. Og maðurinn svífur í lausu lofti, kannski með keilu fyrir vitum sér, eins og til þess að undirstrika að það er þetta form skynsem- innar sem byrgir honum sýn. Þetta er þekkt viðfangsefni úr bókmenntum og myndlist. Mér kemur í hug saga ítalska 19. aldar skáldsins Giacomo Leopardi, sem hann kallaði „Samtal íslend- ingsins og náttúrunnar“, og fjall- ar um íslendinginn, sem hafði ferðast heiminn á enda til þess að finna stað þar sem hann gæti búið í sátt og samræmi við umhverfi sitt. í Afríku miðri verður móðir náttúra á vegi hans í líki tröll- aukinnar konu sem studdi oln- boga á fjall og hafði andlit er lýsti af samblandi hryllings og fegurð- ar. Pegar íslendingurinn kemst að því að þessi ógnvekjandi kona er náttúran sjálf ræðst hann að henni með ásökunum fyrir allar þær kárínur sem hún hafði veitt honum: eldgos, hungur og kuldi á íslandi, styrjaldir og pestir í Evr- ópu, skorkvikindi og villidýr í Afríku, stöðugir þurrkar eða fell- ibyljir: hvergi gat hann um frjálst höfuð strokið. Svar náttúrunnar var einfalt og miskunnarlaust: heldur þú að náttúran sé sköpuð fyrir þig? Svar íslendingsins var þá að ekki hefði hann beðið um að fæð- ast í þennan heim. Það hefði hins vegar gerst fyrir tilverknað og vilja náttúrunnar, og ber henni þá ekki skylda til þess að koma í veg fyrir kvalir og tortímingu síns sköpunarverks á sama hátt og gestgjafinn ber ábyrgð á velferð sinna gesta? Eða hver er ábyrgð mannsins? Hverjum er þetta líf þóknanlegt, sem merkt er þján- ingu, tortímingu, hnignun og dauða? Á meðan íslendingurinn var að koma þessum kvörtunum á framfæri við móður náttúru komu Ijónin og átu hann. Aðrir segja að sandstormur hafi blásið hann í kaf og gert hann að múm- íu, sem seinna fannst við upp- gröft og hafnaði á vísindasafni einhvers staðar í Evrópu. Ástæðan fyrir því að Leopardi nefndi persónu sína íslending var sú, að hann hafði lesið í „Sögunni af Jenni“ eftir Voltaire að fáir staðir á jörðinni byðu upp áöm - urlegri tilvist fyrir manninn en ÓLAFUR GÍSLASON einmitt ísland. Þetta þema, sem reyndar kem- ur einnig fyrir í Birtingi Voltair- es, er einnig þekkt úr myndlist- inni. Og koma þá í hugann tveir myndlistarmenn sem Sigurður Örlygsson hefur greinilega sótt hugmyndir til: danski svartlistar- maðurinn Palle Nielsen og þýski dadaistinn og súrrealistinn Max Ernst. Óreiðan í verkum Palla Nielsen er reyndar ekki komin frá móður náttúru, heldur eru verk hans eins og martraðar- kennd ganga í gegnum myrkviði stórborgar og tækni þar sem manneskjan er máttvana fórnar- lamb ómennskra afla. í sam- klippimyndum Max Ernst, sem minna um margt á málverk Sig- urðar, er hins vegar dýpra kafað í sálarlíf mannsins, og ógnin sem að honum steðjar á sér ekki síst rætur í hans eigin sálarlífi. Þess vegna eru myndir Max Ernst bæði meira sannfærandi og hrollvekjandi, auk þess sem þær bjóða upp á fjölbreytilega túlk- un. En þar sem við sjáum mann- inn svífa um hjálparvana með tól sín og tæki í óreiðu náttúrunnar í myndum Sigurðar Örlygssonar, þá er ekki nema eðlilegt að spurt sé með íslendingnum í sögu Le- opardis: hver ber ábyrgðina á þessum ósköpum, hvaða grimmdarvilji liggur hér að baki? Eða þá að við tökum undir með Náttúrunni og spyrjum: heldur þessi hjálparvana íslendingur með sín hjákátlegu tól kannski að veröldin hafi verið sköpuð fyrir hann? Myndlist Andlits- myndir Ragnar Lár opnar sýningu á andlitsmyndum í Innrömmun Sigurjóns, Ármúla 22, á mánu- daginn. Sýningin er opin á venju- legum verslunartíma alla vikuna. Myndirnar eru af þekktum pers- ónum, þar á meðal helstu stjórnmálahöfðingjum landsins, svo og Bryndísi Schram, Halldóri Laxness og Hófí. Ein af myndum Ragnars Lár. Gettu hver hann er? EPTA Píanótónleikar Á mánudagsvöldið 13. mars verða píanótónleikar á vegum EPTA, Evrópusambands píanó- kennara. Það er Guðmundur Magnússon sem leikur Sónötu op. 22 eftir Beethoven, Barcar- olle og Ballöðu nr.l eftir Chopin, Estampes og L‘Ile joyeuse eftir Debussy, Pavane og Alborada del Graziozo eftir Ravel. Tónleikarnir verða í íslensku óperunni og hefjast kl. 20.30. Steinunn Sigurðardóttir Tímasóunar- verksmiðjan íslendingar eru mikiö fyrir aö fjárfesta, bæöi sem þjóð og sem einstaklingar. Ein af ástæðunum til þess að jafnvel blómlegustu fyrirtæki eru sí- fellt aö fara á hausinn er of- fjárfesting og það er jafnframt ein af skýringunum á því aö þjóðarbúið stendur svo tæpt. En eitt er það sem íslend- ingar hafa ekki vit á að fjár- festa nógu mikið í, og það er æska landsins, menntun hennar og uppeldi, og sá skortur á fjárfestingu kann að verða þjóðinni dýr áður en yfir lýkur. Eftir því að dæma sem ég hef séð tilsýndar á síðustu árum þá er stór hluti af ung- viðinu- í landinu í reiðuleysi, bæði innan skóla og utan. Foreldrar eru oft svo upptekn- ir af vinnu sinni, að þeir hafa lítinn tíma til þess að sinna börnunum. Og ekki verður betur séð en allt of margir ís- lenskir grunnskólar séu tíma- sóunarverksmiðjur þar sem börn og unglingar læra ekki að læra heldur að slæpast og svíkjast um. Kennari sem ég hef átt tal um þetta við segir að agavandamálið í efri bekkj- um grunnskóla sé slíkt að í ' mörgum bekkjum náist at- hygli nemenda ekki lengur en í fimm mínútur í senn. „Þarftu þá að segja sama hlutinn tvö- hundruð sinnum?" spurði ég. „Ég gefst stundum upp eftir fimmtugasta skipti," sagði hann og bætti við að ef hann væri með réttu ráði væri hann fyrir löngu búin að fá sér aðra vinnu. Það þarf ekki mikið ímynd- unarafl til þess að skilja að það er óþolandi andrúmsloft á vinnustað þar sem enginn vinnufriður er, og þannig eru skólastofur þar sem hver kjaftar upp í annan og enginn gerir það sem ætlast er til af honum. Enda sagði þessi við- mælandi minn að það leiddist öllum óendanlega í tímum, bæði kennurum og nemend- um. Og hann sagði að sig furðaði mest á því að skólafé- lagarnir næðu ekki einu sinni athygli þegar þeir kæmu inn í bekkina til þess að tala um félagsmál. Það er að sjálfsögðu ekki hægt að kenna skólakerfinu alfarið um hvernig komið er. Það sem skólarnir fá í hendur eru meira og minna óuppalin börn sem hafa verið í reiðu- leysi frá því þau muna eftir sér. Þessi saga er kunnari en frá þurfi að segja: Þróunin hef- ur orðið sú að báðir foreldrar vinna úti allan daginn. Skólinn stendur hins vegar ekki yfir nema í nokkra klukkutíma, og útkoman er sú að börnin eru á eigin vegum hálfan daginn. Það hlýtur að vera skylda þjóðfélagsins að búa betur en þetta að börnunum. Þegar börnin eldast er algengt að foreldrarnir fá ekki að skipta sér af því sem þau hafast að, og reyna það kannski ekki einu sinni. Það er því ekki von að hægt sé að tjónka við börn- in í skólanum, svo vön sem mörg þeirra eru agaleysi heima fyrir. Viðmælandi minn, sem ég Vitnaði í hér áðan, var á þeirri skoðun, að vandinn væri svip- aður í skólunum hvar sem borið væri niður og hann sagði að ástandið hefði hríð- versnað á síðustu tíu árum. Þó virðist svo sem það takist sums staðar að haida uppi sæmilegum aga og nýta tím- ann til þess að læra. Kunn- ingjakona mín sem var í kennslufræði í háskólanum heimsótti einn af grunnskól- unum á höfuðborgarsvæðinu nokkrum sinnum í tengslum við það nám, og hún talaði um þann góða anda sem í skólan- um ríkti. Þar virtu nemendur aga- og umgengnisreglur og sérstakur myndarbragur var yfir öllu innan stokks. Þá gaukaði hún að mér þeim fróðleik að þarna væru með- aleinkunnir hærri en í öðrum skólum, en bætti við að það mætti ekki tala of mikið um það. Úr því að þetta er hægt í einum skóla, þá hlýtur að vera hægt að bæta ástandið ann- ars staðar. Börnin eiga heimtingu á því, framtíðar sinnar vegna, að skólarnir séu góðar stofnanir, og þjóðin á heimtingu á því, framtíðar sinnar vegna, að börnin fái góða menntun. Ég hef ekki svarið við því hvernig á að bæta skólana, en það hljóta þeir að vita sem starfa í menntunargeiranum. Því mið- ur nær mitt innlegg í um- ræðuna ekki mikið lengra en að hrópa upp: Það er eitthvað mikið að! í guðs bænum geriði eitthvað í þessu! Föstudagur 10. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.