Þjóðviljinn - 28.04.1989, Síða 14

Þjóðviljinn - 28.04.1989, Síða 14
úr vist 1818 í nýgerðum BSRB- samningum er ákvæði um að ekki megi segja óléttum kon- um upp vinnu. Úrþví verið er að setja slíkt í samningá núna, hvað eigum við að halda um réttarstöðu vanfærra kvenna fyrr á öldum? Gátu húsbænd- ur ef til vill sparkað óléttum vinnukonum út í blindbyl og frosthörkur? Gerðu þeir það? Orðalagið á spurningunni er kannski fullgróft og reyndar getum við ekki svarað henni almennt frekar en flestum spurningum sem einhverju máli skipta. Það voru til harð- úðugir bændur sem gerðu sitt ítrasta til að losa sig við vinnu- konur sem urðu óléttar, en það voru líka til hjartagóðir menn sem datt það ekki í hug. Við ættum að átta okkur betur á þessu með því að skoða dæmi úr Skagafirði árið 1818 sem talsverðar heimildir eru til um vegna þess að upp kom ágreiningur á milli hreppa um framfæri móður og barns. í byrjun 19. aldar átti óskilget- ið barn rétt á framfæri í þeim hreppi þar sem móðirin átti lögheimili þegar það fæddist. Það breytti engu þó móðirin væri á ferð eða í heimsókn í öðrum sveitum þegar hún átti barnið. í riti sínu Handbók fyrir hvern mann frá árinu 1812 taldi Magnús Stephensen að þetta væri eðlileg regla vegna þess að ef fæðingar- staður yrði látinn ráða myndi það leiða til þess að óráðvandir hús- bændur og ágjarnir hreppstjórar sendu óléttar konur í aðra hreppa „til að fæða þar börn á þessara skaut, sem væri mjög svo rang- látt.“ En hvernig áttu bændur að bregðast við ef stúlka kom ólétt í vist að vori? Magnús hafði líka skoðanir á því og til þess að út- skýra þær fyrir ráðamönnum í Kaupmannahöfn skrifaði hann stutta dæmisögu handa þeim haustið 1820. Einu sinni var fá- tækur bóndi sem átti mörg börn. Eiginkona hans var veikburða og lasin, yfirkomin af þreytu vegna uppeldis svo margra barna. Dýrt var að halda vinnukonu og fátækt þessa fólks leyfði þeim ekki að ráða nema eina til sín í vist. í október eitthvert árið samdi bóndi við stúlku úr nálægri sókn eða sýslu. Á fardögum vorið eftir, 14. maí, kom hún í vistina. Hún var þá með barni en sagði ekki frá því. Mánuði síðar fór bónda að gruna hið sanna í mál- inu vegna þess hve lin hún var til allra verka. Hann innti hana al- varlega eftir því hvort hún væri ólétt, en hún neitaði því staðfast- lega að svo gæti verið. Mánuði síðar var hún farin að þykkna svo um munaði undir belti og eftir ítrekaðar yfirheyrslur játaði hún og var sagt upp vistinni. Hrepp- stjóri sá þvínæst til þess að hún var send heim. Þetta taldi Magn- ús að væri eðlileg aðferð og hon- um fannst óréttmætt að skylda bóndann að sjá fyrir vanfærri vinnukonu í marga mánuði eftir að hún var orðin ófær um að vinna fyrir sér við búfjárgæslu, heyskap, mótöku, fiskverkun og fleira. Atti að refsa saklausum bónda fyrir veiklyndi vinnukonu sem hann þekkti ekki neitt? Hún kom ólétt í vistina og sagði ekki orð, átti hann að gjalda sviksemi hennar? Hað þótti Magnúsi ekki rétt, en skoðum raunverulegt dæmi: Fæðing í vændum Ragnhildur Bjarnadóttir fædd- ist að Stóru-Örkum í Blönduhlíð 28. ágúst 1793. Hún var dóttir Bjarna Einarssonar bónda og blóðtökumanns og konu hans Ástu Björnsdóttur. Ragnhildur var um tíma vinnukona hjá Ara Arasyni lækni á Flugumýri, austan Héraðsvatna. Vorið 1817 fór hún í kvennaskiptum að Geitaskarði í Langadal, en kom aftur í Skagafjörð vorið eftir. Þá var hún ráðin til Skúla Guð- mundssonar á Brekkukoti í Lýt- ingsstaðahreppi, vestan Héraðs- vatna. Þá var hún 24 ára. Þegar Skúli sótti hana að Geitaskarði mun Lilja húsmóðir hennar þar hafa laumað því að honum að lík- lega væri Ragnhildur með barni og fljótlega eftir að hún var kom- in að Brekkukoti hófst upp orð- rómur í sveitinni um að hún væri ólétt. Skúli spurði hana hvað eftir annað hvort orðrómurinn væri á rökum reistur, en hún neitaði því statt og stöðugt. Heldur þótti honum hún linast til verka eftir því sem leið á sumarið og loks var það 25. júlí að hún viðurkenndi það fyrir honum að hún ætti von á barni. Hann tilkynnti henni þá umsvifalaust að hún yrði látin fara. Um kvöldið gekk hann til Tómasar Tómassonar hrepp- stjóra á Nautabúi, sem síðar sagði svo frá að Skúli hefði komið til sín og mælt þessum orðum: „Hvað á nú að gjöra við Ragn- hildi? Nú er hún ekki vinnukona mín lengur, því nú er hún búin að meðkenna að hún sé ólétt!“ Tóm- as sagðist ekki vita hvað ætti að gera, en hét því að skrifa Jóni Espólín sýslumanni og bað Skúla að „lofa henni að vera meðan á svarinu stæði, ekki sem hjú held- ur sem kaupakonu.“ Skúli gegndi því og fór heim að svo búnu. Brottvísun lögleg Tómas skrifaði sýslumanni, en lítið var um að fólk færi á milli bæja um hábjargræðistímann og úrskurð sýslumanns fékk hann fyrst mánuði síðar. Espólín hafði þá ákveðið að „með því að Ragn- liildur dóttir Bjarna á Hafgríms- stöðum á nú hvergi lögheimili getur hennar barn einskis hrepps orðið í tilliti til þess fæðingarstað- ar, svo sem og henni hefur strax sem vitanlegt var að þunguð væri verið útvísað úr þeirri nýju vist, samkvæmt Intrúxins tólfta pósti.“ Espólín var því sömu skoðunar og Skúli húsbóndi hennar og samþykkur því að vegna óléttunnar hefði hún fyrir- gert rétti sínum til að vera áfram í vinnumennsku á Brekkukoti. Jafnframt skipaði sýslumaður að Ragnhildur færi á sinn fæðingar- hrepp og það var Akrahreppur. Tómas á Nautabúi tók þessu feg- ins hendi og var ekki lengi að senda hana yfir Héraðsvötn. Þar fékk hún heldur óblíðar mót- tökur hjá Jóni Erlendssyni hreppstjóra á Silfrastöðum. Hann túlkaði úrskurð sýslu- manns á þá leið að Ragnhildur ætti að vera hjá föður sínum, sem þá bjó á Hafgrímsstöðum í Lýt- ingsstaðahreppi. Bjarni var fús til að taka við henni, en Tómas tók það ekki í mál vegna þess að þá fengi barnið sveitfesti í hreppn- um. Jón vildi hins vegar ekki una því að barn Ragnhildar fæddist í Akrahreppi og yrði fátækrasjóði þar til byrði um ókomin ár og reyndi að lauma henni að Haf- grímsstöðum. Tómas komst að því og stöðvaði þá fyrirætlun. Samningar tókust 7. september, á þá leið að Ragnhildur mætti vera hjá föður sínum um tíma. Þó skyldi Lýtingsstaðahreppur ekki hafa 'nein útgjöld af þeirri dvöl, auk þess sem Ragnhildi bar að fara yfir í Akrahrepp aftur fá- einum vikum áður en barnið fæddist. Eitthvað fór úrskeiðis og líklega fékk Ragnhildur aldrei að fara til föður síns, því enn risu deilur á milli hreppstjóranna og þeir kröfðust þess báðir að sýslu- maður dæmdi um lögmæti þess að Ragnhildi var sagt uþp. Jón á Silfrastöðum taldi að ekki hefði verið rétt að málinu staðið vegna þess að engin vitni voru að sjálfri uppsögninni. Það var skoðun hans að Ragnhildur hefði átt að vera í vistinni út fardaga þareð tveir mánuðir liðu frá því hún kom í vistina þangað til henni var vísað burt. Tómast taldi aftur á móti að vegna þess að hún leyndi óléttunni hefði mátt vísa henni burt um leið og hún viðurkenndi óléttuna. Sýslumaður var sam- mála Tómasi og dæmdi að Reykjum 31. október 1818: „svo skal Ragnhildi með sínu sumar- kaupi til Akrahrepps rétt vísað.“ Aðrar skoðanir í fyrstu lotu hafði Tómas betur og það fer ekki á milli mála að hann hafði lögin með sér. í reglu- gerð fyrir hreppstjóra frá árinu 1808 er nefnilega að finna ský- laust ákvæði um að húsbóndi mátti segja vinnukonu upp vist ef hún kom ólétt á bæinn. Kæmi vinnukona ólétt og húsbóndi vildi ekki halda henni var honum frjálst að losa sig við hana. Það varð þó að gerast innan viku eftir að það varð uppvíst. Væri það ekki gert innan þess tíma gátu þær verið í vistinni til næstu far- daga. Bændur höfðu því aðeins viku til að gera upp hug sinn: með vísvitandi haldi óléttra kvenna degi lengur höfðu þeir afsalað sér rétti til að reka þær. Og ef hús- bóndi rak vinnukonu vegna óléttu var hreppstjórum stætt á því að flæma þær í burtu úr hreppnum, nema þær ættu lögheimili í sama hreppi. Hefði Ragnhildur átt sveit í Lýtings- staðahreppi hefði Tómas ekki getað rekið hana burt. En það voru alls ekki allir sam- mála þessari brottrekstrarreglu og mikil þræta reis af máli Ragn- hildar. Hvatamaður að því var Stefán Þórarinsson amtmaður, en af einhverjum ástæðum lagði hann ofurkapp á að hnekkja úr- skurði hálfbróður síns Jóns Espó- líns. Þeir voru ekki miklir vinir. Stefán byrjaði á því að vísa mál- inu til Landsyfirréttar í Reykja- vík. Þar var því vísað frá um sumarið vegna þess að stefna barst of seint. Stefán lét þó ekki deigan síga og fékk málið tekið fyrir í Hæstarétti og í nóvember 1821 ógilti Hæstiréttur dóm Espólíns, án þess þó að geta þess hvað koma ætti í staðinn. Þá hafði Stefán líka skrifað langt og mikið bréf til Kansellís og lýst hræðilegum afleiðingum þess að vinnukonur væru reknar úr vist. Sá hreppur sem þær áttu heimili í sagði hann að lægi oft víðs fjarri og það leiddi til þess að hin ólán- sama kona yrði að þvælast langar leiðir heimilislaus og atvinnu- laus, oft um hávetur á hinu harð- býla íslandi. Meira að segja taldi Stefán að þess væru dæmi að kon- ur yrðu úti og létu lífið á píslarg- öngu til síns heima. Til þess að ráða bót á þessu lagði hann til að sett yrðu lög sem bönnuðu bænd- UPPBOÐ Ósóttar vörur sem komu til landsins 31. desember 1986 eða fyrr verða boðnar upp á almennu uppboði þann 27. maí 1989. í Tollhúsinu v/Tryggvagötu kl. 13:30. FLUGLEIDIR fií Fmkt AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKl RTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1983-2. fl. 01.05.89-01.11.89 kr. 370,85 1984-3. fl. 12.05.89-12.11.89 kr. 366,74 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, apríl 1989 SEÐLABANKIÍSLANDS 14 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. apríl 1989’

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.