Þjóðviljinn - 28.04.1989, Síða 24

Þjóðviljinn - 28.04.1989, Síða 24
Brot úr umræðu um gagnrýni Um síðustu helgi var haldið í Norræna húsinu málþing um listog listgagnrýni. Þettavar samnorænn málfundur um allar listgreinar og þá allar tegundir listgagnrýni og má nærri geta að menn höfðu um nóg að tala Svo margar spurningar Enginn ætti að gera sér miklar vonir með slíka ráðstefnu. Vegna þess blátt áfram að hún hlýtur að spyrja margra spurninga og stórra og við mörgum þeirra fást engin svör sem samkomulag verður um. Hver og einn getur snarlega komið sér upp lista og bætt lengi við hann. Til dæmis: Er ekki nauðsynlegt að tónlistar- gagnrýnandi geti sjálfur spilað á hljóðfæri? (enginn mun hinsveg- ar spyrja hvort balletrýnir eigi að geta dansað Dauða svansins). Er hægt að treysta myndlistarmanni til að skrifa um aðra myndlistar- menn? Er gagnrýnandinn smekk- maður eða fræðimaður eða lista- maður fyrir sinn hatt? Eða er hann fyrst og síðast góður blaða- maður? Og góður blaðamaður - er hann ekki stórhættulegur þar sem hann veður um með glæsi- lega og vel söluhæfa sleggjudóma til að vekja athygli á sjálfum sér? Og svo framvegis. Og þó held ég enginn hafi spurt hvort gagnrýnandinn væri ekki mis- heppnaður listamaður sem klif- aði á því að vínberin, sem eru utan hans seilingar, væru súr. Eitthvað miðar okkur þá áfram frá því sem áður var. Svo kom- ast menn kannski að þeirri niður- stöðu að gagnrýni sé ómöguleg (af því það vantar tíma, pláss, heiðarleika, sérþekkingu, já- kvæð viðhorf eða af því að menn eru svo ólíkir hver öðrum). En samt verði hún að vera. í þeirri þverstæðu miðri ætla menn sér að lifa. Og skrifa - meðan pappír er til að prenta á. Þegar kenning gerist frek Eitt af því sem gerir það að verkum að erfitt er að koma orðaböndum yfir gagnrýnina er það, að hún stendur vitanlega ekki í stað frekar en listirnar. Þar rísa og hníga skólar og hver skóli á sér gáfaða jafnt sem heimska talsmenn. Stundum eru gagnrýn- endur (við skulum héðan í frá halda okkur mest við bók- menntagagnrýnendur okkur til hægri verka) nokkuð svo „frekir“ ef svo mætti að orði komast. Þá hafa bókmenntarýnar fundið sér einhverja kenningu eða einhvern tilgang, sem þá dauðlangar til að sveigja bókmenntirnar undir, eða eins stóran part af þeim og þeim er framast unnt. Einn skólinn hefur mestan áhuga á kúgun alþýðu til dæmis, annar á kúgun kvenna, hinn þriðji á manneskjunni andspænis til- gangsleysinu, hinn fjórði segir að engin upplifun sé sterkari en sú, að barn þurfi að yfirgefa móður sína og haldi út í grimman heim. Þessi áhugamál geta verið svo sterk, að gagnrýnandinn gæti varla neins annars en að sjá stað- festingu á þeim í nýjum og gömlum skáldverkum: bók- menntirnar breytast í dæmasafn fyrirþjóðfélagsrýnandann, kven- réttindakonuna, sálfræðinginn eða þá tilvistarspekinginn. Til ills og góðs Á þessum brautum hafa mörg ævintýri gerst. Hinir kappsömu gagnrýnendur hafa sumir skotist upp í glæsilegar hæðir með leit sinni að samhengi í tilverunni, aðrir hafa súnkað ofan í verstu lágkúru eins og gengur. Með öðr- um orðum: þetta getur verið hættuspil. En hefur þann kost samt, að þegar oftúlkanir gerast mjög frekar, þegar „skólinn" sker verkin mjög grimmt til að þau passi inn í hans ramma, þá verða menn gjarna reiðir og sárir og rísa til andmæla. Upp kemur bókmenntaumræða. Og við ætl- um að leyfa okkur að vona að hún sé af hinu góða í þeirri grimmu samkeppni sem háð er um athygli fólks út um allan fjölmiðlaheim- inn. Þó er eitt að varast í þessu samhengi. Það getur gerst (og' ýmsar nýlegar tímaritsgreinar ís- lenskar minna á þann háska), að myrkt og tyrfið tungumál bók- menntafræðanna (eða tónlistar- fræða og myndlistarfræða) geri sig mjög breitt í skrifum. Jafnvel sjóaðir lesendur og sæmilega vel áhugasamir klóra sér í skalla og komast ekkert áfram. Og ef þeir hafa brotist í gegnum um myrk- viði sérheita af nýjustu kynslóð, þá dæsa þeir og spyrja: var þetta allt og sumt? Og reyna ekki aftur. Umræðan skrúfast niður í trekt þar sem æ færri sérfróðir komast fyrir. Einhvernvegin fannst mér á þessu málþingi að menn hefðu ekki nóg hugann við það, að það er ein besta dyggð þess sem skrif- ar um listir og bókmenntir að tala skýrt. Þeir tímar koma líka, að al- tækar kenningar um bókmenntir eru í ónáð yfir höfuð. Þegar svo er komið fara menn, viljandi eða óviljandi, að leggja áherslu á það, að hvert listaverk sé einstakt í sinni röð og hver viðtakandi þess jafn sjaldgæfur fugl sjálfur. Og svo rifja menn upp fyrir sér einhverskonar jafnaðar- mennsku: erum við ekki öll jöfn fyrir guði, lögunum og kjörköss- unum? Hví ekki andspænis lista- verkum og bókum einnig? Með öðrum orðum: allt er orðið að einkamáli. Mín skoðun er jafngóð og þín og hvers annars. Á íslandi bæta menn sem svo hugsa gjarna við þessu hér (með nokk- uð ógnþrungnu fasi): enginn skal segja MÉR hvað er gott eða lak- legt. En ef menn nú tækju þetta bókstaflega þá er alveg eins gott að gefa hugmyndir um gagnrýni sem umræðugrundvöll, sem sam- skiptavettvang, upp á bátinn. Milliliðirinir eru óþarfir. Hver maður sinn gagnrýnandi. Hjálparkokkar — með fyrirvara Það er svo sem ekkert að því að hver maður sé sinn gagnrýnandi. Það erum við alltaf þegar við t.d. lesum bók. En við viljum væntan- lega hafa gagnrýnendur með í okkar eigin menningarstússi þó ekki væri nema til að spara okkur tíma. Við viljum að þeir fari á undan eins og spæjarar, lesi og veiti okkur upplýsingar um það hvað er á seyði. Vekji forvitni okkar á því að lesa bók (sækja sýningu osfrv.). Eða gefi til kynna, að með því að enginn get- ur lesið allt, þá skuli menn heldur lesa þetta en hitt. Ekki úr vegi heldur að gagnrýnandinn segi frá einhverju sem hann hefur séð í verki, sem ekki liggur í augtlm uppi. Og svo framvegis. Það er hægt að brúka andskotans gagnrýnandann til margra hluta. Og svo vitum við það öll af reynslu, að hvert okkar velur sér þá gagnrýnendur sem hann tekur mark á, en ypptir öxlum yfir hin- um. Málið er reyndar ekki svo einfalt: það getur litið út til dæmis svona: ég tek mark á X þegar hann skrifar um A, en hann hefur aldrei botnað neitt í B. Og svo framvegis. Velvild í þágu bóka? Ég ætla að taka það fram, að ég er ekki með neina kenningu um gagnrýni á boðstólum. En kannski er ekki úr vegi að fara með nokkur orð um praxísinn. Bókmenntaskrif á Islandi hafa á seinni árum (og ekki bara á seinni árum) mótast mjög - hvað sem einstakir rithöfundar segja - af einhverri ekki sérlega ástríðu- mikilli allsherjarvelvild í garð bókmennta. Okkur var öllum sagt fyrir nokkrum árum, að bók- in væri í hættu og þar með var þjóðin sjálf komin fram á hengi- flugið og voðinn vís. Og það stilltu allir saman krafta sína til að lyfta Bókinni. Gagnrýnendur líka. En kannski fór fyrir þeim eins og fílnum, þegar hann átti að lyfta sovéskum landbúnaði? (Fíllinn kviðslitnaði). Hvað á ég við með því? sjáið til: menn hafa skrifað af velvild um íslenskar bókmenntir í þeim mæli að það nálgast samsæri um að það sé gott og þakkarvert að við höldum áfram að skrifa bækur. Þetta þýðir að menn hafa of sjaldan lagt á sig þá ein- beitingu, þá ósérhlífni, sem fylgir áleitnari skoðun verkanna - nið- urstaðan er m.a. sú að menn sýna full mikinn slappleika í því að greina á milli þess sem máli skiptir og þess sem litlu varðar. Mögulegum lesenedum hefur verið haldið í meiri vongleði en efni stóðu til Tilgangurinn og allt hitt Líklega hefur það og verið full- algengt í daglegum gagnrýniprax- ís á Islandi að menn skrifuðu í anda „hins rauða þráðar“ sem svo er nefndur í umræðunni. M.ö.o.: menn hafa mjög hugann við tilgang höfundar, hvaða merkingu hann vill gefa verki sínu, hvaða erindi hann vill reka. Og missa kannski sjónar af þeim gömlu sannindum að „góð meining enga gerir stoð“, að hvað sem „tilgangi" höfundar líð- ur (og vissulega skiptir hann máli), þá er niðurstaðan, verkið sjálft, eitthvað annað. Verkið gengur aldrei upp í tilganginum. Að þessu var reyndar vikið í inn- gangserindi Atla Kittangs að bókmenntaþætti málþingsins í Norræna húsinu, og þessir hlutir voru með nokkru lífi í þeirri um- ræðu sem á eftir fór. Verkin í endanlegri gerði sinni skila sér til okkar með þverstæðum margs- konar innanstokks, með spurn- ingum sem ekki er svarað (og ekki er hægt að svara) og þar fram eftir götum. Það er á þess- um þverstæðum og mótsögnum (t.d. milli tilgangs og þess sem dregur réttmæti tilgangsins í efa, brýtur hann niður) sem gagnrýnandinn fitnar eins og púki á fjósbita. Þar sækir hann tilefni - til að glíma við sjálfan sig, eða höfundinn, eða gátu verksins - þótt það sé eins víst að gátan hafi flutt sig um set um leið og hann þóttist búinn að hreppa hana.Énda eins gott. HELGARPISTILl! 24 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. apríl 1989 ÁRNI BERGMANN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.