Þjóðviljinn - 28.04.1989, Page 25
DÆGURMÁL
HEIMIR
PÉTURSSON
Sykurmolar
undirrita sálusölu
í gær undirrituðu Sykurmol-
arnir samning við breska útgáfu-
fyrirtækið One Little Indian og
höfðu hljómsveitarmeðlimir það
á orði við undirritun að þar með
hefðu þeir selt sálu sína. Samn-
ingur Sykurmolanna er þó, að
mati lögfræðings þeirra, sérstak-
ur fyrir það „listræna frelsi“ sem
Sykurmolunum er tryggt. Að
jafnaði fá Sykurmolarnir 21% af
þeim hagnaði sem verða kann af
list þeirra en til samanburðar fær
Paul McCartney 15% sem þykir
mjög gott. Þeir skuldbinda sig til
að gefa út 6 plötur á næstu 10
árum og ekkert nema geðveiki
hljómsveitarinnar eða 60 daga
hvarf Dereks Birkett frá One
Litle Indian, getur leyst molana
undan því að vera „full time ent-
ertainer“.
Samskipti Sykurmolanna við
Derek „Indjána“ hlýtur að teljast
nokkuð gott miðað við bransann.
Hann hafði til að mynda gert
samning við molana áður en
fyrsta 12“ plata Sykurmolanna
kom út en samþykkti að rifta
honum svo molarnir gætu gert
hagkvæmari samning. En að sögn
Þórs Eldon var gamli samningur-
inn ekki mjög hagkvæmur mol-
unum.
Upptökum á nýjasta afkvæmi
Sykurmolanna er lokið og er
platan í hljóðblöndun og vinnslu
erlendis um þessar mundir. Ein-
stakir Sykurmolar hafa ekki
komið sér saman um nafn á
gripnum og liggja tillögur í nefnd,
eins og margt annað hjá Smekk-
leysu, að sögn molanna. En þær
hugmyndir sem fram hafa komið
eru: „Murder and Killing in
Hell“, sem er hugmynd frá
Braga. Þrátt fyrir ofsa nafnsins
segja molarnir að nýja platan sé
ekki þungarokksplata þó Bragi
hafi ítrekað verið beðinn um að
koma fram nakinn að ofan á tón-
leikum. Aðrar hugmyndir eru:
„Suffering Sucks“, “Time to
Suffer“ og „Átök, hneyksli og
nekt“, en það nafn yrði þá fengið
að láni frá súríalistasýningu sem
var í Gerðubergi.
Björk tilkynnti að hljómsveitin
hefði áhuga á að stela slagorðinu
„Heimsyfirráð eða dauði“ frá
Smekkleysu en það mál er í
nefnd.
Sykurmolarnir spiluðu af
hljóðsnældu eitt nýju laganna á
blaðamannafundi í gær. Að
teknu tilliti til hljómflutnings-
tækjanna hljómaði lagið ágæt-
lega, en þar notar hljómsveitin í
fyrsta skipti „brass" að sögn
Braga og sá Ólafur Gaukur um
útsetningu á þeim kafla, ef marka
má yfirlýsingar Sigtryggs. Þór
Eldon trúði undirrituðum fyrir
því að sér þætti nýja platan betri
en „Lifes to Good“.
Einar Örn sagði samningin við
One Litle Indian tryggja að
Smekkleysa geti haldið áfram út-
gáfustarfsemi. Þetta eru vissu-
lega góðar fréttir því Smekkleysa
hefur staðið að mörgum forvitni-
legum útgáfum. í ár hefur útgáf-
an staðið að baki útgáfu Langa
Sela og skugganna. Með haustinu
koma síðan út plötur með tónlist-
inni úr leikriti Sjóns „Tóm ást“,
plata frá Risaeðlunni, Bless og
safnplata með öllu því sem
Smekkleysa hefur gefið út. Þá er
von á plötu frá Bootlegs sem á að
heita „Klósettskrímslin" og inni-
heldur 30 lög. Einnig er lofað að
gefa út 12“ plötu með Ham, þar
sem m.a. verður að finna gamla
Abba lagið „Voulez vous“.
Smekkleysa gleymir heldur
ekki bókmenntunum og hefur á
prjónunum að gefa út drengja-
sögur eftir Jón Gnarr og ritsafn
sem á að vera einhvers konar
samantekt á skrifum Einars Arn-
ar.
Frá Tunglinu
út í heim
Tónleikar Sykurmolanna og ann-
Sykurmolarnir við undirritun
samnings við One Litle Indian.
arra sem áttu að vera í Tunglinu á
síðustu helgi, verða í kvöld og
annað kvöld. En þeir féllu niður
um síðustu helgi vegna veikinda.
Með þessum tónleikum hefst
heimsreisa Sykurmolanna.
Hljómsveitirnar Bless og Ham
munu hita upp fyrir molana og
Jón Gnarr mun lesa upp úr
drengjasögum sínum.
Héðan halda Sykurmolarnir til
Evrópu. ÞeirverðaíSovétríkjun-
um í maímánuði, á tvennum tón-
leikum í Kiev þann 22. og 23.
maí, í Moskvu 25. og 26. maí,
Leníngrad 28. og 29. maí og í
Tallin þann 31. maí. í Júní halda
molarnir síðan á vit hamborgara-
þjóðarinnar og spila vítt og breitt
um Bandaríkin. I ágúst ætla mol-
arnir að vera heima á íslandi en
halda svo út á leið aftur í sept-
ember og byrja þá í Bretlandi um
það leyti sem nýja platan kemur
út.
-hmp
Menn halda vart vatni
Gagnrýnendur erlendir halda
vart vatni yfir nýju plötu hljóm-
sveitarinnar Win, „Freaky Trigg-
er“. Þannigbyrjareinn dómurinn
á spurningunni: Hvernig lýsir
maður fullkomnri plötu? Annar
lýsir laginu „Truckee River" sem
stórkostlegustu fjórum mínútun-
um í sögu siðmenningarinnar.
Undirritaður getur tekið undir
með þessum erlendu skrifurum
að „Freaky Trigger" sé góð plata,
þó ekki sé tekið eins djúpt í árinni
og flestir þeirra gera. „Freaky
Trigger" er fersk og skemmtileg
og það kemur ekki fyrir nema
nokkrum sinnum á ári að fram
komi plata sem maður hefur eins
gaman að í heild og þessari. Lög
eins og „Love units“ og „Taboo“
eru pottþétt og koma til með að
lifa lengur en vikuna.
Galdurinn á bak við „Freaky
Trigger" er að lagasmiðurinn Da-
vey Henderson sækir áhrif víða
og er ekkert að fela það. Þannig
segir einn skrifari að platan sé
„ævintýri um þjófnað, brjálæði
og snilligáfu". „Freaky Trigger"
er að mörgu leyti eins og flóra
rokksins allt frá seinni hluta sjö-
unda áratugarins og fram á okkar
dag. Afturgengnir á plötunni eru
menn eins og Marc Bolan, David
: þeirra, sem
~ í sem áhrifa-
vandlætingu
'reaky Trig-
iti eru slíkar
Ear. í tónlist-
Bowie og Prince. En það er ein-
mitt þessi skemmtilega blanda af
Prince og Bowie sem gerir „Fre-
aky Trigger" að þeim sérkenni-
lega grip sem hún er. Að margra
mati kvaddi Bowie rokkheima
með „Scary Monsters" sem kom
út 1980. Á þeirri plötu var gítar-
leikur í sérflokki sem Win grípur
traustataki og blandar röddum í
ætt við þær sem Prince notast
mikið við.
í útsetningum er raunar svo
víða komið við að það er ekki
einfalt mál að átta sig á öllum
grautnum. Sjálfsagt hrista ein-
hverjir aðdáem
hér hefur verið
valda, hausinn
þegar þeir heyr
ger“. En að mín]
hausahristingart _ ___________
inni eins og öðrum listgreinum er
ekkert nema gott h»gt að segja
um holl áhrif þeÍFra sem hafa
skaraðframúr. AhiFÍfíivaldar Win
eru allir hershö^^ar í rokk-
inu. Bowie átti siiiníþátt í því að
áttundi áratugutfcpjimrð ekki að
einu allsherjarV- mðurlægingar-
tímabili í rokkinú, þó hann hafi á
seinni árum hápKflfan í iðnað-
armaskínuna, þaf s«'m pening-
arnir eru meiii|í|*jK$ce er síðan
óuppgert dæmi þó að áhrif hans
séu þegar orðin mikil og frum-
leiki hans sé óumdeilanlegur.
„Freaky Trigger" er þunglétt
plata og tilvalin undirleikur
við hækkandi sól þegar við íbúar
ísafoldar skríðum undan leiðin-
legum vetri. Á geisladisknum eru
aukalega endurblöndur (remix) á
lögunum „Love units" og „Whats
love if you can kill for Choco-
late“. Þeir sem ekki hafa aðgang
að geislaspilara geta keypt þessar
endurblöndur á.lJý,1 jplötu.
-hmp
Föstudagur 28. apríl 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25