Þjóðviljinn - 12.05.1989, Síða 32
Eykon
næsti formaður?
Eyjólfur Konráð Jóns-
son, alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins hyggst gefa
kost á sér sem næsti formað-
ur Sjálfstæðisflokksins. Því er
að minnsta kosti haldið fram í
næsta eintaki tímaritsins
Heimsmyndar og ku vera haft
eftir Eyjólfi sjálfum. Lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins var
á sínum tíma frestað vegna
afmælishátíðar flokksins því
þar á bæ tóku menn ekki þá
áhættu á að formannsslagur
eða aðrar uppákomur vörp-
uðu skugga á þá hátíð.
íslenskir draugar,
A-Ö
Ættfræði og persónufróð-
leikur allskyns hefur löngum
verið gagn og gaman íslend-
inga einsog við vitum öll,
mörg og fá í senn, og ein
qreinin á þeim meiði er fjöl -
skrúðugtúrvalaf starfsstétta-
og félagshópatölum: Lögfræö-
ingatal, Læknar á Islandi,
Sveitarstjórnarmannatal,
Kennaratal, Æviskrár MA-
stúdenta, að ógleymdum ís-
lenskum æviskrám af al-
mennara tæi.
Nú er von á nýju tali af
þessari gerð og var kominn
tími til. Það er „íslenskt
vættatal“ þarsem verða
skrásettir og æviraktir allir
nafnkenndir mórar, skufsar,
skottur, fjörulallar, útburðir,
uppvakningar, afturgöngur,
þorgeirsbolar, og aðrarforynj-
ur frá upphafi íslandsdaga og
til vorra tíma.
Það er auðvitað Árni
Björnsson þjóðháttafræð-
ingur sem þetta tekur saman,
og gæti ritið skartað sínu feg-
ursta á bókahillum lands-
manna eftir næstu jól. Til
dæmis við hliðina á
alþingismannatalinu?B
Óíslenskur
útflutningur?
Talsverður urgur hefur ver-
ið í framkvæmdamönnum í
sjávarútvegi og öðrum útflutn-
ingsgreinum vegna nýstofn-
aðra útflutningsverðlauna
forseta íslands, en þau voru
ákveðin af nefnd manna sem
áttu að teljast sérfróðir um út-
flutningsmál.
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
am a fékk verðlaunin og tók
Jón Ingvarsson ísbjarnar-
bróðir við þeim á Bessastöð-
um á sumardaginn fyrsta.
Þessi verðlaunaafhending
þótti að því leyti ekki ýkja
frumleg, að nú yrðu öll hin
stórfyrirtækin að fá sitt, SÍS,
Flugleiðir, Eimskip, en hitt
þótti auðvitað verra að gengið
var framhjá vaxtarbroddinum
í útflutningi hjá litlu fyrirtækj-
unum.
Útflutningsverðlaunum
forsetans fylgir réttur til að
nota sérstakt verðlaunamerki
á vörurnar í nokkur ár eftir af-
hendingu. En þar vandast
málið fyrir Sölumiðstöðina.
Hún fékk verðlaunin nefnilega
annarsvegar fyrir fiskrétt sem
búinn er til í verksmiðjunum í
Grimsby á Englandi, og ekki
úr íslensku hráefni heldur
marningi frá Suður-Ameríku.
Og hinsvegar voru verðlaunin
veitt SH vegna einkaframtaks
Hvaleyrar í Hafnarfirði og HB
á Skaga en þau hús flytja út
tilbúinn fiskrétt til Ameríku. Sá
réttur er seldur undir amerísk-
um vörumerkjum og kemur
hvergi fram að (sland eða SH
komi við sögu.
En þeir hjá SH geta kannski
notað forsetamerkið á bréfs-
efnið hjá sér?B
BORN EIGA BETRA
SKILIÐ!
Fullorðna fólkið mótar umhverfi borgarbarna engu síður en sjálf náttúran.
Með því að láta glerbrot, úðabrúsa, einnota kveikjara
og sígarettustubba liggja á almannafæri egnum við slysagildrur fyrir litla fólkið.
Lítum í kringum okkur - forðum börnum okkar frá óhöppum!
LÁTTU EKKI HTT EFTIR LIGGIA!
ARGUS/SlA