Þjóðviljinn - 23.06.1989, Síða 10
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Austurlandi:
Um söguslóðir á Fljótsdalshéraði
laugardaginn 8. júlí 1989.
Farið verður í rútum kl. 9 frá Söluskála KHB á Egilsstöðum og ekið um
Skriðdal, Fljótsdal, Fell, Hróarstungu og austur yfir hjá Lagarfossi til baka í
Egilsstaði kl. 19. - Bílferðir verða skipulagðar frá fjörðunum eftir þátttöku.
Staldrað verður við á völdum sögustöðum, skoðaðar fornminjar á gömlum
þingstöðum, kirkjur og bæir og fræðst um umhverfið, m.a. væntanleg
skógræktarsvæði á Héraði.
Meðal leiðsögumanna verða Guðrún Krlstinsdóttir minjavörður, Helgi
Hallgrímsson náttúrufræðingur, Jón Loftsson skógarvörður, Páll Páls-
son fræðimaður frá Aðalbóli og Skarphéðinn Þórisson líffræðingur. Far-
arstjóri: Hjörleifur Guttormsson.
Tllkynnið þátttöku sem fyrst til Ferðamiðstöðvar Austurlands, Egils-
stöðum, sími (97)1 20 00.
öllum heimil þátttaka. - Alþýðubandalaglð - kjördæmisráð.
Sumarferð ABR
Áskorun
Vegna fyrirhugaðrar ferðar Heimavarnaliðsins á
Miðnesheiði, laugardaginn 24. júní, hefurstjórn
Alþýðubandalagsins í Reykjavík ákveðið að fella
niður Sumarferð ABR á sömu slóðir sem vera átti
ámorgun.
Stjórn ABR hvetur alla félagsmenn til að fylkja liði
og styrkja Heimavarnaliðið með því að taka þátt í
aðgerðum þeirra þennan dag.
Förum öll með Heimavarnaliðinu frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 10.00 f.h.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Fundur í bæjarmálaráði
Fundur verður í bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins í Kópavogi mánu-
daginn 26. júní klukkan 20,30 í Þinghól Hamraborg 11.
Dagsskrá:
1. Starfið framundan. _ , „ ,
2. önnur mál. Stjórnln.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Jakob Jónsson
fyrrverandi sóknarprestur
sem lést á Djúpavogi 17. júní verður jarðsunginn frá Hall-
grímskirkju mánudaginn 26. júní kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hallgrímskirkju í
Reykjavík.
Póra Einarsdóttir
Guðrún Sigríður Jakobsd. Hans W. Rothenborg
Svava Jakobsdóttir Jón Hnefill Aðalsteinsson
Þór Edward Jakobsson Jóhanna Jóhannesdóttir
Jón Einar Jakobsson Gudrun Jakobsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku dóttir okkar, stjúpdóttir, barnabarn og systurdóttir,
Harpa Rut Sonjudóttir,
sem lóst af slysförum 15. júní, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni mánudaginn 26. júní kl. 15.
Sonja B. Jónsdóttir Guðmundur Kristjánsson
Engilbert Jensen Aðaiheiður Jensen
Guðrún Sigurgeirsdóttir Jón G. ívarsson
Sigurgeir Jónsson Ivar Jónsson
Fannar Jónsson
og fjölskyldur
ÍÞRÓTTIR
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Snjallir kastarar
íslendingar státa nú af fimm kösturum í fremstu röð
Einar Vilhjálmsson hafnaði í öðru sæti í Tókýó en á möguleika á að
hefna í Helsinki í næstu viku.
Mestu afreksmenn okkar ís-
lendinga í frjálsum íþróttum hafa
jafnan verið keppendur í kast-
greinum. AUt frá því Gunnar
Huseby vann Evrópumeistaratit-
ilinn í kúluvarpi 1946 hafa margir
snjailir kastarar komið fram á
sjónarsviðið og skemmst að
minnast þess að Einar Vilhjálms-
son var valinn íþróttamaður árs-
ins um síðustu áramót. Nú er útlit
fyrir gott sumar hjá íslenskum
kösturum og hafa þeir þegar náð
frarnbærilegum árangri.
Varla þarf að geta þess að Ein-
ar Vilhjálmsson er spjótkastari í
allra fremstu röð. Hann vann sín
allra bestu afrek á síðasta ári ef
frá er talinn árangur hans á Ól-
ympíuleikunum í Seoul. Einar er
í góðu formi um þessar mundir.
Keppti hann á sínu fyrsta móti í ár
í Tókýó um síðustu helgi. Þá atti
hann kappi við Japanann Kazu-
hiro Mizoguchi sem á annað
lengsta kastið í heiminum, eða
87,60 metra. Einar hafnaði í öðru
sæti á mótinu í Tókýó, kastaði
80,50 metra en Mizoguchi kast-
aði 1,10 metrum lengra. Þess má
geta að V-Þjóðverjinn Klaus Taf-
elmeier, sem varð Evrópu-
meistari 1986, varð þriðji í
Tókýó, kastaði 78,18 metra.
Sigurður Einarsson sem keppti
einnig í Seoul gæti einnig veitt
fremstu spjótkösturum harða
keppni. Hann hefur staðið í
skugga Einars undanfarin ár en
hefur sýnt að lítið vantar upp á að
hann komist á toppinn.
Tveir kastarar náðu góðum ár-
angri á meistaramóti Rugleiða
sem fram fór í Laugardalnum um
síðustu helgi. Vésteinn Haf-
steinsson er nú kominn í allra
fremstu röð kringlukastara í
heiminum og var árangur hans
um síðustu helgi mjög góður.
Hann kastaði 66,26 metra sem er
annað besta kast hans frá upp-
hafi, aðeins nýsett íslandsmet
hans er betra eða 67,64 metrar.
Þessi árangur er með því besta í
heiminum og virðist Vésteinn
eiga ágæta möguleika á góðum
árangri í Grand Prix mótunum í
sumar. Þá hefur Vésteinn sjaldan
verið eins öruggur í sínum
köstum og nú en flest köst hans
eru yfír 65 metra.
Sigurður Matthíasson er spjót-
kastari á uppleið og setti hann
persónulegt met á mótinu síðustu
helgi. Kastaði hann 78,10 metra
sem er rétt tæpum metra styttra
en þarf til að hljóta þátttökurétt á
Grand Prix mótunum. Sigurður
virðist ætla að verða okkar þriðji
spjótkastari í fremstu röð um
þessar mundir og mega Einar Vil-
hjálmsson og Sigurður Einarsson
fara að vara sig á mótum hér á
landi. Þá er Pétur Guðmundsson
kúluvarpari enn á uppleið og gæti
hann náð góðum árangri í náinni
framtíð. Hann kastaði 19,53
metra um síðustu helgi en líklegt
er að hann kasti vel yfir 20 metra í
sumar. íslandsmet Hreins Hall-
dórssonar fer að verða í hættu.
íslendingar hafa einatt státað
sig af því að eiga sterka menn og
eru frjálsíþróttamenn öðrum þar
engir eftirbátar. Það er staðreynd
að við höfum náð bestum árangri
í greinum sem reyna mest á
líkamlegan styrk og eru kastarar
okkar dæmi um það.
Á fímmtudag í næstu viku
keppa tveir íslendingar á
heimsleikunum í frjálsum íþrótt-
um. Það eru þeir Einar Vil-
hjálmsson og Vésteinn Haf-
steinsson og verður gaman að sjá
þá í beinni útsendinu í sjónvarp-
inu eiga við alla fremstu keppnis-
menn í þessum greinum. Við
vonum að þeim gangi vel sem og
öðru frjálsíþróttafólki á næst-
unni.
MINNING
Kjartan Þorsteinsson
Fæddur 16. janúar 1913 - Dáinn 18. júní 1989
Aðfaranótt sunnudagsins 18.
júní s.l. lést gamla verkalýðs-
kempan Kjartan Þorsteinsson á
heimili sínu hér í Ólafsvík.
Ég kynntist Kjartani fljótlega
eftir komu mína til Ólafsvíkur,
fyrir níu árum. Hann kom mér
strax fyrir sjónir, sem einn hinna
gömlu verkalýðssinna, sem aldrei
missti sjónar af þörfum hins vinn-
andi manns og að baráttunni yrði
að halda áfram.
Við Kjartan áttum gott sam-
starf í nefndum á vegum bæjar-
ins, þar sem mér fannst eiginleik-
ar hans og réttsýni koma vel
fram. Áhugi hans fyrir uppgangi
Ólafsvíkur var sannur og þoldi
hann illa úrtölumenn. Mér fannst
sanngirni hans aldrei bregðast.
Kjartan gekk til vinnu sinnar til
hinsta dags, teinréttur og íhugull.
Ég mun sakna þeirrar ímyndar,
sem hann var verkalýðsforyst-
unni hér, minning hans mun lifa í
Ólafsvík.
Ég vil að leiðarlokum þakka
góðum samferðarmanni ánægju-
leg kynni og votta fjölskyidu hans
mína dýpstu samúð.
Kristján Pálsson
10 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ {Föstudagur 23. júní 1989