Þjóðviljinn - 04.10.1989, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 4. október 1989 166. tölublað 54. órgangur
Rqfiðnaðarmenn
Verkfallsátök harðna
Útvarpshúsinu lokað fyrír óviðkomandi og skipt um skrá í húsi Sjónvarpsins
Geysileg harka virðist vera að
færast í verkfall rafiðnaðar-
manna hjá ríkinu sem staðið hef-
ur frá því á miðvikudag. í gær
dró verkfallsnefnd rafiðnaðar-
manna til baka allar undanþágur
sem veittar höfðu verið til Ríkis-
útvarps - Sjónvarps og því svar-
aði yfirstjórn Ríkisútvarpsins
með því að loka Útvarpshúsinu
við Efstaleiti fyrir öllum óvið-
komandi og skipt hefur verið um
skrá í húsi Sjónvarpsins við
Laugaveg.
Þá höfnuðu rafiðnaðarmenn
öllum undanþágubeiðnum frá
Pósti og síma nema þeim sem
snúa að öryggismálum og er þeg-
ar farið að gæta truflana í síma-
kerfi Reykjavíkur. Um 200 6
stafa númer eru óvirk með öllu og
erfiðleikum bundið að ná sam-
bandi við númer sem byrja á tölu-
stöfunum 3 og 8. Einnig er erfitt
að ná sambandi í farsímakerfinu
vegna álags og bilana. Pá er
Mjólkárvirkjun símasambands-
laus.
A fjölmennum félagsfundi raf-
iðnaðarmanna í gærmorgun var
samþykkt að draga til baka þær
undanþágur sem veittar höfðu
verið Ríkisútvarpinu - Sjón-
varpi. Að sögn Viðars Oddgeirs-
sonar í samninganefnd rafiðnað-
armanna var veitt leyfi til útsend-
inga með hefðbundnum hætti frá
dagskrárbyrjun hvers dags til
kvöldfrétta í sjónvarpinu, að því
undanskildu að ekki verði sendar
út auglýsingar, kynningarefni né
dagskrárakynning. Að sögn
Viðars geta rafiðnaðarmenn sætt
sig við að fréttir verði lesnar af
einum fréttamanni og sendar út
frá þularklefa aðalstjórnar. Þá
samþykktu rafiðnaðarmenn að
veðurfræðingi verði gert kleift að
sitja við hlið fréttamanns og lýsa
veðri og veðurhorfum, en þó án
myndbirtinga.
Hið sama gildir um útvarpið.
Heimild var veitt fyrir fréttalestri
frá einum fréttamanni, dánartilk-
ynningar leyfðar auk veðurfrétta
en þess á milli að spiluð verði ó-
kynnt tónlist.
Yfirmenn Ríkisútvarpsins
funduðu um stöðuna í gær og á-
kváðu að reyna til þrautar að
halda útsendingum útvarps og
sjónvarps áfram í óbreyttri mynd
með því að yfirmenn tæknideilda
og tæknimenn í BSRB sinni störf-
um tæknimanna í verkfalli. í bréfi
útvarpsstjóra til verkfallsnefndar
er haft í hótunum við verkfalls-
menn þar sem útvarpið áskilur
sér rétt til að krefja þá starfsmenn
Ríkisútvarpsins um skaðabætur
sem lagt hafa niður vinnu án lög-
mætra ástæðna þar sem ríkislög-
maður hefur vefengt lögmæti ver-
kfallsins samkvæmt lögum frá
1915.
Þessu vísa rafiðnaðarmenn á
bug með þeim rökum að með
Vinnulöggjöfinni frá 1938 sé
öllum aðildarfélögum Alþýðu-
sambandsins tryggður verkfalls-
og samningsréttur. Þetta mál
verður tekið til alvarlegrar um-
fjöllunar á miðstjórnarfundi ASÍ
sem haldinn verður í dag. -grh
Á félagsfundi rafiðnaðarmanna í gær voru allar undanþágur í verkfalli sem varað hafa í fimm daga en sú hönd er að komast í það að vera í
dregnartil baka nema þær sem snúa að öryggismálum. „Við höfum kyrrstöðu," sagði Viðar Oddgeirsson í samninganefnd rafiðnaðar-
boðið útrétta sáttahönd til lausnar þessari deilu með undanþágum manna, t.h. á innfelldu myndinni. Mynd: Kristinn.
Verkamannqfélagið Hlíf
Lambakjöt sniðgengið
FélagsfundurHlífarávítarríkisstjórnina vegna verðlags. Laun verði
vísitölutryggð
Borgarráð
Dagvistun og
strætó hækka
Frá og með næstu mánaða-
mótum hækka gjöld fyrir for-
gangshópa að dagvistun borgar-
innar úr 6.700 krónum á mánuði í
7.900 og annarra úr 11.200 krón-
um í 13.200 eða um 18%. Þetta
var samþykkt á fundi borgarráðs
í gær.
Þar var einnig samþykkt að
hækka fullorðinsfargjöld með
Strætisvögnum Reykjavíkur um
10% eða úr 50 krónum hver ferð í
55 krónur. Fargjöld barna hækka
um 14% úr 14 krónum í 16 krón-
ur.
Felld var tillaga frá Kristínu Á.
Óiafsdóttur og Sigrúnu Magnús-
dóttur að dagvistunargjöld hækk-
uðu ekki meir um en um 9% og
einnig var tillögu minnihlutans
um að nemendur 12 ára og eldri
fengju helmingsafslátt í strætó
vísað til umsagnar hjá skrifstofu-
stjóra SVR. -grh
Fundur í Verkamannafélaginu
Hlíf í Hafnarfirði vítir ríkis-
stjórnina fyrir að standa ekki við
þau loforð í verðlagsmálum sem
hún gaf verkalýðshreyfingunni
við gerð síðustu kjarasamninga,
segir í ályktun sem samþykkt var
á félagsfundi Hlífar á mánudag. í
stað þess að standa við loforðin
hafi ríkisstjórnin stuðlað að verð-
hækkunum á vöru og þjónustu
langt umfram launabreytingar.
í ályktuninni segir ennfremur
að verðhækkanir á landbúnaðar-
vörum séu sérstaklega vítaverð-
ar, verð á þeim sé ekki lengur í
neinu samræmi við almenna
kaupgetu í landinu. Hvetur fund-
urinn verkalýðshreyfinguna til að
standa fyrir víðtækum mótmæl-
um gegn fyrrgreindum verð-
hækkunum, einkum á landbún-
aðarvörum. Fyrsta skrefið í þeim
mótmælaaðgerðum eigi að vera
áskorun til alls launafólks um að
hætta að kaupa dilkakjöt, meðan
verð á því sé venjulegu launafólki
ofviða.
Félagsfundur Hlífar ályktaði
einnig um komandi kjarasamn-
inga. Þar segir að fundurinn leggi
ríka áherslu á að víðtæk samstaða
náist um það innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, að kaupmáttur
verði tryggður miðaður við vísi-
tölu framfærslukostnaðar. Stór-
átak verði gert í byggingu félags-
legs húsnæðis svo leysa megi
húsnæðisvanda launafólks. Þá
vill fundurinn að iðgjalda-
greiðslur launafólks í lífeyrissjóði
falli niður en að iðgjaldagreiðslur
atvinnurekenda til lífeyrissjóð-
anna hækki sem því nemur.
Fundurinn vill líka að frjáls inn-
flutningur á landbúnaðarvörum
verði leyfður, ef ekki komi til
verulegrar verðlækkunar á inn-
lendum búvörum.
-hmp
Fjárlög
Halliim
þrír
miljaröar
ÓlafurRagnar Grímsson:
Vil ekki segja neitt um
tölurfjárlagafrumvarps
fyrr en það erfrágengið.
Fyrsti hlutifrumvarps í
prentun í dag
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra vill hvorki stað-
festa né neita þeim tölum sem
fram hafa komið í fréttum varð-
andi niðurstöðutölur fjárlaga-
frumvarpsins fyrir næsta ár. En í
fréttum sjónvarps á mánudag var
sagt að stefnt væri að þriggja
miljarða halla á fjárlögum næsta
árs, niðurskurði upp á tvo milj-
arða og að hallinn á þessu ári yrði
að öllum líkindum 5 miljarðar.
í samtali við Þjóðviljann sagð-
ist Ólafur ekki vilja brjóta þá
vinnureglu sem hann hefði haft í
fjármálaráðuneytinu, að fjalla
ekki um hlutina fyrr en þeir gerð-
ust. Þetta gilti einnig um fjárlaga-
frumvarpið. Það væri í vinnslu og
hann vildi ekki tjá sig um ein-
staka hluta þess fyrr en það væri
tilbúið.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er sú tala sem sjónvarpið
nefndi nærri lagi. í ríkisstjórninni
séu menn að tala um halla ein-
hvers staðar í kring um 3 milj-
arða. Líkur eru á að fyrsti hluti
fjárlagafrumvarpsins fari í prent-
un í dag og í fjármálaráðuneytinu
er enn stefnt að því að leggja
frumvarpið fram á Alþingi þann
11. október nk. en þing kemur
saman þann 10. október.
-hmp
Landgrœðsla
Fátt er svo
með öllu illt
Safnast hafa 1,3 miljónir
króna með auglýsingum á
plastpokum ATVR
Landgræðslu ríkisins voru í
gær afhentar 1,3 miljónir króna
til starfsemi sinnar til viðbótar
við hefðbundnar fjárveitingar.
Féð er komið frá auglýsingum á
burðarpokum sem ÁTVR ákvað
að bjóða viðskiptavinum sínum
eftir að sala bjórs hófst 1. mars sl.
Að sögn Sveins Runólfssonar
landgræðslustjóra verður fénu
ekki varið í eitt ákveðið verkefni
heldur fer það í verndun á friðuð-
um svæðum á nokkrum stöðum á
landinu. Um er að ræða alhliða
landgræðslu en Sveinn sagði
verkefnin því miður vera ótelj-
andi.
Það er fyrirtækið Plastprent
sem annast hefur gerð allra
plastpoka fyrir ÁTVR og seldi
auglýsingar á pokana í nafni
Landgræðslunnar. í upphafi
styrkti Mjólkurdagsnefnd þetta
átak en síðar bættust Trygging
hf., Osta- og smjörsalan og Vá-
tryggingafélag íslands í hópinn.
-þóm