Þjóðviljinn - 20.10.1989, Blaðsíða 8
Málgagn sosíalisma, þjóöfrelsis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: HallurPáll Jónsson
Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Afgreiðsla:®68 13 33
Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31
Stmfax:68 19 35
Verð:ílausasölu 140krónur
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Risna og
pólitík
Mönnum finnst oftar en ekki undarlegar áherslur í ís-
lenskum fjölmiðlum - og svo í viðbrögðum við því sem
þeir tönnlast á. Til dæmis að taka verða viðbrögð venju-
lega mjög sterk og hlaðin afdráttarlausri fordæmingu
þegar embættismaður eða ráðherra misstígur sig við að
draga að sér veisluföng. Þá vita allir- um skamma stund
að minnsta kosti - hvar Davíð ölið keypti og hvernig við
því eigi að bregðast. Út af slíkum málum verður svo mikill
gauragangur að fyrr eða síðar fara menn að klóra sér í
hausnum yfir því, hve mikill munur er á viðbrögðum við
slíkum hneykslismálum, sem kannski varða ekki stórar
upphæðir í peningum talið, og svo viðbrögðum við meiri-
háttar fjárglæfrum, kannski upp á mörg hundruð miljónir
króna.
Á þessu eru vitaskuld margar skýringar. Ein sú helsta
gæti verið sótt í fræga bók um Parkinsonlögmálið: í fyrir-
tæki munu menn samþykkja fjárveitingar upp á tugmiljón-
ir andmælalaust en rífast hart um það hvort eigi að koma
upp stæði fyrir reiðhjól sem kostar nokkrar þúsundir. Blátt
áfram af því að stórar upphæðir eru einhver afstrakt
yfirþyrming sem menn eiga erfitt með að koma í tengsl við
sinn hvunndagsveruleika, en smærri upphæðirnar eru
eitthvað sem er innan hversdagsreynslu hvers og eins.
Eins er það með ódýr drykkjarföng og ókeypis veisluhöld
- það er eitthvað sem allir skilja og vildu gjarna í komast,
meðan að hundruð miljóna sem fara í súginn í einhverjum
Hafskipsmálum eru eins og súgur úr fjarska, sem fáum
dettur í huga að tengja við þá skattabyrði sem hver og
einn ber.
En þótt mönnum sýnist einatt misskipt hneykslunar-
hæfni fólks, þá mega menn ekki halda að viðbrögð við
ráðherravíni, risnu og þvíumlíku séu ómerkileg og að
engu hafandi. Siðferðilegir dómar sem almenningurfellir
um þá hluti eru eðlilegir og sjálfsagðir blátt áfram vegna
þess, að það hlýtur að ráða miklu um orðstír stjórnmála-
manna og embættismanna hvernig þeir umgangast þau
fríðindi sem þeir hafa í mörgum tilvikum tekið sér nokkurt
sjálfdæmi um. Hér er alltaf verið að halda persónuleg
próf, sem allir telja sig eiga auðvelt með að átta sig á. Það
er auðvitað leiðinlegt ef menn geta ekki hneykslast af
stórsvindli vegna þess að athyglin er bundin af smærri
hlutum eins og þeim sem hér eru ræddir. En þessir
smærri hlutir eru ekki lítilfjörlegir: Þeir ráða miklu um það
álit sem stjórnmál og stjórnmálamenn yfir höfuð njóta, um
virðingu alþingis, Hæstaréttar og þar fram eftir götum.
Því er sjálfsagt að taka undir hugmyndir um og áform
um að setja ótvíræðari reglur um áfengiskaup, risnu,
dagpeninga og annað þessháttar. Vinstristjórnin sem við
tók árið 1971 afnam ótakmarkaðar heimildir ráðherra til
áfengiskaupa á kostnaðarverði - en þær reglur sem við
tóku um ráðuneytaafgreiðslu þeirra mála hafa ekki reynst
nógu þéttar eða gliðnað síðan. Því er líklega skynsam-
legast að hætta með öllu að selja áfengi á kostnaðarverði
til æðstu stofnana ríkisins: Þá gera menn sér væntanlega
betur grein fyrir því en áður hvað gleypt er og til hvers. í
annan stað eru vafalaust réttmætar athugasemdir, sem
endurskoðunarmenn ríkisreikninga nú gera við gjörsam-
lega óþörf flottheit á greiðslu ferðakostnaðar fyrir æðstu
menn í opinberri þjónustu. Það sparast ef til vill ekki háar
upphæðir á því að tekið sé á þessum málum - en það
hefur mikið fordæmisgildi að það sé gert. Ekki síst á þeim
tímum þegar fríðindalaust fólk og lágt launað er beðið að
taka á sig skakkaföll vegna samdráttar í þjóðarbú-
skapnum. ÁB
8 SÍÐÁ-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. október 1989
Hallgrímsljóð
í tveim bindum
Þessi útgáfa er gott og þakkar-
vert verk, sagöi Ólafur Skúlason
biskup þegar hann tók viö fyrstu
eintökum nýrrar útgáfu á sálmum
og kvæöum Hallgríms Péturs-
sonar í tveim bindum, sem Hörp-
uútgáfan á Akranesi hefur frá sér
sent.
Útgáfan er í tveim bindum og
komst Bragi Þórðarson útgefandi
svo að orði að tilgangur hennar
væri að gefa almenningi kost á
úrvali verka Hallgríms í aðgengi-
legu formi - um leið og Hörpu-
menn gerðu sér grein fyrir því að
mikil nauðsyn væri á þeirri fræði-
legu heildarútgáfu á verkum
Hallgríms sem Árnastofnun nú
vinnur að.
Helgi Skúli Kjartansson sá um
Passíusálmabindi útgáfunnar, en
þetta er 78. prentun þeirra sálma
á 330 árum. Hann lét þess getið
að hann hefði farið sem næst
eiginhandriti Hallgríms sjálfs.
Páll Bjarnason sá um það bindi
útgáfunnar sem geymir úrval
sálma og kvæða Hallgríms. Hann
Jámgaldrar
Sigurjóns
Á morgun verður opnuð í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar sýning á verkum sem hann vann á árun-
um 1960-62, á meðan hann dvaldist á Reykjalundi.
Eru flest verkin unnin úr j árni, og voru fy rstu my nd-
irnar frá þessu tímabili á ferli Sigurjóns unnar upp úr
fornum íslenskum galdrastöfum. Voru sumar þess-
ara mynda sýndar á sýningu Sigurjóns í Bogasal
Þjóðminjasafnsins haustið 1961.
Sýningin mun standa í allan vetur, og hefur Lista-
safnið gefið út vandaða sýningarskrá af þessu tilefni,
þar sem birtar eru Ijósmyndir af öllum verkunum og
grein eftir Aðalstein Ingólfsson listfræðing, þar sem
hann gerir grein fyrir járnmyndum Sigurjóns með
tilliti til heildarferils hans og þeirra hræringa sem þá
voru í evrópskri myndlist.
Á sýningunni eru einnig aðföng og gjafir, sem
safninu hafa borist, meðal annars myndir frá árun-
um 1936-46, sem hafa verið í einkaeign í Danmörku.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar verður opið í vet-
ur á laugardögum og sunnudögum kl. 14-17 og öll
þriðjudagskvöld milli kl. 20 og 22.
kvaðst hafa átt við tvennskonar
vanda að glíma: annarsvegar að
komast að réttum texta, en um
eiginhandrit er vart að ræða, upp-
skriftir misgóðar og ýmsar villur
hafa slæðst inn í fyrri útgáfur.
Hinn vandinn er svo valið sjálft.
Hér sé nú um helmingur Hall-
grímskvers, sýni tekin af öllum
tegundum kveðskapar Hallgríms
(þ.á m. úr rímum hans) og svo af
þekktum „vafagemlingum“ -
kvæðum eignuðum Hallgrími.'
Og ræður það m.a. valinu hvaða
kvæði besta standast tímans tönn
og eru aðgengileg fyrir ungt fólk
enn í dag.
Sr. Jón Einarsson í Saurbæ tók
undir þakkarorð biskups um út-
gáfuna. Hann minnti á mikil og
margvísleg áhrif Hallgríms Pét-
urssonar: Nú síðast voru menn á
Hvalfj arðarströnd að bora eftir
heitu vatni og voru komnir 600
metra niður árangurslaust: Þá
hétu þeir á Hallgrímskirkju í
Saurbæ. Og viti menn: upp komu
28 sekúndulítrar af 84 gráða heitu
vatni!
Guðjón Ingi Hauksson hefur
annast bókaskreytingar í þessa
útgáfu og hafði til hliðsjónar bib-
líuhandrit frá 15. öld.
Helgarveðrið
Veöurhorfur á laugardag og sunnudag:
Na-átt um allt land. Skúrir en síðan slyddu- eða snjóél við norður- og jafnvel austurströndina, en léttskýjað
sunnan lands og vestan.
Hiti 2-8 stig á laugardag en 0-6 stig á sunnudag.